Fréttablaðið - 02.10.2021, Síða 26
Andrea Röfn hefur
alveg einstakan stíl og
yndislega nærveru.
Samstarf okkar hefur
verið frábært enda
small hún inn í teymið
okkar frá fyrsta degi.
Bragi
Það er
ótrúlega
auðvelt að
staðna í
tískubrans-
anum og
mikil
áskorun að
halda sér í
formi eins
og við
orðum það.
Erla
Hjónin Bragi Jónsson og
Erla Hendriksdóttir fluttu
til Kaupmannahafnar fyrir
rúmum tveimur áratugum, þá
til að spila hand- og fótbolta,
en í dag reka þau lítið „slow
fashion“ fyrirtæki í kringum
JoDis skóna.
Þetta ævintýri hófst nú bara með góðum kaffibolla við stofuborðið heima í Köben þar sem við búum. Okkur dreymdi um að
stofna eigið skófyrirtæki sem ein-
blínir á gæði umfram magn – and-
stætt fjöldaframleiðslu, því okkur
er ekki sama hvernig skórnir eru
unnir eða úr hvaða efni,“ segir Bragi,
spurður út í ævintýrið sem hófst
fyrir fjórum árum síðan.
Erla og Bragi f luttu til Kaup-
mannahafnar fyrir rúmum 22
árum, Erla til að spila fótbolta og
Bragi handbolta. Þau gerðu bæði
samninga við lið í Kaupmannahöfn
og var ætlunin að prófa eitt ár fjarri
heimahögum. Heimferðin hefur
þó heldur betur dregist á langinn
og hafa þau nú búið í Danmörku í
rúma tvo áratugi og eru bæði löngu
hætt í boltanum. Nú er það fyrir-
tækjarekstur og skóframleiðsla sem
á hug þeirra allan.
Danskari en þau viðurkenna
„Það var aldrei planið að vera svona
lengi í Danmörku en tíminn er fljót-
ur að líða þegar það er gaman og
manni líður vel. Alveg frá fyrsta degi
höfum við kunnað vel við okkur í
Kaupmannahöfn og erum við lík-
lega orðin danskari en við viljum
viðurkenna”, segir Bragi brosandi.
„Við héldum lengi út í boltanum.
Ég spilaði í úrvalsdeildinni og Bragi
fór yfir í þjálfun. Á þessum tíma var
ég í íslenska landsliðinu í fótbolta og
kom því oft heim og fékk því aldrei
beinlínis heimþrá”, segir Erla.
Samhliða boltanum luku þau
háskólanámi, Erla í iðjuþjálfun og
Bragi viðskiptafræði. Eftir námið
hóf Bragi störf í fata- og skóbrans-
anum og ferðaðist víða um heim og
kynntist þessum bransa vel.
„Ég byrjaði að vinna með skó
fyrir 20 árum þegar ég vann fyrir
skóframleiðanda samhliða skóla
og þjálfun. Þetta fór vel saman og
framfleytti okkur á þessum tíma.
Eftir háskólanámið vann ég fyrir
danskt tískufyrirtæki sem sérhæfir
sig í fatahönnun, en nokkrum árum
seinna lá leið mín aftur inn skó-
bransann,“ segir Bragi.
Nöfn barnanna
Það var svo árið 2016 að Bragi og Erla
ákváðu að láta draum sinn rætast og
stofna fyrirtæki með eigin fram-
leiðslu og úr varð vörumerkið JoDis.
Nafnið er sett saman úr nöfnum
barna þeirra hjóna sem heita Jón-
atan Ari, 15 ára og Anna Dís fimm
ára. Það má því segja að þetta sé
sannkallað fjölskyldufyrirtæki.
Aðspurð hvernig það sé að reka
bæði heimili og fyrirtæki saman
svarar Erla að það hljómi kannski
sem hálfgerð klisja að segja að það
gangi vel, en þannig sé það nú samt.
„Okkur semur vel og við sjáum
hlutina með svipuðum hætti. Við
erum dugleg að ræða málin og hlusta
á sjónarmið hvors annars áður en við
tökum ákvarðanir – nú og stundum
erum við bara sammála um að vera
ósammála,“ segir Erla í léttum tón.
Bragi og Erla gera sitt besta til þess
að taka vinnuna ekki með sér heim,
enda tíminn með börnunum mikil-
vægur, en eðli málsins samkvæmt
gengur það ekki alltaf eftir.
