Morgunblaðið - 24.04.2021, Blaðsíða 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021
England
Arsenal – Everton ................................... 0:1
- Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leik-
mannahópi Arsenal.
- Gylfi Þór Sigurðsson spilaði allan leikinn
með Everton.
Staðan:
Manch. City 33 24 5 4 69:24 77
Manch. United 32 19 9 4 64:35 66
Leicester 32 18 5 9 58:37 59
Chelsea 32 15 10 7 50:31 55
West Ham 32 16 7 9 53:42 55
Tottenham 33 15 8 10 56:38 53
Liverpool 32 15 8 9 54:38 53
Everton 32 15 7 10 44:40 52
Arsenal 33 13 7 13 44:37 46
Leeds United 32 14 4 14 50:50 46
Aston Villa 31 13 5 13 44:35 44
Wolves 32 11 8 13 32:41 41
Crystal Palace 31 10 8 13 33:52 38
Southampton 32 10 6 16 40:58 36
Newcastle 32 9 8 15 35:53 35
Brighton 32 7 13 12 33:38 34
Burnley 32 8 9 15 26:45 33
Fulham 33 5 12 16 25:43 27
WBA 32 5 9 18 28:62 24
Sheffield Utd 32 4 2 26 17:56 14
Þýskaland
Augsburg – Köln...................................... 2:3
- Alfreð Finnbogason spilaði fyrstu 45
mínúturnar með Augsburg.
Holland
B-deild:
Breda – Excelsior .................................... 1:2
- Elías Már Ómarsson lék allan leikinn
með Excelisor.
Jong Ajax – Nijmegen............................. 0:1
- Kristian Nökkvi Hlynsson kom inn á hjá
Jong Ajax á 70. mínútu.
Danmörk
B-deild:
Silkeborg – Viborg.................................. 2:0
- Patrik Gunnarsson og Stefán Teitur
Þórðarson léku allan leikinn með Silke-
borg.
Helsingör - Esbjerg ................................. 1:0
- Andri Rúnar Bjarnason var á vara-
mannabekk Esbjerg en Kjartan Henry
Finnbogason var ekki með vegna meiðsla.
Ólafur Kristjánsson þjálfar liðið.
Pólland
Podbeskidzie – Lech Poznan ................. 1:0
- Aron Jóhannsson kom inn á hjá Lech
Poznan á 80. mínútu.
Svíþjóð
Häcken – Växjö........................................ 2:0
- Diljá Ýr Zomers var á varamannabekk
Häcken.
- Andrea Mist Pálsdóttir kom inn á hjá
Växjö á 84. mínútu.
Mjólkurbikar karla
1. umferð:
Tindastóll – Völsungur............................. 0:2
KB – Þróttur R ......................................... 1:6
Smári – Grindavík .................................... 1:4
KV – Þróttur V ......................................... 1:3
Léttir – Víðir............................................. 1:2
Elliði – ÍR.................................................. 2:3
Hvíti riddarinn – Árborg ......................... 4:1
KFG – Álftanes......................................... 0:2
Björninn – KÁ........................................... 0:3
Mídas – Augnablik ................................. 0:12
Úlfarnir – Ísbjörninn ............................... 2:0
>;(//24)3;(
Þýskaland
Aue – Konstanz.................................... 27:27
- Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði ekk-
ert mark fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson
varði 2 skot í marki liðsins. Rúnar Sig-
tryggsson þjálfar Aue.
E(;R&:=/D
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Sauðárkrókur: Tindastóll – Þór Þ .... S18.15
DHL-höllin: KR – Haukar ................ S19.15
Origo-höllin: Valur – Þór Ak............. S20.15
Úrvalsdeild kvenna, Dominos-deildin:
Ásvellir: Haukar – Breiðablik ............... L16
Blue-höllin: Keflavík – Snæfell ............. L16
DHL-höllin: KR – Skallagrímur ........... L16
Dalhús: Fjölnir – Valur ..................... L19.15
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
TM-höllin: Stjarnan – Afturelding... L19.30
Hleðsluhöllin: Selfoss – ÍR..................... S16
Höllin Ak.: Þór – Valur ........................... S16
Ásvellir: Haukar – KA............................ S16
Framhús: Fram – ÍBV ........................... S16
ÍSHOKKÍ
Oddaleikur um meistaratitil kvenna:
Akureyri: SA – Fjölnir ........................... L21
Fyrsti leikur um meistaratitil karla:
Akureyri: SA – Fjölnir ........................... L16
SUND
Íslandsmeistaramótið í 50 m laug heldur
áfram í Laugardalslaug. Keppt er til úrslita
kl. 16 til 17.30 báða dagana.
