Morgunblaðið - 24.04.2021, Side 25

Morgunblaðið - 24.04.2021, Side 25
MINNINGAR 25 Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021 ÁSTJARNARKIRKJA | Stuttri guðsþjónustu verður streymt á fésbókarsíðu Ástjarnrakirkju kl. 11. Davíð Sigurgeirsson, tónlistarfólk frá Víalínskirkju og Örn Arnarson annast tónlist. Hjalti Skaptason og Bjarni Jónsson tala um vatnið, Inga Rut Hlöðversdóttir fer með bæn og sr. Kjartan Jónsson prédikar. Guðs- þjónustan mun verða áfram á síðunni. BREIÐHOLTSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er Magnús Björn Björnsson. Organisti er Örn Magn- ússon. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur, og Halldór Sighvatsson leika dúetta á saxófóna. Alþjóðlegi söfnuðurinn. Guðsþjónusta á farsi. Prestur er Soroush Hojati. BÚSTAÐAKIRKJA | Í ljósi aðstæðna í hverfinu verður ekki helgihald sunnudaginn 25. apríl. Æskulýðs- og unglingastarf og starf eldri borgara er einnig sett á bið, þar til ástandið breytist. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11 Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar og predikar. Félagar úr kór kirkjunnar syngja. Organisti er Arnhildur Valgarðsdótt- ir. Virðum sóttvarnir og fjöldatakmörk. GRAFARVOGSKIRKJA | Sunnudaginn 25. apríl verður kirkjan opin kl. 11-12 til bænar og íhugunar. Sr. Grétar Halldór Gunnarsson hefur umsjón. Heitt á könnunni! KÁLFATJARNARKIRKJA | Tvær fermingarguðsþjón- ustur kl. 11 og 12. Kór Kálfatjarnarkirkju syngur undir stjórn Davíðs Sigurgeirssonar. Prestar eru Arnór Bjarki Blomsterberg og Kjartan Jónsson. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 í safn- aðarheimilinu Borgum þar sem kirkjan er lokuð vegna viðgerða. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová kantors kirkjunnar. LANGHOLTSKIRKJA | Messa sunnudag kl. 11. Aldís Rut Gísladóttir prestur þjónar, Nobili-kórinn syngur undir sjórn Sunnu Karenar Einarsdóttur og Magnúsar Ragnarssonar organista. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað í safnaðar- heimili Langholtksirkju og taka Marta og Pétur á móti börnunum og foreldrum þeirra. MOSFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta verður send út 25. apríl kl. 11. Prestur er Ragnheiður Jónsdóttir. Bryndís Böðvarsdóttir guðfræðingur prédikar. Þórður Sigurðarson spilar á orgel og stjórnar kirkjukór Lága- fellssóknar. Sjá nánar www.lagafellskirkja.is NESKIRKJA | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Við guðsþjónustu leiða félagar úr Kór Neskirkju söng við undirleik Steingríms Þórhallssonar organista. Prestur er Skúli S. Ólafsson. Sunnudagaskólinn er í safnaðarheimili og er gengið beint þangað inn. Hilda María Sigurðardóttir og Hrafnhildur Guðmundsdóttir stýra honum ásamt Ara Agnarssyni undirleikara. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Vegna aðstæðna í þjóð- félaginu verður aðeins vefmessa hinn 25. apríl kl. 14,en streymt verður frá athöfninni í kirkjunni á vef- svæðinu ohadisofnudurinn.is. Séra Pétur Þorsteins- son þjónar og Kristján Hrannar sér um tónlistina. Aðal- fundi safnaðarins, sem vera átti eftir athöfnina, verður frestað til hausts. SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslumorgunn kl. 10. Júditarbók í fornri þýðingu. Dr. Svanhildur Ósk- arsdóttir rannsóknarprófessor talar. Sunnudagaskóli og helgistund kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Þóra H. Pas- sauer syngur. Hjördís Vilhjálmsdóttir og Anton Sigurðs- son lesa ritningarlestra og bænir. Fólk skráir sig við innganginn. Streymt er frá helgistundinni á fésbók- arsíðu Seltjarnarneskirkju. Tæknimaður er Sveinn Bjarki Tómasson. Þriðja hólfið er á neðri hæð kirkj- unnar. VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir þjónar, félagar úr kór Vídalínskirkju syngja. Organisti: Jóhann Baldvinsson. Messunni verður streymt. Sunnudagaskóli í Urriðaholtsskóla kl. 10 og kl. 11 í Ví- dalínskirkju, ath. gengið inn um safnaðarheimili. Biblíusögur, brúðuleikhús og söngur. