Fréttablaðið - 02.10.2021, Page 70
Víkurhvarfi 6 - 203 Kópavogur - Sími 412 1700 - idex@idex. is
www.idex.is
Byggðu til framtíðar með lausnum frá IDEX
Betri gluggar - betri heimili
ágreiningur sem sé eðlilegt í svo
stórum hópi. „Það var ekkert hægt
að ætlast til þess að þessi hópur sem
var fenginn til að leika í stuttmynd
myndi lifa lengi sem hljómsveit en
hún hefur samt gert það með Bigga
Veiru sem skipstjóra,“ segir Daníel
og vísar til Birgis Þórarinssonar.
„Allir sem komu að þessu í upp-
hafi voru með einhvers konar tón-
listarlegan bakgrunn og lög uppi í
erminni en okkur langaði að finna
einhvern raftónlistarmann til að
vinna með og leist best á Bigga Veiru
og Magga Legó og þeir voru til í þetta
rugl,“ segir Daníel og þeir Magnús
hlæja báðir.
„Raftónlist var alveg ný fyrir
öllum þarna og ég man að þetta var
rosalega nýtt fyrir mér, ég var bara
svona kumbaya gítarleikari og skildi
ekki þennan heim,“ segir Magnús og
Daníel tekur undir. „Aðgengileiki
þess að gera raftónlist varð miklu
meiri á þessum tíma út af tækninni.
Það varð miklu auðveldara að for-
rita, sampla og vinna með tölvu í
tengslum við tónlist. Þegar maður
var búinn að setja tónlistina í tölv-
una gat maður leikið sér svo mikið
með hana og möguleikarnir virtust
allt í einu endalausir,“ segir hann.
Raftónlistin frelsandi
Þeir segjast báðir semja tónlist að
miklu leyti í tölvu sem veiti mikið
frelsi í sköpuninni.
„Við gerum báðir mikið af því í dag
að semja þannig frekar en að setjast
niður með kassagítarinn. Þá setur
maður bara fyrsta hamarinn í gang
með bassatrommunni og byrjar að
vinna hugmyndir út frá því. Flæðið
er svo óheft og maður þarf ekki að
leggja á minnið einhverja hljóma,“
útskýrir Daníel.
„Allt í einu hefur maður aðgang
að mörgum stílum, ég var til dæmis
ekki beint að semja í diskó, funk
eða house áður en ég fann þennan
rafheim. Það er ekki fyrr en eftir að
ég þroskast í gegnum GusGus-ferlið
og fer að vinna meira með Magga
Legó að ég finn mitt jive, ég hefði
aldrei kynnst þessu ef ég hefði ekki
farið í þessa rannsóknarferð,“ segir
Magnús.
Ekki of gamlir
Daníel og Magnús hafa báðir mest-
allt sitt líf unnið að tónlist og list-
sköpun. Þeir eru báðir komnir yfir
fimmtugt, Daníel er fæddur árið
1969 og Magnús árið 1965. Þeir segj-
ast ekki upplifa að þeir séu orðnir of
gamlir til að halda áfram að skapa og
taka þátt í raftónlistarsenunni.
„Mér finnst þetta vera þannig
að um leið og ég ákveð að þetta sé
komið nóg þá er ég dauður sköp-
unarlega séð, það er einhvern veginn
ekki inni í myndinni að spyrja sig að
þessu,“ segir Magnús.
„Lífið er stórskrítið og kemur
manni stöðugt á óvart, bara það að fá
að lifa því er ákveðið kraftaverk svo
maður bara heldur áfram að kanna
möguleikana og lifa,“ segir Daníel.
„Ef þú ákveður að vera listamaður
þá held ég að það séu ákveðin for-
merki sem hreinlega fylgja starfinu,
þú ert alltaf að þroskast og alltaf að
halda áfram. Það er ekki í eðli lista-
manna að spyrja sig þannig spurn-
inga um hvort maður sé of gamall
eða ekki, það er kannski frekar sam-
félagið sem spyr að því og maður
verður bara að ákveða að taka það
ekki inn,“ segir Magnús.
„Það er náttúrulega ákveðin æsku-
dýrkun í poppmenningunni en ég
held að hugsunin sé að breytast og
fólk hugsi meira um reynsluna og
þekkinguna. Ef maður er nógu dug-
legur að finna nýja fleti á því sem
maður er að gera þá kemur alltaf
eitthvað sem hefur þann neista sem
maður þarf til að þetta sé áhugavert
og þess virði að vera eyða tíma fólks
í þetta,“ segir Daníel.
Þeir eru sammála um að það séu
forréttindi að fá að vinna við það
sem veitir þeim ánægju og að starfið
sé ekki kvöð. „Annars værum við
hættir þessu rugli.“
Þá segjast þeir þakklátir þeim sem
hlusta og eru spenntir fyrir 25 ára
afmælistónleikum GusGus sem fram
fara í Hörpu í desember. „Það verður
gaman að hitta alla aftur við þessar
kringumstæður,“ segir Magnús.
