Morgunblaðið - 24.04.2021, Page 6

Morgunblaðið - 24.04.2021, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021 Öflugra heilbrigðiskerfi Heilbrigðiskerfið verður öflugra með samstarfi ríkis og sjálfstætt starfandi einkaaðila. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hef- ur hafnað áskorun Samhjóls, sam- taka hjólhýsaeigenda á Laugarvatni, um að lengja gildistíma þeirra samn- inga um leigu lands í hjólhýsahverf- inu sem renna út í lok ársins. Vísar sveitarstjórnin til þess að hjólhýsa- byggð eins og er á Laugarvatni sé ekki heimil samkvæmt gildandi lög- um og reglum. Stendur sveitar- stjórnin því við ákvörðun sem tekin var í september á síðasta ári um að loka byggðinni þegar samningar renna út. Um 200 lóðir eru leigðar út í hjól- hýsabyggðinni á Laugarvatni og hafa þeir sem lengst hafa verið með hýsi þar verið þar frá upphafi, árið 1980. Fulltrúar lögreglustjórans á Suð- urlandi og Brunavarna Árnessýslu skoðuðu hjólhýsasvæðið í maí á síð- asta ári og gerðu margvíslegar at- hugasemdir við byggðina, sérstak- lega eldvarnir. Í skýrslu þeirra kemur fram að fjarlægðarmörk eru ekki virt og pallar og skjólveggir tengist víða. Þá sé trjágróður mikill og auki sambrunahættu til muna. Vakin er athygli á að eldur hafi komið upp á svæðinu í nokkur skipti en lukka hafi ráðið því að ekki fór illa. Kröfðust embættin úrbóta. Óheimil byggð Húsnæðis- og mannvirkjastofnun svaraði fyrirspurn Bláskógabyggðar þannig að reglurnar væru skýrar; óheimilt væri að hafa svona byggðir, jafnvel þótt þær hafi þegar verið byggðar. Niðurstaða sveitarstjórnar var að loka þyrfti hjólhýsahverfinu. Það var gert með því að tilkynna lóðarhöfum að samningar myndu ekki verða framlengdir, þegar þeir renna út. Er fólkinu gert að fjarlægja allt sitt haf- urtask fyrir þann tíma, samkvæmt ákvæðum í leigusamingum. Samn- ingar flestra renna út í lok þessa árs en einhverjir eftir tvö ár. Hefur sveit- arstjórn ákveðið að standa við þessa ákvörðun og breytti áskorun Sam- hjóls engu í því efni. „Þetta var erfið ákvörðun. Þetta hefur verið gott samfélag og staðið í langan tíma og fólkinu liðið vel. Þrátt fyrir kynslóðaskipti hefur sami góði andinn haldist,“ segir Helgi Kjart- ansson, oddviti Bláskógabyggðar. Fjölgun á Flúðum Skógrækt ríkisins ákvað á síðasta ári að loka hjólhýsahverfinu í Þjórs- árdal. Þar eru á annað hundrað hjól- hýsi og er eigendum gert að fjar- lægja þau fyrir lok maí. Aftur á móti hefur hjólhýsahverfi á Flúðum stækkað og er þar komið upp mynd- arlegt hverfi. Sami sýslumaður og slökkviliðsstjóri er á öllum þessum svæðum og sömu lög og reglur gilda um allt land. Hvika ekki frá fyrri ákvörðunum - Leigjendur í hjólhýsahverfinu á Laugarvatni þurfa að fjarlægja vagna sína, palla og skúra þegar samningar renna út - Flestir samningar eru úti um áramót en einhverjir gilda í tvö ár enn Morgunblaðið/Jakob Fannar Hjólhýsabyggð Hátt í 200 hjólhýsi eru í hverfinu á Laugarvatni. Félag atvinnurekenda hefur sent kvörtun til umboðsmanns Alþingis vegna þeirrar ákvörðunar Póst- og fjarskiptastofnunar að veita Íslands- pósti viðbótarframlag árið 2020. Með ákvörðuninni var ríkinu gert að leggja Póstinum til 509 milljónir vegna hreins kostnaðar fyrir veitta þjónustu á árinu 2020, að frádregnu 250 milljóna króna viðbótarframlagi. Rifjað er upp í kvörtun FA til um- boðsmanns að með ákvörðuninni hafi Póst- og fjarskiptastofnun fall- ist á að ákveða framlag á grundvelli gjaldskrár sem tók gildi 1.1. 