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Papeyjarkirkja ✝ Jón Bjarnason bóndi í Fremri- Hvestu fæddist 13. janúar 1955 í Fremri-Hvestu, Arnarfirði. Hann lést á heimili sínu 12. apríl 2021. For- eldrar hans voru Bjarni Símonarson Kristófersson, bóndi Fremri- Hvestu, f. 27. sept- ember 1927, d. 6. júní 1994, og Ragnhildur Gíslína Finn- bogadóttir húsmóðir, f. 24. febr- úar 1924, d. 9. nóvember 2009. Systkini Jóns eru: Sigríður, f. 1945, Finnbogi, f. 1946, d. 2004, Guðbjartur Ingi, f. 1948, d. 2005, Margrét, f. 1950, Guðbjörg, f. 1952, Kristófer, f. 1953, d. 2017, Marinó, f. 1953, Ingibjörg Hall- maí 2008, og Ásthildur Halla, f. 31. desember 2011. 3) Símon Freyr, f. 9. september 1983, eig- inkona hans er Sunna Mjöll Magnúsdóttir, f. 4. júní 1993, barnsmóðir Ewa Kulesza, f. 27. júlí 1977, börn þeirra Aleksandra Seselía, f. 25. ágúst 1997, unnusti hennar er Óli Sigurður Jóhanns- son, f. 31. mars 1996, sonur þeirra er Eiður Sölvi, f. 28. jan- úar 2020. Kamilía, f. 18. sept- ember 1998, unnusti hennar er Hermann Gunnar Gunnarsson, f. 22. október 2001. Mikael Freyr, f. 2. febrúar 2005. Bjarni Kristófer, f. 30. september 2008. Útför Jóns fer fram í dag, 24. apríl 2021, en vegna sam- komutakmarkana verða einungis nánustu aðstandendur við- staddir. Útförinni verður streymt á Youtube: Bíldudalskirkja, útför Jóns Bjarnasonar. Streymishlekk má finna á: https://www.mbl.is/andlat dóra, f. 1956, Elín, f. 1958, Gestný, f. 1959, Katrín, f. 1960, Gestur, f. 1962, d. 2005, Dagur, f. 1963, og Ragnar Gísli, f. 1965. Sambýliskona Jóns heitir Halla Hjartardóttir, fædd á Patreksfirði 31. ágúst 1956. Börn þeirra eru: 1) Sandra Dögg, f. 27. mars 1974, sonur hennar er Jón Pétur Söndruson, f. 7. október 2001, sambýliskona hans er Fanný Ruth Marinósdóttir, f. 24. júlí 2001. 2) Ragna Berglind, f. 20. september 1977, eiginmaður hennar er Guð- mundur Hjalti Jónsson, f. 12. des- ember 1970, börn þeirra eru Pat- rekur Sölvi og Tristan Elí, f. 16. Elsku pabbi minn. 12. apríl 2021, sá dagur líður mér seint úr minni. Hugur minn fer stundum á fullt og ég hugsa: Bara ef ég hefði komið aðeins fyrr … þá hefði ég getað hjálpað þér. En innst inni veit ég að það hefði engu breytt. Þú gast ekki meir. Sársaukinn var orðinn of mikill og þú sást ekki til sólar. Og ég skil þig elsku pabbi minn. En það sem ég sakna þess að geta ekki talað við þig, þó ekki væri nema einu sinni enn. Svo ég hefði getað sagt þér að ég elskaði þig, bara einu sinni enn. Barnabörnin sakna þín sárt en þau eru svo sterk og við tölum mikið um þig við þau og útskýrum fyrir þeim að þetta var þín leið, sú eina sem þú sást, og þau skilja. Hjartað mitt er í þúsund molum en sagt er að tíminn lækni öll sár svo ég verð að vera þolinmóð. Ég veit að nú líður þér vel, þú ert laus undan þrautunum sem buguðu þig að lokum. Það hefur verið glatt á hjalla þegar þið bræður hittust í sumarlandinu, mikið hlegið og mikið drukkið af kaffi. Ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur kennt mér og allt sem þú hefur fyrir mig gert. Þar til við hittumst á ný. Mér tregt er um orð til að þakka þér, hvað þú hefur alla tíð verið mér. Í munann fram myndir streyma. Hver einasta minning er björt og blíð, og bros þitt mun fylgja mér alla tíð, unz hittumst við aftur heima. Ó, elsku pabbi, ég enn þá er aðeins barn, sem vill fylgja þér. Þú heldur í höndina mína. Til starfanna gekkstu með glaðri lund, þú gleymdir ei skyldunum eina stund, að annast um ástvini þína. Þú farinn ert þangað á undan inn. Á eftir komum við, pabbi minn. Það huggar á harmastundum. Þótt hjörtun titri af trega og þrá, við trúum, að þig við hittum þá í alsælu á grónum grundum. Þú þreyttur varst orðinn og þrekið smátt, um þrautir og baráttu ræddir fátt og kveiðst ekki komandi degi. (Hugrún) Þín dóttir, Ragna Berglind. Mér ennþá finnst erfitt að skilja Þín ótrúlega ég sakna Oft skynja ég lífið sem ljótan draum Og leita þín er ég vakna Það er ekkert sem hefði getað búið mig undir þetta hryllilegasta símtal lífs míns. Ég þekkti núm- erið, en hafði enga hugmynd hver var að tala. „…pabbi…er…dá- inn!“ náði ég loks að skilja á milli ekkasoganna. Pabbi var ótrúlegur náungi sem sem tókst á við lífið og áskor- anir þess af ofurmannlegum dugnaði og vinnusemi. Ekki há- vaxinn en stór kall. Traustur og þrjóskur. Mér fannst hann oft erfiður og við vorum stundum hressilega ósammála, en í okkur vorum við að svo mörgu leyti lík. Hann var mikið náttúrubarn, enginn eins eftirtektarsamur um smáatriði í umhverfinu: fyrsta blómið, fyrstu eggin að vori – vor- ið var hans tími, þá var hann í ess- inu sínu. Í fyrravor þegar ég dvaldi hjá honum í sveitinni lét hann mig alltaf vita þegar hann fann fyrstu hreiðrin. Hann vísaði mér leiðina að þeim og spurði svo oft seinna „fannstu það ekki?" Pabbi sat langtímum við gluggann sinn í eldhúsinu og fylgdist með dalnum sínum, lífrík- inu og birtunni. Hann var dalur- inn og dalurinn var í honum. „Sandra hlauptu út það er allt vaðandi í norðurljósum núna“ kallaði hann eitt sinn fyrir nokkr- um árum þegar ég var á leið inn í rúm. Ég hentist í snjógallann ut- anyfir náttfötin og á litlu svölun- um upplifði ég einhverja þá al- mögnuðustu norðurljósadýrð sem ég hef séð fram til þessa dags. Pabbi var einstaklega fundvís á flotta steina, bein og aðra áhuga- verða hluti. Hann var með sjón eins og haförn og las náttúruna svo ótrúlega vel. Í fjöruferðum okkar í Bakkadalnum fann eng- inn fallegri skeljar og steina. Pabbi barðist hraustlega við erfið veikindi árum saman og hafði oft betur þrátt fyrir að lík- urnar væru ekki honum í hag. Hann hafði margan bardagann en stríðið varð ekki unnið. Eftir öll þessi ár var hann þreyttur og slit- inn fyrir aldur fram af baráttunni og erfiðisvinnu í gegnum lífið. Af miklu hugrekki, styrk og krafti barðist hann, féll oft við kné til þess eins að rísa jafnskjótt upp aftur. Hann stóð uppi í hringnum mörgum lotum eftir að flestir hefðu gefist upp. Í lokin var hann særður svo mörgum sárum hann náði ekki nema upp á hnén. Pabbi minn yfirgaf þessa til- veru þriðjudaginn 12. apríl. Bana- mein hans var alkóhólismi, sárs- auki og sorgir. Sandra Dögg Jónsdóttir. Mig langar hér að minnast Jóns frænda míns sem var átt- undi í röð fimmtán systkina og var móðir mín elst. Jón var Vest- firðingur með Breiðarfjarðarlag- inu, stuttur á fótinn, þrekinn og mikill að afli. Hann var skapmað- ur, hafði skoðun á mörgu og sat ekki alltaf á þeim skoðunum sín- um, þó svo þær væru ekki allra. Jón var jafnframt viðkvæmur, eins og margir í okkar ætt og ekki góður í að ræða og leysa ágreiningsatriði, sem er einnig ættarfylgja. Jón gat verið hrjúfur í tilsvörum, en ég upplifði alltaf