Morgunblaðið - 13.05.2021, Síða 54

Morgunblaðið - 13.05.2021, Síða 54
54 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021 KA – LEIKNIR R. 3:0 1:0 Hallgrímur Mar Steingrímss. 15.(v) 2:0 Hallgrímur Mar Steingrímss. 57.(v) 3:0 Ásgeir Sigurgeirsson 70. M Steinþór Már Auðunsson (KA) Þorri Mar Þórisson (KA) Brynjar Ingi Bjarnason (KA) Haukur Heiðar Hauksson (KA) Steinþór Freyr Þorsteinsson (KA) Guy Smit (Leikni) Sævar Atli Magnússon (Leikni) Rautt spjald: Octavio Páez (Leikni) 84. Dómari: Vilhjálmur A. Þórarinss. – 8. Áhorfendur: 200. FYLKIR – KR 1:1 1:0 Sjálfsmark 3. 1:1 Grétar Snær Gunnarsson 7. M Dagur Dan Þórhallsson (Fylki) Arnór Borg Guðjohnsen (Fylki) Aron Snær Friðriksson (Fylki) Ásgeir Eyþórsson (Fylki) Atli Sigurjónsson (KR) Arnór Sveinn Aðalsteinsson (KR) Kristinn Jónsson (KR) Beitir Ólafsson (KR) Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson – 6. Áhorfendur: 450, uppselt. _ Liðsuppstillingar, gul spjöld, viðtöl og greinar um leikina – sjá mbl.is/sport/fot- bolti. FÓTBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is KA-menn hafa gefið til kynna að þeir ætli sér meira en meðal- mennsku á þessu tímabili. Þeir fylgdu góðum útisigri á KR eftir í gær með mjög sannfærandi sigri á nýliðum Leiknis á Dalvíkurvelli, 3:0, og eru á toppi deildarinnar, í það minnsta þar til þriðju umferðinni lýkur í kvöld. Samt hefur Akureyrarliðið glímt við mikil meiðsli í vor og missti m.a. þrjá byrjunarliðsmenn út í leiknum við KR en fjarvera þeirra kom ekki að sök í gær. _ Hallgrímur Mar Steingrímsson varð fyrstur í sögu KA til að skora þrjátíu mörk í efstu deild karla. Hann skoraði bæði mörk liðsins úr vítaspyrnum og seinna markið var hans 30. fyrir Akureyrarfélagið í deildinni en áður hafði hann skorað fjögur fyrir Víking. Hallgrímur sló á dögunum markamet Elfars Árna Aðalsteinssonar sem hefur gert 27 mörk fyrir KA en Hallgrímur er nú markahæsti leikmaður deildarinnar með fjögur mörk á tímabilinu. _ Tvíburarnir Nökkvi Þeyr og Þorri Mar Þórissynir voru í fyrsta skipti báðir í byrjunarliði KA og það var vel við hæfi því þeir eru frá Dal- vík. Þeir eru synir Þóris Áskels- sonar sem lengi lék með Þór. _ Arnar Grétarsson, þjálfari KA, setti þrjá nýliða inn á eftir að hans lið var komið í 3:0 á Dalvík. Þorvald- ur Daði Jónsson, Kári Gautason og Elvar Máni Guðmundsson komu inn á og léku sinn fyrsta leik í efstu deild. _ Elvar Máni varð með þessu yngsti KA-maðurinn og fimmti yngsti leikmaður deildarinnar frá upphafi, 15 ára og 106 daga gamall. _ Octavio Páez varð fyrsti leik- maðurinn frá Venesúela til að leika í efstu deild hér á landi þegar hann kom inn á hjá Leikni. Það var stutt gaman, Páez fór í tveggja fóta tækl- ingu þegar hann var búinn að vera inn á 13 mínútur og fékk umsvifa- laust rauða spjaldið hjá Vilhjálmi Alvari Þórarinssyni dómara. Beitir varði fyrstu vítaspyrnuna Fylkir og KR skildu jöfn í Árbæn- um, 1:1, og KR er því með fjögur stig eftir þrjá leiki en Fylkismenn bíða eftir sínum fyrsta sigri og eru með tvö stig. _ Arnór Sveinn Aðalsteinsson, miðvörður KR, varð fyrir því að skora fyrsta sjálfsmark deildarinnar í ár strax á þriðju mínútu. _ Aðeins fjórum mínútum síðar jafnaði Grétar Snær Gunnarsson með sínu fyrsta marki fyrir KR, 1:1. Grétar fór síðan af velli að loknum fyrri hálfleik vegna meiðsla. _ Beitir Ólafsson, markvörður KR, varð fyrstur til að verja víta- spyrnu í deildinni í ár. Fylkir fékk vítaspyrnu á fyrstu mínútu síðari hálfleiks en Beitir varði vel frá Arnóri Borg Guðjohnsen. _ Arnór Sveinn bætti fyrir sjálfs- markið með því að bjarga af miklu harðfylgi á marklínunni þegar Jor- dan Brown virtist vera að koma Fylkismönnum yfir í seinni hálf- leiknum. Brown, sem er 24 ára gam- all Englendingur, var í fyrsta skipti í byrjunarliði Fylkis en hann kom inn á sem varamaður í fyrstu tveimur