Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 56

Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 56
56 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 2021 VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Viðtökur bókarinnar hafa komið mér ánægjulega á óvart,“ segir Matilda Voss Gustavsson blaða- maður og höfundur bókarinnar Klúbburinn sem nýverið kom út hjá Uglu í íslenskri þýðingu Jóns Þ. Þórs. Í bókinni fjallar Gustavsson um tilurð forsíðufréttar sinnar í sænska dagblaðinu Dagens Nyheter 21. nóv- ember 2017 þar sem 18 konur lýstu því hvernig Jean-Claude Arnault hefði um langt árabil áreitt þær kyn- ferðislega, hótað þeim og nauðgað. Á þessum tíma starfrækti Arnault menningar- og listaklúbbinn Forum í Stokkhólmi ásamt eiginkonu sinni Katarinu Frostenson, sem setið hafði í Sænsku akademíunni frá 1992. Við skrif bókarinnar rannsakaði Gustavsson m.a. bakgrunn Arnault og komst að því að hann hafði farið mjög frjálslega með upplýsingar er sneru að uppvexti hans og fyrri störf- um í Frakklandi. Í bókinni skoðar hún valdaöflin í sænsku menningar- lífi og fjallar um þau hörðu átök sem urðu innan Sænsku akademíunnar sem leiddi til þess að m.a. Frosten- son og Sara Danius, þáverandi ritari akademíunnar, stigu til hliðar. Klúbburinn hefur komið út á öllum Norðurlöndunum, í Hollandi og á Ítalíu og er einnig væntanleg í Japan, Taívan og Búlgaríu. Bókin var mest selda bókin almenns efnis í Svíþjóð árið 2019 og hlaut menningar- verðlaun sænska dagblaðsins Expressen. Um þessar mundir vinn- ur Maren Louise Käehne að því að skrifa kvikmyndahandrit byggt á bókinni. Þaggaði niður í þolendum „Þegar ég skrifaði upphaflegu greinina haustið 2017 þá vissi ég að efnið væri eldfimt, ekki síst vegna þess hversu verndaður Arnault væri af Sænsku akademíunni, en völd sín innan listheimsins fékk hann í krafti tengsla sinna við hana. Ég reiknaði með að fólk innan listheimsins myndi lesa bókina þar sem það vildi fá betri innsýn í gang mála, en óttaðist að almenningi fyndist of langt um liðið frá atburðunum og þar með ekki taka því að fjalla meira um þá. Viðtök- urnar glöddu mig því mjög, enda beinir bókin sjónum að sammann- legum tilvistarlegum spurningum.“ Eitt af því sem er svo áhrifaríkt í bókinni er sú innsýn sem þú veitir í það sem gerist bak við luktar dyr Sænsku akademíunnar. Fram að krísunni hafði almenningur nánast engar upplýsingar um starfshætti hennar. Geturðu sagt mér meira frá leyndarhyggjunni? „Leyndarhyggjan sem alla tíð hef- ur umlukt Sænsku akademíuna veitir henni ákveðin völd þar sem hún hef- ur verið ósnertanleg. Í þeim skilningi voru skrif mín í raun óhugsandi. Ég hefði aldrei trúað því sem gerðist eftir birtingu upphaflegu greinar- innar, sem var að Sænska akademían afhjúpaði sig og starfshætti sína. Eftir því sem krísunni vatt fram fengum við sífellt betri innsýn þegar meðlimirnir byrjaðu að leka upplýs- ingum frá fundum og samskiptum sín á milli. Þannig má segja að dyrnar hafi í raun opnast upp á gátt. Ég gat að minnsta kosti veitt innsýn í það sem gerðist á bak við tjöldin, í hverju átökin fólust og milli hverra. Allt voru þetta upplýsingar sem ég hefði aldrei trúað fyrir fram að hægt væri að fá,“ segir Gustavsson og tekur fram að Sænska akademían sé í dag allt önnur en sú sem hún var fyrir krísuna. Hefðir þú trúað því fyrir fram að grein þín sem birtist 21. nóvember 2017 myndi hafa jafn afdrifaríkar afleiðinga fyrir Sænsku akademíuna og raunin varð? „Nei, engan veginn. Mér fannst afhjúpun mín vera mjög mikilvæg sökum þess hversu alvarlegt málefnið var. Á sama tíma fannst mér einboðið að þetta hlyti að hafa einhverjar afleiðingar, en ég vissi þó ekki hvers eðlis þær yrðu. Ég var hræddust um að greinin myndi engu breyta og mál- efnið yrði fljótt gleymskunni að bráð.