Morgunblaðið - 24.04.2021, Side 26

Morgunblaðið - 24.04.2021, Side 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021 ✝ Jóhann Sv. Jónsson tann- læknir fæddist á Siglufirði 14. mars 1934. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Siglufirði 11. apríl 2021. Foreldrar hans voru hjónin Jón Tryggvi Jóhanns- son, skipstjóri og verkstjóri á Siglufirði, f. 27. júní 1906, d. 11. desember 1962, og Elín Flóventsdóttir, húsfreyja á Siglufirði, f. 17. júní 1903, d. 30. september 1980. Bræður Jóhanns voru tveir; Bragi, veðurfræðingur, f. 2. jan- úar 1931, d. 28. janúar 2019, og Héðinn, frönskukennari í Menntaskólanum í Reykjavík, f. 15. september 1936. Héðinn er búsettur í Reykjavík. Bræðurnir sóttu sér allir háskólamenntun erlendis, sinn í hverju landinu. Bragi lærði í Svíþjóð, Jóhann í Þýskalandi og Héðinn í Frakk- landi. Jóhann varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri ár- ið 1955 og hélt að því loknu til Juliönu Nogueira, f. 26. sept- ember 1994, og eru þau búsett á Sólheimum í Grímsnesi, Jóhann Felix, f. 21. september 1992, í sambúð með Önnu Sunneborn Guðnadóttur, f. 28. maí 1992 og eru þau búsett í Reykjavík, Alex Harri, f. 21. ágúst 1997, búsettur í Reykjavík, og Andri Leó, f. 22. ágúst 2007. Jóhann fluttist strax að loknu tannlæknanáminu í Þýskalandi með eiginkonu sinni til Siglufjarðar þar sem hann starfaði við tannlækningar allt þar til hann fór á eftirlaun árið 1995. Jóhann var heilsuhraust- ur alla tíð ef frá eru skildar örfáar vikur fyrir andlát hans. Hann var virkur í fé- lagsstörfum á Siglufirði, sat í stjórn Íþróttabandalags Siglu- fjarðar um árabil og átti sæti í Heilbrigðisnefnd Siglufjarðar 1968-1983. Hann var gjaldkeri í stjórn Tannlæknafélags Norð- urlands 1976-1978. Jóhann var virkur félagi í Kiwanisklúbbn- um á Siglufirði og var forseti Kiwanisklúbbsins Skjaldar 1977-1978 og svæðisstjóri Grettissvæðis Kiwanis á Norð- urlandi vestra 1990-1991. Jó- hann var mikill áhugamaður um stangveiði og sat í stjórn Stangveiðifélags Siglfirðinga um árabil frá árinu 1977. Útför Jóhanns fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag, 24. apríl 2021, klukkan 11. náms til München í Þýskalandi. Þar lærði hann tann- lækningar við há- skólann í München og lauk hann nám- inu árið 1961 og öðlaðist hinn 14. september 1961 leyfi til að stunda tannlækningar á Ís- landi. Þegar Jó- hann var við nám í München kynntist hann eftirlif- andi eiginkonu sinni, Önnu Jó- hönnu Jóhannsdóttur Hauk, meistara í fatasaumi, f. 18. nóv- ember 1934 í Þýskalandi. Jó- hann og Anna giftu sig í Þýska- landi 5. september 1958. Börn Jóhanns og Önnu eru: 1) Bylgja, f. 28. desember 1961, bú- sett á Siglufirði. Fyrrverandi eiginmaður Bylgju er Pálmi Að- albjörnsson, f. 21. febrúar 1960. Barn þeirra er Elín, f. 20. febr- úar 1994, búsett í Reykjavík. 2) Jón Tryggvi, f. 23. ágúst 1964, og er hann giftur Fjólu Krist- jánsdóttur, f. 6. desember 1965 og eru þau búsett í Reykjavík. Börn þeirra eru: Aron Ármann, f. 21. september 1992, giftur Elsku besti pabbi minn er dá- inn. Farinn yfir móðuna miklu og aldrei verður lífið aftur eins. Hann var kletturinn minn í líf- inu. Hann var alla tíð hraustur til heilsunnar og kenndi sér einskis meins nokkurn tímann þar til ná- kvæmlega fyrir tveimur mánuð- um upp á dag. Þá fékk hann stóran blóðtappa í heilann sem lamaði hann hægra megin í lík- amanum og missti hann einnig málið. Þegar á leið fór hann þó að geta sagt einhver orð, en hreyfigeta í