Fréttablaðið - 02.10.2021, Side 92
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Það er lítið búið að tala
um annað en þessar
blessuðu kosningar.
Nýjasta skáldsaga Emils
Hjörvars Petersen, Hælið,
kom út sem hljóðbók hjá
Storytel á dögunum. Bókin
fjallar um dularfulla atburði
sem tengjast gamla Kópavogs-
hælinu. Höfundur lagðist í
mikla rannsóknarvinnu fyrir
bókina sem hann lýsir sem
blöndu af hrollvekju og sögu-
legri skáldsögu.
tsh@frettabladid.is
Rithöfundurinn Emil Hjörvar Peter-
sen sendir frá sér skáldsöguna Hælið
sem segir frá dularfullum atburðum
er tengjast gamla Kópavogshælinu.
Emil lýsir bókinni sem blöndu af
hrollvekju og sögulegri skáldsögu
og lagðist að sögn í mikla rannsókn-
arvinnu. Hælið kom út á fimmtudag
sem hljóðbók hjá Storytel og mun
koma út á prenti í október, en um er
að ræða fyrstu prentuðu bókina sem
Storytel gefur út hér á landi.
„Þetta er svona söguleg hrollvekja
sem fjallar um fólk í samtímanum.
Kjarnafjölskyldu sem flytur í blokk
eða fjölbýlishús sem er byggt ofan á
gamla Kópavogshælið. Fjölskyldan
byrjar að upplifa undarlega hluti,
sem er ljóst að eru reimleikar,“ segir
Emil.
Að sögn Emils kallaði sögusviðið
á hann að skrifa bókina vegna fjölda
óhugnanlegra atburða sem átt hafa
sér stað í grenndinni.
„Kópavogshælið var byggt fyrst
sem berklahæli árið 1926, Guð-
jón Samúelsson teiknaði það. Svo
þegar berklarnir fóru að fjara út
þá var síðustu holdsveikisjúkling-
unum á Íslandi komið þar fyrir, þeir
eiginlega dóu út þarna. Þetta er áður
en sú starfsemi hófst sem f lestir
þekkja. Svo frekar nálægt hælinu
eru tóftir þingstaðar frá öldum áður,
þar sem Kópavogsfundurinn var
haldinn. Þar var fólk dæmt til dauða
og tekið af lífi. Þannig að sögusviðið
í rauninni grátbað mig um að skrifa
einhvers konar hrollvekju.“
Hið ankannalega og hið óséða
Bókin fjallar um Uglu, sem er
nýflutt inn í glæsilega íbúð nálægt
gamla Kópavogshæli ásamt eigin-
manni sínum og tvíburasonum á
unglingsaldri. Lífið gengur sinn
vanagang en fljótlega fara undarleg
atvik að eiga sér stað sem Ugla telur
að tengist óreglusömum listamanni
sem er nágranni þeirra. Þegar
heimur Uglu er við það að hrynja
ákveður hún loks að heimsækja
gamla hælið að nóttu til og þá flétt-
ast nútíminn saman við dularfulla
og átakanlega fortíð svæðisins.
„Hrollvekja gengur oft út á það að
blanda hinu ankannalega og hinu
óséða við venjulegt fólk og oftast er
þetta fólk þá með einhverja erfið-
leika sem það hefur ekki tekist á
við, jafnvel tráma. Þegar óhugn-
aðurinn fer að læðast inn í söguna
þá samhliða því fer það að takast á
við þetta tráma og sjá sig og sitt líf í
nýju ljósi,“ segir Emil.
Myrk saga svæðisins
Emil ólst upp í Kópavogi og f lutti
þangað aftur fyrir tveimur árum
og segir hann persónulega reynslu
sína af bænum hafa haft mikil áhrif
á söguna.
„Ég hef unun af því að rannsaka
svona sögulega og þjóðlega þætti
og blanda því saman, draga undur
fram á óvæntum stöðum. Ég er Kópa-
vogsbúi, ólst upp í Kópavogi og bý
þar núna líka, eiginlega frekar nálægt
hælinu. Þegar ég var lítill krakki var
maður að hjóla nálægt þessu svæði
og það var einhver mystík yfir því.