“ Ertu að vísa til þess að 20 árum áð- ur hafði sænska dagblaðið Expressen fjallað um kynferðisofbeldi Arnault án þess að það hefði neinar neikvæðar afleiðingar fyrir hann? „Nákvæmlega. Sú staðreynd að sú umfjöllun hafði engin áhrif á stöðu Arnault í listheiminum styrkti ein- ungis vald hans. Það þaggaði ótvírætt niður í þolendum hans að sjá að frá- sagnir annarra af svipuðu ofbeldi breyttu engu. Með þeim hætti styrkti það Arnault og stuðningsfólk hans í því að þau væru ósnertanleg,“ segir Gustavsson og rifjar upp að viðmæl- endur hennar haustið 2017 hafi ein- mitt vísað til þess að aðrar konur hefðu áður reynt að segja frá ofbeldis- verkum Arnault með litlum árangri. Hversu mikil áhrif telur þú að #metoo-byltingin hafi haft á breyttar viðtökur uppýsinganna um ofbeldis- verknað Arnault? „Allt breyttist með #metoo og afhjúpuninni á Harvey Weinstein og Bill Cosby þegar fjöldi kvenna steig fram og sagði frá því ofbeldi sem þeir höfðu um langt árabil beitt. Það veitti fleiri konum þor til að segja líka frá sinni reynslu. Í fyrsta sinn í sögunni hafði það afleiðingar fyrir gerendur að þolendur þyrðu að segja frá. Fram að því höfðu karlmenn í valdastöðum ekki þurft að hafa neinar áhyggjur af því að frá ofbeldinu væri sagt, því það virtist aðeins hafa neikvæðar afleið- ingar fyrir þolendur,“ segir Gustavs- son og tekur fram að umfjöllun New York Times um Weinstein og New York Magazine um Cosby hafi verið sér mikilvægar fyrirmyndir. „Þær greinar undirstrikuðu að hægt er að fjalla um svona erfið og flókin mál ef það er gert af fullri alvöru og veittur sá tími sem nauðsynlegur er til að rannsaka mál ítarlega.“ Óttaðist þú að Arnault myndi reyna að stöðva umfjöllun þína? „Arnault hefur í gegnum tíðina tal- að fjálglega um það hversu mikil völd hann hafi innan listheimsins í Svíþjóð og hótað þolendum sínum öllu illu ef þeir segðu frá. Hann þóttist sem dæmi geta komið í veg fyrir að ungir höfundar fengju verk sín birt ef þeir hlýddu honum ekki. Sökum þess hversu óljós völdin innan listheimsins eru þá var engin leið fyrir fólk að sannreyna þessar fullyrðingar hans. Í upphafi rannsóknar minnar velti ég því eðlilega fyrir mér hvort ritstjóri blaðsins myndi vilja að ég afhjúpaði Arnault. Þær áhyggjur mínar reynd- ust algjörlega óþarfar því um leið og ég lagði fram gögn mín umfjölluninni til sönnunar naut ég þegar í stað mik- ils stuðnings yfirmanns míns og rit- stjóra.“ Lygar geta verið lokkandi Þegar þú fórst að rannsaka bak- grunn Arnault kom það þér þá á óvart hversu marga í listheiminum hann gat blekkt án afleiðinga? „Bæði já og nei. Það er hluti af mannlegu eðli og samfélagssáttmál- anum að efast ekki um lýsingar fólks á sjálfum sér og sínum bakgrunni. Eins og ég bendi á í bókinni getur falist ákveðið frelsi í því að umgangast manneskju sem hefur afslappaða afstöðu gagnvart sannleikanum. Þannig geta lygar verið lokkandi.“ Hversu stóran þátt áttu Katarina Frostenson, eiginkona Arnault, og Horace Engdahl, náinn vinur hans til margra ára, í völdum Arnault í sænsku menningarlífi? „Stuðningur þeirra við hann hefur verið algjörlega afgerandi í því að skapa honum þau völd sem hann hafði,“ segir Gustavsson og bendir á að Frostenson hafi haft töglin og hagldirnar innan Sænsku akademí- unnar í krafti stöðu sinnar sem eitt virtasta ljóðskáld Svía. „Völd hennar birtust t.d. í því að hún var formaður nefndar innan Sænsku akademíunnar sem tók ákvörðun um það hvaða ungu rithöfunda í Svíþjóð skyldi styrkja með fjárframlögum.