Morgunblaðið - 24.04.2021, Page 26
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. APRÍL 2021
✝
Jóhann Sv.
Jónsson tann-
læknir fæddist á
Siglufirði 14. mars
1934. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Norðurlands á
Siglufirði 11. apríl
2021.
Foreldrar hans
voru hjónin Jón
Tryggvi Jóhanns-
son, skipstjóri og
verkstjóri á Siglufirði, f. 27. júní
1906, d. 11. desember 1962, og
Elín Flóventsdóttir, húsfreyja á
Siglufirði, f. 17. júní 1903, d. 30.
september 1980.
Bræður Jóhanns voru tveir;
Bragi, veðurfræðingur, f. 2. jan-
úar 1931, d. 28. janúar 2019, og
Héðinn, frönskukennari í
Menntaskólanum í Reykjavík, f.
15. september 1936. Héðinn er
búsettur í Reykjavík. Bræðurnir
sóttu sér allir háskólamenntun
erlendis, sinn í hverju landinu.
Bragi lærði í Svíþjóð, Jóhann í
Þýskalandi og Héðinn í Frakk-
landi.
Jóhann varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri ár-
ið 1955 og hélt að því loknu til
Juliönu Nogueira, f. 26. sept-
ember 1994, og eru þau búsett á
Sólheimum í Grímsnesi, Jóhann
Felix, f. 21. september 1992, í
sambúð með Önnu Sunneborn
Guðnadóttur, f. 28. maí 1992 og
eru þau búsett í Reykjavík,
Alex Harri, f. 21. ágúst 1997,
búsettur í Reykjavík, og Andri
Leó, f. 22. ágúst 2007.
Jóhann fluttist strax að
loknu tannlæknanáminu í
Þýskalandi með eiginkonu sinni
til Siglufjarðar þar sem hann
starfaði við tannlækningar allt
þar til hann fór á eftirlaun árið
1995. Jóhann var heilsuhraust-
ur alla tíð ef frá eru skildar
örfáar vikur fyrir andlát hans.
Hann var virkur í fé-
lagsstörfum á Siglufirði, sat í
stjórn Íþróttabandalags Siglu-
fjarðar um árabil og átti sæti í
Heilbrigðisnefnd Siglufjarðar
1968-1983. Hann var gjaldkeri í
stjórn Tannlæknafélags Norð-
urlands 1976-1978. Jóhann var
virkur félagi í Kiwanisklúbbn-
um á Siglufirði og var forseti
Kiwanisklúbbsins Skjaldar
1977-1978 og svæðisstjóri
Grettissvæðis Kiwanis á Norð-
urlandi vestra 1990-1991. Jó-
hann var mikill áhugamaður
um stangveiði og sat í stjórn
Stangveiðifélags Siglfirðinga
um árabil frá árinu 1977.
Útför Jóhanns fer fram frá
Siglufjarðarkirkju í dag, 24.
apríl 2021, klukkan 11.
náms til München í
Þýskalandi. Þar
lærði hann tann-
lækningar við há-
skólann í München
og lauk hann nám-
inu árið 1961 og
öðlaðist hinn 14.
september 1961
leyfi til að stunda
tannlækningar á Ís-
landi. Þegar Jó-
hann var við nám í
München kynntist hann eftirlif-
andi eiginkonu sinni, Önnu Jó-
hönnu Jóhannsdóttur Hauk,
meistara í fatasaumi, f. 18. nóv-
ember 1934 í Þýskalandi. Jó-
hann og Anna giftu sig í Þýska-
landi 5. september 1958.
Börn Jóhanns og Önnu eru: 1)
Bylgja, f. 28. desember 1961, bú-
sett á Siglufirði. Fyrrverandi
eiginmaður Bylgju er Pálmi Að-
albjörnsson, f. 21. febrúar 1960.
Barn þeirra er Elín, f. 20. febr-
úar 1994, búsett í Reykjavík. 2)
Jón Tryggvi, f. 23. ágúst 1964,
og er hann giftur Fjólu Krist-
jánsdóttur, f. 6. desember 1965
og eru þau búsett í Reykjavík.
Börn þeirra eru: Aron Ármann,
f. 21. september 1992, giftur
Elsku besti pabbi minn er dá-
inn. Farinn yfir móðuna miklu
og aldrei verður lífið aftur eins.
Hann var kletturinn minn í líf-
inu.