2020. Sú gjaldskrá hefur verið umdeild en með henni varð landið að einu gjaldsvæði, í stað fjögurra, og með því lækkaði verð á sendingum Pósts- ins út á land mikið. Miðast gjald- skráin við pakka upp að 10 kg. Fulltrúar einkafyrirtækja hafa sakað Póstinn um að niðurgreiða með þessu sendingar út á land en í póstlögum – 3. mgr. 17. greinar – stendur að gjaldskrá skuli endur- spegla raunkostnað að viðbættum hæfilegum hagnaði. Ekki að öllu leyti virkt Fram kom í svari samgöngu- ráðuneytisins við fyrirspurn Morg- unblaðsins 4. mars sl. að ein afleið- ing 2. mgr. sömu lagagreinar, að gjaldskrá fyrir alþjónustu skuli vera sú sama um allt land, sé að „ákvæði 3. mgr. um raunkostnað að við- bættum hæfilegum hagnaði [sé] ekki að öllu leyti virkt“. Ólafur Stephensen, fram- kvæmdastjóri Félags atvinnurek- enda, vísar meðal annars til þessarar túlkunar á lög- unum er hann gerir grein fyrir kvörtuninni til umboðsmanns. „Við kærum það til umboðs- manns að Póst- og fjarskipta- stofnun virðist hafa tekið það sér fyrir hendur upp á eigin spýtur að ákveða að lykil- ákvæði í póstlögunum sé ekki virkt. Það er kjarni málsins. Slíkt geta opinberar stofnanir ekki leyft sér. Ástæðan fyrir því að við stígum þetta skref er að það blasir við að þarna eru stofnanir framkvæmda- valdsins, samgönguráðuneytið, fjár- málaráðuneytið og Póst- og fjar- skiptastofnun, að ganga út frá því að póstlögin virki öðruvísi en Alþingi samþykkti þau, sem fer gegn stjórn- arskránni. Það er sem sagt gengið út frá því sem gefnu að undir- verðlagning á þessari pakka- verðskrá Póstsins frá ársbyrjun 2020 sé í samræmi við lög, sem hún getur ekki verið, vegna þess að í póstlögunum er þetta skýra ákvæði um að gjaldskrá fyrir alþjónustu skuli taka mið af raunkostnaði. Póst- og fjarskiptastofnun virðist hafa staðfest skriflega við ráðuneytið að hún líti svo á að þetta ákvæði póst- laganna sé ekki virkt. Við teljum að ráðuneytið hefði þá strax átt að grípa til einhverra aðgerða, því að það á að hafa eftirlit með því að stofnunin starfi samkvæmt lögum,“ segir Ólafur. baldura@mbl.is Kvarta undan ríkisstuðningnum - Félag atvinnurekenda kvartar til umboðsmanns Alþingis vegna Póstsins - Framkvæmdastjóri FA segir stofnanir ekki geta farið gegn póstlögunum Ólafur Stephensen Samið hefur verið um kaup ríkisins á 130 hekturum lands á Keldum á Rangárvöllum. Tilgangurinn er að varðveita menningarminjar á bænum við sem bestar aðstæður og gera þær aðgengilegar almenningi. Með kaup- unum eru tryggð lóðarréttindi og verndarsvæði í næsta nágrenni bæj- arins, það er að segja menningar- landslagið í heild með búsetuminjum, húsum og rústum húsa. Keldur eru einstakur sögustaður og einn af merkustu minjastöðum landsins, að því er segir í tilkynningu frá Þjóðminjasafninu, en ætla má að þar hafi orðið byggð stuttu eftir land- nám. Bæjarhúsin eru af elstu varðveittu gerð torfhúsa í landinu. Ríkið festi kaup á hluta bæjarhús- anna á árinu 1942 og hefur síðan eign- ast fleiri mannvirki. Þessi hús eru öll í umsjá Þjóðminjasafnsins og hluti af húsasafni þess. Núverandi bændur eru að láta af búskap og selja hluta jarðarinnar. Lengi hefur verið áformað að til- nefna torfhúsaarf Íslands á heims- minjaskrá UNESCO. Keldur eru mikilvægur hluti þeirrar tilnefningar. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Keldur Bær af fornri gerð, byggður á 17. öld. Timburgrind með stafverki. Ríkið kaupir meira land á Keldum - Menningarminjar aðgengilegar Engin áform eru uppi um hertar sóttvarnaaðgerðir innanlands að sögn Svandísar Svavarsdóttur heil- brigðisráðherra. Tíu innanlands- smit greindust í fyrradag og greindist eitt þeirra utan sóttkvíar. Daginn þar áður voru innanlands- smitin 17, þar af 8 utan sóttkvíar. Fram undan er stór bólusetning- arvika þar sem til stendur að bólu- setja um 23 þúsund manns með bóluefnum frá Pfizer, AstraZeneca og Janssen. Um er að ræða stærstu vikuna í bólusetningu á Íslandi við Covid-19 frá upphafi. 16 þúsund skammtar af bóluefni AstraZeneca, sem Norðmenn lána Íslendingum, bárust til landsins í gær. Þeir eru meðal þeirra 23 þús- und skammta sem gefnir verða í næstu viku. Flestir í sóttkví við greiningu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.