Kraftaverk
Nýja lagið, Miracle, sem kom út í
vikunni fjallar eins og nafnið gefur
til kynna um kraftaverk. „Og um
„haltu mér slepptu mér“-þemað sem
við þekkjum flest í sambandsmálum
og að stundum sé hreinlega ekkert
sem bjargi því nema einhver utan-
aðkomandi kraftur eins og krafta-
verk,“ segir Magnús en hann samdi
textann við lagið.
Myndbandið við lagið var tekið
upp á sólríkum degi síðastliðið
sumar og var því leikstýrt af Hrund
Atladóttur, sem einnig er kærasta
Magnúsar. „Við höfum alltaf verið í
góðu listrænu samtali,“ segir Magn-
ús.
Myndbandið er tekið upp með
tökuvél sem myndar 360 gráður og
Daníel og Magnús héldu sjálfir á vél-
Hrund Atladóttir leikstýrði myndbandinu við Miracle sem var tekið upp á sólardegi í sumar. MYND/HRUND ATLADÓTTIR
Myndbandið við lagið er tekið upp á 360° myndavél.Daníel sló í gegn á hjólaskautunum í myndbandinu.
inni meðan á tökunum stóð. „Hrund
sýndi mér þessa tækni og ég er svo
gamaldags að ég trúði ekki að þessi
tækni væri til,“ segir Magnús og hlær.
Tæknin gefur áhorfendum mynd-
bandsins upplifun ólíka því sem við
erum vön og kemur með ferskan
sumarblæ inn í komandi vetur.
„Þetta er svona funky diskótaktur
sem á heima í sólskininu og við
vorum mjög heppin með veður á
tökudaginn enda búin að liggja yfir
veðurspánni í marga, marga daga,“
segir Daníel. „Það var mjög tæpt
að finna þennan góða dag,“ bætir
Magnús við og vísar í hversu fáir
björtu sumardagarnir voru á höfuð-
borgarsvæðinu.
Hjólaskautafíkill
Í myndbandinu sjást Magnús og
Daníel í góðri sumarstemningu og
þar sýnir Daníel einnig snilldar-
takta á hjólaskautum og liggur
blaðamanni forvitni á að vita hvort
skautað sé af reynslu. „Daníel er með
geggjað mojo í þessu myndbandi og
þegar við spurðum hann hvort hann
kynni á hjólaskauta sagði hann bara:
Já, ég var alltaf á hjólaskautum í
gamla daga,“ segir Magnús.
„Ég var algjör hjólaskautafíkill,“
segir Daníel og brosir. „Þegar ég var
táningur voru sko hjólaskautahallir
hingað og þangað um bæinn. Þetta
var ótrúlegur heimur og maður
komst í ákveðið ástand við að fara
hring eftir hring í höllinni við ein-
hverja skemmtilega tónlist, oft
diskótónlist eða einhverja danstón-
list.“
„Hugarástandið sem maður fór í
var algjörlega dáleiðandi og maður
sótti svo í þetta, að fara á hverjum
einasta degi með skautana sína og
spóla þarna hring eftir hring. Maður
gat farið með sjálfum sér, þetta var
sólósport, en það var hópur af fólki
þarna, margt um manninn, ég þurfti
ekki að fara með neinum, ég fór
bara til að fara í þetta ástand,“ segir
Daníel.
Aðspurður hvort hann hafi einn-
ig verið á skautunum segist Magnús
ekki eiga séns í Daníel. „Það var ein
hjólaskautahöll í Kópavogi og ég
fór einhvern tímann í hana en það
er alveg ástæða fyrir því að Daníel
gerði þetta í myndbandinu en ekki
ég,“ segir hann hlæjandi.
Þeir félagar segja framhald eftir
Dynomatic ekki ráðið, framtíðin
leiði í ljós hvort þeir gefi fleiri lög út
saman. Samstarfið hafi gengið vel
og þeir njóti þess að vinna saman.
„Við höfum alltaf verið góðir vinir
og samstarf okkar í GusGus var
mjög skemmtilegt,“ segir Daníel
og aðspurðir segja þeir aldrei hafa
komið upp ágreining þeirra á milli.
„Við vorum bara mesta að hlæja,
af því að Maggi er svo óstjórnlega
fyndinn. Hnyttinn og skemmti-
legur náungi sem er gaman að vera
í kringum,“ segir Daníel að lokum. nGömlu GusGus-félagarnir: Daníel Ágúst, Stephan Stephensen og Biggi veira.
Ef þú ákveður að vera
listamaður þá held ég
að það séu ákveðin
formerki sem hrein-
lega fylgja starfinu.
Magnús
Maður komst í ákveðið
ástand við að fara
hring eftir hring í
höllinni.
Daníel Ágúst
34 Helgin 2. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