Hann var alla tíð hraustur til
heilsunnar og kenndi sér einskis
meins nokkurn tímann þar til ná-
kvæmlega fyrir tveimur mánuð-
um upp á dag. Þá fékk hann
stóran blóðtappa í heilann sem
lamaði hann hægra megin í lík-
amanum og missti hann einnig
málið. Þegar á leið fór hann þó
að geta sagt einhver orð, en
hreyfigeta í handlegg og fæti
kom ekki til baka. Þetta gerðist
mjög skyndilega, því m.a.s. dag-
inn áður en reiðarslagið dundi
yfir fór hann sinn daglega rúnt á
bílnum sínum í bæinn og keyrði
um fallega fjörðinn sinn eins og
vanalega.
Pabbi elskaði bæinn sinn
Siglufjörð og nánast daglega var
rúntað upp á Saurbæjarás eða
fram að Hóli eða fram á fjörð og
horft yfir bæinn eða yfir Siglu-
nesið og dáðst að fegurðinni.
Pabbi tók alla tíð þátt í ýms-
um félagsstörfum hér í bænum,
var m.a. í Kiwanis um langt ára-
bil og mætti þar nánast á alla
fundi, starfaði í Vorboðakórnum,
sem er kór eldri borgara hér í
bæ, og í þessum tveimur félögum
starfaði hann alveg fram að dán-
ardegi eða þar til Covid-19
stoppaði allt.
Við pabbi vorum mjög náin
alla tíð og eftir að aldurinn færð-
ist yfir foreldra mína ákvað ég að
flytjast hingað til Siglufjarðar til
þess að vera þeim innan handar í
ellinni. Hingað kom ég fyrst um
sumarið 2013 og ílengdist svo
meira og minna hér alveg til
dagsins í dag og sé svo sann-
arlega ekki eftir því. Við áttum
öll og ásamt elsku Pjakki hund-
inum dóttur minnar yndislegar
stundir saman hér á Siglufirði.
Dásamlegar minningar sem birt-
ast okkur svo líka ljóslifandi á
ljósmyndum sem ég tók töluvert
af.
Pabbi var einstakur maður,
góðhjartaður svo af bar og hjálp-
samur og vildi öllum vel, og eig-
inlega sérstaklega þeim sem
minna máttu sín í þjóðfélaginu
og er mér ávallt minnisstæður
ákveðinn frasi sem hann sagði
svo oft: „Það er ekkert ljótt við
það að vera góður við aðra.“
Þessi orð heyrði ég oft frá hon-
um og þetta lýsti honum alveg
fullkomlega.
Pabbi stundaði lax- og sil-
ungsveiðar um árabil og elskaði
að fara í veiðitúra, sérstaklega
auðvitað í Fljótaána, en hann fór
í endalaust marga veiðitúra hér
og þar um landið. Veiddi hann
mikið af bæði laxi og silungi og
fékk nokkrum sinnum stóra
verðlaunalaxa. Á yngri árum
stundaði hann badminton af
kappi og bæði hann og mamma
stunduðu morgunsund snemma
morguns alla daga um langt ára-
bil hér í okkar frábæru sund-
laug.
Þau ferðuðust töluvert mikið á
yngri árum og stóðu Ameríku-
ferðir þeirra þar upp úr held ég,
þar sem þau heimsóttu æsku-
vinkonu mömmu sem þar bjó.
Elsku pabbi minn, ég kveð
þig hér með miklum söknuði og
ég mun passa hana mömmu fyr-
ir þig og dvelja hér á Siglufirði
hjá henni áfram. Hún verður
aldrei ein hér.
Minning þín mun alltaf lifa í
hjörtum okkar allra og ég mun
hugsa til þín á hverjum einasta
degi.
Þú varst besti pabbi í öllum
heiminum. Ég elska þig elsku
pabbi minn.
Þín dóttir,
Bylgja.
Elsku pabbi minn kvaddi að
morgni dags hinn 11. apríl síð-
astliðinn. Pabbi hafði lifað góðu
lífi og alltaf verið heilsuhraustur
ef frá eru skildar síðustu vik-
urnar. Hann var með sína rút-
ínu, skrapp í bæinn á bílnum sín-
um, hitti fólk og spjallaði og kom
við í kaffi á nokkrum stöðum.
Það var því úr karakter við hann
að hann var allt í einu rúmfastur
og gat nánast ekki tjáð sig og úr
því sem komið var var það
kannski bara gott að hann fékk
að fara.
