Morgunblaðið - 21.04.2021, Page 60
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
Sófar
ORTO TUNGUSÓFI, 2JA SÆTA + LEGUBEKKUR
með grænu, dökkgráu eða bláu áklæði. L292 x D164 cm.
279.900 kr.Nú 225.711 kr.
BASTIA
Sófaborð, fléttuð hilla og glerplata.
Ø80 cm. 89.900 kr.Nú 72.495 kr.
CHISA
Hægindastóll. Grænn eða blár.
44.900 kr.Nú 36.207 kr.
SAVONA
Svefnsófimeð legubekk. Ljósgrár eða dökkgrár.
Svefnflötur 198x140 cm. 109.900 kr. Nú 88.623 kr.
TAX FREE
AF ÖLLUM SÓFUM, HÆGINDASTÓLUM,
SÓFABORÐUM OGMOTTUM*
*Að sjálfsögðu fær ríkissjóður 24% virðisaukaskatt af þessari sölu.
Verðlækkunin 19,36% er alfarið á kostnað ILVA
*Gildir ekki um vörur á áður niðursettu verði. Gildir á meðan birgðir endast.
15. APRÍL - 3. MAÍ
TAX FREE
AF ÖLLUM PÚÐUM OG ÁBREIÐUM*
Jazzklúbburinn
Múlinn heldur
áfram með vor-
dagskrá sína í
kvöld með tón-
leikum í Flóa í
Hörpu sem hefjast
kl. 20. Saxófón-
leikarinn Jóel
Pálsson og hljóm-
sveit hans munu
fagna tíu ára út-
gáfuafmæli plöt-
unnar HORN sem
hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2010 sem plata árs-
ins í djassflokki og Jóel var einnig tilnefndur til Tónlist-
arverðlauna Norðurlandaráðs fyrir plötuna. Í kvöld
koma fram með honum trompetleikarinn Ari Bragi
Kárason, hljómborðsleikararnir Eyþór Gunnarsson og
Tómas Jónsson og trommuleikarinn Einar Scheving.
Jóel og félagar fagna tíu ára afmæli
verðlaunahljómplötu í Múlanum
MIÐVIKUDAGUR 21. APRÍL 111. DAGUR ÁRSINS 2021
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 739 kr.
Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr.
PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr.
Við Aron höfum rætt mikið saman og hann hefur þá
getað spurt mig að ýmsu varðandi Álaborg. Hann hefur
því fengið frá fyrstu hendi upplýsingar um hvernig
hlutirnir virka hjá félaginu. Ég tók auðvitað þátt í því að
tala hann til og var því með í að ræða þetta bæði við
stjórnendurna og Aron sjálfan. Mér finnst þetta sýna
metnað hjá Aroni að vilja koma til Danmerkur og spila í
þessari sterku deild. Hann mun hjálpa liðinu að halda
áfram að safna bikurum,“ segir Arnór Atlason, aðstoð-
arþjálfari Álaborgar, m.a. í viðtali í blaðinu í dag. »51
Arnór segir félagaskipti Arons
Pálmarssonar sýna metnað
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Dr. Gunnlaugur A. Jónsson, prófess-
or í gamlatestamentisfræðum við Há-
skóla Íslands, á 99 tréstyttur eftir
sænska útskurðarmeistarann Fritz
Urban Gunnarsson, fleiri en nokkur
annar í veröldinni. Fáir hafa séð safn
Gunnlaugs en í dag og til og með 2.
maí geta gestir og gangandi skoðað
djásnin um leið og þeir kynna sér
framleiðslu franska kampavínshúss-
ins Pol Roger á svonefndum Kampa-
vínsdögum, sem Kampavínsfjelagið
og veitingastaðurinn Vox Brasserie
standa fyrir á Hilton Reykjavík Nor-
dica. Gunnlaugur og Stefán Einar
Stefánsson, formaður Kampavíns-
fjelagsins og fyrrverandi nemandi
Gunnlaugs í guðfræðideildinni, verða
með fræðslustund um útskurðinn og
safnið klukkan 16 á morgun.
