Morgunblaðið - 15.05.2021, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 15.05.2021, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021 Tíðir sinueld-ar í þurrk-unum und- anfarnar vikur sýna hvað lítið þarf til að bál blossi upp. Um þessar mundir gildir nú óvissustig á Suður- og Vest- urlandi hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og slökkvi- lið eru við öllu búin. Í Morg- unblaðinu í fyrradag kom fram að nú væru haldnir fundir dag- lega til að meta stöðuna. Eru áhyggjurnar mestar af að illa geti farið blossi upp eld- ur í sumarhúsabyggð á stöðum á borð við Skorradal, Þing- vallasveit, Laugardal, Bisk- upstungur og Grímsnes þar sem gróður er mikill. Gróðureldar kvikna yfirleitt af mannavöldum hér á landi, þótt eldingar geti einnig valdið þeim. Vinna við járnsmíðar, glóð úr útieldi eða af grilli og jafnvel neisti úr púströri getur kveikt eld. Er því rík ástæða til að sýna árvekni. Í Morgunblaðinu á fimmtu- dag var rætt við hjónin Rann- veigu Ásbjörnsdóttur og Stef- án Carlsson, sem eiga sumarbústað í landi Dagverð- arness í Skorradal. Þar segir Rannveig að mikill uggur sé í fólki vegna ástands- ins og þau hjónin séu til dæmis hikandi við að fá barnabörn sín í heimsókn. Rannveig lýsir sérstökum áhyggjum yfir því að flótta- leiðir úr Skorradal séu tak- markaðar. Svokallaður Línu- vegur, sem liggi að Uxahryggjaleið, sé illfær fólksbílum. Ástandið nú er áminning um að það er mikilvægt að tryggja að flóttaleiðir séu greiðfærar. Sumarbústaðir eru sælureitir fyrir marga. Þar sem sum- arhúsabyggð er þétt þarf að gera ráðstafanir þannig að fólk eigi auðvelt með að forða sér og einnig búa þannig um hnútana að eldur breiðist ekki út fyrirstöðulaust. Um leið verður að gæta þess að varúðarráðstafanir verði ekki of íþyngjandi fyrir eigendur líkt og við Laug- arvatn þar sem ákveðið hefur verið að loka hjólhýsasvæði vegna þess að öryggi fólks á svæðinu sé verulega ábóta- vant út af eldhættu. Þarna hafa margir átt sinn sælureit árum saman og verður ekki hlaupið að því að finna nýjan. Brýnt er að grípa til að- gerða sem fyrst. Eins og við þekkjum gera hamfarir ekki boð á undan sér. Tryggja þarf öryggi og undankomuleiðir}Eldhætta Það þarf ekki aðhafa mörg orð um hættuna sem fylgir eiturlyfjum. Þau hafa eyðilagt mörg mannslíf og valda stórtjóni í samfélaginu. Skipulögð glæpastarfsemi þrífst á sölu og dreifingu eitur- lyfja. Forsenda þessarar ógeð- felldu glæpastarfsemi er fíknin, á henni nærast eiturlyfjahring- arnir og um leið ala þeir á henni. Heilbrigðisráðherra hefur lagt fram lagafrumvarp um að breyta ákvæðum laga um ávana- og fíkniefni þannig að kaup og varsla á takmörkuðu magni ávana- og fíkniefna verði heimiluð og verði miðað við svo- kallaða neysluskammta. Tilgangurinn er að af- glæpavæða neyslu fíkniefna. Deilt hefur verið á þessar fyr- irætlanir og hafa hörðustu við- brögðin komið frá lögreglunni. Í fréttaskýringu Morgunblaðs- ins var dregið fram að Lög- reglustjórafélag Íslands teldi einsýnt að fíkniefnaneysla ung- menna myndi aukast yrði frum- varpið að lögum og viðhorf þeirra til vímuefna yrði jákvæð- ara. Embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu benti á í umsögn að yrði frumvarpið að lögum gætu til að mynda allir sem ákærðir yrðu fyrir vörslu á fíkniefnum í sölu- og hagn- aðarskyni borið því við að um væri að ræða efni til eigin nota. Umsagnir um frumvarpið eiga það þó flestar sammerkt að taka undir að meðhöndla eigi vanda vímuefnanotenda á Ís- landi í heilbrigðiskerfinu frekar en dómskerfinu. Það mætti orða það þannig að þeir séu sjúklingar en ekki glæpamenn og það sé nógu erf- itt að losna frá fíkninni þótt af- plánun refsinga sé ekki bætt við. Markmiðið með frumvarpinu er göfugt og í raun má segja að nú þegar sé unnið í anda þess að því leyti að í löggæslu er ekki lagt kapp á að hafa hendur í hári neytenda og refsa þeim, heldur