Fréttablaðið - 02.10.2021, Page 37
Framkvæmdastjóri
sölu- & markaðsmála
Framsækið fjártæknifyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu með byltingarkennda sýn og nýjar áherslur
á rótgrónar hefðir leitar að stjórnanda til að leiða sölu- og markaðsstarf félagsins. Starfið felur í
sér ábyrgð á tekjuöflun, skipulagningu og stefnumótun sölu- og markaðsmála ásamt uppbyggingu
ímyndar. Viðkomandi þarf að brenna fyrir nýsköpun og breytingar sem bæta samfélagið.
Helstu verkefni:
• Ábyrgð á tekjuöflun og markaðssetningu.
• Mótun stefnu og yfirumsjón með sölu, markaðsmálum, vefmálum og samfélagsmiðlum.
• Uppbygging ímyndar og stafræn stefnumótun.
• Umsýsla efnissköpunar og hugmyndavinnu.
• Umsjón með hönnun markaðsefnis.
• Markaðsgreiningar, greining markhópa, leitarvélabestun og A/B prófanir.
• Þátttaka í þróun lausna.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Brennandi áhugi á nútímatækni og næmt auga fyrir nýjungum og straumum og stefnu
í markaðsmálum.
• Þekking og reynsla af stafrænni sölu, markaðssetningu, vefumsjón og samfélagsmiðlum.
• Góð færni í áætlanagerð, greiningartólum (SEO, Google Analytics, o.fl.) og A/B prófanir.
• Framúrskarandi samskipta- og samvinnuhæfni.
• Góð íslensku- og enskukunnátta.
• Háskólapróf sem nýtist í starfinu.
Umsóknarfrestur er til og með 11. október nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsjón með starfinu hafa Jensína K.
Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og
Hildur J. Ragnarsdóttir (hildur@vinnvinn.is).
Byltingarkennd
sýn og nýjar
áherslur á
rótgrónar hefðir!
Við hvetjum áhugasama til að sækja um,
óháð kyni og uppruna.
Umsjón með starfinu hafa Hilmar
G. Hjaltason (hilmar@vinnvinn.is) og
Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is).
Mannauðs- og gæðastjóri
Hlutverk Hörpu er að vera vettvangur fyrir
tónlistar- og menningarlíf sem og hvers konar
ráðstefnur, fundi og samkomur, innlendar og
erlendar. Hlutverk hússins er jafnframt að
vera menningarmiðstöð fyrir alla landsmenn
og áfangastaður innlendra og erlendra
ferðamanna. Markmið félagsins er að efla
íslenskt tónlistar- og menningarlíf, styrkja
stöðu Íslands á sviði ráðstefnuhalds og
ferðaþjónustu og stuðla að öflugu mannlífi
í miðborginni. Harpa hefur hlotið fjölda
viðurkenninga og alþjóðlegra verðlauna
fyrir byggingarlist og aðstöðu.
Harpa hefur mótað sér jafnréttisstefnu, hefur
hlotið jafnlaunavottun og er jafnframt aðili að
Jafnvægisvoginni. Við hvetjum áhugasama til
að sækja um, óháð kyni og uppruna. Sjá nánar
um stefnur félagsins á www.harpa.is.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Ert þú frábær í mannlegum samskiptum, með menntun og reynslu af mannauðs- og gæðamálum og
langar að starfa á skemmtilegum vinnustað? Ef þessi lýsing passar við þig þá erum við mögulega að
leita að þér.
Um er að ræða nýtt starf mannauðs- og gæðastjóra hjá Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúsi ohf. Hér er
gullið tækifæri fyrir kröftugan einstakling sem vill taka þátt í að efla Hörpu sem enn betri vinnustað.
Við leitum að jákvæðum, metnaðarfullum og hugmyndaríkum liðsmanni til að slást í góðan hóp.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni:
• Ábyrgð á þróun og framkvæmd mannauðsstefnu og gæðamála.
• Ráðgjöf til stjórnenda og starfsmanna.
• Persónuverndarfulltrúi og ábyrgð á jafnlaunakerfi félagsins.
• Umsjón með starfsþróunar-, vinnuverndar- og fræðslumálum.
• Mótun ferla og innleiðing umbótaverkefna.
• Árangursmælingar.
• Túlkun kjarasamninga og samskipti við stéttarfélög og eftirlitsstofnanir.
• Önnur tengd verkefni.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála kostur.
• Reynsla á sviði kjarnaverkefna starfsins.
• Reynsla af verkefnastjórnun og ferlavinnu.
• Mikil færni í mannlegum samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki.
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
• Metnaður til að ná árangri í starfi og góðir skipulagshæfileikar.
• Hæfni og geta til að vinna undir álagi.
• Mjög gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti.
Umsóknarfrestur er til og með 11. október nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.vinnvinn.is.