Morgunblaðið - 13.05.2021, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 13.05.2021, Blaðsíða 57
MENNING 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 2021 Þ að er ekki á hverjum degi að einn af frumherjum ís- lenska kvikmyndavorsins sendi frá sér nýtt verk og er því forvitnilegt að sjá Ölmu, þriðju kvikmynd Kristínar Jóhannesdóttur. Kristín er óneitan- lega kvikmyndahöfundur (fr. au- teur), í þeirri merkingu sem var lögð í orðið á sjötta áratug síðustu aldar, þ.e.a.s. verk hennar bera auðkenn- andi þætti sem eru gegnumgangandi og láta hverja einustu mynd vera greinanlega „hennar“. Á hjara ver- aldar (1983) storkaði hefðbundnu frásagnarformi, sem ku hafa reynt á þanþol íslenskra áhorfenda, en henni er jafnan lýst sem „draumkenndri“. Ýmsar hliðstæður má sjá milli frum- raunar Kristínar og Ölmu – mynd- irnar eru í módernískum anda og frásagnirnar hlaðnar táknrænum eiginleikum. Samfélagsrýni er í bak- grunni, virkjanapólítík og náttúru- vernd í tilfelli Á hjara veraldar en kvótakerfið og bankahrunið í Ölmu. Áhorfandinn er þar með staðsettur í söguheimi sem vísar til eigin veru- leika – en hlutir og persónur merkja þó einlægt annað en yfirborð þeirra sýnir. Flókið getur verið að fóta sig í slíkri veröld en þó er stuðst við sögu- fléttu og drama en uppbygging þeirra er ekki sterkasta hlið Ölmu. Frásögnin hefst á myndskeiði af barni í fangi móður sinnar en upp- klæddur faðir leikur á fiðlu í sei- lingarfjarlægð. Hríðskotabyssu- hvellir drynja í hljóðrásinni og klippt er á sýn af föðurnum falla fyrir slíku. Nærmynd af andliti barnsins blasir við – þetta er stundin sem mótar allt sem koma skal. Stríðsátök fjarlægra landa og fórnarlömb þeirra eru not- uð á þennan hátt sem abstrakt hug- mynd til þess að tákna sálrænt áfall. „Þarna gerðist það, nákvæmlega þarna, vitundin klofnaði í tvennt“ – mælir stúlkurödd á meðan stjörnur á blárri festingu birtast og dofna. Sögumannsröddin, til skiptis ung stúlka og eldri kona, þó sama brota- kennda sjálf, er vitundarmiðja verksins. Textinn og flutningur hans er háfleygur og ljóðrænn, og óvenju- legur í kvikmyndalegu samhengi. Alma, leikin af Snæfríði Ingvars- dóttur, birtist okkur á réttargeð- deild eftir upphafstitlana. Þar búa konur sem hafa orðið karlmönnum að bana, en Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Arndís Hrönn Egilsdóttir eru eftirminnilegar í hlutverki vist- kvenna. Alma er mállaus, réttara sagt talar hún ekki, a.m.k. fyrst um sinn. Hún byrjar að skrifa og þekur fljótlega alla veggi, og á endanum líkama sinn, með stafrófinu – í til- raun til þess að ná tengslum á ný. Hilmir Snær Guðnason fer með hlut- verk Ingvars geðlæknis sem gengst upp í að stjórna konunum, en á öðr- um sviðum lífsins virðist hann vera undirgefinn, en Alma er eftirlætið hans. Kaflinn innan geðdeildarinnar er sterkasti hluti myndarinnar. Mynda- vél tökumannsins Ita Zbroniec-Zajt svífur á spori endilangra hvítra ganga – allt skjannahvítt, svo hvítt. Ásgeir H. Ingólfsson, gagnrýnandi Lestarinnar á Rás 1, bendir á skyld- leika við kvikmyndina Gaukshreiðrið (Milos Forman, 1976) sem er nokkuð ótvíræður og skemmtilegur (og Englar alheimsins flögra þarna jafn- vel líka). Besta senan er játning- arræða Ólafíu Hrannar, þar sem fylgst er með