Morgunblaðið - 24.04.2021, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Pils • Vesti • Tunikur • Blússur
Bolir • Kjólar • Peysur
Buxur • Töskur
Verið velkomin
Nýjar
sumarvörur
Snyrtivörumerkin okkar eru:
M a d e i n I c e l a n d
VERIÐ
VELKOMIN Í
SJÓNMÆLINGU
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14
Skipholti 29b • S. 551 4422
Skoðið laxdal.is
GLEÐILEGT
SUMAR
Skoðið // hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
NÝ SENDING
Góð staða í Hafnarfirði
Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri
í Hafnarfirði, ritaði grein í Morgun-
blaðið sl. miðvikudag um rekstrar-
niðurstöðu Hafnarfjarðarbæjar,
sem hún segir ekki hafa verið traust-
ari í áratugi. Graf vantaði með grein-
inni og er það birt hér. Beðist er vel-
virðingar á þeim mistökum.
LEIÐRÉTT
Allt um sjávarútveg
Framkvæmdir hafa staðið yfir und-
anfarnar vikur við gerð göngu- og
hjólastíga meðfram Hæðargarði og
Álmgerði í Bústaðahverfi, á milli
Réttarholtsvegar og Háaleitis-
brautar. Liggur stígurinn til hliðar
við og ofan á núverandi hitaveitu-
stokki. Meðfram stígnum verður
einnig gengið frá nýrri lýsingu.
Verktakinn Bjössi ehf. vinnur
verkið fyrir Reykjavíkurborg en
áætlaður kostnaður er um 100 millj-
ónir króna. Einnig eru kantsteinar
endurnýjaðir og færa hefur þurft til
brunna og loftunarrör hitaveitu sem
lenda í nýju stígsstæði.
Framkvæmdin er hluti af nýrri
hjólreiðaáætlun Reykjavíkurborgar
fyrir árin 2021-2025. Samkvæmt
upplýsingum frá borginni mun bíla-
stæðum ekki fækka við göturnar en
íbúar við Hæðargarð hafa haft sam-
band við blaðið og kvartað undan
þrengslum í götunni eftir stígagerð-
ina, einkum á morgnana og síðdegis
við leikskólann Jörfa. Verkefnis-
stjóri framkvæmdarinnar sagði göt-
una ekki hafa þrengst, aðeins beri á
því á meðan verktakinn þurfi að at-
hafna sig.
Hámarkshraði hefur verið 30 km í
Hæðargarði og ekki stendur til að
breyta honum. Foreldri sem á barn í
leikskólanum, og blaðið ræddi við,
sagði að nokkuð hefði borið á hrað-
akstri eftir götunni og því hefði verið
nauðsynlegt að þrengja hana þar
sem gangbrautir eru í nágrenni við
skólann.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hæðargarður Tvístefnuakstur er áfram á götunni þrátt fyrir nýjan hjóla- og göngustíg. Hæðargarður hefur einnig
verið þrengdur við gangbrautir en leikskólinn Jörfi er við Hæðargarð og hefur verið í fréttum af öðru tilefni.
Hjóla- og göngustígur
lagður við Hæðargarð
- Framkvæmdin hluti af nýrri hjólreiðaáætlun borgarinnar
Veiðidögum á grásleppu í ár verður
fækkað um fimm frá því sem áður
hafði verið ákveðið, verða 35 í stað
40. Breytingunni er ætlað að
tryggja öllum sem stunda grá-
sleppuveiðar jafn marga daga.
Greint er frá þessari breytingu á
reglugerð á heimasíðu Lands-
sambands smábátaeigenda.
Að lokinni löndun á fimmtudag,
sumardaginn fyrsta, var heildar-
veiðin komin í 2.815 tonn hjá þeim
123 bátum sem byrjaðir voru. Veiði
á hvern bát á dag að meðaltali á
vertíðinni, sem hófst hinn 23. mars,
slær öll fyrri met og er meðaltalið
1.342 kíló, en var á sama tíma í
fyrra 750 kíló. Sigurey ST er afla-
hæst með tæplega 75 tonn af heilli
grásleppu. Alls voru níu bátar
komnir með meira en 50 tonna afla
á fimmtudag.
Verði aflabrögð áfram með sama
hætti og 150 bátar taki þátt í veið-
unum má áætla að afli þeirra verði
um sjö þúsund tonn eða það sem
leyfilegt er að veiða á öllum svæð-
um að undanskildu svæði B. Á því
svæði er leyfilegur heildarafli 1.988
tonn, að því er segir á vef LS.
Metafli á grásleppu og veiðidögum fækkað