Morgunblaðið - 21.04.2021, Síða 52

Morgunblaðið - 21.04.2021, Síða 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is AYJA - K129 3ja sæta, 2ja sæta og stóll. Margir litir af áklæði eða leðri. Komið og skoðið úrvalið VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Í sinni einföldustu mynd má segja að verkið fjalli um vonda hugmynd sem umbreytir góðu samfélagi, en við dýpri lestur og þegar líður á seinni hluta verksins þá finnst mér hugmyndin vera víkkuð,“ segir Bene- dikt Erlingsson leikstjóri Nas- hyrninganna eftir Eugène Ionesco sem Þjóðleikhúsið frumsýnir á Stóra sviðinu annað kvöld í nýrri þýð- ingu Guðrúnar Vilmundardóttur. Nashyrning- arnir, sem skrif- aðir voru 1959, voru heimsfrumfluttir í París 1969 og fljótlega fór verkið eins og eldur í sinu um leikhús í Evr- ópu og rataði á svið Þjóðleikhússins 1961. Ári síðar kom út bókin The Theatre of the Absurd þar sem bresk-ungverski leikhús- fræðingurinn Martin Esslin fjallaði um verk Samuels Becketts, Harolds Pinters, Jeans Genets og Ionescos sem hann taldi eiga það sameiginlegt að sýna fram á fáránleika mann- legrar tilveru og hvernig raunveru- leg samskipti væru ómöguleg við þær aðstæður. Eru til góðir nashyrningar? Í Nashyrningunum fá áhorfendur að fylgjast með því hvernig íbúar í smábæ breytast smám saman í nas- hyrninga, allir nema söguhetjan Lárus (Berenger) sem Guðjón Davíð Karlsson leikur. Verkið hefur oftast verið túlkað sem viðbragð Ionescos við seinni heimsstyrjöld og lýsing á því hvernig fasísk öfl geta umbreytt heilu samfélögunum. „Það verður auðvitað ekki horft framhjá fasískum pælingum verksins. Mín kvöl sem höfundur þessarar sýningar er að brjóta upp og opna aðeins hugmynd- ina um hvað það sé að vera nashyrn- ingur. Mér finnst það vera verkefni okkar tíma að velta fyrir okkur hvort til séu góðir nashyrningar. Ef hug- myndir smitast eins og vírusar á milli okkar getum við þá ekki líka sagt að góðar hugmyndir hafi smitast á milli okkar eins og nashyrningar og um- breytt okkur? Ég get í því samhengi nefnt jafnréttishugmyndina. Súffra- gettur voru eins og brjálaðir nas- hyrningar á götum úti á sínum tíma,“ segir Benedikt og tekur fram að hann hafi að leiðarljósi í nálgun sinni þau orð úr vígsluræðu Vilhjálms Þ. Gíslasonar, formanns þjóðleikhús- ráðs, frá apríl 1950 að Þjóðleikhúsið skuli ekki aðeins vera „musteri íslenskrar tungu“ heldur einnig „víg- völlur hugsjóna og gagnrýni, þar sem menn rísa þó heilir og sáttir að morgni eftir bardaga kvöldsins“. „Nashyrningarnir eru verk sem skoðar hvernig lítil hugmynd verður að stórri hugmynd sem umbreytir heilu samfélagi. Hvernig jaðarhug- mynd smitast sem vírus og verður að lokum að meginhugsjón heillar þjóðar. Nokkuð sem í raun og veru er alltaf að gerast á hverjum degi. Í raun má segja að leikhúsið sé staðurinn þar sem við getum öðlast einhvers konar sjúkdómsinnsæi inn í okkar eigin höf- uð og skynjað og skilið vígvöllinn,“ segir Benedikt. Þótt undirtónn leikritsins sé alvar- legur er húmorinn samt áberandi. Hvert er gildi húmorsins? „Húmorinn er besta leiðin til að miðla hlutum. Það verður spennu- losun þegar við uppgötvum árekstur hugmynda og þá