UM HELGINA!
KÖRFUBOLTI
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Sóttvarnahléið hefur ekkert truflað
topplið Keflavíkur í úrvalsdeild
karla í körfuknattleik en liðið vann
öruggan 100:81-heimasigur á
Stjörnunni, sem situr í 3. sæti, í gær-
kvöldi. Keflvíkingar eru nú búnir að
vinna sjö leiki í röð og eru með 30
stig á toppnum, sex stigum á undan
Þór frá Þorlákshöfn þegar aðeins
fimm umferðir eru eftir. Þá hefur
sigurinn verið sérlega sætur fyrir
Suðurnesinga eftir að þeir fengu
slæma útreið í Garðabænum fyrr í
vetur. Stjarnan vann fyrri leik lið-
anna 115:75 í janúar á þessu ári.
Dean Williams átti stórleik, skor-
aði 26 stig og tók 14 fráköst fyrir
heimamenn sem voru strax komnir í
átján stiga forystu í hálfleik, 59:41.
Dominykas Milka var sömuleiðis
drjúgur að vanda, skoraði 21 stig.
Keflavík hefur ekki orðið Íslands-
meistari síðan 2008 og ekki leikið til
úrslita síðan 2010 en félagið er eitt
það sigursælasta á landinu, hefur
orðið meistari alls níu sinnum. Undir
stjórn Hjalta Þórs Vilhjálmssonar
virðist hins vegar vera kominn lang-
þráður stöðugleiki í Keflavík en
hann er á sínu öðru ári með liðið.
Keflvíkingar hafa verið óþarflega
duglegir við að skipta um þjálfara á
undanförnum árum. Þótt Stjarnan
hafi komið illa út úr þessum stórleik
verða Garðbæingar þó seint afskrif-
aðir þegar í úrslitakeppni er komið.
Dýrmæt stig til Njarðvíkur
Njarðvík vann dýrmætan 94:91-
sigur á nágrönnum sínum í Grinda-
vík á útivelli í gærkvöldi. Njarðvík-
ingar hafa verið í bullandi fallbar-
áttu á tímabilinu og ekki unnið nema
þrjá af síðustu tólf leikjum sínum en
tveir þeirra hafa komið gegn
Grindavík. Fyrir leikinn voru gest-
irnir ekki nema tveimur stigum frá
fallsæti og í hálfleik var útlit fyrir að
Njarðvíkingar yrðu að horfa um öxl
á næstunni. Grindavík var með for-
ystu framan af leik og virtust heima-
menn sjálfir ætla að næla í mik-
ilvægan sigur, enda sitja þeir í 8.
sæti deildarinnar og berjast um að
komast í úrslitakeppnina. Njarðvík
sneri hins vegar taflinu við á loka-
mínútunum þar sem Maciek Stan-
islav var atkvæðamikill eins og oft
áður. Hann skoraði 26 stig en Dagur
Kár Jónsson skoraði 22 fyrir heima-
menn.
Njarðvík mætir næst Þór frá Þor-
lákshöfn sem er í öðru sæti eftir frá-
bæran vetur. Grindvíkingar mæta
Völsurum sem eru í 5. sæti með 18
stig, en baráttan um miðja deild er
bæði hörð og jöfn.
Keflavík
óstöðvandi
- Njarðvík lyfti sér frá neðstu sætum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Atkvæðamikill Deane Williams var erfiður viðureignar í gærkvöldi.
Hilmar Árni Halldórsson hefur
skrifað undir nýjan samning við
knattspyrnudeild Stjörnunnar í
Garðabæ til þriggja ára.
