Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 48
48 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
GÓÐUR
FERÐA
FÉLAGI
MOKKAKANNA
6. BOLLA – 5.990,-
70 ÁRA Friðrik Ás-
mundsson Brekkan er sjö-
tugur í dag. Hann hefur
lengi starfað með ólíkum
þjóðum heimsins í sendi-
ráðum og sem leiðsögu-
maður. Hann hefur komið
víða við og flakkað heims-
hornanna á milli, eignast
vini um allan heim og talar
ein níu tungumál.
Á árunum 1970-1980
setti Friðrik á laggirnar
lítið fyrirtæki sem sér-
hæfði sig í silkiþrykki, eða
prentun á boli, fána og
spjöld, aðeins 19 ára að
aldri. Á árunum 1974-1977
flutti hann inn sjúkrabíla
til landsins, þá um 23 ára.
Ævintýraþrá opnaði dyrn-
ar fyrir starfi sem
leiðsögumaður á Kan-
aríeyjum veturna 1975-
1979. Fjölþjóðamaður
með sænskar rætur vann
Friðrik síðar störf í
bandaríska sendiráðinu á
árunum 1982-1987,
sænska 1994-1997 og í því finnska í eitt ár.
Friðrik hefur ásamt fjölskyldu sinni ferðast til ótal landa og kynnst ólíkum
menningarheimum.
Kona Friðriks er Jóhanna Jóhannsdóttir, f. 1962, þau eru búsett í Hafnar-
firði. Dætur þeirra eru Júlía Brekkan, f. 1994, og Ragna Brekkan, f. 1996.
Friðrik átti fyrir þau Hönnu Friðriksdóttur, f. 1970, og Vilhjálm Goða Frið-
riksson, f. 1972. Barnabörnin eru Finnbogi Vilhjálmsson, f. 1989, og Guðrún
Gígja Vilhjálmsdóttir, f. 2004. Barnabarnabarnið er Ólafur Ingi Finnboga-
son, f. 2021.
Friðrik Á. Brekkan
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þótt öllum líki ekki málflutningur
þinn þýðir það ekki að þú eigir að þegja.
Sambönd sem ganga vel og ánægjulega
með lítilli fyrirhöfn geta orðið eins og
sjálfsagður hlutur.
20. apríl - 20. maí +
Naut Það er gott að þekkja til viðmæl-
anda síns. Mundu að þú getur lært margt
um sjálfa/n þig af samskiptum þínum við
aðra og því hvernig þú tekur á hlutunum.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú verður að átta þig á aukinni
þörf fyrir einveru. Haltu kvittunum til
haga. Notaðu hvert tækifæri til að fara
þér hægar í lífinu.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Það er auðvelt að hugsa bara um
eigin mál, sérstaklega þegar þau eru hrein
skemmtun. Ef þú ferð ekki vel með þig
nýtist þú engum.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Ekki hika við að breyta útliti þínu í
dag. Þér fer fram í því að segja nei.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Þú skammast þín ekki fyrir tilfinn-
ingar sínar og uppskerð heilbrigði fyrir
vikið. Vertu bjartsýn/n og opnaðu hjarta
þitt.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Notaðu daginn til að taka því létt og
slappa af. Vertu umburðarlynd/ur og láttu
ekki aðra fara í taugarnar á þér.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Gættu þess að búa sjálfum
þér og fjölskyldunni öruggt skjól. Sýndu
manneskju sem er með mikinn fagurgala
tortryggni. Pískur um aðra á ekki upp á
pallborðið hjá þér.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Það er engin ástæða til sjálfs-
vorkunnar, þótt þú þurfir að leggja þitt af
mörkum heima fyrir. Láttu aðra um að
hafa áhyggjur af öllu og engu.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Beittu orku þinni á jákvæðan
hátt til að koma verkefnum þínum í fram-
kvæmd. Ástarsamband er á hreinu og þú
munt áfram svífa um á bleiku skýi.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það væri óviturlegt að taka
þátt í veðmálum í dag. Hógværð er dyggð.
Dagurinn verður frábær í alla staði.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Lífið hefur mikinn tilgang núna,
þar sem viss manneskja leikur stórt hlut-
verk. Ekki leita langt yfir skammt. Þér
verður boðið í dekur.
legum verkefnum. Ég hafði umsjón
með verkefnum ÍAV á Austurlandi
og sat í stjórn Kollufells sf. sem
reisti 2.000 manna vinnubúðir við
Álver á Reyðarfirði. Ég vann að
stofnun ÍAV-þjónustu ehf. sem var
Íslenskum aðalverktökum 1.10.
2003 og vann þar til 2015, lengst-
um sem framkvæmdastjóri mann-
virkjasviðs. „Ég sá um umsvif fé-
lagsins önnur en húsbyggingar og
tók þar þátt í ýmsum skemmti-
S
igurður Sigurðsson fædd-
ist 21. apríl 1961 í
Reykjavík og ólst upp í
Smáíbúðahverfinu. Ég
æfði handbolta og fót-
bolta með Víkingi og er reyndar
fæddur á afmælisdegi Víkings, 21.
apríl,“ og var Sigurður formaður
handknattleiksdeildar Víkings
1993-1995. Hann var í sveit hjá
móðursystur sinni, á Kornsá í
Vatnsdal, í tvö sumur.