handlegg og fæti kom ekki til baka. Þetta gerðist mjög skyndilega, því m.a.s. dag- inn áður en reiðarslagið dundi yfir fór hann sinn daglega rúnt á bílnum sínum í bæinn og keyrði um fallega fjörðinn sinn eins og vanalega. Pabbi elskaði bæinn sinn Siglufjörð og nánast daglega var rúntað upp á Saurbæjarás eða fram að Hóli eða fram á fjörð og horft yfir bæinn eða yfir Siglu- nesið og dáðst að fegurðinni. Pabbi tók alla tíð þátt í ýms- um félagsstörfum hér í bænum, var m.a. í Kiwanis um langt ára- bil og mætti þar nánast á alla fundi, starfaði í Vorboðakórnum, sem er kór eldri borgara hér í bæ, og í þessum tveimur félögum starfaði hann alveg fram að dán- ardegi eða þar til Covid-19 stoppaði allt. Við pabbi vorum mjög náin alla tíð og eftir að aldurinn færð- ist yfir foreldra mína ákvað ég að flytjast hingað til Siglufjarðar til þess að vera þeim innan handar í ellinni. Hingað kom ég fyrst um sumarið 2013 og ílengdist svo meira og minna hér alveg til dagsins í dag og sé svo sann- arlega ekki eftir því. Við áttum öll og ásamt elsku Pjakki hund- inum dóttur minnar yndislegar stundir saman hér á Siglufirði. Dásamlegar minningar sem birt- ast okkur svo líka ljóslifandi á ljósmyndum sem ég tók töluvert af. Pabbi var einstakur maður, góðhjartaður svo af bar og hjálp- samur og vildi öllum vel, og eig- inlega sérstaklega þeim sem minna máttu sín í þjóðfélaginu og er mér ávallt minnisstæður ákveðinn frasi sem hann sagði svo oft: „Það er ekkert ljótt við það að vera góður við aðra.“ Þessi orð heyrði ég oft frá hon- um og þetta lýsti honum alveg fullkomlega. Pabbi stundaði lax- og sil- ungsveiðar um árabil og elskaði að fara í veiðitúra, sérstaklega auðvitað í Fljótaána, en hann fór í endalaust marga veiðitúra hér og þar um landið. Veiddi hann mikið af bæði laxi og silungi og fékk nokkrum sinnum stóra verðlaunalaxa. Á yngri árum stundaði hann badminton af kappi og bæði hann og mamma stunduðu morgunsund snemma morguns alla daga um langt ára- bil hér í okkar frábæru sund- laug. Þau ferðuðust töluvert mikið á yngri árum og stóðu Ameríku- ferðir þeirra þar upp úr held ég, þar sem þau heimsóttu æsku- vinkonu mömmu sem þar bjó. Elsku pabbi minn, ég kveð þig hér með miklum söknuði og ég mun passa hana mömmu fyr- ir þig og dvelja hér á Siglufirði hjá henni áfram. Hún verður aldrei ein hér. Minning þín mun alltaf lifa í hjörtum okkar allra og ég mun hugsa til þín á hverjum einasta degi. Þú varst besti pabbi í öllum heiminum. Ég elska þig elsku pabbi minn. Þín dóttir, Bylgja. Elsku pabbi minn kvaddi að morgni dags hinn 11. apríl síð- astliðinn. Pabbi hafði lifað góðu lífi og alltaf verið heilsuhraustur ef frá eru skildar síðustu vik- urnar. Hann var með sína rút- ínu, skrapp í bæinn á bílnum sín- um, hitti fólk og spjallaði og kom við í kaffi á nokkrum stöðum. Það var því úr karakter við hann að hann var allt í einu rúmfastur og gat nánast ekki tjáð sig og úr því sem komið var var það kannski bara gott að hann fékk að fara. Þær minningar sem koma í huga minn eru flestar frá því að ég var polli heima á Sigló. Flest- ir dagar byrjuðu á morgunsundi og vínarbrauði. Ég man vel eftir því þegar pabbi byrjaði að spila golf frammi á Hóli. Kallinn keypti sér golfsett og ég og Jón- as Skúla æskuvinur minn feng- um alltaf að fara með. Þetta var mikið fjör en golfið heillaði pabba ekki. Sama sumar og pabbi byrjaði í golfinu urðu í raun straumhvörf í lífi hans því hann keypti sér veiðileyfi inni í Fljótaá og prófaði í fyrsta