leikjunum. _ Aron Snær Friðriksson kom í mark Fylkis á ný eftir að hafa verið á bekknum í fyrstu leikjunum. Óskabyrjun KA-manna á tímabilinu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Kapphlaup Arnór Borg Guðjohnsen, kantmaður Fylkis, og Kristinn Jóns- son, bakvörður KR, á sprettinum í viðureign liðanna í Árbænum í gærkvöld. - Efstir með sjö stig eftir sannfærandi sigur gegn Leikni á Dalvíkurvelli Ljósmynd/Þórir TryggvasonTvenna Hallgrímur Mar Steingrímsson sækir að marki Leiknis á Dalvík. Hann skoraði tvö mörk og hefur því gert fjögur í deildinni í vor. Pepsi Max-deild karla KA – Leiknir R. ........................................ 3:0 Fylkir – KR............................................... 1:1 Staðan: KA 3 2 1 0 6:1 7 FH 2 1 1 0 3:1 4 Valur 2 1 1 0 3:1 4 Víkingur R. 2 1 1 0 2:1 4 KR 3 1 1 1 4:4 4 Keflavík 2 1 0 1 2:1 3 HK 2 0 2 0 2:2 2 Fylkir 3 0 2 1 3:5 2 Leiknir R. 3 0 2 1 3:6 2 Breiðablik 2 0 1 1 3:5 1 ÍA 2 0 1 1 1:3 1 Stjarnan 2 0 1 1 0:2 1 Lengjudeild kvenna Víkingur R. – Afturelding........................ 1:3 FH – Grótta .............................................. 3:1 ÍA – Augnablik ......................................... 2:1 Staðan: Afturelding 2 1 1 0 5:3 4 FH 2 1 0 1 4:3 3 Haukar 1 1 0 0 2:1 3 Augnablik 2 1 0 1 3:3 3 ÍA 2 1 0 1 3:3 3 Grótta 2 1 0 1 3:4 3 HK 1 0 1 0 3:3 1 Grindavík 1 0 1 0 2:2 1 Víkingur R. 2 0 1 1 4:6 1 KR 1 0 0 1 1:2 0 2. deild kvenna KH – Hamar ............................................. 7:0 Fram – Hamrarnir ................................... 4:3 England Chelsea – Arsenal .................................... 0:1 -Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leik- mannahópi Arsenal. Staðan: Manch. City 35 25 5 5 72:26 80 Manch. United 35 20 10 5 68:38 70 Leicester 36 20 6 10 65:44 66 Chelsea 36 18 10 8 55:33 64 West Ham 35 17 7 11 55:45 58 Liverpool 34 16 9 9 57:39 57 Tottenham 35 16 8 11 61:41 56 Arsenal 36 16 7 13 50:38 55 Everton 34 16 7 11 46:42 55 Leeds United 35 15 5 15 53:53 50 Aston Villa 34 14 6 14 49:41 48 Wolves 35 12 9 14 35:47 45 Crystal Palace 35 11 8 16 37:59 41 Southampton 35 11 7 17 44:62 40 Burnley 35 10 9 16 33:47 39 Newcastle 35 10 9 16 40:58 39 Brighton 35 8 13 14 36:41 37 Fulham 35 5 12 18 25:47 27 WBA 35 5 11 19 32:68 26 Sheffield Utd 35 5 2 28 18:62 17 Ítalía Bologna – Genoa...................................... 0:2 - Andri Fannar Baldursson var ónotaður varamaður hjá Bologna. Grikkland Olympiacos – PAOK................................ 1:0 - Ögmundur Kristinsson var ekki í leik- mannahópi Olympiacos og Sverrir Ingi Ingason var ekki í leikmannahópi PAOK. Svíþjóð Kalmar – Gautaborg ............................... 0:0 - Kolbeinn Sigþórsson lék allan leikinn með Gautaborg. Varberg – Hammarby............................. 1:3 - Jón Guðni Fjóluson lék allan leikinn með Hammarby. Häcken – Örebro ..................................... 2:3 - Valgeir Lunddal Friðriksson var ónot- aður varamaður hjá Häcken og Oskar Tor Sverrisson var ekki í leikmannahópnum. Sirius – Elfsborg...................................... 0:2 - Aron Bjarnason var ekki í leikmanna- hópi Sirius. Staða efstu liða: Djurgården 6 5 0 1 11:4 15 Norrköping 5 3 1 1 8:3 10 Hammarby 6 3 1 2 11:9 10 Elfsborg 6 3 1 2 8:6 10 Kalmar 6 2 4 0 5:3 10 Noregur Kristiansund – Bodö/Glimt.................... 0:2 - Brynjólfur Willumsson kom inn á sem varamaður á 71. mínútu hjá Kristiansund. - Alfons Sampsted lék allan leikinn með Bodö/Glimt. Brann – Vålerenga.................................. 0:3 - Viðar Örn Kjartansson lék fyrstu 80 mínúturnar hjá Vålerenga. Holland B-deild: Excelsior – Go Ahead Eagles................. 0:1 - Elías Már Ómarsson lék fyrstu 74 mín- úturnar hjá Excelsior sem endar í 9. sæti. Almere City – Jong PSV......................... 1:1 - Kristófer Ingi Kristinsson lék síðari hálfleikinn hjá Jong PSV og lagði upp markið. Liðið endar í 14. sæti. Telstar – Jong Ajax ................................. 