“ Slíkt væri gróf sögufölsun Undir lok árs 2018 var Arnault dæmdur fyrir tvær nauðganir. Áttir þú von á því að hann yrði dæmdur? „Nei, engan veginn. Í ljósi reynsl- unnar taldi ég nær útilokað að hann yrði dæmdur fyrir brot sín. Hvað það varðar má segja að #metoo hafi hreyft við málum, því ungt fólk virðist orðið óhræddara við að segja frá því þegar það hefur verið beitt ofbeldi og þorir í auknum mæli að kæra kyn- ferðisofbeldi. Þegar ég var yngri datt fæstum í hug að kæra slíkt ofbeldi til lögreglunnar því það vissu allir að það hefði ekkert upp á sig. Dómurinn yfir Arnault jók því traust mitt á sænska dómskerfinu,“ segir Gustavsson og bendir á að í grunninn hafi krísan inn- an Sænsku akademíunnar snúist um það hvort taka ætti konur trúanlegar þegar þær deildu reynslu sinni af því að hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi. „Ýmsir innan Sænsku akademíunn- ar hafa viljað láta líta út fyrir að krís- una í tengslum við Arnault mætti fyrst og fremst rekja til ágreinings um fagurfræði og að gagnrýnin á Arnault væri drifin áfram af nýrri kynslóð sem hefði önnur siðferðisleg sjónarmið að leiðarljósi og vildi uppgjör við fyrri sjónarmið þess efnis að list væri list- arinnar vegna. Krísan um Arnault snerist aldrei um pólitík, fagurfræði eða ólíka afstöðu til listarinnar. Að halda slíku fram er gróf sögufölsun. Mál Arnault snerist um kynferðislegt ofbeldi og því miður held ég að mörg- um innan Sænsku akademíunnar hafi þótt of sársaukafult að horfast í augu við það og því reynt að líta framhjá því og færa fókusinn annað.“ Það vakti einmitt athygli mína þeg- ar þú í bókinni lýsir því hversu hrædd- ir meðlimir Sænsku akademíunnar voru við að gagnrýna hver annan þar sem slíkt gæti skapað vonda stemn- ingu sem væri erfitt í ljósi þess að meðlimir eru valdir til lífstíðar og þurfa því að starfa saman um ókomin ár. Getur þú sagt mér meira frá því? „Mér fannst mikilvægt að draga fram hvernig meðlimir ræddu saman innbyrðis um það sem gerst hafði og hversu hræðslan var mikil við vonda stemningu innan hópsins. Meðlimirnir vorkenndu Katarinu Frostenson og vildu fyrir alla muni ekki styggja hana með gagnrýni sinni. Það birtist ákveð- in írónía í því að öll höfum við tilhneig- ingu til að vilja ekki særa eða styggja fólk og veljum fyrir vikið frekar að þegja og reyna að bíða hlutina af okk- ur. Viðbrögð meðlimanna eru því svo sammannleg. Fram að krísunni voru meðlimir Sænsku akademíunnar yfir okkur hafin og nánast í guðatölu. Fyrir vikið voru þau líka algjörlega ósnertanleg. Þegar á reyndi kom í ljós að þau eru bara mannleg og breysk eins og við.“ Hver er, að þínu mati, staða Sænsku akademíunnar í dag? Mun hún lifa krísuna af? „Krísan hafði þau áhrif að allir töfr- arnir sem áður umluktu Sænsku aka- demíuna eru horfnir og ég sé ekki að þeir verði nokkurn tímann endur- heimtir. Það er í sjálfu sér mjög dapurlegt, því ég held að við sem manneskjur höfum þörf fyrir að geta litið upp til einhvers. Fyrir krísuna hefði engum sem bauðst að taka sæti í Sænsku akademíunni hugkvæmst að afþakka slíkt boð, en það hefur breyst og vandasamt hefur reynst að full- manna hana síðustu misserin. Þótt Sænska akademían hafi misst dýrðar- ljóma sinn hefur hún enn mjög mikil völd í krafti þess fjármagns sem hún ræður yfir og úthlutar í formi styrkja til bókmenntaheimsins. Virðingin og traustið sem Sænska akademían hafði áunnið sér í 230 ára sögu stofnunar- innar glataðist hins vegar á einni nóttu og það mun taka marga áratugi að endurheimta það traust.“ Ljósmynd/Thron Ullberg Ósnertanleg „Leyndarhyggjan sem alla tíð hefur umlukt Sænsku akademíuna veitir henni ákveðin völd þar sem hún hefur verið ósnertanleg. Í þeim skilningi voru skrif mín í raun óhugsandi,“ segir Matilda Voss Gustavsson. Dýrðarljóminn glataður að eilífu - „Mér fannst afhjúpun mín vera mjög mikilvæg sökum þess hversu alvarlegt málefnið var,“ segir Matilda Voss Gustavsson um bók sína Klúbburinn sem fjallar um krísu Sænsku akademíunnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.