Fréttablaðið - 02.10.2021, Side 49
Sala og bókanir
Fullt starf Ferðaþjónusta
Metnaðarfullt starfsfólk óskast í bókanir og sölu hjá GoNorth.
Umsóknarfrestur er til 11.10. 2021
Sjá nánar á Job
Garðyrkjufulltrúi óskast
Fullt starf Sérfræðingur
Leitað er eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir
metnað og frumkvæði í starfi. Umsóknarfrestur er til 6. október.
Sjá nánar á Job
Skatturinn leitar að jákvæðum, áhugasömum og dugmiklum einstaklingi til starfa í
mötuneyti embættisins á starfsstöð þess að Laugavegi 166. Um fullt starf er að ræða,
tímabundið til eins árs, en með möguleika á framlengingu ef aðstæður leyfa.
Tveir starfsmenn starfa nú þegar í mötuneytinu við móttöku, fulleldun og framreiðslu
matar, undirbúning funda, uppvask, frágang og þrif auk annarra tilfallandi verkefna.
Hæfniskröfur
• Rík þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum.
• Fáguð framkoma og snyrtimennska.
• Frumkvæði og metnaður til að sýna árangur í starfi.
• Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
• Áhugi á hollri matargerð.
• Stundvísi og reglusemi.
• Hæfileiki til að vinna undir álagi.
• Reynsla af starfi í mötuneyti er æskileg.
• Ekki er gerð krafa um formlega menntun á sviði framreiðslu.
• Gerð er krafa um reyklausan starfsmann.
Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknir skulu fylltar út á vefsíðu Skattsins, skatturinn.is, eða á vefsíðu Starfatorgs, starfatorg.is.
Ferilskrá, auk kynningarbréfs, sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri
störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir skal fylgja með svo umsókn teljist fullnægjandi.
Umsækjendum um störf hjá Skattinum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu
sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.
Laun taka mið af gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Sameykis - stéttarfélags
í almannaþjónustu.
Skatturinn hvetur fólk af öllum kynjum til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Gunnarsdóttir í síma 442-1000 eða í gegnum tölvupóst
á netfangið kristin.gunn@skatturinn.is
Umsóknarfrestur er til og með 11. október og verður öllum umsóknum svarað þegar
ákvörðun hefur verið tekin um ráðningu.
Öflugur liðsmaður óskast
í mötuneyti Skattsins
442 1000
Upplýsingaver opið:
Mán.-fim. 9:00-15:30
Fös. 9:00-14:00
Skemmtilegasta
starfið!
radningar.hafnarfjordur.is
Sæktu um á:
Hafnarfjarðarbær óskar eftir starfsfólki
í „skemmtilegasta starf sem hægt er að
hugsa sér“.
hfj.is/KEM26r
Lausar stöður hjá
Hafnarfjarðarbæ
Hafnarfjordur.is
Nánari upplýsingar á:
Fjölskyldu- og barnamálasvið
• Sérfræðingur í velferðarmálum
Grunnskóli
• Íslenskukennari á unglingast. – Skarðshlíðarskóli
• Íslenska sem annað mál 60% – Hraunvallaskóli
• Skóla- og frístundaliði - Áslandsskóli,
Engidalsskóli
• Þroskaþjálfi / Iðjuþjálfi – Lækjarskóli
Leikskóli
• Aðstoð í eldhús – Arnarberg
• Leikskólakennarar - Arnarberg, Álfasteinn,
Hlíðarberg, Hlíðarendi, Hörðuvellir, Norðurberg
• Leikskólakennarar í 50-100% starf - Víðivellir
• Sérkennslustjóri - Hraunvallaleikskóli
Málefni fatlaðs fólks
• Starfsmaður á heimili - Smárahvammur
• Starfsmaður í vaktavinnu - Heimili fatlaðs fólks
• Þroskaþjálfi í vaktavinnu - Heimili fatlaðs fólks
Síðumúla 5 • 108 Reykjavík • 511 1225 • intellecta.is
RÁÐNINGAR
RÁÐGJÖF
RANNSÓKNIR