Fréttablaðið - 02.10.2021, Page 18
Það eru dæmi um að
læknar horfi ekki í
augun á konunum og
beini tali sínu að maka
þeirra ef hann er
Íslendingur.
Mannbætandi Missir
Þáttaröðin Missir sem finna má í
Sjónvarpi Símans er tímamótaverk
í íslenskri sjónvarpssögu. Það allra
sárasta og erfiðasta, andlát ástvina,
er tæklað, heilað, rætt og útskýrt.
Málefni sem við sem þjóð höfum
lengi viljað grafa þó ómögulegt
sé að gleyma. Hvort sem þú hefur
misst náinn ástvin eða munt gera,
því eins og bent er á í þættinum eru
ástin og sorgin systur; þá er áhorf á
Missi mannbætandi.
Chickpea Reykjavík
Veitingastaðurinn Chickpea lætur
ekki mikið yfir sér við hlið versl-
unar Krónunnar á Hallveigarstíg,
en var þó ekki lengi að öðlast fastan
kúnnahóp þrátt fyrir að hafa aldrei
auglýst. Um er að ræða fjölskyldu-
rekinn vegan veitingastað með
heiðarlegan, vel útilátinn og sað-
saman mat. Falafel, vefjur, súpur
og samlokur sem skila þér svífandi
inn í daginn auk þess sem að í hverri
viku er boðið upp á rétt vikunnar. n
Leiðtogar ríkisstjórnarflokkanna
ræða nú áframhaldandi samstarf.
Staðan er snúnari en menn sáu
fyrir. Flokkur forsætisráðherra beið
afhroð, tapaði þremur þingsætum,
Framsókn vann stórsigur, bætti við
sig fimm þingsætum, og Sjálfstæðis-
flokkurinn náði að afstýra stórtapi
og hélt óbreyttum þingmannafjölda.
Á síðasta kjörtímabili voru níu
þingmenn Vinstri grænna (eftir að
tveir sögðu sig úr flokknum) á bak
við ríkisstjórnina og átta Framsókn-
armenn. Nú eru átta VG-liðar og 13
Framsóknarmenn. Styrkhlutföllin
milli Sjálfstæðisf lokks og Fram-
sóknar eru nær jöfn eftir stórsigur
Framsóknar. Fráleitt er annað en að
Sigurður Ingi Jóhannsson geri kröfu
til forsætisráðuneytisins. Kjósendur
gerðu kröfu um slíkt þegar þeir
þyrptust um Framsóknarflokkinn.
Svo virðist sem VG leggi ofuráherslu
á að Katrín Jakobsdóttir haldi áfram
sem forsætisráðherra, ekkert annað
skipti máli við ríkisstjórnarmyndun.
Vísað er í vinsældakannanir. Það er
hins vegar aðeins ein vinsældakönn-
un sem skipir máli. Kosningarnar
sjálfar. Kjósendur höfnuðu Katrínu
Jakobsdóttur og völdu Sigurð Inga
Jóhannsson.
Framsóknarmenn eiga fleiri kosti
en að sitja í ríkisstjórn með Vinstri
grænum og Sjálfstæðisflokki. Gefi
Framsóknarf lokkurinn eftir for-
sætisráðuneytið í áframhaldandi
stjórnarsamstarfi verður verðmið-
inn hár. Einsýnt er að Sigurður geri
kröfu um fjármálaráðuneytið og
augljóslega verður VG að horfa á eftir
heilbrigðisráðuneytinu og jafnvel
umhverfisráðuneytinu líka.
Þyngist þá þrautin fyrir Bjarna
Benediktsson. Hvaða ráðuneyti er
Áframhaldandi stjórnarsamstarf alls ekki tryggt
Vísað er í
vinsælda-
kannanir.
Enginn
veit sína
ævi fyrr en
öll er en öll
vitum við
að ævi
okkar
endar með:
Dauða!
n Í vikulokin
Við mælum með
BJORK@FRETTABLADID.IS
Ólafur
Arnarson
Það er enginn
að fara að deyja
nógu bitastætt? Fyrir flokksformann
felur það dauðann í sér að setjast í
utanríkisráðuneytið. Varla myndi
Guðlaugur Þór heldur kveðja það
þegjandi og hljóðalaust.