1:2 - Kristian Hlynsson kom inn á hjá Jong Ajax á 89. mínútu. Liðið endar í 16. sæti. Danmörk B-deild: Viborg – Silkeborg.................................. 3:3 - Patrik Gunnarsson markvörður og Stef- án Teitur Þórðarson léku allan leikinn með Silkeborg. Bæði lið hafa tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni. 0-'**5746-' Delaney Baie Pridham, eða DB eins og hún er nú kölluð í Vestmanna- eyjum, er leikmaður 2. umferðarinnar í Pepsi Max-deild kvenna hjá Morg- unblaðinu. Pridham, sem er 23 ára bandarískur framherji, hefur byrjað tímabilið afar vel með ÍBV, skorað þrjú mörk, og hún gerði tvö í mögn- uðum sigri Eyjakvenna á Íslandsmeisturum Breiðabliks. Fyrir frábæra frammistöðu fékk hún þrjú M, hæstu einkunn Morgunblaðsins. Brenna Lovera, framherji Selfyssinga, og Agla María Albertsdóttir, kantmaður Breiðabliks, eru báðar í úrvalsliði umferðarinnar í annað sinn. Lovera hefur skorað þrjú mörk fyrir topplið Selfyssinga í fyrstu tveimur leikjunum. ÍBV á þrjá leikmenn í liði umferðarinnar. 2. umferð í Pepsi Max-deild kvenna 2021 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 24-4-2 Auður Scheving ÍBV Mist Edvardsdóttir Valur Viktorija Zaicikova ÍBV Natasha Anasi Keflavík Agla María Albertsdóttir Breiðablik Betsy Hassett Stjarnan Jelena Tinna Kujundzic Þróttur Delaney Baie Pridham ÍBV Brenna Lovera Selfoss Emma Checker Selfoss Sóley María Steinarsdóttir Þróttur 2 2 Pridham best í 2. umferðinni _ Fyrirliðinn Jordan Henderson leikur ekki með Liverpool í síðustu umferð- um ensku úrvalsdeildarinnar í knatt- spyrnu eins og vonir höfðu staðið til. Henderson meiddist á nára í leik gegn Everton í febrúar en Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri félagsins, staðfesti í gær að hann myndi ekki ná síðustu leikjunum. Henderson á hinsvegar ágæta möguleika á að leika með enska landsliðinu á EM í sumar. _ Samherji Hendersons, Virgil van Dijk, sem slasaðist á hné í október, líka í leik gegn Ever- ton, sagði í gær að hann myndi ekki leika með Hollandi á EM í sumar. Tald- ar höfðu verið nokkrar líkur á því að varnarmað- urinn öflugi næði því en hann sagði að skynsamlegast væri fyrir sig að ein- beita sér að því að ljúka endurhæfing- unni í sumar og vera klár í slaginn á næsta tímabili. _ Albert Serrán, 36 ára gamall spænskur knattspyrnumaður, er kom- inn til liðs við 1. deildar lið Aftureld- ingar. Serrán ólst upp hjá Espanyol og spilaði þrjá leiki í efstu deild á Spáni, var síðan þrjú tímabil með Swansea í ensku B-deildinni en hefur síðan leikið á Kýpur, í Albaníu og á Indlandi. _ Martin Montipo, 21 árs gamall ítalskur knattspyrnumaður sem er hálfíslenskur, er kominn til Skaga- manna frá ítalska D-deildarliðinu Fel- ino. Hann á íslenska móður og er ætt- aður frá Húsavík. Skagamenn hafa lánað Montipo til venslafélags síns á Akranesi, Kára, sem leikur í 2. deild. _ Atli Hrafn Andrason er genginn til liðs við ÍBV frá Breiðablik og spilar því með Eyjamönnum í 1. deild karla í fót- boltanum í sumar. Atli er 22 ára gamall kantmaður, uppalinn hjá KR, og var um skeið í röðum enska félagsins Fulham. Hann lék fimm úrvalsdeildarleiki með KR-ingum á ár- unum 2015-16 en kom síðan til Vík- inga frá Fulham og lék með þeim 2018-20. Þar spil- aði hann 36 úr- valsdeildarleiki og skoraði tvö mörk. Hann kom síðan til Breiðabliks frá Víkingi í ágúst á síðasta ári og lék fimm leiki með Kópavogslið- inu á lokaspretti Íslandsmótsins 2020 og skoraði eitt mark. _ Framherjinn ungi Ólöf Sigríður Kristinsdóttir er komin á ný til Þrótt- ar í Reykjavík í láni frá Val en hún lét mikið að sér kveða með Þróttarliðinu í úrvalsdeildinni í knattspyrnu á síð- Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.