Þær minningar sem koma í
huga minn eru flestar frá því að
ég var polli heima á Sigló. Flest-
ir dagar byrjuðu á morgunsundi
og vínarbrauði. Ég man vel eftir
því þegar pabbi byrjaði að spila
golf frammi á Hóli. Kallinn
keypti sér golfsett og ég og Jón-
as Skúla æskuvinur minn feng-
um alltaf að fara með. Þetta var
mikið fjör en golfið heillaði
pabba ekki. Sama sumar og
pabbi byrjaði í golfinu urðu í
raun straumhvörf í lífi hans því
hann keypti sér veiðileyfi inni í
Fljótaá og prófaði í fyrsta skipti
að veiða á stöng í á. Hann heill-
aðist strax af þessu sporti og
golfkylfurnar fóru beint inn í
geymslu og hafa ekki verið
snertar síðan. Fyrst kunni pabbi
ekkert að veiða og hann fékk
aldrei lax heldur bara einhverjar
silungslontur. Aðrir veiðimenn
fengu alltaf einn og einn lax! Það
varð því úr að pabbi bað Svavar
á Kambi að koma með sér á
svæði 1 í Fljótaánni og kenna
sér galdurinn. Það var eins og
við manninn mælt. Þeir fengu á
sex tímunum fullt af bleikju og
tvo laxa, 12 og 14 punda dreka.
Pabbi var nú orðinn heltekinn af
veiðibakteríunni og eftir þetta
gat mamma í raun ekki skipu-
lagt sumarfrí með honum svo
heitið gæti því þetta snerist orð-
ið alltaf um að hann yrði að vera
heima á besta veiðitímanum.
Þegar ég var um 10 ára fór ég
með nokkrum strákum niður á
Öldubrjót að veiða. Þegar ég er
að kasta út renn ég til og missi
veiðistöngina mína í sjóinn og
hún sekkur til botns. Stöngin var
glæný og ég grét mig í svefn um
kvöldið. Þegar ég vakna um
morguninn trúi ég varla mínum
eigin augum því veiðistöngin lá
við hliðina á mér í rúminu mínu.
Þá hafði pabbi farið niður á
bryggju þegar ég var sofnaður
og fiskað stöngina upp.
Pabbi var skapgóður að eðl-
isfari og studdi mig alltaf í því
sem ég tók mér fyrir hendur en
þegar ég tilkynnti honum að ég
ætlaði ekki í MA heldur í Versló
þá benti hann mér á að ég væri
að rjúfa rótgróna fjölskylduhefð!
Með sínu jafnaðargeði komst
hann þó fljótlega yfir þetta og ég
fór í Versló.
Við pabbi eyddum óteljandi
mörgum klukkutímum saman við
árbakkann á mínum yngri árum
og þetta voru okkar mestu gæða-
stundir. Það er almennt eðli
veiðimanna að vilja fá að hafa
stöngina út af fyrir sig en ég og
pabbi skiptumst alla tíð á að
veiða saman á eina stöng og það
var aldrei neitt vandamál nema
kannski þegar ákveða þurfti
hvor okkar ætti að byrja að
kasta á Lönguflúðum á svæði 2.
Elsku besti pabbi, takk fyrir
allar góðu stundirnar. Guð geymi
þig.
Jón Tryggvi Jóhannsson.
Margt kemur upp í hugann
þegar bekkjarfélagar kveðja, nú
síðast hann Jonni tannlæknir,
fullu nafni Jóhann Sverrir Jóns-
son kominn á 88. ár og náði
þannig góðum aldri. Við vorum
44 talsins sem útskrifuðumst
saman frá MA vorið 1955 og
skiptist hópurinn nokkuð jafnt
milli mála- og stærðfræðideildar.
Í stærðfræðideildinni voru þá
m.a. tveir Siglfirðingar sem
komu saman í skólann eftir
landspróf, ásamt Jóhanni var
það Gunnar H. Gunnlaugsson
síðar þekktur skurðlæknir.
Fylgdust þeir að sem herberg-
isfélagar í tvo vetur í heimavist
MA. Var einkar vingott með okk-
ur, m.a. þegar við í 5. bekk vor-
um nágrannar í kytrum efst uppi
á Suðurvistum í gamla skólahús-
inu, sem nú er mannlaus hana-
bjálki. Jonni átti þá gott útvarps-
tæki og hlustaði mikið á
dægurlög þess tíma sem endur-
speglaðist m.a. í ágætri teikn-
ingu af honum í Carminu. Einnig
minnist ég tveggja bræðra Jó-
hanns sem útskrifuðust frá MA,
Braga veðurfræðings sem varð
stúdent 1951 og Héðins 1957,
síðar frönskukennara. Foreldrar
þeirra, Jón Tryggvi og Elín,
voru alþýðufólk með metnað fyr-
ir hönd sona sinna sem allir
stóðu vel undir væntingum.
Þannig var Jóhann farsæll náms-
maður, jafnvígur á flestar grein-
ar. Sérstaklega er mér minnis-
stæð gamansemi hans og
viðbrögð í samræðum, oft úr
óvæntri átt.
