Morgunblaðið - 13.05.2021, Blaðsíða 16
16 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Á
okkar uppvaxtarárum
var mjög vinsælt að safna
servíettum og okkur
fannst við hafa fundið
mikið dýrmæti þegar við rákumst á
tvo kassa undan glösum sem voru
eins og sniðnir fyrir servíettusöfn.
Þá hófst söfnunin fyrir alvöru,“ segir
Jenný Borgedóttir og bætir við að
hún sé því miður búin að týna sínum
kassa og öllum þeim servíettum sem
hann geymdi. Sigríður Melrós Ólafs-
dóttir, hennar góða vinkona allt frá
upphafi servíettusöfnunar, dregur
fram sinn glasakassa sem er stút-
fullur af alls konar fimmtíu ára
gömlum servíettum.
„Þessar servíettur eru
jafngamlar okkar vináttu. Það var
mikill metnaður í söfnun okkar, því
servíettur voru ekki á hverju strái.
Ef við fórum í veislu þá þurrkuðum
við okkur alls ekki í þær, heldur tók-
um helst tvær eða þrjár með okkur
heim, til að geta býttað við aðra
krakka, því það var mest gaman.
Merktar fermingarservíettur með
gylltum ramma voru eftirsóttastar
og þá skipti engu máli hvers nafn
var á þeim. Jóla- og páskaservíettur
voru líka vinsælar,“ segir Sigríður
og Jenný bætir við að hún hafi elsk-
að blómaservíettur. „Servíettur sem
voru óvenjulegar í laginu voru líka
afar eftirsóttar sem og þær sem
voru úr einhverju fíngerðu efni,
þunnar og léttar.“
Þær segjast enn vera sjúkar í
fallegar servíettur og kaupi þær
reglulega til að nota. „Við höldum
alltaf einni eða tveimur eftir og fyrir
vikið halda servíettur áfram að safn-
ast fyrir í skúffum hjá okkur á full-
orðinsárum. Þetta er gull og ger-
semi og svo er líka mikil
hönnunarsaga í servíettum.“
Hún var mitt hald og traust
Jenný segir að vinskapur henn-
ar og Siggu eigi upphaf sitt í því að
hún kynntist pabba hennar Siggu
sumarið áður en þær byrjuðu í sex
ára bekk, árið 1971.
„Foreldrar okkar voru þá að
byggja íbúðir í blokkum sem voru
hlið við hlið í Seljalandi í Fossvog-
inum, en heimilisfeður sáu á þessum
tíma sjálfir um byggingarvinnu
sinna íbúða. Ég var oft með pabba
við þessi byggingarstörf og þá fórum
við pabbi hennar Siggu að spjalla
saman,“ segir Jenný og Sigga bætir
við að pabbi hennar hafi alltaf verið
að segja henni frá þessari Jennýju,
jafnöldru hennar. „Við vorum því
eiginlega orðnar vinkonur áður en
við hittumst,“ segir Sigga og bætir
við að hún og fjölskylda hennar hafi
flutt inn í íbúðina daginn áður en
skólinn byrjaði.
„Fyrsta skóladaginn leiddumst
við Jenný þar sem við gengum sam-
an í skólann. Ég var svo lítil og hafði
aldrei verið í leikskóla og kveið fyrir
að fara í sex ára bekk. Jenný var
mitt hald og traust, enda var hún
stór og sterk.“
Jenný segist hafa verið heims-
vön, eftir eitt ár í leikskóla. „Ég var
frek og ákveðin og talaði rosalega
mikið með mínum nánustu vinum, en
ég var feimin í stórum hópi.“
„Eiginleikar okkar smullu sam-
an strax við upphaf okkar vináttu,“
segir Sigga og bætir við að hún hafi
átt lítil systkini sem hún var hund-
leið á að passa alla daga.
„Jenný átti bara eina miklu
eldri systur og hún þráði að vera
með litlum börnum. Þetta kom sér
vel fyrir mig, Jenný nennti að leika
við litlu systkini mín og passa þau
með mér.“
Voru aðskildar í skólanum
Að loknum tólf ára bekk fóru
stelpurnar í Réttarholtsskóla og þá
skildi leiðir um stund.