Hilmar kom til Stjörnunnar frá
uppeldisfélagi sínu Leikni í Reykja-
vík fyrir tímabilið 2016. Síðan þá
hefur Hilmar Árni sett mikinn svip
á lið Stjörnunnar. Hann er orðinn
næstmarkahæsti leikmaður félags-
ins í efstu deild frá upphafi með 53
mörk í 103 leikjum en áður skoraði
hann fjögur mörk í 22 leikjum
Leiknis í deildinni tímabilið 2015.
Hilmar á að baki fjóra A-landsleiki.
Framlengdi við
Stjörnuna
Morgunblaðið/Hari
Garðabær Hilmar Árni virðist
kunna vel við sig í Stjörnunni.
Knattspyrnumaðurinn Valgeir Val-
geirsson mun spila með HK á Ís-
landsmótinu í sumar en hann hefur
undanfarna mánuði verið á mála
hjá enska félaginu Brentford að
láni. Valgeir er aðeins 18 ára gam-
all en hefur engu að síður náð að
spila 35 úrvalsdeildarleiki með HK
og skorað í þeim sjö mörk. Hann
var lánaður til Brentford síðasta
haust þar sem hann hefur spilað
með B-liði félagsins og skorað fjög-
ur mörk í 15 leikjum. Það er mikill
fengur fyrir HK að fá Valgeir aftur
í sínar raðir.
Valgeir snýr aftur
í Kópavoginn
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Efnilegur Valgeir Valgeirsson í leik
með HK gegn Fylki á síðasta ári.
Everton er komið aftur á sig-
urbraut og á enn möguleika á
Meistaradeildarsæti eftir frækinn
1:0-sigur á útivelli gegn Arsenal í
úrvalsdeildinni ensku í knattspyrnu
í gærkvöldi. Gylfi Þór Sigurðsson
var í byrjunarliði Everton og lék
allan leikinn en hann átti bestu
marktilraun leiksins. Sneri boltann
í þverslá af 30 metra færi úr auka-
spyrnu. Sigurmarkið var svo lygi-
legt. Brasilíumaðurinn Richarlison
komst upp að endamörkum og gaf
knöttinn fyrir, á milli fóta Bernd
Leno í marki Arsenal og í netið.
Hræðilegt sjálfsmark sem reyndist
sigurmarkið. Everton er nú með 52
stig í 8. sæti, stigi á eftir Liverpool
og Tottenham og tveimur á eftir
West Ham og Chelsea. Sex umferð-
ir eru eftir og verður baráttan um
fjórða sætið æsispennandi.
AFP
Emirates Gylfi Þór Sigurðsson tekur við boltanum í leiknum gegn Arsenal í
gærkvöldi. Íslenski landsliðsmaðurinn var í byrjunarliði Everton að vanda.
Hræðilegt sjálfsmark
dugði Everton til sigurs
Eitt Íslandsmet var sett í gær á
fyrsta degi Íslandsmeistaramótsins
í sundi í 50 metra laug sem fram fer
í Laugardalslaug nú um helgina.
Fjölnismaðurinn Viktor Forafonov
setti það í 400 metra skriðsundi en
hann synti á tímanum 4:05,24 mín-
útum.
Sterkt sundfólk er á meðal kepp-
enda og má þár nefna EM-farana
Jóhönnu Elínu Guðmundsdóttur og
Dadó Fenri Jasminuson úr Sund-
félagi Hafnarfjarðar. Jóhanna varð
fyrst í mark í 50 metra skriðsundi á
tímanum 26,36 sekúndum en Stein-
gerður Hauksdóttir var önnur og
Dagbjört Hlíf Ólafsdóttir þriðja. Þá
varð Dadó Fenrir fyrstur í mark í
50 metra skriðsundi karla en hann
synti á tímanum 23,47 sekúndum.
Símon Elías Statkevicius var annar
og Kristinn Þórarinsson þriðji.
Íslandsmet á fyrsta
degi í Laugardalslaug
Morgunblaðið/Sigurður Ragnarsson
Laugardalslaug Keppendur stinga sér til sunds í 50 metra skriðsundi karla.