Morgunblaðið - 15.05.2021, Side 4

Morgunblaðið - 15.05.2021, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021 Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Í hópi flugmanna hefur verið rætt um efnishrúgu og hindranir á brautarenda aflagðrar flugbrautar Reykjavíkurflugvallar. Þeir benda á að þetta geti skapað hættu þurfi skyndilega að nauðlenda þarna. „Svæðið sem um ræðir er ekki lengur flugbraut og ekki skilgreint sem slík á kortum. Þarna er um að ræða aflagt svæði,“ sagði í svari frá Sigrúnu Björk Jakobsdóttur, fram- kvæmdastjóra innanlandsflugvalla Isavia. Hún benti á að Samgöngu- stofa hefði bannað aðgengi og notk- un loftfara á jörðu þar. Auk rauðu og hvítu stólpanna er svæðið merkt með hvítu X í báða enda sem þýðir „lokuð/aflögð flugbraut“. Haugurinn er malbiksfræs sem er geymt til síðari notkunar og stendur um 50 metra frá enda- mörkum svæðisins. gudni@mbl.is Flugmenn hafa undrast hrúgu og hindranir á aflagðri flugbraut á Reykjavíkurflugvelli Ekki lengur flugbraut Morgunblaðið/Árni Sæberg Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fulltrúar mennta- og menningar- málaráðuneytisins hafa tekið upp málefni Keldna við fjármála- og efnahagsráðuneytið vegna hug- mynda um að nýta land tilrauna- stöðvarinnar undir borgarlínu. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menning- armálaráðherra, segir að henni hugnist ekki þessar hugmyndir. Heimild hefur verið á fjárlögum í tvo áratugi til að selja land Tilrauna- stöðvar Háskóla Íslands í meina- fræði á Keldum og í samkomulagi ríkis og sveitarfélags var rætt um að leggja jörðina inn í félag um bættar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Hefur þetta orðið til þess að starf- semin á Keldum er í gíslingu. Erf- itt er að fá heim- ildir til að byggja þar upp og endur- nýja. Nú síðast kom fram í um- sögn skipulags- fulltrúa Reykja- víkurborgar við fyrirspurn um leyfi til að byggja við fiskahús á Keldum að starfsemin væri víkjandi og rífa þyrfti bygg- inguna þegar borgin krefðist. Fer í sókn fyrir starfsemina Lilja segir að sér hugnist ekki hugmyndir um að nýta landið fyrir borgarlínu „enda er starfsemin á Keldum stórmerkileg og mikilvæg. Þar er unnið mikið starf sem ekki fer fram annars staðar á landinu og saga svæðisins er merkileg fyrir margra hluta sakir. Keldur eru hluti af Há- skóla Íslands, vísindasamfélaginu, og staðsetningin hentar starfsem- inni.“ Þarfagreining ekki hafin Segist Lilja hafa fengið þau svör úr fjármála- og efnahagsráðuneytinu að þarfagreining vegna borgarlínu sé ekki hafin en þegar að því komi hefjist samráð sem nauðsynlegt sé til að skipuleggja þetta landsvæði. „Þá förum við í sókn fyrir starfsem- ina á Keldum,“ segir Lilja og ítrekar að svör og þarfagreining þurfi að fást áður en aðrar ákvarðanir verði teknar. Spurð um framtíð starfseminnar á Keldum segir Lilja nauðsynlegt að hún verði skýrð sem fyrst. Ljósmynd/Úr safni Keldna Keldur Tilraunastöð HÍ í meinafræði hefur verið á Keldum í 73 ár. - Menntamálaráðherra segir starfsem- ina að Keldum mikilvæga og merkilega Lilja Alfreðsdóttir Keldnaland fari ekki undir borgarlínu Hættustig almannavarna vegna gróðurelda gildir áfram á svæðinu frá Breiðafirði að Eyjafjöllum. Sam- kvæmt veðurspá eru norðaustanáttir fram undan með áframhaldandi þurrkum. Undanfarið hefur aðeins verið ein- hver úrkoma að ráði á Reykjanesi og færist svæðið því niður á óvissustig. Úrkoma hefur ekki náð inn á Norð- vesturland og því færist það svæði af óvissustigi og upp á hættustig, sam- kvæmt tilkynningu frá almanna- varnadeild ríkislögreglustjóra. Sam- hliða hættustigi almannavarna hafa slökkviliðsstjórar á Norðurlandi vestra ákveðið að banna meðferð opins elds vegna þurrkanna. Slökkviliðsstjórarnir telja slíkt bann nauðsynlegt. Haldinn var stöðufundur við- bragðsaðila og Veðurstofunnar ný- verið. Niðurstaða hans var að hætta á gróðureldum sé að mestu óbreytt, þrátt fyrir skúraveður víða suðvest- anlands í fyrradag. gudni@mbl.is Hættustig vegna gróðureldahættu - Reykjanes fært niður á óvissustig Morgunblaðið/Árni Sæberg Heiðmörk Stutt er síðan gróðureldar kviknuðu í Heiðmörk. Talið er að a.m.k. fimm hektarar af skóglendi hafi brunnið. Erfiðlega gekk að slökkva.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.