Morgunblaðið - 24.04.2021, Page 45
Arngunnur
Árnadóttir
Listvinafélag Hallgrímskirkju
stendur fyrir ljóðadagskrá í Lista-
safni Einars Jónssonar í dag,
laugardag, kl. 16 sem nefnist Ljóð-
list yfir tímans haf. „Þar koma fram
þrjú skáld af yngri kynslóðinni og
flytja frumsamin ljóð, sem þau hafa
samið undir áhrifum sálmaskálda
frá fyrri öldum. Skáldin sem fram
koma eru Arngunnur Árnadóttir,
Fríða Ísberg og Ægir Þór Jähnke,
auk Aðalsteins Ásbergs Sigurðs-
sonar sem flytur inngang að dag-
skránni,“ segir í tilkynningu. Þar
kemur fram að tímasetning dag-
skrárinnar sé tengd viku bókar-
innar sem nú standi yfir en alþjóð-
legur dagur bókarinnar var í gær,
23. apríl.
„Björg Brjánsdóttir flautuleikari
leikur einleik milli dagskráratriða.
Dagskráin verður í græna salnum
niðri, og gætir safnið vel að öllum
sóttvarnareglum og verður stillt
upp númeruðum sætum. Gestir sem
vilja tryggja sér aðgang eru vin-
samlegast beðnir að skrá sig fyrir
fram með nafni og símanúmeri á:
Flautuleikari Björg Brjánsdóttir.
Ægir Þór
Jähnke
Fríða
Ísberg
Aðalsteinn Ásberg
Sigurðsson
Ljóðlist yfir tímans haf
list@hallgrimskirkja.is svo hægt sé
að taka frá sæti. Aðgangur er
ókeypis og einnig býðst gestum
ljóðadagskrárinnar að skoða safnið
án endurgjalds fyrir viðburðinn.“
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021
R
étt áður en öllu var skellt í
lás í mars út af kórónu-
veirufaraldrinum frum-
sýndi Þjóðleikhúsið leik-
ritið Kafbátur eftir Gunnar Eiríks-
son í leikstjórn Hörpu Arnardóttur
og ljómandi íslenskri þýðingu Berg-
sveins Birgissonar. Leikritið var,
ásamt verki eftir Kristínu Rögnu
Gunnarsdóttur, valið úr 150 inn-
sendum umsóknum í fyrra þegar
Þjóðleikhúsið auglýsti eftir nýjum
leikritum fyrir börn. Gunnar gerði
sér síðan lítið fyrir, síðasta sumar,
og leikstýrði eigin verki hjá
Haugesund-leikhúsinu í Noregi, þar
sem hann býr og starfar.
Það er auðvelt að skilja hrifningu
leikhússins á verki sem byggist á
ævintýralegum vísindaskáldskap í
anda Jules Verne. Kafbátur gerist í
fjarlægri framtíð þar sem heimurinn
er allur sokkinn í sæ og loftið við
yfirborðið svo eitrað að ekki er hægt
að anda því að sér. Í upphafi verks
kynnumst við hinni tíu ára gömlu
Argentínu (Birgitta Birgisdóttir)
sem býr ásamt pabba sínum (Björn
Ingi Hilmarsson) og hrökkálnum
Lúkar (Þröstur Leó Gunnarsson) í
farartæki sem sá fyrrnefndi smíðaði
fyrir margt löngu. Argentína þekkir
ekki annan veruleika en þann að líf-
inu sé lifað neðansjávar, sem getur
hæglega reynst einmanalegt þótt
pabbi sé duglegur að segja sögur.
Hún elur með sér draum um að þeim
feðginum takist að finna sjöunda og
síðasta ferðaklumpinn sem þarf til
að koma í gang tímavélinni um borð í
bátnum sem mamma Argentínu
fann upp áður en hún hvarf spor-
laust.
Í leit sinni að ferðaklumpinum
tekur þríeykið um borð í bátinn
ísklump sem reynist innihalda vík-
inginn Steinunni langöxi (Guðrún S.
