Fréttablaðið - 02.10.2021, Page 36
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarna
dóttir (audur@vinnvinn.is) og Hildur Jóna
Ragnarsdóttir (hildur@vinnvinn.is).
Lögfræðingur
Árnason Faktor óskar eftir að ráða lögfræðing til starfa. Leitað er að kraftmiklum og metnaðar
fullum einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna í sterku teymi starfsmanna fyrirtækisins.
Starfssvið:
• Almenn ráðgjöf á sviði hugverkaréttar og þá sérstaklega á sviði vörumerkja, hönnunar,
léna og einkaleyfa.
• Almenn ráðgjöf hvað varðar önnur auðkenni og hugverk í atvinnustarfsemi.
• Almennt utanumhald og rekstur mála fyrir framangreind réttindi.
• Skrif greinargerða og rökstuðnings, samskipti við innlenda og erlenda samstarfsaðila
og stofnanir.
• Samningagerð og önnur lögfræðileg vinna sem tengist hugverkum.
Menntunar og hæfniskröfur:
• Háskólagráða í lögfræði, cand.jur. eða meistaragráða (5 ára nám í lögfræði áskilið).
• Áhugi og þekking á hugverkarétti æskileg og þá sérstaklega hugverkarétti á sviði iðnaðar.
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti, mjög góð íslensku og enskukunnátta.
• Samskiptafærni og geta til að starfa í teymi.
• Skipulagshæfileikar, samviskusemi, sjálfstæði og áreiðanleiki.
Umsóknarfrestur er til og með 11. október nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Árnason Faktor sérhæfir sig í ráðgjöf og
þjónustu við vernd hugverka með sérstaka
áherslu á þjónustu við íslenskt atvinnulíf.
Starfsfólk okkar hefur áratuga reynslu á
sviði hugverkaréttar og leggjum við mikla
áherslu á þjálfun og þekkingaruppbyggingu.
Starfsmenn fyrirtækisins hafa menntun
og reynslu á sviði laga-, tækni-, raun- og
hugvísinda.
hagvangur.is
Íslensk fjárfesting óskar eftir að ráða reynslumikinn launafulltrúa.
Ástæðan er mikill vöxtur félagsins og mun viðkomandi vera hluti af teymi
sem ber ábyrgð á launavinnslu fyrir alla starfsmenn fyrirtækisins og
dótturfyrirtækja.
Helstu verkefni
• Launavinnsla og frágangur launa fyrir nokkur misstór fyrirtæki
• Túlkun kjarasamninga og eftirlit með framkvæmd þeirra
• Upplýsingagjöf varðandi launavinnslu og kjaratengd mál
• Eftirfylgni og innheimta gagna
• Umsjón með skráningu launaupplýsinga í launakerfi
• Aðstoð og ráðgjöf til stjórnenda í málum tengdum mannauði
og starfsmannahaldi s.s. vegna ráðningasamninga
• Ýmis skýrslugerð, greining, samantekt og úrvinnsla á sviði kjaramála
• Skjalastýring persónulegra gagna starfsmanna
• Ábyrgð með umsýslu og innheimtu á gögnum
• Ábyrgð á skilagreinum og greiðslum til opinberra aðila, stéttarfélaga
og annarra vegna launatengdra gjalda
Hæfniskröfur
• Menntun og reynsla sem nýtist í starfi
• Þekking og reynsla af launavinnslu, kjaramálum, veikindarétti og öðru
sem snýr að starfsmannamálum
• Haldgóð reynsla af H3 launavinnslukerfi, fræðsla og mannauður er skilyrði
• Góð almenn tölvuþekking - Kunnátta á My time plan er kostur
• Hæfni til að greina gögn og upplýsingar
• Framúrskarandi þjónustulund, jákvæðni og hæfni í mannlegum
samskiptum
• Sjálfstæði, nákvæmni og skipulagshæfileikar
• Frumkvæði, metnaður til að ná árangri og vilji til þess að taka þátt
í fjölbreyttum verkefnum
• Hæfni til að miðla þekkingu og upplýsingum á íslensku og ensku
• Þekking á persónuverndarreglum
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 12. október nk.
Nánari upplýsingar veitir Þórdís Sif Arnarsdóttir,
ráðgjafi, thordis@hagvangur.is
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna
starfinu rökstudd.
Íslensk fjárfesting hefur markað sér þá stefnu að
fjárfesta á þremur aðalsviðum: Ferðaþjónustu,
heilbrigðisþjónustu og fasteignum.
Launafulltrúi