áhersla lögð á að stöðva sölu og dreifingu. Áður en svo róttækar breytingar eru gerðar á lögunum er rétt að fara ræki- lega ofan í saumana á þeim. At- hugasemdir lögreglunnar gefa tilefni til að hafa áhyggjur af að breytingin gæti orðið til þess að við tækjum skref aftur á bak í fíkniefnamálum og það væri af- leit niðurstaða. Áhöld um af- glæpavæðingu fíkniefna} Skref aftur á bak? SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is V eirufaraldurinn og sam- komutakmarkanir höfðu mikil áhrif á rekstur ÁTVR á seinasta ári. Afkoma árs- ins og söluaukningin fór langt fram úr öllum áætlunum og veltuhraðinn var fáheyrður, eins og Ívar J. Arndal, for- stjóri ÁTVR, orðar það í formála ný- útkominnar árs- og samfélagsskýrslu ÁTVR fyrir árið 2020. Á árinu fór heildarveltan yfir 50 milljarða og hefur aldrei, í tæplega hundrað ára sögu ÁTVR, verið svo há. Ívar segir að álagið á starfsfólkið hafi aukist mikið þegar ljóst varð að veit- ingahús og barir voru meira og minna lokaðir, og sala í Fríhöfnina á Kefla- víkurflugvelli lagðist að mestu af. Beita hafi þurft öllum ráðum til þess að ráða við ástandið. Álagið var einna mest í dreifingarmiðstöð ÁTVR. Veltuhrað- inn jókst um 20%. „Þegar leið á sum- arið fór reksturinn að þyngjast og álagið að aukast. Með ótrúlegu átaki og samvinnu allra tókst að láta starf- semina ganga upp við þessar erfiðu aðstæður. Lítrarnir sem fóru í gegn- um dreifingarmiðstöðina á árinu fóru yfir 26 milljónir og jókst magnið á árinu um rúmar fjórar milljónir lítra,“ segir Ívar. Öllum lagernum var velt á innan við níu dögum að meðaltali yfir árið en fram kemur að meðalbirgðir í dreifingarmiðstöðinni eru um 600 þús. lítrar. „Tölurnar sýna ótvírætt hvað gekk á og er með ólíkindum að þetta hafi gengið upp miðað við hvernig ástandið var,“ segir í formála forstjór- ans. Þá fór veltuhraðinn í Vínbúðun- um yfir 24 að meðaltali á árinu sem þýðir að sögn hans að öllum lagernum í verslunum er velt að jafnaði tvisvar í mánuði sem hann segir að sé fáheyrð- ur veltuhraði. 5,5 milljónir viðskiptavina Á seinasta ári komu 5,5 milljónir viðskiptavina til ÁTVR og fjölgaði um 8,5%. Þeir keyptu alls 26,8 milljónir lítra af áfengi og var áfengi selt fyrir 38,4 milljarða. Jókst áfengissala ÁTVR um 18,29% á árinu. Salan jókst í öllum flokkum, í léttvíni, sterku áfengi og bjór. Mest var þó aukningin í sölu á léttvíni eða 26,5%. Fyrirtækið hagnaðist um 1.821 milljónir kr. í fyrra og einn milljarður var greiddur í arð í ríkissjóð. Ríkið nýtur nú sem áður góðs af sölu ÁTVR auk arðgreiðslunnar og fékk rúmlega 17,5 milljarða í áfengisgjald í fyrra og 6,2 milljarða í virðisaukaskatt. Tób- aksgjaldið skilaði tæpum sex millj- örðum og hækkaði á milli ára um 284 milljónir. Hluti ríkissjóðs af brúttó- sölu ÁTVR á seinasta ári var því sam- tals tæpir 30,8 milljarðar. Sala á sígarettum jókst að magni í fyrra eða um 8,6% en sala neftób- aksins dróst saman um 44,8% að magni til frá árinu á undan og fór úr 46 tonnum á árinu 2019 í rúmlega 25 tonn sem seld voru í fyrra. Fjölmargar upplýsingar um starfsemi ÁTVR og Vínbúðanna koma fram í skýrslunum. Þar má m.a. sjá að fjöldi pantana í vefverslun ÁTVR á síðunni vinbudin.is þrefald- aðist á seinasta ári, sem er að stórum hluta rakið til ástandsins í samfélag- inu vegna faraldursins. Flestir við- skiptavinir Vínbúðanna koma í búð- irnar á föstudögum eða 28% en þó komu færri viðskiptavinir í lok vik- unnar en á árinu á undan. Yfir allt ár- ið heimsóttu flestir viðskiptavinir Vínbúðirnar 30. desember, en þann dag komu tæplega 44 þúsund en á venjulegum föstudegi eru þeir nálægt 32 þúsund. Heildarvelta ÁTVR fór yfir 50 milljarða Sala í Vínbúðunum og fjöldi viðskiptavina Fjöldi viðskiptavina í Vínbúðunum stærstu daga ársins 2020, þúsundir Heildarsala áfengis í Vínbúðunum í milljónum lítra 2013-2020 30 25 20 15 40 30 20 10 0 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 