Morgunblaðið - 21.04.2021, Síða 53
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
FRANCESMcDORMAND
MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO
PEOPLE’S CHOICE AWARD
TORONTO FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
GOLDEN LION BEST FILM
VENICE FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
EVENING STANDARD
THE GUARDIAN
TOTAL FILM
THE DAILY TELEGRAPH
TIME OUT
EMPIRE
BESTA MYNDIN
BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI
Frances McDormand
BESTI LEIKSTJÓRI
Chloé Zhao
6
ÓSKARS
TILNEFNINGAR
MEÐAL ANNARS
®
94%
96%
99%BESTA MYNDIN Sýnd með íSlenSku og enSku tali
94%
Vinsælasta mynd ársins í bíó á Heimsvísu!
Stórmynd sem allir verða að sjá í bíó.
Kvikmyndahá-
tíðin í Cannes
hefst 7. júlí með
sýningu á nýj-
ustu kvikmynd
franska leikstjór-
ans Leos Carax,
Annette. Adam
Driver og Marion
Cotillard fara
með aðalhlut-
verk hennar og
er myndin sögð rómantísk söngva-
mynd í frétt á vef Variety. Myndin
verður einnig í aðalkeppni hátíð-
arinnar, verður sýnd í frönskum
kvikmyndahúsum og einnig á Ama-
zon Prime-streymisveitunni. Ann-
ette er fyrsta kvikmynd Carax á
ensku og höfundar handrits, laga
og söngvatexta eru Ron Mael og
Russell Mael úr rokksveitinni
Sparks. Sögusvið myndarinnar er
Los Angeles og leikur Driver grín-
istann Henry sem verður ástfang-
inn af heimskunnri óperusöngkonu,
Ann, sem Cotillard leikur. Eignast
þau dótturina Annette sem umturn-
ar lífi þeirra.
Annette opnunar-
myndin í Cannes
Marion
Cotillard
Að vera vera er
titill sýningar
Maríu Gísladótt-
ur sem opnuð
hefur verið í
Galleríi Gróttu á
Seltjarnarnesi.
Hugmyndin að
sýningunni kem-
ur djúpt úr völ-
undarhúsi hugar og hjarta. Við
skulum segja að þetta sé fyrsta
skrefið í uppgjöri. Árið 2014 var ég
komin út í horn. Ég þurfti að endur-
skipuleggja sjálfa mig. Þá uppgötv-
aði ég klippitæknina, hana hef ég
notað mikið til sjálfshjálpar,“ skrif-
ar María um sýninguna. Hún hafi
þurft að endurskoða sig sem konu
og allt sem tilheyrði því að vera
manneskja. Ég þurfti að læra að
reiðast og gefa sjálfri mér leyfi til
að finna til. Það er ekki hægt að
fjalla um skuggahliðar lífsins án
þess að hafa húmor og leyfa því
blíða að kíkja inn,“ skrifar hún.
Að vera vera í
Galleríi Gróttu
Eitt verka Maríu.
R
isaapanum King Kong
skolaði fyrst að austur-
strönd Ameríku og um
leið í íslensk kvikmynda-
hús, þeirra á meðal Gamla bíó, árið
1934. King Kong þótti „nýr sigur
fyrir hugvit og snilli kvikmynda-
tækninnar“ (hér er vitnað í 17. tölu-
blað „Fálkans“ sama ár) og hefur
orðspor myndarinnar og goðsögn
górillunar dafnað æ síðan. Ímynd
klífandi apakonungsins á Empire
State-byggingunni er sem greypt í
vitund hvers mannsbarns, þrátt fyr-
ir að mörg þeirra hafi aldrei séð
kvikmynd tileinkaða hilmi, hvað þá
svarthvítu frumperluna. King Kong
ruddi veginn fyrir ákveðna tegund
óvættamynda og voru japönsku
„Kaiju“-skrímslamyndirnar eitt
helsta afsprengið en ófétið Godzilla
er þekktasta afurð þeirrar frjóu
kvikmyndagreinar. Godzilla kom
fyrst fram í samnefndu meist-
araverki leikstjórans Ishiro Honda
frá árinu 1954.
Fyrir utan að valda óreiðu og
eyðileggingu í stórborgum eiga
ófreskjurnar, og frásagnirnar um
þær, mikla myndhverfa eiginleika
sameiginlega. Godzilla var kaþarsísk
leið til að fjalla um áhrif kjarnorku-
sprengjanna á japanskt samfélag
sem Bandaríkjamenn létu falla á
Hírosíma og Nagasaki undir lok
heimsstyrjaldar en King Kong gaf
til kynna þrælastefnu Bandaríkj-
anna (og ber skýr merki kynþátta-
hyggju þess tíma; „svarta dýrið“ að
nema á brott „hvítu konuna“ o.s.frv.)
og samband manns og náttúru.
Þessir eiginleikar verða ætíð hluti af
goðsögunum, sama hversu útþynnt
seyðið er.
Köppunum tveim var fyrst att
saman árið 1962 í King Kong vs.
Godzilla sem Toho-myndverið jap-
anska stóð að en önnur lota einvíg-
isins er upprunnin í Godzilla gegn
Kong. Sú ku vera 41. kvikmynd God-
zillu en níunda ræman sem skartar
Kong (að teiknimyndum frátöldum).
