Fréttablaðið - 02.10.2021, Side 44
Öryggi | Samvinna | Framsækni
Staða framkvæmdastjóra hjúkrunar við Sjúkrahúsið á Akureyri er laus til umsóknar. Framkvæmdastjóri hjúkrunar gegnir einnig starfi framkvæmdastjóra
bráða- og þróunarsviðs og er um 100% stöðu að ræða. Staðan veitist frá og með 1. nóvember 2021 eða eftir samkomulagi. Framkvæmdastjóri heyrir beint undir
forstjóra og á sæti í framkvæmdastjórn. Framkvæmdastjóri hjúkrunar er faglegur forsvarsmaður hjúkrunar á sjúkrahúsinu. Um faglega ábyrgð vísast til 10 gr. laga
um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007.
Undir bráða- og þróunarsvið falla bráðalækningar, myndgreiningalækningar, rannsóknalækningar, unglæknar, bráðamóttaka, myndgreiningadeild,
rannsóknadeild, deild mennta og vísinda, gæðamál og sýkingavarnir. Einnig fellur starfsemi Sjúkraflutningaskólans undir ábyrgðarsvið framkvæmdastjóra.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is. Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf með framtíðarsýn og rökstuðningi fyrir
hæfni til að gegna tiltekinni stöðu. Stöðunefnd framkvæmdastjóra hjúkrunar, sbr. 36. gr. laga um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, metur hæfni
umsækjenda. Ákvörðun um ráðningu mun byggjast á ráðningarviðtölum, innsendum gögnum, umsagnaraðilum og umsögn stöðunefndar. Öllum umsóknum
verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Laun skv. gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag
íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri, hildig@sak.is
Almennt um starfssvið framkvæmdastjóra
• Forysta um þjónustu við sjúklinga
• Mótun stefnu og markmið hjúkrunar á sjúkrahúsinu
• Stuðningur við faglega þróun hjúkrunar og starfsþróun hjúkrunarfræðinga,
ljósmæðra og sjúkraliða auk eflingar faglegrar þróunar allra annarra
heilbrigðisstétta í samvinnu við aðra framkvæmdastjóra
• Fjárhagsleg ábyrgð á rekstri bráða- og þróunarsviðs, fagleg ábyrgð á starfsemi
sviðsins auk ábyrgðar á starfsmönnum sviðsins
• Samhæfing á starfsemi bráða- og þróunarsviðs við önnur svið
• Þátttaka í störfum framkvæmdastjórnar skv. nánari ákvörðun forstjóra og
samábyrgðar í heildarrekstri
Hæfnikröfur
• Háskólanám í hjúkrunarfræði og íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur
• Meistaranám í hjúkrun eða heilbrigðisvísindum
• Farsæl reynsla af stjórnun, rekstri og mannaforráðum
• Leiðtogahæfni og lausnamiðuð nálgun á árangur
• Frumkvæði, drifkraftur og stefnumótandi hugsun
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og miðlun upplýsinga
Framkvæmdastjóri hjúkrunar
Allar nánari upplýsingar á vef www.sak.is/atvinna
Umsóknarfrestur er til og með 15. október 2021
Nánari upplýsingar um störfin veita Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu
(thorarinn.petursson@sedlabanki.is) og Erla Traustadóttir sérfræðingur á mannauðssviði (mannaudur@sedlabanki.is). Um-
sóknarfrestur er til og með 6. október.
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða hagfræðinga á sviði hagfræði og peningastefnu.
Hagfræði og peningastefna annast rannsóknir og greiningu á þróun efnahags- og peningamála, gerir þjóðhags- og
verðbólguspár og tekur þátt í mótun stefnunnar í peningamálum. Sviðið hefur m.a. umsjón með útgáfu ársfjórðungs-
ritsins Peningamála og enskri útgáfu þess Monetary Bulletin.
Hagfræðingar
SEÐL ABANKI ÍSL ANDS
Helstu verkefni:
• Almennar rannsóknir, einkum á sviði peninga- og
þjóðhagfræði
• Þátttaka í gerð verðbólgu- og þjóðhagsspáa
bankans
• Vinna í tengslum við greiningu og skrif í Peninga-
mál
• Tilfallandi verkefni og ráðgjöf á ábyrgðasviðum
Seðlabankans
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Meistarapróf í hagfræði
• Reynsla af rannsóknum á sviði peninga- og þjóðhag-
fræði æskileg
• Reynsla af notkun tölfræðiforrita í hagrannsóknum
æskileg
• Gott vald á mæltu og rituðu máli, bæði íslensku og
ensku
• Góð hæfni í að setja fram fræðilegt efni á skýran hátt
• Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til
að vinna sjálfstætt og með öðrum
• Frumkvæði, nákvæmni í vinnubrögðum og
metnaður í starfi
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans
er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal
bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjald-
eyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur
bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af trausti, fagmennsku,
þekkingu og framsækni.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Sótt er um störfin á heimasíðu Seðlabanka
Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans. Laun greiðast
samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr.
37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
2019 - 2022
Ánægðir viðskiptavinir
eru okkar besta auglýsing
Sérfræðingar í
ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is
10 ATVINNUBLAÐIÐ 2. október 2021 LAUGARDAGUR