hlæjum við. Ég nenni ekki drama lengur og þoli ekki hörmungarklám. Ég held að ég eigi það sameiginlegt með mjög mörgum að ég vil geta grátið og hlegið á sama tíma,“ segir Benedikt og tekur fram að með væntingastjórnun í huga vilji hann samt ekki gera of mikið úr húm- or verksins fyrirfram. „Ég segi vænt- anlegum áhorfendum frekar að vera tilbúnir að láta sér leiðast, því þá er kannski einhver von um að það verði gaman,“ segir Benedikt með stríðnis- blik í auga. Hver voru þín fyrstu kynni af Nashyrningunum? „Ég lék í uppfærslu Leikfélags Menntaskólans við Hamrahlíð árið 1989 sem Andrés Sigurvinsson leik- stýrði,“ segir Benedikt, sem fór með hlutverk Jeans sem í uppfærslu Þjóð- leikhússins nefnist Róbert og Hilmir Snær Guðnason leikur. „Ég held að í þeirri uppfærslu hafi kviknað í mér leikstjórinn, því ég man að ég var ekki ekki alltaf á sama máli og leikstjórinn um nálgun hans á verkið. Nú fæ ég því tækifæri til að svara Andrési og sýna honum hvernig mér finnst að setja eigi upp verkið,“ segir Benedikt og bætir við: „Það er svo erfitt fyrir okkur lista- menn að gagnrýna hver annan, sér- staklega á opinberum vettvangi, og einhvern veginn finnst mér að við eig- um að gera það í gegnum verk okkar. Nú kemur svarið til Andrésar sem sagt rúmum 30 árum seinna.“ Absúrdleikhús ekki sexí orð Hvernig kom það til að verkið ratar á svið Þjóðleikhússins núna? „Þetta verk var búið að vera svolítið lengi í pípunum og í viðræðum mínum við leikhússtjórana. Í ljósi þess að verkið fjallar um faraldur er samt skemmtilegt að segja frá því að ákvörðunin um að setja það á svið var tekin áður en kórónuveirufaraldurinn braust út.“ Hefur kófið haft áhrif á uppfærsl- una og breytt sýn þinni á verkið? „Já, það hefur ýmislegt breyst. Að sumu leyti hefur ekki verið pláss fyrir konsept sem mig langaði að hafa. Stundum verða hlutir svo æpandi aktúel að maður þarf sem leikhús- maður að vinna gegn þeim og ekki undirstrika þá því þá fá áhorfendur ógeð. Í miðju hruni langar engan að gera leikhús um hrun og í miðri far- sótt langar engan hvorki að sjá né búa til eitthvað um farsótt. Ég held að ég sem leikhúsmaður standi mitt á milli þess að vera sögu- maður og myndlistarmaður. Meðan sögumaðurinn þarf alltaf að vera mjög skýr í öllu sínu reynir myndlist- armaðurinn að skilja eftir pláss og sprengja upp hugmyndir og skynjun áhorfandans til að senda hann í ferða- lag. Leikhúsmaðurinn stendur ein- hvers staðar þarna mitt á milli og það eru gryfjur í báðar áttir, sem við stundum dettum í og getum ekki gert alla hópa ánægða. Fyrir suma verður eitthvað of skýrt og fyrir aðra of óskýrt. Ég er enn að fikra mig áfram í því hvað ég geti verið skýr í því að svara hvað nashyrningar geta verið og svarið hefur breyst í ferlinu.