Þessi stórmynd er fjórði liðurinn í
nýrri syrpu „MonsterVerse“-
veldisefnisins (e. franchise) sem hef-
ur þótt vel heppnuð. Godzilla gegn
Kong er gáskafull og taumlaus kvik-
mynd sem gerir sér glaðan dag á
forsendum poppkornsins.
Kong, áttunda undur veraldar, er
tvímælalaust hetja frásagnarinnar.
Honum hefur verið komið fyrir í
manngerðum heimi sem á að líkja
eftir heimkynnum hans á Haus-
kúpueyju. Þráin um að komast
„heim“ er öllu yfirsterkari og miklar
tilfinningar og einhverjar gáfur
(tungumálahæfni m.a.) láta á sér
kræla í konungskroppi. Kjarn-
orkusýrða eðlukynið Godzilla er í
hlutverki andhetjunnar framan af er
hún ræðst óvænt á strendur Flórída.
Hún kvað oftast nær hafa ástæður
fyrir bræði sinni en orsökin er óljós
og heimurinn skelfur af hræðslu. Al-
þjóðlegi tæknirisinn Apex tekur það
í sínar hendur að berjast gegn vánni
með því fá apann mikla í sína þjón-
ustu. Til þess að koma því í kring
þarf föruneyti vísindamanna að
fylgja konunginum niður í möttul
jarðar en samkvæmt kenningu
þeirra er jörðin hol og þar að finna
lífríki sem mögulega er upprunalegt
vé jötunsins geðþekka. Ansi hreint
langsótt flétta – sem stokkið er hratt
yfir.
(Varist, spilliefni væntanleg).
Engan skal undra að áform alþjóða-
samsteypunnar séu annarlegs eðlis
og apinn og vinir hans hafðir að fífl-
um. Godzilla hefur á réttu að standa
eftir allt saman og úr öskunni rís
gamli góði fjandinn Mechagodzilla,
vélmennatvífari eðlunnar, settur
saman af peningaaflinu til vegsemd-
ar Mammoni. Mekkakynstrið er
knúið áfram með orku úr möttli
jarðar sem skýrir allt vesenið og
leynimakkið. Myndlíking frásagn-
arinnar er nokkuð sígild – um mann-
inn og náttúruna, manninn að leika
guð og jafnvel auðjöfurinn sem arð-
rænir – á mjög svo banal og almenn-
an hátt.
Því minna sem sagt er um fjöl-
mennt persónusafnið því betra, en
þó má hafa gaman af klisjunum með
háðið að vopni. Vondi kapítalista-
karlinn er sannkallað fúlmenni í
fræðimannafötum, kyngjandi ein-
möltungi í massavís þannig að
typpafýla fæst af. Heyrnarlaus
töfrastúlka (sú sem talar við Kong)
og tveir táningar (þ. á m. Millie
Bobby Brown) eru fulltrúar mark-
hópsins í ævintýrinu og senda hug-
ann til forvera úr kvikmyndasögunni
eins og gosans í Indiana Jones og
musteri dauðans og Elliott í E.T. Að
því sögðu er þetta allt nokkurn veg-
inn aukaatriði þar sem hasarinn og
fjörið stendur fyrir sínu.
Sjónarspilið einkennist af ofgnótt,
hraða og kímni – Kong er hálfgerður
fulltrúi hinnar hefðbundnu karl-
mannlegu hasarhetju. Barist með
hnefaafli, á meðan Godzilla spýr
geislum, bætir apinn gráu ofan á
svart og skallar fjanda sinn! Bar-
dagar þeirra ná undir sjávarmál og
til skýjakljúfa stórborga en Kong
lumbrar líka á furðudýrum neð-
anjarðar og étur á þeim slímugt fés-
ið þegar sá gállinn er á. Undir-
heimarnir eru afar heillandi og
bjánalegir í senn og hefði gjarnan
mátt staldra lengur við. Vísað er á
glettinn hátt í hasarhetjur fyrri
daga (og eldri myndir um skrímslin
tvö). Kong fer í og úr axlarlið eins og
Martin Riggs á flugi sínu milli há-
hýsa og hermir einnig eftir frægu
svifi John McClane.
Godzilla gegn Kong er sjónræn og
fyndin þeysireið fyrir unga sem
aldna unnendur kjánalegrar
skemmtunar.
Áflog Risaskepnurnar Godzilla og King Kong fljúgast á í Godzilla vs. Kong sem er kjánaleg skemmtun.
Slímugur en bragðgóður
Borgarbíó, Laugarásbíó,
Sambíóin, Smárabíó
Godzilla gegn Kong/Godzilla vs.
Kong bbbnn
Leikstjórn: Adam Wingard. Handrit:
Terry Rossio, Michael Dougherty, Eric
Pearson, Max Borenstein, Zach Shields.
Kvikmyndataka: Ben Seresin. Klipping:
Josh Schaeffer. Aðalleikarar: Alexander
Skarsgård, Millie Bobby Brown, Re-
becca Hall, Brian Tyree Henry.
Bandaríkin, 2021. 113 mín.
GUNNAR
RAGNARSSON
KVIKMYNDIR