22.maí 29.maí 31. júlí 23. desember 30. desember Heimild: ÁTVR 18,7 26,8 22,7 21,9 19,6 38,5 38,2 37,5 42,9 43,8 Meðalfjöldi á föstudegi, 31,9 Starfsfólk Vínbúðanna er þjálf- að í að spyrja viðskiptavini um skilríki en á hverju ári er farið í hulduheimsóknir þar sem við- skiptavinir á aldrinum 20-24 ára fara í búðirnar og skila svo niðurstöðum um hvort þeir þurftu að framvísa skilríkjum. Árangur hulduheimsókna í fyrra var 78%, töluvert undir mark- miðinu sem er 90%. Fram kem- ur að í veirufaraldrinum lækkaði hlutfall þeirra sem voru spurðir um skilríki en síðustu mánuði ársins varð árangurinn betri. ÁTVR hefur hvatt viðskipta- vini til að draga úr notkun ein- nota burðarpoka. Í fyrra voru tæplega 66 þúsund fjölnota- pokar seldir. Er hlutfall þeirra sem kaupa einnota poka komið niður í 24%. 1,3 milljónir ein- nota poka voru seldar á árinu. 78% árangur yfir árið SKILRÍKJAEFTIRLIT Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ F ramtíðina þarf að skapa núna. Þetta Covid-ár hefur heldur betur reynt á okkur öll, með misjöfnum hætti þó. Verkefnin hafa breyst, vinnustöðum verið lokað og störf- um fækkað. En fram undan er uppbygging og það er vor í lofti. Við þurfum að hafa kjark til að styðja á réttum stöðum við uppbyggingarferlið og við það fólk og fyrirtæki sem nauðsynlega þurfa á því að halda. Þannig þarf pólitískan kjark og útsjónarsemi til að fara í sértækar að- gerðir sem skila sér margfalt til framtíðar. Samfylkingin kynnti í vikunni aðgerðapakka í sex liðum sem ætti að koma til framkvæmda núna í sumarbyrjun. Þessar aðgerðir snúa flestar að því að koma atvinnuleitendum aftur til starfa, búa til hvata hjá fyrirtækjum að ráða til sín fólk, en einnig að grípa þá sem hafa um lengri tíma verið án atvinnu. Einnig leggjum við til skemmtilegri sumarmánuði fyrir okkur öll í samstarfi við listafólk víða um land sem hefur misst grundvöll tekna sinna síðustu mánuði vegna samkomutakmarkana. Tón- listarfólk og sviðslistafólk hefur misst sínar tekjur í rúm- lega heilt ár og við því þarf að bregðast með öllum til- tækum ráðum. Okkar tillaga er að farið verði í styrkveitingar án tafar til viðburðahalds um allt land, þannig að allur almenningur fái notið tónleika og leiksýn- inga á bæjarhátíðum og um alla borg. Einfalt og skjótvirkt umsóknarkerfi fyrir skemmtilegra sumar. Önnur tillaga sem ég vil vekja sérstaka athygli á varðar þá sem hafa verið í atvinnuleit undanfarna mánuði. Við leggjum til að veittur verði tíma- bundinn skattaafsláttur fyrir þá sem koma aft- ur til starfa eftir atvinnuleysi. Leiðin er einföld í framkvæmd því hún felur í sér tvöföldun per- sónuafsláttar í jafn marga mánuði og viðkom- andi var án atvinnu. Þetta er ekki ósvipað og þekkist í fyrirtækjarekstri þar sem þau geta nýtt sér tap undanfarins árs á móti hagnaði þessa árs. Þannig getur sá sem missti vinnuna nýtt sér tekjufallið af liðnu ári sem viðbót- arpersónuafslátt í jafn marga mánuði og tekju- fallið varði. Tekjufall í kjölfar uppsagnar getur leitt til langvarandi alvarlegs fjárhagsvanda. Slíkur fjárhagsvandi sem velt er á undan fjölskyldum árum saman leiðir til aukins kostnaðar um allt kerfið. Það að fjárfesta með þessum hætti í fólki og fjölskyldum mun borga sig upp fyrr en ella og að- ferðin er einföld í framkvæmd. Slík tímabundin hækkun á ráðstöfunartekjum fyrir þá sem urðu fyrir tekjufalli gagnast strax og þannig getur fólk í þessari stöðu greitt hraðar niður þær skuldir sem safnast hafa upp í því ástandi sem verið hefur. Að leggja fyrirtækjum og einstaklingum tímabundið lið nú þegar við erum að koma okkur upp úr áfallinu er skyn- samleg og góð fjárfesting til framtíðar. Við skulum sýna hugrekki og framkvæma hratt og vel. helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir Pistill Framtíðin er björt, ef við þorum Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.