„Öll framleiðslan fer fram í litlu
fjölskyldufyrirtæki í Portúgal undir
stjórn fólks sem í dag er orðið kærir
vinir okkar. Það skiptir svo miklu
máli að vinna með fólki sem þú
treystir og er á sömu bylgjulengd og
maður sjálfur, brennur fyrir sjálf-
bærni, gæðum og að fara vel með,“
segir Bragi.
Samstarf við áhrifavalda
Árið 2016 þegar hugmyndin kvikn-
Gæði umfram magn
Þau Erla og Bragi
verja flestum
stundum saman
enda hjón og
samstarfsfólk.
Þeim semur
vel og segjast
sjá hlutina
með svipuðum
hætti.
MYND/MARTIN
HOJER
Fimm áhrifavaldar hafa komið við sögu framleiðslunnar
og verður nýr íslenskur gestahönnuður kynntur fyrir jól.
Öll framleiðsla JoDis skólínanna fer fram í Portúgal.
aði voru áhrifavaldar áberandi og
vinsældir þeirra vaxandi. Þarna sáu
Bragi og Erla tækifæri til að byggja
upp vörumerki sem að stórum hluta
væri unnið í nánu samstarfi við
áhrifavalda úr tískuheiminum. Í dag
er stærsti hluti JoDis-línunnar hann-
aður í samstarfi við áhrifavalda.
„Það er ótrúlega auðvelt að staðna
í tískubransanum og mikil áskorun
að halda sér í formi eins og við
orðum það. Með því að vinna náið
með mismunandi fólki sem hefur
sinn eigin stíl erum við alltaf að
endurnýja okkur og fá inn ferskar
hugmyndir. Við viljum líka stofna til
náins sambands okkar á milli – það
er, ekki aðeins að fá áhrifavaldana
til að auglýsa vöruna heldur hafa
þá með í hönnunarferlinu öllu og
merkja þær vörur sem eru framleidd-
ar undir þeirra áhrifum, með þeirra
nafni. Á þennan hátt fáum við hug-
myndir og innblástur frá fólki sem
lifir og hrærist í tískuheiminum og
útkoman verður eftir því,“ segir Erla.
Seldist upp á mettíma
Frá upphafi hafa fimm áhrifavaldar
komið við sögu framleiðslunnar.
Fyrsta JoDis-línan var gerð í hönn-
unarsamstarfi með Mascha Vang
sem er einn stærsti áhrifavaldurinn
í Danmörku. Seinna kom lína með
söngkonunni Stine Bramsen og á
sama tíma kom fyrsta línan með
Andreu Röfn Jónasdóttur, íslensk-
um áhrifavaldi. Sú lína nefnist
„JoDis by Andrea Röfn“ og sló í gegn
á Íslandi og seldist upp á mettíma.
Síðan hafa fjórar línur verið fram-
leiddar í samvinnu við Andreu Röfn
og viðtökurnar verið framar vonum
að sögn hjónanna.
„Andrea Röfn hefur alveg ein-
stakan stíl og yndislega nærveru.
Samstarf okkar hefur verið frábært
enda small hún inn í teymið okkar
frá fyrsta degi,“ segir Bragi.
Nýr íslenskur hönnuður fyrir jól
Nú hafa yfir hundrað skótegundir
verið framleiddar undir nafninu
JoDis og í haust komu fyrstu barna-
skórnir.
Fram undan eru spennandi tímar
hjá fyrirtækinu og margir skór á
teikniborðinu. Ný Andreu Rafnar-
lína er nú í framleiðslu auk þess
sem nýr íslenskur gestahönnuður
verður kynntur til leiks fyrir jólin.
Þá er JoDis að vinna að nýrri línu
með þekktum dönskum aðila sem
verður opinberaður á næstu dögum
á Instagram-síðu fyrirtækisins.
„Það er ofboðslega spennandi að
vinna með nýju fólki. Þessar nýju
línur eru allar ólíkar, en sjúklega
f lottar hver á sinn hátt. Við erum
sérstaklega spennt að kynna nýjan
íslenskan gestahönnuð inn í teymið
okkar og hlökkum til að sjá viðtök-
urnar,“ segir Erla að lokum. n
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
26 Helgin 2. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