Morgunblaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021 FORNUBÚÐIR 12, HAFNARFIRÐI | S: 555 0800 | SIGN@SIGN.IS | SIGN.IS Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Eftir að fyrstu íbúar fluttu inn í nýju smáhýsin í Gufunesi í Reykjavík hafa ofbeldisverk, skemmdarverk og fíkni- efna- og áfengisneysla verið áberandi á svæðinu. Um tíma var gestagangur mjög mikill. Er lögreglan sögð vera þar í nær stöðugum verkefnum og hafa komið tímabil þar sem útköll þangað voru dagleg. Valgarður Valgarðsson, aðalvarð- stjóri hjá lögreglunni á höfuðborgar- svæðinu, segir reynslu lögreglu ekki góða af smáhýsunum. „Þau hafa verið ansi mörg verkefnin þarna niður frá og þetta hefur ekki far- ið eins vel af stað og menn vonuðu í fyrstu,“ segir Valgarður í samtali við Morgunblaðið. „Helst eru þetta útköll vegna ágreinings, þjófnaðar og skemmdarverka. Dæmigerð verkefni sem tengjast fólki í óreglu,“ segir hann. Smáhýsin fimm eru fyrir utan það sem kalla má alfaraleið og er því langt í næstu þjónustu og almennings- samgöngur. Hefur Morgunblaðið til að mynda heimildir fyrir því að nokkuð hafi verið um ölvunar- og fíkniefnaakst- ur til og frá smáhýsunum. Þegar svæð- ið var sótt heim í vikunni mátti sjá aug- ljós ummerki um skemmdarverk. Þannig voru meðal annars gluggar skemmdir og veggjakrot sýnilegt. Á einum stað var ljóst að eldur hafði verið lagður að innanstokksmunum. Þá var rusl og drasl víða áberandi í kringum húsin. Fólkinu plantað úti í móa Elísabet Gísladóttir, formaður íbúa- samtaka Grafarvogs, segir staðsetn- ingu smáhýsanna afleita og að á það hafi verið bent á sínum tíma. „Það að skella niður svona mörgum húsum á einn stað kallar bara á eitt; stanslaust partí,“ segir hún og bendir á að íbúar í Grafarvogi hafi margir hverj- ir á sínum tíma lýst yfir áhyggjum vegna uppbyggingar húsanna. Skortur á þjónustu, samgöngum og augljós ein- angrun er á meðal þess sem bent var á. „Á íbúafundi voru þessi áform máluð afar fallegum litum af borginni. Þetta átti að vera stuðningur við þetta fólk og skaðaminnkandi úrræði. En það er bara ekki rétt. Þessum einstaklingum var bara komið fyrir einhvers staðar úti í móa á einskismannslandi. Það þarf ekki annað en að skoða staðsetn- ingu þessara húsa til að sjá hversu gal- ið þetta er,“ segir Elísabet og heldur áfram: „Þetta fólk þarf ekki á því að halda að vera plantað úti í móa fjarri öllu. Fólkið þarf aukinn stuðning. […] Það var búið að spyrja spurninga og gera athugasemdir við þetta, en allir þessir fræðingar og fagfólk innan borgarinnar hlustaði ekki. Og það er ekki að vinna þessu fólki gagn.“ Þá bendir Elísabet á að smáhýsin séu staðsett neðan við Hallsteinsgarð, eitt aðalútivistarsvæði íbúa í Grafar- vogi. Segist hún vita dæmi þess að fólk finni fyrir óöryggi á göngu sinni um svæðið og sveigi því fram hjá smáhýs- unum. „Það fer enginn þarna núna.