Fréttablaðið - 02.10.2021, Síða 46
Grunnskólakennari
Laus er til umsóknar kennarastaða við Reykjahlíðarskóla
í Mývatnssveit frá 1. janúar – 1. júní 2022.
Um er að ræða afleysingu í 70% starf (frí á föstudögum)
umsjónarkennara 2. og 3. bekkjar.
Hæfniskröfur:
• Kennsluréttindi á grunnskólastigi.
• Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
• Góðir skipulagshæfileikar.
• Ábyrgð og stundvísi.
• Faglegur metnaður.
• Áhugi á að vinna með börnum og unglingum.
Reykjahlíðarskóli er framsækinn skóli með 39 nemendur í
1. – 10. bekk. Í skólanum er unnið með samkennslu árganga,
samþættingu námsgreina og rafræna kennsluhætti og vinna
kennarar oft verkefni saman þvert á árganga. Kennarar
leitast við að haga skólastarfi í sem fyllstu samræmi við
þarfir nemenda og stuðla að alhliða þroska hvers og eins.
Kennarar hafa frelsi til að útfæra námsefni á þann hátt sem
þeim þykir henta nemendum best með hliðsjón af hæf-
niviðmiðum Aðalnámskrár grunnskóla.
Í Mývatnssveit búa um 500 manns. Í metnaðarfullri mann-
auðsstefnu sveitarfélagsins kemur m.a. fram að boðið er
upp á flutningsstyrk, heilsustyrk, launað frí fyrir barns-
hafandi konur síðasta mánuð meðgöngu, starfsaldurs-
tengdar greiðslur o.fl. fyrir starfsfólk. Við erum fjölskyldu-
vænt samfélag með öflugt leikskóla- og grunnskólastarf,
boðið er upp á ókeypis skólamáltíðir fyrir börn og ókeypis
frístund. Við erum heilsueflandi samfélag.
Frekari upplýsingar veitir Hjördís Albertsdóttir skólastjóri
hjordis@reykjahlidarskoli.is
Umsóknarfrestur er til 10. október 2021
Meginhlutverk kjaramálasviðs er að veita félagsmönnum Eflingar faglega,
skilvirka og persónulega þjónustu. Undir sviðið heyrir þjónusta og móttaka
einstaklinga varðandi launa- og kjaramál. Kjaramálafulltrúi veitir góða ráðgjöf
og kynnir sér mismunandi aðstæður verkafólks og leitar leiða til að koma mál-
um þeirra í réttan farveg. Við leitum að þjónustulunduðum og samviskusömum
starfsmanni í hóp kjaramálasviðs þar sem starfa í dag 10 manns.
Hjá Eflingu stéttarfélagi starfa um 60 starfsmenn á skrifstofu félagsins, í
Guðrúnar túni 1 og útibúi Eflingar í Hveragerði. Félagið var stofnað árið 1998
og er eitt stærsta stéttarfélagið á landinu. Í dag eru félagsmenn um 28.000
og stór hluti félags manna er af erlendu bergi brotinn. Efling stéttar félag gerir
aðalkjarasamninga fyrir störf verkafólks og störf í þjónustu ríkis og sveitarfélaga.
Helstu verkefni
• Samskipti og þjónusta við
félagsmenn og atvinnurekendur
• Móttaka, svörun og eftirfylgni
erinda félagsmanna
• Bréfaskriftir og kröfugerðir fyrir
hönd félagsmanna
• Útreikningar á kröfum
félagsmanna
• Samstarf við lögmenn félagsins og
aðra aðila á vinnumarkaði
Hæfniskröfur
• Stúdentspróf eða sambærileg
menntun. Háskólapróf er kostur
• Reynsla og þekking á
vinnumarkaðs málum og
kjarasamningum kostur
• Mjög góð færni í mannlegum
samskiptum og menningarlæsi
• Rík þjónustulund og
umburðarlyndi
• Skipulags- og greiningarhæfni og
geta til að vinna undir álagi
• Góð tök á íslensku og
ensku í ræðu og riti, önnur
tungumálakunnátta mikill kostur
• Góð tölvukunnátta og reynsla í
Office 365
• Nákvæmni og vönduð vinnubrögð
Kjaramálafulltrúi
Sótt er um starfið á alfred.is. Umsóknarfrestur er til og með
15. október. Nánari upplýsingar um starfið veitir Elva Dögg
Pálsdóttir, mannauðsstjóri Eflingar, á elvadogg@efling.is
GILDI DiSTICA ERU ÁREIÐANLEIKI, HREINSKIPTNI OG FRAMSÆKNI
METNAÐARFULLUR LEIÐTOGI
VÖRUHÚSA DISTICA
Distica óskar eftir að ráða metnaðarfullan leiðtoga sem deildarstjóra til að sjá um rekstur þriggja
vöruhúsa Distica sem skiptast í sjö rekstrareiningar þar sem starfa um 70 manns. Deildarstjórinn
er hluti af öflugum stjórnendahópi Distica og heyrir beint undir framkvæmdastjóra Distica.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL OG MEÐ 9. OKTÓBER NK.
Tekið er við umsóknum í gegnum ráðningarvef Distica, www.distica.is.
Umsókn um starfið skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu
umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Nánari upplýsingar um starfið veita Júlía Rós Atladóttir, framkvæmdastjóri, juliaa@distica.is
s. 665-7501 og Pétur Veigar Pétursson, starfsmannastjóri, petur@veritas.is s. 897-1626.
Distica sérhæfir sig í innflutningi og dreifingu á lyfjum og heilbrigðisvörum og hefur til þess leyfi frá
Lyfjastofnun. Gæðakerfi fyrirtækisins er vottað samkvæmt gæðastaðlinum ISO 9001 og það uppfyllir einnig
kröfur Evrópusambandsins um góða starfshætti í lyfjadreifingu (GDP). Distica er hluti af fyrirtækjasamstæðu
Veritas ásamt Artasan, MEDOR, Vistor og Stoð.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ábyrgð á stjórnun, rekstri og starfsmannamálum
vöruhúsa Distica
• Ábyrgð á ferlum og bestun á flæði í rekstri
vöruhúsa
• Skipulag vöruhúsa og stefnumótun til framtíðar
• Verkefnastýring og framkvæmd umbótaverkefna
• Gerð og rýni samninga við undirverktaka og mat
á frammistöðu þeirra
• Þátttaka í rekstri gæðastjórnunarkerfis
• Ábyrgð á virkni upplýsingakerfa í vöruhúsum
• Gerð og ábyrgð á rekstraráætlunum
• Samskipti við birgja og viðskiptavini
• Virk þátttaka í framkvæmdastjórn Distica
• Ábyrgð á árangursmælikvörðum deildarinnar
Menntun og reynsla
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi,
framhaldsmenntun er kostur
• Afburða hæfni í samskiptum og stjórnun
starfsmanna
• Reynsla af stjórnun er skilyrði
• Góð færni í notkun upplýsingakerfa
• Reynsla af verkefnastjórnun kostur
• Þekking á rekstri vöruhúsa og/eða
lyfjadreifingar eða -framleiðslu æskileg
• Þekking á GMP/GDP kröfum kostur
• Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
Þátttakandi
í íslensku
atvinnulífi
í 50 ár
hagvangur.is