Fréttablaðið - 02.10.2021, Síða 32
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr
Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Björn Víglundsson
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann
Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir,
ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Snyrtistofan Hafblik hefur í
gegnum árin sérhæft sig í tvenns
konar meðferðum, sem eru við-
gerðir á háræðum í andliti, og nátt-
úrulegar viðgerðarmeðferðir til að
bæta starfsemi húðarinnar, segir
Guðrún Jóhanna Friðriksdóttir,
snyrtifræðimeistari og eigandi
snyrtistofunnar Hafbliks.
„Þær náttúrulegu og húðvænu
meðferðir sem við bjóðum upp á
eru gerðar án inngrips með nálum
eða skurðhnífum og bæta raun-
verulega starfsemi húðarinnar
þannig að hún verður margfalt
sterkari og heilbrigðari í lok
meðferðarkúrs. Við höfum með
þessum aðgerðum náð undra-
verðum og raunverulegum árangri
sem við erum stolt af og viljum
koma á framfæri til allra þeirra
sem vilja njóta og með sanni eldast
með reisn.“
Hún segir starfsemi og frumu-
endurnýjun húðarinnar vera
stóraukna með háþróuðum og
byltingarkenndum viðgerð-
arkúr frá Bandaríkjunum þar sem
nýjustu hágæða örtækni er beitt.
„Þannig verður húðin raunveru-
lega sterkari, unglegri og meira
ljómandi. Húðin verður marg-
falt þéttari í lok langtíma með-
ferðanna og heldur áfram að vinna
á þessum aukna hraða í marga
mánuði. Raunveruleg viðgerð á
húð þar sem húðin verður sterkari,
unglegri og stinnari fæst einungis
með langtíma markvissum við-
gerðarmeðferðum.“
Hafblik býður upp á ókeypis
skoðunartíma þar sem metið er
hvað hentar hverjum og einum
best. „Húðin er stærsta líffæri lík-
amans og verðskuldar að hugsað sé
vel um hana. Hún þjónar til dæmis
mikilvægu hlutverki í vörnum og
hefur staðið með okkur í gegnum
súrt og sætt. Þegar við vorum yngri
töldum við mörg húðina eilífa, en
svo er ekki.“
Hafblik býður upp á glæsilega
tilboðspakka með frá 140 til 185
þúsund króna afslætti.
Engin inngrip
Fyrsta skrefið að sögn Guðrúnar
er að gera demantshúðslípun með
vönduðum tækjum frá Bandaríkj-
unum og í kjölfarið súrefnismeð-
ferð/Intraceuticals Infusion, sem
er Hollywood-súrefnismeðferðin
góða, ásamt annarri gerð súrefnis-
meðferðar þar sem notaðar eru
stofnfrumu ampúlur frá AnteAge.
„Þetta hátæknivædda bandaríska
fyrirtæki hefur unnið í mörg ár
með stofnfrumur úr beinmerg
25 ára einstaklinga og tekist að
greina og einangra yfir 200 stofn-
frumuhvata sem örva alla starf-
semi frumna okkar. Þetta er f lókið
og kostnaðarsamt ferli en gefur
100% náttúrulega meðferð án
nála eða annarra inngripsmikilla
aðgerða.“
Hún segir AnteAge vera með
einkaleyfisvarða formúlu sem
líkir 100% eftir stofnfrumu-
hvötum fólks. „Við erum ekki að
fá neitt úr annarri manneskju, en
þessi einkaleyfisvarða formúla
líkir 100% eftir boðkerfi stofn-
frumna. Í einfölduðu máli er
hægt að segja að þessir stofn-
frumuhvatar tali sama tungumál
og frumurnar í líkama okkar,
sem fullkomnar skilvirknina
í viðgerðarferlinu. Þetta er
demanturinn á bak við þennan
stórglæsilega og raunverulega
árangur sem við erum svo stolt af
ásamt súrefnismeðferðunum og
bandarísku hágæða demantshúð-
slípitækjunum.“
Súrefnismeðferð
Hollywood-stjarnanna
Intraceuticals Infusion/súrefnis-
meðferð fyllir á náttúrulegar
birgðir húðarinnar með fráhrindi-
krafti 98% hreins súrefnis, að sögn
Guðrúnar. „Þetta er náttúruleg
og húðvæn aðferð til að koma
hreinum náttúrulegum efnum í
neðstu lög húðarinnar þar sem
frumuendurnýjunin á sér stað, án
nála eða annarra inngripsmikilla
aðgerða og er nútímalegri og
þróaðri en meðferðir þar sem húð
er rofin.“
Hún segir virku efnin vera
frostþurrkuð á mjög vísindalegan
og háþróaðan hátt. „Þessi frost-
þurrkuðu virku efni eru í marg-
innsigluðum vönduðum ampúlum
og varðveitast 100% fersk þar til
þær eru opnaðar, til að vinna ofan
í húðina. Þessi meðferð marg-
faldar viðgerðarþátt demantshúð-
slípunarinnar og flýtir þannig fyrir
árangrinum.“
Snyrtistofan Hafblik er ein
tveggja snyrtistofa á landinu sem
bjóða upp á Intraceuticals Infu-
sion/súrefnismeðferð og uppfylla
þær báðar ströngustu gæðakröfur
Intraceuticals.com og eru skráðar
þar á alþjóðavísu sem slíkar stofur.
Hin glæsilega stofan er Snyrti-
stofan á Garðatorgi.