Sigurður gekk í Breiðagerðis-
skóla og Réttarholtsskóla og varð
stúdent frá Menntaskólanum við
Sund 1981. „Samhliða námi í
menntaskóla og í verkfræði vann
ég sumarvinnu við malbikunar-
framkvæmdir hjá fyrirtækinu Mið-
felli hf. Þar fékk ég áhuga á verk-
fræði og man stað og stund þegar
ég ákvað að verða verkfræðingur.
Ég fékk sem 18 ára flokksstjóri í
vinnuflokki Miðfells á Ísafirði að
sitja verkfund hjá Vegagerðinni
þar sem ræddar voru fram-
kvæmdir í bænum. Þar hlustaði ég
á verkfræðinga ræða verkefnið og
tæknilegar lausnir og vandamál og
ákvað þarna að fara í verkfræði.“
Sigurður lauk prófi í bygging-
arverkfræði við HÍ 1985 og mast-
ersprófi frá DTH í Kaupmanna-
höfn 1987. „Auk almennrar
verkfræðimenntunar reyndi ég að
sérhæfa mig í verkefnastjórnun,
vega- og slitlagagerð.“
Sigurður hóf störf hjá Hlaðbæ-
Colas hf. 1989 og var fram-
kvæmdastjóri frá 1.12. 1993.
„Fyrirtækið starfar við framleiðslu
og útlögn malbiks og var því kjör-
inn starfsvettvangur í kjölfar
sumarstarfa og menntunar.“ Sig-
urður var síðan framkvæmdastjóri
Steypustöðvarinnar 1.9. 2002 til
ágúst 2003. Ég réð mig til Steypu-
stöðvarinnar í spennandi verkefni
við að hagræða í rekstri og færa
fyrirtækið til nútímalegra stjórn-
unarhátta. Við náðum ágætum ár-
angri í rekstrinum, en eigendurnir
sem keyptu fyrirtækið í júní 2003
ákváðu að sameina Steypustöðina
ehf. og Steinsteypuna ehf., sem
einnig var í þeirra eigu.“
Sigurður hóf síðan störf hjá
stofnuð um samninga ÍAV um við-
hald fasteigna fyrir stærri fast-
eignafélög og eignir á Keflavíkur-
flugvelli. Ég sá um rekstur Ósafls
sf. um gerð Óshlíðarganga og síðar
Vaðlaheiðarganga og hafði for-
göngu og umsjón með uppbygg-
ingu umsvifa ÍAV í Noregi sem á
árinu 2011 varð til þess að félagið,
í samstarfi við Marti Contractor
(eiganda ÍAV), fékk sitt fyrsta
jarðgangaverkefni í Noregi. Vegna
aukinna umsvifa ÍAV og Marti í
Noregi var þörf á að koma framtíð-
arskipulagi á starfsemina, með
skrifstofu í Ósló. Tók ég að mér að
veita því starfi forstöðu og var þar
2013-2015.“
Frá 2016 hefur Sigurður verið
forstjóri Jarðborana hf. sem er
sérhæft borfyrirtæki á sviði jarð-
hita. Bæði er borað í leit að gufu
og heitu vatni. „Félagið aflar verk-
efna um allan heim og hef ég í
störfum mínum farið til ýmissa
landa sem maður annars færi ekki
til alla jafna, eins og Filippseyja,
Indónesíu, Nýja-Sjálands, Djibútís,
Eþíópíu og Síle. Ég hef því stóran
hluta af mínum starfsferli unnið í
samstarfi við erlend félög eða unn-
ið að verkefnum erlendis. Mitt
starf núna felst einmitt í að afla
verka erlendis og kljást við Covid.
Það eru engar nýframkvæmdir hér
á landi. Orkuöflun er ekki vinsæl-
asta orðið í dag og við höfum
kannski næga orku í bili, en við
þurfum meira af henni í framtíð-
inni.“
Sigurður er áhugamaður um
veiðar og golf og hefur farið holu í
höggi. „Ég er að mestu hættur í
rjúpna- og gæsaveiði en stang-
veiðin lifir enn. Ég legg mikið upp
úr golfferðum með vinahópi sem
einnig heldur góðu sambandi utan
golfsins. Við höfum farið í golf-
ferðir til Flórída, Dúbaí, Taílands,
Marokkós og fleiri landa. Svo er ég
að reyna að stunda meiri hreyfingu
og geng talsvert og keypti mér fyr-
ir tveimur árum mitt fyrsta reið-
hjól frá því að ég var 12 ára. Við
hjónin eigum síðan sumarbústað í
Grímsnesi þar sem við erum mikið.
Ég hef ekki þolinmæði í rólegheit
Sigurður Sigurðsson, forstjóri Jarðborana hf. – 60 ára
Ljósmynd/Þórdís Reynisdóttir
Fjölskyldan Sigurður, Ingibjörg, dætur þeirra, Aníta Eir barnabarn og
Guðbjörg, móðir Sigurðar, á 90 ára afmæli hennar 2017.
Með verkefni út um allan heim
Ljósmynd/Sigurður Elvar Þórólfsson
Golfarinn Sigurður mundar kylfuna
á El Plantio á Spáni 2018.
Ljósmynd/Aðsend
Með barnabörnunum Aron Mikael,
Sigurður, Aníta Eir og Andrea Vigdís.
Til hamingju með daginn