Söfnun Gunnlaugs hófst í Stokk-
hólmsferð 2009, þegar hann keypti
fimm styttur, þar á meðal Winston
Churchill. „Þá festist ég í netinu,“
segir hann. Bætir við að hann hafi
síðan litið inn á verkstæði Fritz að
jafnaði tvisvar á ári og bætt í safnið,
nema í fyrra af augljósum ástæðum.
Fótbolti, styttur og ævisögur
Fritz, sem er á áttræðisaldri og tók
við fjölskyldufyrirtækinu af föður sín-
um, hefur skorið út margar fígúrur
að beiðni Gunnlaugs, meðal annars
nokkra þekkta Íslendinga. Stjórn-
málamenn víðs vegar að eru áberandi
í safninu, ekki síst Svíar og banda-
rískir forsetar. Trúarleiðtogar eiga
sinn stað, vísindamenn, listamenn og
Nóbelsverðlaunahafar auk annarra.
„Winston Churchill er langvinsælasti
karlinn, sem feðgarnir hafa tálgað, og
enginn þeirra er eins,“ segir Gunn-
laugur. Honum þykir vænt um allar
stytturnar en nefnir sérstaklega fí-
gúrur sem hann hefur látið Fritz gera
og hafa kostað mörg símtöl og mikla
vinnu. „Ég spurði Fritz eitt sinn
hvort hann gæti skorið út mann með
bæði bolta og vindil og hann sagði
það ekkert vandamál. Því er séra
Friðrik Friðriksson einna skemmti-
legastur, þótt margir aðrir séu í sér-
stöku uppáhaldi.“
Gunnlaugur byrjaði snemma að
safna fótboltamyndum, hélt lengi úr-
slitum í fótbolta og frjálsum til haga
og enginn gat rekið hann á gat í þeim
efnum, en hann segist ekki vera með
söfnunaráráttu. Hann hafi samt oft
keypt ævisögur þeirra sem hann hafi
látið Fritz skera út, og líkindi séu
með helsta áhugamálinu í æsku og
söfnun spýtukarlanna. „Þegar ég var
í 5. flokki á Selfossi þóttumst við vera
þekktir leikmenn. Flestir héldu með
Skaganum og báru nöfn eins og
Helga Dan og Donna. Ég heillaðist af
KR-liðinu, þar sem Þórólfur Beck var
helsta hetjan, en ég valdi að vera
Garðar Árnason, sem varð afburða-
leikinn og traustur miðvallarspilari
og auk þess stór og þéttur rétt eins
og ég varð síðar!“
Svo skemmtilega vill til að Pol Ro-
ger var uppáhaldskampavínshús
Churchills. Það endurgalt breska for-
sætisráðherranum tryggð sína með
framleiðslu víns honum til heiðurs 10
árum eftir að hann lést. Ber það nafn
hans og er frægasta og besta vín
fyrirtækisins.
Vegna samkomutakmarkana verð-
ur fólk að skrá sig (vox.is) til að hlusta
á spjall Gunnlaugs og Stefáns Einars
og er glas með kampavíni innifalið í
gjaldinu.
Tvær flugur í höggi
- Tréstyttur úr stærsta einkasafni heims á Kampavínsdögum
Morgunblaðið/Eggert
Safn Gunnlaugur A. Jónsson hefur áhuga á persónusögu í íþróttum, sagn-
fræði og guðfræði. Heldur hér á Albert Schweitzer og Winston Churchill.
Bernard „Monty“ Montgomery hershöfðingi til hliðar.
Íslendingar Sigvaldi Kaldalóns, Sigurbjörn Einarsson biskup, sr. Friðrik
Friðriksson, Ólafur Thors, Bjarni Benediktsson eldri, Vigdís Finnboga-
dóttir, Davíð Oddsson og Haraldur Níelsson, prófessor í guðfræði.
Ghurchill Andinn svífur yfir vötnum.