“ Efuðust um staðsetninguna Hrafnhildur Ólöf Ólafsdóttir, deild- arstjóri hjá málefnum heimilislausra hjá Reykjavíkurborg, segist hafa haft áhyggjur af því að fyrstu húsin yrðu sett upp svo fjarri þéttri byggð. „Það var á þessum tíma mikilvægt að koma fólki í húsnæði fyrir veturinn, en annars staðar strandaði lóða- samþykki ítrekað. Það var meðvituð ákvörðun að hafa nokkur hús fjarri þéttum hverfum, fyrir þau sem það vilja. Á sama tíma vitum við að meiri- hluti húsanna þarf að vera inni í hverf- um og þá nálægt þjónustu. Þetta var aftur á móti fyrsta lóðin sem náði sam- þykki og þess vegna voru fyrstu húsin sett þarna upp,“ segir hún. Fram hefur komið að smáhýsin í Gufunesi eru fimm talsins. Búið er að úthluta fjórum húsum og er nú í gildi leigusamningur við þrjá einstaklinga. Ákveðið hefur verið að úthluta ekki fimmta húsinu. Verður það nýtt undir starfsfólk í von um að bæta þjónustuna. Aðspurð segist Hrafnhildur Ólöf kannast við lýsingar á innbrotum og skemmdarverkum á bæði húsum og húsbúnaði. Í flestum tilfellum séu það óboðnir einstaklingar eða gestir íbúa sem valda þessu tjóni. „Við höfum verið í miklum vandræð- um með óboðið fólk á svæðinu. Svona gestagangur er oft það sem verður ein- staklingum í búsetu að falli. Það að geta ekki haldið óæskilegum aðilum frá er mjög erfitt,“ segir hún og bætir við að margt hafi þó gengið vel. Nefnir hún í því samhengi gott samstarf lögreglu og VOR-teymis sem aðstoðar fólk sem er heimilislaust og með vímuefna- og geð- vanda. „Það er mikilvægt að skoða áfram hvað má bæta og hverju má breyta til að íbúar smáhýsanna upplifi sig örugga og velkomna.“ Skemmdarverk og mikil óregla - Lögreglan reglulega kölluð í verkefni vegna vandamála í tengslum við nýju smáhýsin í Gufunesi - Ekki farið vel af stað, segir aðalvarðstjóri - Staðsetning húsanna áhyggjuefni frá fyrstu stundu Morgunblaðið/Eggert Yfirfullt Það er sóðalegt um að litast við nýju smáhýsin í Gufunesi þar sem ruslatunnurnar ráða illa við verkefnið. Brunarústir Einhver lagði eld að þessum munum sem nú liggja úti. Ónýtt Þessi gluggi hafði verið brot- inn upp og lafir því opnanlega fagið. Sóðaskapur Einhver veggjakrot- arinn fékk útrás á þessum vegg. Morgunblaðinu hefur borist eftirfar- andi yfirlýsing frá Þórarni Ævars- syni, framkvæmdastjóra Spaðans: „Í hita leiksins eiga stór orð það til að falla, orð sem eftir á að hyggja hefðu betur verið látin ósögð eða orðuð öðruvísi. Ástríða fyrir málefn- um á það til að hleypa manni kapp í kinn, svo ekki sé kveðið fastar að. Í viðtali í Dagmálum sem birt var sumardaginn fyrsta og vitnað var í á mbl.is var fjallað um pizzamarkað- inn. Þar fór ég hressilega fram úr mér, þegar ég sagði það blákalt að ég muni setja Dominos Pizza á hausinn innan fimm ára. Það sem ég var í raun að reyna að koma frá mér var það að ef áætlanir Spaðans gengju eftir, um að opna 6 til 7 stór útibú á næstu árum, raun- gerðust, þá væri rekstrargrundvöll- ur Dominos Pizza eins og fyrirtækið er sett upp horfinn, en afleiðing þess yrði þá sú að fyrirtækið færi líklega í þrot. Fylgifiskar þess ríka keppnis- skaps sem ég hef blessunarlega fengið eru dramb og hroki. Mér hef- ur gengið illa á tíðum að hemja þessa fylgifiska og fer versnandi með ár- unum, og er það verr. Ég bið því þá afsökunar sem ég hef gengið fram af með óviðeigandi orðalagi mínu, en bendi jafnframt á að í hörðum heimi samkeppni þá eru menn svona almennt, ekkert sér- staklega að óska mótaðilum vel- gengni.“ Morgunblaðið/Eggert Pizzastríð Miklar hræringar hafa verið á pizzamarkaði að undanförnu. Ný- verið keypti hópur fjárfesta Domino’s á Íslandi sem var í breskri eigu. Hljóp kapp í kinn - Þórarinn Ævarsson biðst afsökunar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.