Fréttablaðið - 02.10.2021, Síða 4
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
GLÆSILEG RAFMÖGNUÐ JEPPASÝNING
SÝNUM EINNIG BREYTTA OG ÓBREYTTA RAM
ÁSAMT JEEP COMPASS OG RENEGADE PLUG-IN HYBRID
LAUGARDAGINN 2. OKTÓBER MILLI KL. 12-16
ÁRA ÁBYRGÐ
8 ÁRA ÁBYRGÐ Á
DRIFRAFHLÖÐU
PLUG-IN HYBRID
n Tölur vikunnar
n Þrjú í fréttum
7
atkvæðum munaði á fulltrúum
Vinstri grænna og Miðflokksins í
Suðurkjördæmi.
2
hreindýrskálfar sem var bjargað á Fljótsdals-
heiði í vor búa nú hjá fjölskyldu í Múlaþingi.
5,1
prósenta
atvinnuleysi er
á Íslandi.
8
metra hval rak á land nærri
Jörfa á Álftanesi á fimmtudag.
37
þingmenn í stjórnarflokkum
voru kjörnir í nýyfirstöðnum
kosningum.
Ingi Tryggvason
formaður
yfirkjörstjórnar í
Norðvesturkjördæmi
„Er saknæmt að
gera mistök?“
svaraði Ingi
blaðamanni,
sem spurði hvort
líklegt væri að
lögregla fyndi
eitthvað saknæmt í rannsókn
á framkvæmd talningar í kjör-
dæminu. Öll spjót hafa staðið á Inga
í vikunni vegna talningarinnar.
Katrín Jakobsdóttir
forsætisráðherra
„Kosningarnar
og niður staða
þeirra var að
þessi ríkis stjórn
héldi sínum
meiri hluta og
vinna okkar
núna snýst mest
um að endur nýja
okkar sam starf og fara yfir stóru
við fangs efnin fram undan, líka
okkar á herslur,“ sagði forsætisráð-
herra í gær og hefur fundað stíft
með formönnum hinna stjórnar-
f lokkanna um endurnýjun
stjórnarsamstarfsins.
Aron Einar Gunnarsson
fyrirliði landsliðsins í
knattspyrnu
„Fyrir mig, og fjöl-
skyldu mína og
vini sem þekkja
til mín, er mjög
sárt að KSÍ, sem
ég hef í 97 lands-
leikjum gefið alla
mína krafta, skuli
setja mig til hliðar vegna krafna
sem byggjast á óljósum orðrómi um
landsliðsmenn. Þetta er óverjandi
staða,“ sagði Aron Einar, sem var
ekki valinn í leikmannahóp fyrir
komandi landsleiki. n
Þrjár kærur hafa borist
Alþingi vegna kosninganna.
Ólíklegt að þing verði kallað
saman fyrr en kærufrestur
rennur út. Undirbúnings-
nefnd hefur verið mynduð.
bth@frettabladid.is
KOSNINGAR Ekki eru líkur á að
Alþingi verði kallað saman fyrr en
eftir að kærufrestur vegna þing-
kosninganna rennur út, en hann
er fjórar vikur. Þetta segir Will-
um Þór Þórsson, starfandi forseti
Alþingis. Þingflokkar hafa nú til-
nefnt þá þingmenn sem sitja munu
í undirbúningsnefnd kjörbréfa-
nefndar Alþingis. Í nefndinni munu
sitja Birgir Ármannsson, Vilhjálmur
Árnason og Diljá Mist Einarsdóttir
fyrir Sjálfstæðisflokk, Hafdís Hrönn
Hafsteinsdóttir og Líneik Anna Sæv-
arsdóttir fyrir Framsóknarf lokk,
Svandís Svavarsdóttir fyrir Vinstri
græn, Björn Leví Gunnarsson fyrir
Pírata, Þórunn Sveinbjarnardóttir
fyrir Samfylkinguna og Inga Sæland
fyrir Flokk fólksins. Þessi skipun
kann að hafa vandræði í för með sér
vegna sjónarmiða um kynjahlutföll,
þar sem sex konur sitja í nefndinni
en aðeins þrír karlar.