Leið meirihluta íslenskra
stúdenta sem héldu utan í fram-
haldsnám lá á þessum árum til
Frakklands eða Þýskalands að
stúdentsprófi loknu. Jóhann
lærði þannig tannlækningar í
München og kynntist þar sinni
þýsku eiginkonu. Ásamt henni
hélt hann rakleitt til baka í
heimabyggðina og gætti að tann-
heilsu Siglfirðinga alla sína
starfsævi eins og aldrei hefði
annað verið á dagskrá. Það má
kalla að gjalda fósturlaunin.
Leiðir okkar lágu síðan stöku
sinnum saman á stórhátíðum
stúdentsárgangsins, m.a. vorið
2015 á Akureyri á 60 ára afmæl-
inu.
Glettni Jóhanns var þá enn
söm við sig og við vorum sam-
mæltir um að hvergi væri betra
að vera en nyrðra og eystra.
Hjörleifur Guttormsson.
Jóhann Sv.
Jónsson
Elsku hjartans pabbi, tengdapabbi, afi,
langafi og langalangafi,
JÚLÍUS GUNNAR ÞORGEIRSSON
vélstjóri,
andaðist á Hrafnistu, Hafnarfirði, 8. apríl.
Einlægar þakkir til starfsfólks Hrafnistu fyrir
alúð og umönnun.
Útför fór fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þorbjörg Júlíusdóttir Sigurfinnur Sigurfinnsson
Guðrún Júlíusdóttir
Sigríður Jörundsdóttir
Pétur Júlíusson Anna Ágústa Karlsdóttir
Ástríður Júlíusdóttir Magnús Jónasson
afa-, langafa- og langalangafabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR PÉTURSSON,
lögreglumaður og atvinnukylfingur,
Jöklafold 10,
lést á La Gomera, Spáni, mánudaginn
19. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Guðrún Ólafsdóttir
Pétur Óskar Sigurðsson Nína Björk Geirsdóttir
Hannes Freyr Sigurðsson Kristjana Erlingsdóttir
Hanna Lilja Sigurðardóttir Jónas Bjarnason
Ragnar Sigurðsson
Anna Margrét Sigurðardóttir Bjarni Þór Guðmundsson
Ólafur Örn Jónsson Nana Jónsson
og barnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, fósturfaðir, afi og langafi,
INGI S. GUÐMUNDSSON,
Seljalandi 1, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
mánudaginn 26. apríl klukkan 13.
Vegna fjöldatakmarkana verða einungis nánustu aðstandendur
og vinir viðstaddir.
Streymt verður frá athöfninni á vefslóðinni www.sonik.is/ingi
Ingibjörg Skarphéðinsdóttir
Hilmar Ingason María Guðmundsdóttir
Haukur S. Ingason Marian Ingason Carlen
Guðmundur Birgir Ingason Ingunn Ólafsdóttir
Ásgeir Þór Ingason
Linda Björk Ingadóttir Ólafur Björn Björnsson
Jóhanna Jóhannsdóttir Guðmundur Óli Kristinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
JÓNA KRISTJÁNSDÓTTIR,
Stakkholti 2b,
lést þriðjudaginn 31. mars. Útförin fer fram
frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
30. apríl klukkan 13. Vegna samkomutakmarkana verður
streymt frá athöfninni.
Slóðin á streymið er https://youtu.be/ZPQRTlvSfIc
Ólafur Árnason
Erna Rós Magnúsdóttir Þórarinn Gunnar Sverrisson
Hjalti Magnússon Sigurlaug Soffía Reynaldsd.
Anna Lilja Magnúsdóttir Guðmann Bragi Birgisson
Kristján Magnússon Sigríður Inga Rúnarsdóttir
Árni Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn
Heittelskuð eiginkona, dóttir, móðir,
tengdamóðir og amma okkar,
SIGRÍÐUR VALSDÓTTIR,
Skrúðási 6,
lést fyrir aldur fram mánudaginn 19. apríl
á líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Útför Sigríðar verður gerð frá Vídalínskirkju hinn 30. apríl
klukkan 15. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu og
fjöldatakmarkana verður boðið til útfararinnar. Streymt verður
frá útförinni, hlekkur tilkynntur síðar.
Guðmundur Jón Elíasson
Guðríður Júlíusdóttir
Elías Freyr Guðmundsson Kristbjörg M. Kristinsdóttir
Valur Árni Guðmundsson Lára Hrönn Hlynsdóttir
Eva María Guðmundsdóttir Guðmundur F. Aðalsteinsson
Elvar Jón Guðmundsson Þórgunnur Þórðardóttir
og barnabörn
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Sigurður Bjarni Jónsson útfararstjóriMagnús Sævar Magnússon útfararstjóri
Guðmundur Baldvinsson útfararstjóriJón G. Bjarnason útfararstjóri