Morgunblaðið - 15.05.2021, Blaðsíða 43
MENNING 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Það sem gerir tónlist Báru Gísla-
dóttur að því sem hún er – og er
ástæðan fyrir því að æ fleiri eru
farnir að sperra eyrun – er að hún er
afdráttarlaus. Það er farið inn í
innsta kjarna og þetta hreina og
tæra sem þar einatt lúrir er einfald-
lega sótt og því slengt á borð. Bára
er greinilega með
sterka innri rödd
sem hefur vit á
því að hvísla til
hennar á ögur-
stundum: „Bára.
Taktu allt helvítis
draslið og dömp-
aðu því bara á mannskapinn. Ekki
hika! Út með það. Ekki biðjast af-
sökunar á einu né neinu!“
Útkoman snertir auðvitað við
manni, hvernig er annað hægt? Verk
Báru hafa heillað undirritaðan um
nokkra hríð og plata hennar frá í
fyrra, HIBER, er algerlega framúr-
skarandi. Ég gat ekki ímyndað mér
að það væri hægt að toppa það en
hér erum við samt bara nokkrum
mánuðum síðar.
Caeli er unnin af Báru og Skúla
Sverrissyni og þvílíka tveggja turna
talið sem það er! Þau hittust í fyrsta
sinn í Mengi árið 2015 og hófu óðar
að þreifa fyrir sér með samstarf.
Snemma árs 2018 prófuðu þau sig
svo áfram í hljóðveri og var það „ein
mesta töfrastund sem ég hef átt í
tónlist“ samkvæmt fésbókarpósti
Engin miskunn
Ljósmynd/Jim Bennett.
Tvíeyki Skúli Sverrisson og Bára Gísladóttir einbeitt á tónleikum á Kex hosteli árið 2018.
Báru frá 19. mars, daginn sem plat-
an kom út. Það var Albert Finnboga-
son sem hljóðritaði og -blandaði
plötuna og Sarah Register hljóm-
jafnaði. Bára sjálf sá um listræna
hlið umslagsins (nýtti þar myndverk
eftir Adrien Converse) en Klara
Arnalds hannaði umslagið. Sono
Luminus gefur út.
Grjóthörð, miskunnarlaus,
reynt á þolmörkin, erfitt, torrætt,
óþægilegt. Allt eru þetta lýsingar
sem ég hef notað í skrifum mínum
um magnað tónmál Báru. Já, tónlist-
in er á köflum hávær og stríð og hún
hristir þig og skekur. En um leið er
leitað að stillunni inn á milli. Ég
sagði um lokalag HIBER: „Mikil
orka og brjálæði en óskiljanleg værð
engu að síður,“ og þau Bára og Skúli
fara inn í svipaðan samslátt á Caeli.
Kannski eru það áhrifin frá Skúla að
þessi plata er þó straumlínulagaðri,
höggin óvægnari og ljúflegheitin
ljúfari. Þannig séð!
Caeli er tveggja tíma ferðalag
en augun eru á stilkum allan tímann
(eða kannski frekar eyrun?). Það er
ekkert annað hægt. Ég vil helst líkja
þessu verki við meistaraverk Ing-
mars Bergmans „Viskningar och
rop“ („Cries and Whispers“). Þar er
áhorfið (hér hlustunin) meira og
minna líkamlegt. Manni líður hálf-
óþægilega einhvern veginn en mað-
ur veit samt upp á hár að maður er
að fylgjast með stórkostlegu lista-
verki opinberast fyrir framan sig.
Bassarnir sarga, kráka og ýlfra; þeir
druna og buna en undir er sveim-
kennd og draumofin motta sem ber
þá áfram. Þetta er líkt og að synda
um í kolniðamyrkum Atlantsál. Með
fiðrildi í maganum.
Afdráttarleysið sem ég nefni
hér í upphafi er nefnilega algert. Það
eru ekki bara tónarnir og hljóðið
heldur afstaðan, sýnin. „Algjör list“
sem snertir mann óhjákvæmilega og
það þarf engar árans prófgráður til
að fatta og njóta. Þú þarft bara eyru.
Plata ársins gerið svo vel, ekki
ein einasta spurning. Ég get ekki
ímyndað mér að betur verði gert á
næstu mánuðum. Tja, nema Bára
sjálf hlaði í annað verk.
»
Manni líður hálf-
óþægilega einhvern
veginn en maður veit
samt upp á hár að maður
er að fylgjast með stór-
kostlegu listaverki opin-
berast fyrir framan sig.
Caeli er nýtt verk, unn-
ið af Báru Gísladóttur
og Skúla Sverrissyni.
Tveir tímar af yfir-
gengilega áhrifaríkri
tónlist, seiddri fram
með kontrabössum og
rafhljóðum. Útkoman
er ótrúleg.
Myndlistarsýn-
ingin Landið mitt
verður opnuð í
Hallsteinssal í
Safnahúsinu í
Borgarnesi í dag.
Er það fyrsta
sýning Ingu Stef-
ánsdóttur, sem
sýnir olíu-
málverk. Inga
býr í Lundar-
reykjadal, er sálfræðingur að
mennt og starfi en hefur málað
samhliða því um nokkurt skeið.
Náttúran er viðfangsefni hennar en
verkin byggir hún á ljósmyndum,
að því er segir í tilkynningu.
„Náttúran er síbreytileg og sami
staður getur gefið innblástur þegar
ljós og litir skarta sínu fegursta.
Málun hefur alltaf höfðað til mín og
er mín leið til að róa hugann og
byggja upp innri frið,“ skrifar Inga.
Inga sýnir málverk
í Safnahúsinu
Inga Stefánsdóttir
Tetrad nefnist sýning sem nú stend-
ur yfir í SÍM-salnum í Hafnarstræti.
Má þar sjá verk fjögurra kvenna
sem „hnýttust vináttuböndum strax
í barnaskóla, vináttu sem hefur
haldist lifandi í gegnum árin og
hefur, aftur og aftur, gefið tilefni til
að taka upp þráðinn þrátt fyrir
fjarlæga búsetu í öðrum löndum ár-
um saman“, eins og segir í tilkynn-
ingu. Þrjár kvennanna eru mynd-
listarmenn, þær Hafdís Helga-
dóttir, Ragnheiður Ragnarsdóttir
og Sigríður Ágústsdóttir, en Sól-
veig Jónsdóttir er taugasálfræð-
ingur og frístundamálari. Á sýning-
unni mætast verk þeirra allra
saman í fyrsta sinn. Opið er í sal
SÍM virka daga kl. 10-16 og eru
gestir beðnir að fylgja sóttvarna-
reglum.
Fjórar vinkonur
sýna í SÍM-sal
SÍM Hús SÍM í Hafnarstræti í Reykjavík.