Því er ólíklegt að það skýrist
nærri því strax hvaða þingmenn
munu skipa Alþingi þetta kjörtíma-
bil. Þótt Landskjörstjórn hafi í gær
gefið út kjörbréf fyrir þingmenn,
þar á meðal á grundvelli seinni
talningar í Norðvesturkjördæmi,
mun Alþingi hafa síðasta orðið.
Þingmenn vilja ekki tjá sig opin-
berlega um hvaða leið þeir muni
styðja þegar kemur til kasta þings-
ins, en samkvæmt samtölum blaðs-
ins hafa fæstir gert upp sinn hug. Því
stefnir jafnvel í átakaafgreiðslu og
jafnvel þvert á flokkslínur.
Sumir þeirra þingmanna sem
voru inni eftir fyrri talningu en
duttu út eftir þá síðari, lýsa ömur-
legri líðan. Einn þeirra skráði sig
atvinnulausan í vikunni.
Í gær barst kæra til þingsins frá
Magnúsi Davíð Norðdahl, oddvita
Pírata í NV-kjördæmi, þar sem hann
krefst þess að kosið verði aftur í NV-
kjördæmi. Þá barst einnig kæra frá
Guðmundi Gunnarssyni, oddvita
Viðreisnar. Karl Gauti Hjaltason,
Miðflokki, hyggst einnig leggja fram
kæru til þingsins, en hann hefur
þegar kært talningu í Norðvestur-
kjördæmi til lögreglu.
„Ég kæri vegna þess að ég tel að
við kjósendur í Norðvesturkjör-
dæmi getum ekki treyst að þarna
hafi farið fram heiðarlegar og
sanngjarnar kosningar, á því leikur
vafi,“ sagði Magnús Davíð við þing-
húsið í gær, eftir að hann skilaði af
sér kærunni til þingsins. Kæran fór
einnig til dómsmálaráðuneytisins.
Í kærunni er meðal annars nefnt
að kjörgögn hafi verið eftirlitslaus
og óinnsigluð í um fjórar klukku-
stundir. Þetta feli í sér hættu á að átt
hafi verið við atkvæði og þar með
ákvarðanir kjósenda og gæti því
hafa haft áhrif á úrslit kosninganna.
Þeir ágallar sem helst hafa verið
nefndir við nýja kosningu fyrir
vestan eru að allt gæti riðlast ef aftur
yrði kosið í einu kjördæmi. Magnús
Davíð Norðdahl segir að í fyrsta
lagi hafi Alþingi enga heimild til að
taka við málinu frá landskjörstjórn
og byggja á einhverri annarri taln-
ingu en þeirri sem landskjörstjórn
tók upphaflega mið af. Í öðru lagi
væri einkennilegt ef menn ætluðu
að hengja sig á einhverja eina taln-
ingu í meingölluðu ferli, út frá hags-
munum. „Ef menn ætla að standa
með lýðræði og gagnsæi verður að
endurtaka þetta ferli í heild sinni.“
Lögreglurannsókn stendur yfir á
framkvæmd talningar og meðferð
kjörgagna í Borgarnesi. Kærand-
inn, Karl Gauti Hjaltason, segir að
rannsóknin ætti að vera stak í mál-
inu. Hann er ekki bjartsýnn á niður-
stöðu en hefur þó ekki lagt niður
vopn og segist muni senda kæru
til kjörbréfanefndar. Hann vonast
til að þá verði lögreglurannsóknin
komin eitthvað áleiðis. Afleitt sé ef
síðar komi á daginn að þær ákvarð-
anir sem verið er að taka nú séu
rangar. n
Ólíklegt að krísan leysist næstu vikur
Magnús Davíð Norðdahl, oddviti Pírata í NV-kjördæmi, afhenti starfandi þingforseta kæru sína.. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Starfandi forseti
Alþingis telur ólíklegt
að þing verði kallað
saman fyrr en kæru-
frestur vegna kosning-
anna er liðinn.
4 Fréttir 2. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