Núna er þetta mjög fallegt svæði en
saga þess er mjög myrk.“
Hann segist hafa byrjað að pæla í
hælinu sem sögusviði þegar fréttir
tóku að berast af því fyrir nokkrum
árum að vistmenn á Kópavogshæli
hafi sætt grimmilegri meðferð þar
á árum áður. Emil lagðist í mikla
rannsóknarvinnu og naut góðrar
aðstoðar frá Héraðsskjalasafni
Kópavogs við heimildaöflunina.
Storytel í jólabókaflóðið
Eins og áður sagði kom Hælið nýlega
út sem hljóðbók á vegum Storytel og
er bókin lesin af einvalaliði leikara,
þeim Sólveigu Arnarsdóttur, Guð-
rúnu Eyfjörð og Guðmundi Inga
Þorvaldssyni. Fyrr á árinu kom út
hrollvekjan Ó, Karítas eftir Emil
sem var eingöngu gefin út sem
hljóðbók.
„Það gekk svona vel og þá byrj-
uðum við að tala saman um næstu
skref. Ég færði fram nokkrar hug-
myndir og svo talaði ég aðeins um
Hælið. Þau voru áhugasöm um það
og ég hafði þá verið nýbúinn að end-
urskrifa fyrstu hundrað síðurnar og
sendi þeim. Þá fóru viðræður af stað
og ég var með pælingar um prentun
og svo bara leist þeim svona vel
á það. Íslenska jólabókaf lóðið er
ákveðið fyrirbæri á Íslandi sem ég
held að Storytel vilji verða partur
af,“ segir Emil. ■
Sögusviðið grátbað hann
um að skrifa hrollvekju
Emil Hjörvar
Petersen fyrir
framan gamla
Kópavogshælið.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VALLI
■ Frétt vikunnar
Ásgrímur Geir Logason
svavamarin@frettabladid.is
Ekki stendur á svörum þegar
Ásgrímur Geir Logason, leikari og
stjórnandi hlaðvarpsins Betri helm-
ingurinn með Ása, er spurður hver sé
frétt vikunnar.
Talningarklúðrið í Norðvestur-
kjördæmi hefur litað fréttavikuna en
á persónulegri nótum harmar hann
að Breiðablik hafi misst af Íslands-
meistaratitlinum í Pepsi Max-deild
karla. Ási er uppalinn í Smárahverf-
inu í Kópavogi og stendur því þétt
við bakið á sínum mönnum.
„Það er lítið búið að tala um annað
en þessar blessuðu kosningar og
verður maður ekki að segja það, og
þetta talningarvesen“, segir Ási og
hlær. „Fyrir mér var það svo ekki
lítið svekkjandi að Blikarnir hafi
ekki unnið titilinn.“ ■
Talningarvesen og boltasvekkelsi Talningarklúðrið í Norðvestur-
kjördæmi er mál
málanna í þess-
ari fréttaviku
þótt Ásgrímur
Geir hafi einnig
svigrúm til að
harma enn hlut
Blikanna.
MYND/AÐSEND
Aðeins 195.930 kr.
Aðeins 149.925 kr.
LICATA tungusófi
Tungusófi í tveimur litum af Kentucy áklæði, koníaksbrúnum og
steingráum og einnig í River 66 Graphite áklæði. Hægri eða vinstri tunga.
Svartir nettir járnfætur. Stærð: 265 x 165 x 82 cm.
fullt verð: 244.900 kr.
BROOKLYN heilsurúm
160x200 eða 180x200 cm. Þau
koma í gráu sléttflaueli. Dýnan er
svæðaskipt pokagormadýna. Efst
er millistíf yfirdýna sem styður vel
við líkama þinn. Botninn er með
gormum sem gefur viðbótar-
fjöðrum. 160 x 200 cm
fullt verð: 279.900 kr.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
RIGA
hægindastóll
með skemli
Svart leður og krómfótur.
Stillanlegur. B82 x H106 cm
fullt verð: 199.900 kr.
Aðeins 183.675 kr.
Verð og vöruupplýsingar eru birtar með fyrirvara um prentvillur.
Tilboðin gilda til 31. október 2021 eða á meðan birgðir endast.
Við eigum afmæli
og nú er veisla
AFSLÁTTUR
AFMÆLIS
25%
AFSLÁTTUR
AFMÆLIS
30%
AFSLÁTTUR
AFMÆLIS
25%
56 Lífið 2. október 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