Það er til lausn
Í meðferð Hafbliks er notast við
hljóðbylgjur til að þurrka upp
blóðprótínið í skemmdu háræðun-
um. „Þetta er hárnákvæm aðferð
og hverri æð er fylgt eftir punkt
fyrir punkt og ekki höfð áhrif á
neitt annað en skemmdu háræðina
og er hún því mjög árangursrík.“
Yfirleitt tekur þrjú skipti að loka
skemmdu háræðunum endanlega
og 4-5 vikur eru látnar líða á milli
meðferða. „Ef það þarf fleiri en
þrjár meðferðir borga viðskipta-
vinir ekkert eftir þriðju meðferð,
en ekki mega líða meira en 6-8
vikur frá síðustu meðferð á sama
meðferðarsvæði.“
Þegar skemmdu háræðarnar
sem eru til meðferðar eru 100%
lokaðar koma þær ekki aftur. „Hins
vegar er þessi hópur fólks með veilt
háræðakerfi að upplagi og er því
hægt að fá nýjar háræðaskemmdir.
Því er nauðsynlegt að vera meðvit-
aður um að verja húðina vel, meðal
annars fyrir sól og frosti,“ bætir
Guðrún við.
Ótvíræður árangur
Háræðaskemmdir í andliti valda
iðulega mikilli vanlíðan hjá fólki
og segist Guðrún þekkja það vel af
eigin raun, þar sem hún hafi þjáðst
af rósroða frá því hún var rétt um
þrítugt.
„Það hafði í för með sér að
háræðar skemmdust og auðveldast
er að lýsa ástandi húðarinnar sem
stríðshrjáðri húð með allri sinni
eyðileggingu. Við erum flest öll
búin að fara í endalausar laser-
meðferðir en takmörkuð eða engin
lausn hefur fengist. Ég leitaði lengi
lausna og fór í kjölfarið að fara
á margar „Professional Beauty
Shows“ í Bandaríkjunum og þar
vöktu sérfræðingar athygli mína
á hljóðbylgjumeðferðum gegn
háræðaskemmdum. Ég fylgdist
lengi vel með, en síðan náði Belgía
mér með enn nákvæmari tíðni. Ég
fór í gegnum allt þetta ferli sjálf og
fór til Belgíu í þessar meðferðir þar
sem ég tók þetta sérnám í kjölfarið.
Ég er þannig að upplagi að ég þarf
að sannprófa allt, margreyna og sjá
ótvíræðan árangur áður en ég til-
einka mér ákveðna tækni og mæli
með.“ n
Nánari upplýsingar á snyrt.is.
Andrúmsloftið á Snyrtistofunni Hafblik er notalegt og stofan er björt og falleg. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Hér sést
vel hversu
árangursrík
meðferðin
getur verið.
Eftir meðferð-
ina hjá Hafbliki
lítur nefið miklu
betur út.
Yfirleitt tekur
þrjú skipti að
loka skemmdu
háræðunum
endanlega.
Mælir hiklaust með meðferðinni
„Meðferðin tókst vel og árangurinn er sannarlega vel sjáanlegur, á
því er enginn vafi,“ segir Steinn Karlsson, sem er einn þeirra sem hafa
fengið lausn á sínum vanda hjá Snyrtistofunni Hafbliki. Upp úr tvítugu
byrjuðu að myndast háræðaskemmdir í andliti hans sem jukust jafnt
og þétt með árunum. „Nú eru þær næstum allar horfnar,“ bætir hann
við.
Áður en Steinn sá auglýsingu um meðferðina hjá Hafbliki hafði hann
íhugað lasermeðferð. „Mér fannst slík meðferð vera fullmikið vesen
og því varð ekkert úr henni. Ég ákvað að kíkja til Guðrúnar hjá Hafbliki
eftir hvatningu frá eiginkonunni og í sameiningu ákváðum við Guðrún
bara að kýla á þetta. Sjálf meðferðin var öðruvísi en ég átti von á. Við
hittumst í fjögur skipti yfir rúmt ár og létum nokkra mánuði líða á milli
skipta enda þurfti ég tíma til að jafna mig. Eftir hverja meðferð var ég
smá rauður og aumur en ég notaði krem samkvæmt ráðleggingum frá
Guðrúnu og var því yfirleitt nokkuð fljótur að jafna mig.“
Steinn segist því hiklaust geta mælt með meðferðinni hjá Hafbliki.
„Þegar maður hefur mikið af háræðaskemmdum eins og ég var með
gátu þær reglulega valdið ertingu og óþægindum. Meðferðin mín tókst
virkilega vel, enda kallar Guðrún mig reglulega mesta og stærsta lista-
verkið sem hún hefur gert fram að þessu.“
Fætur og heilsa
Hrafnhildur Hjartardóttir, löggiltur snyrti- og fótaaðgerðafræðingur.
Tímapantanir mánudaga til föstudaga milli klukkan 9 og 15, í síma
768-0660.
Fætur og vellíðan
Guðrún Svava Gunnlaugsdóttir, fótaaðgerða- og snyrtifræðingur.
Sími 868-9383.
Eins og sjá má á myndum af Steini Karlssyni er árangurinn stórkostlegur.
Þannig verður
húðin raunveru-
lega sterkari, yngri og
meira ljómandi.
Guðrún Jóhanna Friðriksdóttir
2 kynningarblað A L LT 2. október 2021 LAUGARDAGUR