Morgunblaðið - 13.05.2021, Síða 43

Morgunblaðið - 13.05.2021, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021 Sumarið er tíminn! Frábært úrval af sundfötum Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 Vefverslun selena.is Vefverslun selena.is Sagódesert með mangó Sagógrautur 150 g Til hamingju-sagógrjón 250 ml vatn 500 ml kókosrjómi 100 g sykur Blandið öllu nema sykri saman í pott og leyf- ið að standa í um 30 mínútur áður en þið kveik- ið undir. Hitið næst að suðu, lækkið hitann vel og leyf- ið að malla í 5-10 mínútur og hrærið mjög reglulega í allan tímann. Þið getið smakkað grjónin til en þau eru tilbúin þegar þau eru orðin glær á litinn. Þá má taka grautinn af hellunni og hræra sykrinum saman við. Skiptið niður í 6-8 glös og kælið. Mangótoppur 1 stórt þroskað mangó hlynsíróp kókosflögur mynta (til skrauts) Skerið mangó í litla bita og skiptið á milli glasanna. Sprautið um einni matskeið af sírópi yfir og stráið loks kókosflögum og skreytið með myntu. Ljúffengur biti Berglind ákvað að fara heldur óhefðbundna leið og bjó til eftirrétt úr grjónunum. Sagógrjón duttu aldrei úr tísku Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir Munaðarvara Eitt sinn var það svo að sagógrjón þóttu mikil munaðarvara. Sagógrjón eru herramannsmatur og flestir kannast sjálfsagt við sagógraut sem minnir um margt á hefðbundinn grjónagraut. Hér er hins vegar á ferðinni eftir- réttur úr sagógrjónum sem er sérlega spennandi. Hann kemur úr smiðju Berglindar Hreið- arsdóttur sem veit nú alltaf hvað hún syngur í matargerð. Af Vísindavefnum Sagógrjón voru fyrst flutt til Vesturlanda í byrj- un 18. aldar og þóttu þá mesta ljúfmeti. Íslendingar kynntust þeim fyrst líklega um eða eftir eftir miðja 18. öld. Árið 1784 voru sagó- grjón flutt til sjö hafna á landinu: Vestmannaeyja, Hafnarfjarðar, Stapa, Grundarfjarðar, Flateyjar, Patreksfjarðar og Eyja- fjarðar. Á þessum tíma voru sagógrjón munaðar- vara, þau voru til að mynda átta sinnum dýrari en hveiti sem var þó alls eng- inn almúgamatur. Komið er á markað hérlendis hreinsiefni sem fullyrt er að eigi eft- ir að breyta því hvernig við þrífum. Efnið byggist á örtækni og skilur eftir þunna húð á yfirborði sem veit- ir sótthreinsivörn gegn bakteríum, veirum og sveppum í allt að tíu daga. Um svokallaðan alhreinsi er að ræða en það dugar á flest yfirborð og er sagt jafn áhrifaríkt á gólf, spegla og textíl. Það hefur reynst öflugur bandamaður gegn myglu og hafa sundlaugar hér á landi verið að taka efnið í notkun með góðum ár- angri. Bæði er efnið umhverfisvænt og nota þarf minna af því en gengur og gerist með önnur efni, auk þess sem ekki þarf að nota mörg mismun- andi hreinsiefni. Bacoban hefur hlotið fjölda við- urkenninga erlendis og er nú loksins fáanlegt hér á landi. Fyrst um sinn er hægt að fá efnið í verslunum Bón- uss og á heimasíðunni bacoban.is. Undraefnið sem sagt er 100 sinnum skilvirkara Áhrifaríkt gegn Covid Bacoban skilur eftir sig ósýnilega, þunna nano-himnu sem sótthreinsar í allt að 10 daga á eftir og gerir næstu þrifi auðveldari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.