Gísladóttir) sem lifnar óvænt við eft-
ir þúsund ára dvala í ísnum. Í dval-
anum hefur hún glatað langöxi sinni
og brátt þarf hún einnig að láta frá
sér steininn sinn, sem henni finnst
grábölvað því þar með myndi hún
einnig glata báðum kennimerkjum
sínum. Skömmu síðar festist í vatns-
síu bátsins vélmennið Anon (Kjartan
Darri Kristjánsson) sem skapaður
var fyrir meira en fimm hundruð ár-
um til að vera vinur. Með gestunum
tveimur breytist dýnamíkin í sam-
skiptum bátsverja, Argentína fær
vin á líku reki og pabbinn veðrast
allur upp í samskiptunum við kven-
skörunginn úr ísnum. Í samtölum
Argentínu og Anons kemst stúlkan
að því að heimurinn eins og hún
þekkir hann hefur ekki alltaf verið
svona, heldur hafi fólk og dýr búið á
þurru landi og getað andað að sér
hreinu lofti. Argentína skilur eðli-
lega ekki hvers vegna pabbi hennar
hefur aldrei sagt henni frá þessu og
það er ekki laust við að áhorfendur
deili þeirri spurningu með henni. Til
að sanna mál sitt fær Anon Argent-
ínu til að stýra bátnum að öruggum
stað sem geymi mestu verðmæti
heimsins, þ.e. fræ af öllum plöntum
og trjám heims sem bíða þess að
jörðin verði heimt úr syndaflóðinu
og hægt verði að byrja allt upp á
nýtt. Þegar Argentína áttar sig á því
hversu fallegur heimurinn var í
gamla daga og lífríkið fjölbreytilegt
stendur hún frammi fyrir erfiðu vali:
hvort á hún að nota tímavélina til að
ferðast aftur í tímann og endur-
heimta mömmu sína eða ferðast enn
þá lengra aftur til þess tíma þegar
jörðin var enn heilbrigð og freista
þess að bjarga bláu plánetunni.
Vandinn er nefnilega sá að tímavélin
leyfir aðeins eitt ferðalag.
Sýningin veltir upp áhugaverðum
spurningum um það hvernig við för-
um með jörðina, hvað bíður okkar ef
við breytum ekki háttum okkar,
hver er fórnarkostnaður þess að
skrökva hvort heldur er að sjálfum
okkur eða öðrum, getum við saknað
einhvers sem við höfum aldrei átt,
hvernig manneskjur við viljum vera
og hvernig getum við getum lagt
okkar af mörkum. Á móti alvarlegu
umfjöllunarefninu er boðið upp á
margvíslegt sprell og orðaleiki sem
vekur kátínu áhorfenda.
Umgjörðin öll er vönduð, hvort
heldur snýr að fínum búningum
Ásdísar Guðnýjar Guðmundsdóttur,
góðri lýsingu Ólafs Ágústs Stefáns-
sonar og Jóhanns Friðriks Ágústs-
sonar, flottri myndbandshönnun
Heimis Freys Hlöðverssonar, ljóm-
andi tónlist Magnúsar Trygvasonar
Eliassen og Steingríms Teague, sem
jafnframt annast hljóðhönnun ásamt
Aroni Þór Arnarssyni, eða hugvits-
samlegri leikmynd Finns Arnars
Arnarsonar sem sannarlega gleður
augað með öllum sínum duldu smá-
atriðum. Að forskrift höfundar leika
hljóðfærin stórt og skemmtilegt
hlutverk um borð í kafbátnum þar
sem orgel þjónar hlutverki stjórn-
stöðvar um borð og barítónhorn nýt-
ist til að hella upp á ýmsa drykki.
Gaman hefði verið að sjá hvaða
leyndardóm saxófónninn, sem stað-
settur var fremst á sviðinu, býr yfir.