„Þetta var risastór skóli og þar
var krökkum skipt niður eftir ein-
kunnum. Ég var barn með lesblindu
og fékk lágar einkunnir þannig að
við Sigga vorum aðskildar og feng-
um ekki að vera saman í bekk. Á
þessum árum var lesblinda álitin
heimska og ég var sett í svokallaðan
tossabekk með krökkum sem ég
þekkti ekkert. Þetta var hræðilegt
áfall fyrir mig og skelfilegt að flokka
börn svona. Ef það voru langar frí-
mínútur reyndi ég að finna Siggu, en
hún eignaðist auðvitað nýja vini í
nýjum bekk.“
Sigga segir að hennar sjokk
hafi verið þegar foreldrar hennar
fluttu úr Seljalandinu í Bústaða-
hverfið þegar hún var 12 ára.
„Við Jenný héldum áfram að
leika okkur saman utan skólatíma,
skógurinn á milli hverfanna var vin-
sælt leiksvæði. Við héldum alltaf
sambandi, þótt ég hafi farið í MS en
Jenný í Ármúlaskóla. Ég fór svo í
Mynd og hand en Jenný í Fóstru-
skólann. Við hittumst samt annað
slagið og vorum alltaf perlu-
vinkonur. Svo eignuðumst við börn
og buru og náðum þá aftur saman og
erum núna orðnar nágrannar, búum
í sama sveitarfélagi utan við borg-
ina.“
Skemmtilegast að býtta á dýrmæti
Tvær perluvinkonur hitt-
ust á dögunum til að
fagna fimmtíu ára vin-
skap og skoða jafngamalt
servíettusafn sem önnur
þeirra átti enn í fórum
sínum frá bernskuárum
þeirra.
Vinkonur í 50 ár Jenný sterka með Siggu á hestbaki í Fossvoginum forðum og í svipaðri stöðu hálfri öld síðar.
Morgunblaðið/Kristín Heiða
Gersemar Hér má sjá brot af servíettusafni Siggu, merktar fermingarservíettur með gylltum ramma voru vinsælar.
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Vefverslun
mostc.is
Gerið verðsamanburð
FULL BÚÐ
AF NÝJUM
VÖRUM
11.990 kr.
Jakki 1. – st. 38-54
12.990 kr.
Jakki 2. – st. 40-56
1
2
Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu.
Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu
tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur.
Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er
hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og
mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunarferðir fyrir
hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur í höllum,
köstulum eða húsum frá miðöldum.
www.transatlantic.is info@transatlantic.is Sími 588 8900
GLÆSILEGARMIÐALDA
BORGIR Í A-EVRÓPU
Wrocalaw er ein mesta ferðamannaborg
Póllands. Wroclaw var kosin menningarborg
Evrópu 2016. Wroclaw hefur svo mikið uppá
að bjóða. Borgin er ægifögur menningarborg
með svo margt fyrir ferðamanninn sem gerir
hana svona vinsæla. Gamli bærinn er augna-
yndi með fagrann arkitektur frá fyrri tímum,
mikið er af söfnum og menningarviðburðir í
borginni hafa ætíð verið fjölbreyttir.
Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji
tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka.
Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er vernd-
aður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í
Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan.
Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi
hvert sem litið er og setur borgina á stall
með fallegri borgum Evrópu.
RIGA Í LETTLANDI
WROCLAW
TALLINN EISTLANDI
NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ
Vilnius,
Budapest, Prag
Gdansk, Krakow,
Varsjá, Bratislava
St. Pétursborg,
Vínarborg og
Brugge
Tallinn er ein allra fallegasta borg Evrópu
og er gamli bæjarhlutinn sá hluti borga-
rinnar sem mesta aðdráttaraflið hefur á
ferðamenn. Þar eru götur steini lagðar,
byggingar frá 11. öld sem hefur tekist að
varðveita ótrúlega vel. Þú ferð úr 21. öldinni
beint aftur í miðaldir. Þar sem Tallinn er best
varðveitta miðaldaborg N-Evrópu hefur
henni verið bætt við á heimslista UNESCO.