“ Fyrir tveimur árum leikstýrðir þú hér í Þjóðleikhúsinu Súper eftir Jón Gnarr sem vinnur markvisst með absúrdisma eða leikhús fáránleikans í anda Ionescos. Heillast þú sem leik- stjóri af absúrdismanum? „Já, þessi verk skilja eftir pláss í höfðinu á manni. Að mínu mati er Súper eitt besta leikritið sem skrifað hefur verið hérlendis síðustu áratug- ina, enda búa samtöl Jóns yfir ein- hverjum kjarnorkukrafti sem spenn- andi er að leysa úr læðingi. Absúrdleikhús er ekki mjög sexí orð og ég held að markaðsdeildin vilji ekki að við tölum um absúrdleikhús. Ef ég væri áhorfandi myndi absúrdleikhús kveikja í mér, en mér er sagt að það virki ekki nógu vel á markhópinn svo við skulum ekki tala of mikið um það. Segjum bara að þetta sé geðveik gleðisprengja og sirkusverk,“ segir Benedikt stríðnislega. Kurteislegir avant-garde-stælar Ionesco minnir áhorfendur reglu- lega á að þeir séu staddir í leikhúsi. Hvernig vinnur þú með það? „Það er ákveðinn tilgangur með því að gera leikhúsið sýnilegt með þess- um hætti sem skilar sér með áhrifa- ríkum hætti undir lok sýningar. Ég hef alltaf verið mjög upptekinn af samkomulaginu sem verður til þegar við segjum áhorfendum sögu, hvort heldur er í leikhúsi eða kvikmyndum. Það er langt síðan leikhúsið uppgötv- aði hversu auðvelt er að gera sam- komulag við áhorfendur. Það er svo auðvelt að það er nánast orðið að vandamáli, eins og Bertolt Brecht benti á. Við erum svo ótrúlega næmar hugrænar verur að öll trikk hins póli- tíska leikhúss, svo sem „Verfremd- ungseffekt“, koma ekki í veg fyrir að við gerum samkomulag og sogumst inn í söguna og melódramað í stað þess að heyra boðskapinn og sjá stóra samhengið til að læra af,“ segir Bene- dikt og viðurkennir fúslega að hann sé í sviðsetningu sinni að gera ákveðnar tilraunir með samkomulagið við áhorfendur enda „er ekkert gaman nema tekin sé smá áhætta. Að því sögðu þá er þetta mjög hefðbundin sýning. Þetta er engin alvöru dekonst- rúksjón í anda þýska leikhússins. Þetta er miklu frekar franskt leikhús með kurteislegum avant-garde- stælum,“ segir Benedikt og brosir út í annað. Ég verð að forvitnast hvernig þú útfærir nashyrningana í uppfærsl- unni. Ertu fyrst og fremst að virkja ímyndunarafl áhorfenda? „Allar uppfærslur á Nashyrning- unum þurfa að svara því hvernig sýna eigi nashyrningana. Ef maður fer í gömlu hugmyndina um fasismann og skoðar hvað hann er tilfinningalega þá er hann ofsi og ofbeldi gagnvart þeim sem ekki eru með sama vírusinn og þú sjálfur og ofbeldi gagnvart þeim sem þú hefur skilgreint af annarri tegund. Að því sögðu þá lofa ég því að það er lifandi dýr í þessari sýningu, sem við höfum ekki alveg fulla stjórn á. Og ég vil að það komi sérstaklega fram í við- talinu að þetta er ekki sýning fyrir viðkvæma. Áhorfendur gætu orðið skelfingu lostnir mitt á milli allra gleðisprenginganna sem markaðs- deildin hefur uppálagt mér að leggja áherslu á,“ segir Benedikt og hlær. „Geðveik gleðisprengja og sirkus“ Ljósmyndir/Jorri - „Það er lifandi dýr í þessari sýningu,“ segir Benedikt Erlingsson leikstjóri Nashyrninganna eftir Eugène Ionesco sem Þjóðleikhúsið frumsýnir - „Við erum svo ótrúlega næmar hugrænar verur“ Benedikt Erlingsson Myndræn þögn Hin myndræna þögn er lýsingin sem leikstjórinn notar um leikmynd Barkar Jónssonar og tekur fram að það þurfi snilling til að myndgera tóma rýmið sem hann vilji vinna með á sviðinu. Hilmir Snær og Guðjón Davíð í hlutverkum sínum. Samband Ilmur Kristjánsdóttir og Guðjón Davíð Karlsson í uppfærslunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.