mikla væntumþykju undir oft hrjúfu yfirborðinu. Eins og margir af minni kyn- slóð var ég sendur í sveit. Fyrsta árið var ég sendur til ömmu og afa í Hvestu, en sumarið eftir, lík- lega vegna þess hversu óþægur ég var, var ég sendur til Höllu og Jóns í Grænuhlíð. Þetta var sum- arið 1979 og ég á áttunda ári. Jón og Halla tóku við mér sem sínum syni og bættist ég í fjölskylduna ásamt Söndru og Rögnu Berg- lindi, seinna bættist svo Símon Freyr við. Ég fékk svo að fylgja fjölskyldunni næstu sumur fram á unglingsár. Þar undi ég mér vel, tók þátt í ýmsum verkum og fylgdist með Höllu og Jóni byggja upp og bæta jörðina. Seinna tóku þau við búi afa míns í Fremri-Hvestu og héldu þá áfram uppbygging og fram- kvæmdir, t.d. með byggingu virkjana. Frá mínum fyrstu kynnum var ég hændur að Jóni og vildi helst fara með honum hvert sem hann fór. Hann var uppáhaldsfrændi minn og hefur verið síðan. Hann kenndi mér fjölmargt og ég held að ég megi þakka honum ýmis- legt í mínu lífi og hvernig ég hef orðið sem fullorðinn einstakling- ur. Eftir að ég hóf skólagöngu og mín störf í framhaldi af því þá hittumst við því miður allt of sjaldan, og sé ég eftir að hafa ekki sett það í forgang að hitta Jón. Ég hef verið ákaflega glaður þegar ég hef hitt Jón fænda minn. Samskiptin hófust yfirleitt við að Jón sagði „helvíti ertu ljót- ur“ eða „helvíti ertu feitur“ og ég svaraði „þú líka“, síðan var tekið upp léttara hjal. Ég skildi alltaf orðin sem „mér þykir vænt um þig“ og klárlega var það þýðing minna orða. Síðast hitti ég Jón í september. Ég var í ferð með vinnunni, en gerði mér ferð í Hvestu. Þar hitti ég Jón í ör- stutta stund, þar sem hann var á fullu að brasa. En við áttum þétt handtak og horfðumst djúpt í augu. Það var með ákveðinn trega í hjarta sem ég keyrði í burtu með söknuð eftir okkar fyrri kynnum og væntumþykju gagnvart uppáhaldsfrænda mín- um. Jón fór ekki auðveldustu leið- ina í gegnum lífið. Hann var mik- ið þrekmenni og fór margt á hnú- unum. Kraftur hans sást vel þegar hálffullur heyhleðsluvagn féll yfir Jón og Hjört tengdaföður hans og Jón lyfti vagninum af þeim. Síðustu árin hefur Jón þurft að berjast við ýmiss konar heilsubrest sem hafði afgerandi áhrif á líf hans, þar á meðal barð- ist hann við ættardrauginn alkó- hólismann sem að lokum dró hann til dauða. Ég er þakklátur fyrir það að hafa verið alinn upp að hluta til af Jóni frænda mínum og hafa átt hann sem vin í gegnum ævina. Ég sakna hans og mun gera áfram. Ég vil votta öllum ættingjum mína innilegustu samúð á þessum erfiðu tímum. Bjarni Kristófer Kristjánsson. Margs er að minnast við andlát Jóns Bjarnasonar, bónda í Hvestu. Margan greiða gerði hann mér og Helga heitnum, eig- inmanni mínum, í sumarbúskap- arbrasi okkar og bralli vestur í Arnarfirði, þann stærstan að leyfa okkur að setja niður litla bústaðinn okkar í landi sínu í Hvestu fyrir tuttugu árum. Jón var ekki maður margra orða þeg- ar þeirra þurfti ekki nauðsynlega með en gekk rösklega í málin og lét verkin tala, hvort heldur var að skreppa kvöldstund með gröf- una og ryðja upp vegarspotta, rista upp svörð fyrir gróðursetn- ingu runna eða vísa á tæra lind í hlíð. Jón var ekki allra en fátt fór fram hjá hans íhugulu bláu aug- um og þeir sem kynntust honum vissu ætíð hvar þeir höfðu hann. Hin seinni sumur fækkaði kvöld- stundum við kaffibolla og skraf í eldhúsinu hjá Jóni og Höllu í Hvestu. Nú hefur hljóðnað enn meira yfir dalnum um hríð, en vorið og sumarið er á næsta leiti, jörð grænkar og fuglar verpa, lömb verða borin í heiminn. Lífið