Björn Ingi Hilmarsson var sann-
færandi pabbi í samskiptum sínum
við Argentínu og ekki við hann að
sakast hversu fljótt hann virtist
gleyma konunni sinni, sem hvarf
sporlaust, þegar önnur ný birtist
óvænt. Birgitta Birgisdóttir fór fal-
lega með hlutverk hinnar lífsglöðu
og forvitnu Argentínu. Guðrún S.
Gísladóttir fékk það vandasama
hlutverk að túlka hina skapstóru
Steinunni, sem lumar samt á mjúkri
hlið þegar á reynir, en stórgerður
leikstíllinn var nokkuð á skjön við
aðra í leikhópnum. Þröstur Leó
Gunnarsson var dásamlega fyndinn í
hlutverki sínu sem hrökkállinn
Lúkar sem aðeins hafði eitt orð í
forða sínum. Undirrituð hefði aldrei
trúað því að hægt væri að segja
„búðingur“ með svo blæbrigðaríkum
hætti og að svona margvíslega
merkingu mætti leggja í orðið. Raf-
mögnun Lúkars var einstaklega
skemmtilega útfærð og gaman að
fylgjast með tilraunum hópsins til að
koma tungumálatöflum ofan í Stein-
unni til að gera hana skiljanlega, en
óneitanlega flögraði sú spurning að
rýni hvers vegna feðginunum hefði
aldrei dottið í hug að gefa Lúkar
eina slíka töflu þegar þau eiga hvað
erfiðast með að skilja tal hans. Senu-
þjófur sýningarinnar var hins vegar
Kjartan Darri Kristjánsson sem fór
á kostum sem vélmennið Anon, ekki
síst meðan hann var bilaður eftir
volkið í sjónum. Kafbátur er vönduð
sýning með fallegan boðskap. Hún
spyr erfiðra spurninga og vekur í
raun fleiri spurningar en hún reynir
að svara. Þannig geta áhorfendur
hæglega spunnið framhaldssöguna
um hvað hafi hugsanlega tekið við
þegar ferðalagi kafbátsins loks lauk.
Má snúa hjóli tímans við?
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Volk „Senuþjófur sýningarinnar var hins vegar Kjartan Darri Kristjánsson sem fór á kostum sem vélmennið Anon,
ekki síst meðan hann var bilaður eftir volkið í sjónum,“ segir meðal annars í rýni um sýninguna Kafbátur.
Þjóðleikhúsið
Kafbátur bbbmn
Eftir Gunnar Eiríksson. Íslensk þýðing:
Bergsveinn Birgisson. Leikstjórn: Harpa
Arnardóttir. Söngtextar: Gunnar Eiríks-
son, Bergsveinn Birgisson og Harpa
Arnardóttir. Leikmynd: Finnur Arnar
Arnarson. Búningar: Ásdís Guðný Guð-
mundsdóttir. Lýsing: Ólafur Ágúst Stef-
ánsson og Jóhann Friðrik Ágústsson.
Tónlist: Magnús Trygvason Eliassen og
Steingrímur Teague. Hljóðhönnun: Aron
Þór Arnarsson, Magnús Trygvason
Eliassen og Steingrímur Teague. Mynd-
bandshönnun: Heimir Freyr Hlöðvers-
son. Leikarar: Birgitta Birgisdóttir,
Björn Ingi Hilmarsson, Guðrún S. Gísla-
dóttir, Kjartan Darri Kristjánsson og
Þröstur Leó Gunnarsson. Frumsýning í
Kúlunni í Þjóðleikhúsinu 20. mars 2021.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
SMARTLANDSBLAÐIÐ
kemur út 5. maí
–– Meira fyrir lesendur
Tískan 2021 í förðun,
snyrtingu, útliti og
fatnaði auk umhirðu
húðarinnar, heilsu,
og margt fleira.
Tryggðu þér sýnileika í þessu
glæsilega Smartlandsblaði
Auglýsendur athugið að pöntun
auglýsinga er til 29. apríl.
Katrín Theódórsdóttir
S. 569 1105 – kata@mbl.is
Smartland
10 ára