skipti að veiða á stöng í á. Hann heill- aðist strax af þessu sporti og golfkylfurnar fóru beint inn í geymslu og hafa ekki verið snertar síðan. Fyrst kunni pabbi ekkert að veiða og hann fékk aldrei lax heldur bara einhverjar silungslontur. Aðrir veiðimenn fengu alltaf einn og einn lax! Það varð því úr að pabbi bað Svavar á Kambi að koma með sér á svæði 1 í Fljótaánni og kenna sér galdurinn. Það var eins og við manninn mælt. Þeir fengu á sex tímunum fullt af bleikju og tvo laxa, 12 og 14 punda dreka. Pabbi var nú orðinn heltekinn af veiðibakteríunni og eftir þetta gat mamma í raun ekki skipu- lagt sumarfrí með honum svo heitið gæti því þetta snerist orð- ið alltaf um að hann yrði að vera heima á besta veiðitímanum. Þegar ég var um 10 ára fór ég með nokkrum strákum niður á Öldubrjót að veiða. Þegar ég er að kasta út renn ég til og missi veiðistöngina mína í sjóinn og hún sekkur til botns. Stöngin var glæný og ég grét mig í svefn um kvöldið. Þegar ég vakna um morguninn trúi ég varla mínum eigin augum því veiðistöngin lá við hliðina á mér í rúminu mínu. Þá hafði pabbi farið niður á bryggju þegar ég var sofnaður og fiskað stöngina upp. Pabbi var skapgóður að eðl- isfari og studdi mig alltaf í því sem ég tók mér fyrir hendur en þegar ég tilkynnti honum að ég ætlaði ekki í MA heldur í Versló þá benti hann mér á að ég væri að rjúfa rótgróna fjölskylduhefð! Með sínu jafnaðargeði komst hann þó fljótlega yfir þetta og ég fór í Versló. Við pabbi eyddum óteljandi mörgum klukkutímum saman við árbakkann á mínum yngri árum og þetta voru okkar mestu gæða- stundir. Það er almennt eðli veiðimanna að vilja fá að hafa stöngina út af fyrir sig en ég og pabbi skiptumst alla tíð á að veiða saman á eina stöng og það var aldrei neitt vandamál nema kannski þegar ákveða þurfti hvor okkar ætti að byrja að kasta á Lönguflúðum á svæði 2. Elsku besti pabbi, takk fyrir allar góðu stundirnar. Guð geymi þig. Jón Tryggvi Jóhannsson. Margt kemur upp í hugann þegar bekkjarfélagar kveðja, nú síðast hann Jonni tannlæknir, fullu nafni Jóhann Sverrir Jóns- son kominn á 88. ár og náði þannig góðum aldri. Við vorum 44 talsins sem útskrifuðumst saman frá MA vorið 1955 og skiptist hópurinn nokkuð jafnt milli mála- og stærðfræðideildar. Í stærðfræðideildinni voru þá m.a. tveir Siglfirðingar sem komu saman í skólann eftir landspróf, ásamt Jóhanni var það Gunnar H. Gunnlaugsson síðar þekktur skurðlæknir. Fylgdust þeir að sem herberg- isfélagar í tvo vetur í heimavist MA. Var einkar vingott með okk- ur, m.a. þegar við í 5. bekk vor- um nágrannar í kytrum efst uppi á Suðurvistum í gamla skólahús- inu, sem nú er mannlaus hana- bjálki. Jonni átti þá gott útvarps- tæki og hlustaði mikið á dægurlög þess tíma sem endur- speglaðist m.a. í ágætri teikn- ingu af honum í Carminu. Einnig minnist ég tveggja bræðra Jó- hanns sem útskrifuðust frá MA, Braga veðurfræðings sem varð stúdent 1951 og Héðins 1957, síðar frönskukennara. Foreldrar þeirra, Jón Tryggvi og Elín, voru alþýðufólk með metnað fyr- ir hönd sona sinna sem allir stóðu vel undir væntingum. Þannig var Jóhann farsæll náms- maður, jafnvígur á flestar grein- ar. Sérstaklega er mér minnis- stæð gamansemi hans og viðbrögð í samræðum, oft úr óvæntri átt. Leið meirihluta íslenskra stúdenta sem héldu utan í fram- haldsnám lá á þessum árum til Frakklands eða Þýskalands að stúdentsprófi loknu. Jóhann lærði þannig tannlækningar í München og kynntist þar sinni þýsku eiginkonu. Ásamt henni