heldur áfram. Ég þakka vináttu og tryggð undanfarna áratugi. Höllu og börnunum; Söndru, Rögnu og Símoni, og fjölskyldum þeirra votta ég innilega samúð og bið þeim guðs blessunar. Veri Jón Bjarnason kært kvaddur. Ferð þín er hafin. Fjarlægjast heimatún. Nú fylgir þú vötnum sem falla til nýrra staða og sjónhringar nýir sindra þér fyrir augum. (Hannes Pétursson) Anna Sigríður Einarsdóttir. Vinur minn Jón í Hvestu hefur kvatt. Ég hef átt vináttu hans alla ævi, erfði hana frá ömmu minni og afa Sólveigu og Hannibal, og svo í gegnum Ólaf pabba minn. Og nú eru kynslóðirnar orðnar fjórar sem hafa átt vináttu Hvestufólksins, sem verður að teljast næst því að vera fjöl- skylda. Þessi bönd voru tryggð enn frekar þegar pabbi tók við búi í Selárdal og við systkinin áttum þar okkar annað heimili. Þeir Bakkabræður Jón og Ingi voru stærstu bakhjarlar pabba í bú- skapnum hvort sem það sneri að vélum, veiðum, refarækt eða hús- byggingum, og þeir þrír saman nýttu helstu styrkleika hver ann- ars til þess að gera byggð í Ket- ildölum lífvænlegri. Með eljusemi þeirra og eftirfylgni var leitt raf- magn í hreppinn og landlína tók við af sveitasímanum. Pabbi tók slaginn við yfirvöld og skrif- finnskubáknið, og Jón og Ingi gerðu allt annað. En þótt samskiptin hafi minnkað eftir að pabbi brá búi 1987 var væntumþykjan alltum- lykjandi, og Ketildalirnir og fólk- ið fyrir vestan togaði í mann. Ég held ég hafi aldrei misst úr sumri að skreppa í Arnarfjörðinn og þá var alltaf komið við í Hvestu. Eft- ir að við systur komum okkur upp samastað í Selárdal fyrir nokkr- um árum fjölgaði ferðunum og heimsóknunum, og mökum og börnum var líka tekið opnum örmum. Jón var kjarnyrtur og bein- skeyttur og talaði aldrei undir rós. En undir hrjúfu yfirborðinu sló gullhjarta og börnin í kring- um hann skynjuðu það best. Ég sé fyrir mér litla systurdóttur lauma hendi í lófa hans á leið út í fjárhús að skoða lömbin og eft- irvæntinguna í andliti sonar míns í hvert sinn þegar tekið var hús á Hvestu. Jón gat alltaf boðið upp á eitthvað óvænt, kálfa, grís eða yrðlinga, og seint verða toppaðar ferðirnar á fjórhjólinu sem fengu mömmuhjartað til að missa úr slag. Heldur hefur hallað á okkur í þessum vinskap við Jón og Höllu – við höfum oftast verið í hlut- verki þiggjandans. Þau lánuðu okkur bíl og kerru til að flytja efni, möl og steypu, og gáfu okk- ur ráð. Fyrir tæpu ári fengum við Jón í jarðvegsvinnu, og aldrei var neitt gefið eftir – hann hoppaði í og úr gröfunni, ofan í og upp úr skurðum, handmokaði með okkur og djöflaðist þar til verkið klár- aðist og við vorum úrvinda. Ketildalir verða aldrei samir án Jóns í Hvestu. Elsku Halla, Sandra Dögg, Ragna Berglind, Símon og fjöl- skyldur, guð gefi ykkur styrk. Takk fyrir okkur. Sólveig Ólafsdóttir og fjölskyldan úr Selárdal. Jón Bjarnason Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JENSÍNA KOLBRÚN RAGNARSDÓTTIR SIGURÐSSON, Burnsville, Minnesota, lést sunnudaginn 18. apríl. Jón Sigurðsson Linda Paulsen Frank Paulsen Ragna Björk Sigurðsson og fjölskyldur Okkar ástkæra og yndislega móðir, tengdamamma, amma og langamma, ÁRSÓL MARGRÉT ÁRNADÓTTIR, Árskógum 6, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 2. apríl. Útför Ársólar fór fram í kyrrþey. Hjartans þakkir til allra sem sýndu fjölskyldunni samúð og hlýju við andlát og útför. Fjölskyldan sendir sérstakar þakkir til starfsfólks Heimaþjónustunnar í Reykjavík og Hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar. Aðstandendur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.