konunum í óslitinni töku hlusta á hvernig hún drap karl- skarfinn („af því hann snerti börn- in“). Ofbeldi og átök kynjanna er greinilegt meginþema. Í ljós kemur þó að kærasti Ölmu, sem hún kvað hafa vegið, er sprelllif- andi eftir allt saman og í felum í Mið- Austurlöndum út af dópskuld á Fróni. Hún flýr deildina og heldur heim á leið, í órætt sjávarþorp úr magnaðri bíóveröld. Þar er allt á undanhaldi, grotnandi og stórkarlar seilast í kvóta smáútgerðar. Alma snýr til uppeldismæðra sinna en stórleikkonurnar Kristbjörg Kjeld og Emmanuelle Riva (Hiroshima mon amour, Amour) mynda stór- kostlegt tvíeyki. Hús þeirra er erkibíólegt íslenskt fornheimili í bárujárnsklæðum með litríku vegg- fóðri. Hönnun sviðsmyndar, en ekki síður kómískur leikur kvennanna, minnir á litasamsetningar og ömm- una stórfenglegu í Nóa Albínóa (svo er Þröstur Leó líka skammt undan). Sjávarþorpssögusviðið vekur upp fleiri íslenskar myndir, Hafið og Kaldaljós (þar sem Kristbjörg og Snæfríður mættust fyrst), og stjörnukraftar Rivu minna á há- punkta franska listabíósins. Þessi margvíslegu textatengsl og „bíó- leiki“ myndarinnar gleðja. Samtölum og leikstíl myndarinnar er hægt að lýsa sem andnátúral- ískum (í takt við fyrri verk Krist- ínar) og leikhúslegum. Myndin er mjög ójöfn að þessu leyti, töluvert er af senum og samtölum sem virka stirð og textinn óþarflega uppskrúf- aður. Þessi sérstæði stíll er þó lík- lega hluti af höfundarætlan – að gera skáldskapinn skáldskaparlegan. Reyndari leikararnir valda þessu almennt vel. Mikið er þó lagt á herðar Snæfríðar Ingvarsdóttur, sem er einkar myndræn og stendur sig vel í krefjandi aðalhlutverkinu. Persóna hennar, að upplagi, líður einfaldlega fyrir táknrænan frásagn- armáta Kristínar – er hún myndlík- ing eða persóna af holdi og blóði? Það er erfitt að tengjast Ölmu og því sem vindur fram. Sjávarþorpsfléttan með Ölmu og fyrrum kærasta (Snorri Engilbertsson), er hvað verst hvað það varðar – þar sem tónn og flæði samtala er of óeðlilegt. Söguhetjur modernísks skáldskapar eru gjarnan utan seilingar og ekki gefinn sálfræðilegur bakgrunnur fyrir gjörðir þeirra – það bókstaflega á að vera ómögulegt að tengjast þeim. Þetta getur þó varla verið ætl- unin hér, þar sem einfalt sálfræði- legt upplegg persónunnar er lykil- þáttur – en kvikmyndin fetar tyrfinn meðalveg í þessu samhengi. Sem heildarverk gengur Alma skrykkjótta leið að endamarki sem næst, tæplega þó. Myndin er nógu forvitnileg og öðruvísi til að fyrirgefa annmarka hennar. Löngu tímabært er að fá nýja kvikmynd frá þessum lykilleikstjóra í íslenskri kvikmynda- sögu og vonandi hefur Kristín ekki sagt sitt síðasta á hvíta tjaldinu. Upp, upp mín sál Myndræn „Mikið er þó lagt á herðar Snæfríðar Ingvarsdóttur, sem er einkar myndræn og stendur sig vel í krefjandi aðalhlutverkinu,“ segir í rýni um Ölmu. Háskólabíó, Smárabíó Alma bbbnn Leikstjórn og handrit: Kristín Jóhannes- dóttir. Kvikmyndataka: Ita Zbroniec- Zajt. Klipping: Kristín Jóhannesdóttir, Marteinn Þórsson, Gunnar Carlsson, Eggert Baldvinsson, Máni Hrafnsson og Einar Baldvin Arason. Aðalleikarar: Snæfríður Ingvarsdóttir, Kristbjörg Kjeld, Emmanuelle Riva og Hilmir Snær Guðnason. GUNNAR RAGNARSSON KVIKMYNDIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.