hélt hann rakleitt til baka í heimabyggðina og gætti að tann- heilsu Siglfirðinga alla sína starfsævi eins og aldrei hefði annað verið á dagskrá. Það má kalla að gjalda fósturlaunin. Leiðir okkar lágu síðan stöku sinnum saman á stórhátíðum stúdentsárgangsins, m.a. vorið 2015 á Akureyri á 60 ára afmæl- inu. Glettni Jóhanns var þá enn söm við sig og við vorum sam- mæltir um að hvergi væri betra að vera en nyrðra og eystra. Hjörleifur Guttormsson. Jóhann Sv. Jónsson Elsku hjartans pabbi, tengdapabbi, afi, langafi og langalangafi, JÚLÍUS GUNNAR ÞORGEIRSSON vélstjóri, andaðist á Hrafnistu, Hafnarfirði, 8. apríl. Einlægar þakkir til starfsfólks Hrafnistu fyrir alúð og umönnun. Útför fór fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þorbjörg Júlíusdóttir Sigurfinnur Sigurfinnsson Guðrún Júlíusdóttir Sigríður Jörundsdóttir Pétur Júlíusson Anna Ágústa Karlsdóttir Ástríður Júlíusdóttir Magnús Jónasson afa-, langafa- og langalangafabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR PÉTURSSON, lögreglumaður og atvinnukylfingur, Jöklafold 10, lést á La Gomera, Spáni, mánudaginn 19. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Guðrún Ólafsdóttir Pétur Óskar Sigurðsson Nína Björk Geirsdóttir Hannes Freyr Sigurðsson Kristjana Erlingsdóttir Hanna Lilja Sigurðardóttir Jónas Bjarnason Ragnar Sigurðsson Anna Margrét Sigurðardóttir Bjarni Þór Guðmundsson Ólafur Örn Jónsson Nana Jónsson og barnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, fósturfaðir, afi og langafi, INGI S. GUÐMUNDSSON, Seljalandi 1, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 26. apríl klukkan 13. Vegna fjöldatakmarkana verða einungis nánustu aðstandendur og vinir viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á vefslóðinni www.sonik.is/ingi Ingibjörg Skarphéðinsdóttir Hilmar Ingason María Guðmundsdóttir Haukur S. Ingason Marian Ingason Carlen Guðmundur Birgir Ingason Ingunn Ólafsdóttir Ásgeir Þór Ingason Linda Björk Ingadóttir Ólafur Björn Björnsson Jóhanna Jóhannsdóttir Guðmundur Óli Kristinsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, JÓNA KRISTJÁNSDÓTTIR, Stakkholti 2b, lést þriðjudaginn 31. mars. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 30. apríl klukkan 13. Vegna samkomutakmarkana verður streymt frá athöfninni. Slóðin á streymið er https://youtu.be/ZPQRTlvSfIc Ólafur Árnason Erna Rós Magnúsdóttir Þórarinn Gunnar Sverrisson Hjalti Magnússon Sigurlaug Soffía Reynaldsd. Anna Lilja Magnúsdóttir Guðmann Bragi Birgisson Kristján Magnússon Sigríður Inga Rúnarsdóttir Árni Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn Heittelskuð eiginkona, dóttir, móðir, tengdamóðir og amma okkar, SIGRÍÐUR VALSDÓTTIR, Skrúðási 6, lést fyrir aldur fram mánudaginn 19. apríl á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Útför Sigríðar verður gerð frá Vídalínskirkju hinn 30. apríl klukkan 15. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu og fjöldatakmarkana verður boðið til útfararinnar. Streymt verður frá útförinni, hlekkur tilkynntur síðar. Guðmundur Jón Elíasson Guðríður Júlíusdóttir Elías Freyr Guðmundsson Kristbjörg M. Kristinsdóttir Valur Árni Guðmundsson Lára Hrönn Hlynsdóttir Eva María Guðmundsdóttir Guðmundur F. Aðalsteinsson Elvar Jón Guðmundsson Þórgunnur Þórðardóttir og barnabörn Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri Guðmundur Baldvinsson útfararstjóriJón G. Bjarnason útfararstjóri

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.