Sjálfstæðisflokkurinn vill halda
ríkisstjórnarsamstarfinu áfram því
að í þessari ríkisstjórn getur hann
óáreittur varið sérhagsmuni stórút-
gerðarinnar, sem virðist vera megin-
tilgangur þessarar fyrrum fjölda-
hreyfingar. Kannski Bjarni verði
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra? Kannski tekst ekki að halda
stjórnarsamstarfinu áfram. n
Nura A. Rashid, íslensk kona
af singapúrskum ættum,
sigraðist á brjóstakrabba-
meini fyrir tíu árum og beitir
sér nú fyrir því að jafna hlut
kvenna af erlendum uppruna
í heilbrigðiskerfinu.
ingunnlara@frettabladid.is
Verulega hallar á erlend-ar konur á Íslandi að sögn Nuru en sjálf telur hún sig heppna að hafa fengið góðar upplýsing-
ar og stuðning þegar hún barðist við
krabbamein. Þá hafði Nura búið á
Íslandi í fimm ár og náð góðum
tökum á íslensku tungumáli en
hún segir konur sem eru nýfluttar
til landsins eða kunna ekki tungu-
málið eiga í erfiðleikum með að
lóðsa sig í gegnum kerfið. Oft mæti
þær fordómum.
„Það eru dæmi um að læknar
horfi ekki í augun á konunum og
beini tali sínu að maka þeirra ef
hann er Íslendingur. Þær hringja í
móttökuna og þegar starfsmaður
heyrir ensku í símanum er skellt
á þær,“ segir Nura og bætir við að
þetta sé frekar algengt.
Meinið útskýrt á íslensku
„Þegar ég greindist var læknirinn
að reyna að útskýra meinið með
læknistali á íslensku. Ég er svo
frek að ég krafðist þess að hann
útskýrði þetta á ensku því ég gat
ekki skilið íslensku fullkomlega,
sérstaklega þegar ég þurfti taka við
ógrynni af upplýsingum og heyra
ný og framandi orð. Læknirinn
minn tók vel í það og útskýrði allt
á ensku.“
Hún segir nauðsynlegt að opna
umræðuna um menningarnæmi.
Ísland sé fjölmenningarsamfélag og
fólk nálgist veikindi á mismunandi
hátt eftir menningarheimum og
trúarbrögðum. Það sé nógu erfitt
að greinast með krabbamein, hvað
þá að vera langt frá fjölskyldu sinni
í landi þar sem maður skilur tungu-
málið illa.
„Ég vil bara hjálpa þessum
konum. Ég missti vin minn úr
krabbameini og ég reyni mitt besta
að ná til kvenna sem greinast. Það
eru ekki allar sem vilja hjálp en mér
finnst skipta máli að þessar konur
fái allar upplýsingar.“
Mismunað eftir uppruna
Aðspurð segir hún að konum sé
gert mishátt undir höfði eftir upp-
runa þeirra og það sé allt frá litlu
hlutunum, eins og að enginn bjóði
þeim góðan daginn þegar þær
skrái sig inn hjá móttökunni, að
stóru málunum, eins og að þær fái
ekki nauðsynlegar upplýsingar um
krabbameinsgreiningu sína.
„Þú átt að hugsa um þegna þína
og það á ekki að skipta máli hvort
þeir séu af erlendu bergi brotnir.“
Nura kemur fram á ráðstefnu um
heilsu kvenna af erlendum uppruna
sem fer fram í Borgarleikhúsinu í
dag, þann 2. október. Félagasam-
tökin Hennar rödd halda utan um
viðburðinn og Eliza Reid, forsetafrú
Íslands, mun ávarpa gesti í upphafi
ráðstefnunnar.
Nánar um dagskrá ráðstefnunnar
á vefsíðu samtakanna: hennarrodd.
is. n
Heilsa okkur ekki einu sinni
Nánar á frettabladid.is
Nura A. Rashid kemur fram á ráðstefnu samtakanna Hennar rödd sem fram fer í Borgarleikhúsinu í dag, þann 2.
október. Ráðstefnan fjallar um heilsu kvenna af erlendum uppruna. MYND/AÐSEND
Eva Dís Þórðardóttir segir í einlægu for-síðuviðtali frá aðdraganda og afleið-ingum þess að missa eiginmann sinn og verða ekkja aðeins 34 ára gömul. Sára reynsluna er hún staðráðin í að
láta efla sig og sína. Eins vill hún opinskátt
samtal um það sem tekur við, að líf þeirra sem
eftir eru haldi áfram þó að um tíma virðist það
óhugsandi. Við látum sem ódauðleg séum þar
til eitthvert okkar fær kallið og sjáum þá oftast
eftir því sem sagt var eða ósagt. Þegar börnin
fara að velta dauðanum fyrir sér erum við fljót
að kæfa spurninguna með því að við séum ekk-
ert að fara að deyja – og alls ekki þau! En eins
og Eva Dís bendir réttilega á í viðtalinu er það
náttúrlega bara kjaftæði.
Enginn veit sína ævi fyrr en öll er en öll vitum
við að ævi okkar endar með: Dauða! Og það er
án gríns bara svolítið hollt að horfast í augu við
þá staðreynd. n
2. október 2021 LAUGARDAGURHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