Morgunblaðið - 15.05.2021, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 15.05.2021, Qupperneq 43
MENNING 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Það sem gerir tónlist Báru Gísla- dóttur að því sem hún er – og er ástæðan fyrir því að æ fleiri eru farnir að sperra eyrun – er að hún er afdráttarlaus. Það er farið inn í innsta kjarna og þetta hreina og tæra sem þar einatt lúrir er einfald- lega sótt og því slengt á borð. Bára er greinilega með sterka innri rödd sem hefur vit á því að hvísla til hennar á ögur- stundum: „Bára. Taktu allt helvítis draslið og dömp- aðu því bara á mannskapinn. Ekki hika! Út með það. Ekki biðjast af- sökunar á einu né neinu!“ Útkoman snertir auðvitað við manni, hvernig er annað hægt? Verk Báru hafa heillað undirritaðan um nokkra hríð og plata hennar frá í fyrra, HIBER, er algerlega framúr- skarandi. Ég gat ekki ímyndað mér að það væri hægt að toppa það en hér erum við samt bara nokkrum mánuðum síðar. Caeli er unnin af Báru og Skúla Sverrissyni og þvílíka tveggja turna talið sem það er! Þau hittust í fyrsta sinn í Mengi árið 2015 og hófu óðar að þreifa fyrir sér með samstarf. Snemma árs 2018 prófuðu þau sig svo áfram í hljóðveri og var það „ein mesta töfrastund sem ég hef átt í tónlist“ samkvæmt fésbókarpósti Engin miskunn Ljósmynd/Jim Bennett. Tvíeyki Skúli Sverrisson og Bára Gísladóttir einbeitt á tónleikum á Kex hosteli árið 2018. Báru frá 19. mars, daginn sem plat- an kom út. Það var Albert Finnboga- son sem hljóðritaði og -blandaði plötuna og Sarah Register hljóm- jafnaði. Bára sjálf sá um listræna hlið umslagsins (nýtti þar myndverk eftir Adrien Converse) en Klara Arnalds hannaði umslagið. Sono Luminus gefur út. Grjóthörð, miskunnarlaus, reynt á þolmörkin, erfitt, torrætt, óþægilegt. Allt eru þetta lýsingar sem ég hef notað í skrifum mínum um magnað tónmál Báru. Já, tónlist- in er á köflum hávær og stríð og hún hristir þig og skekur. En um leið er leitað að stillunni inn á milli. Ég sagði um lokalag HIBER: „Mikil orka og brjálæði en óskiljanleg værð engu að síður,“ og þau Bára og Skúli fara inn í svipaðan samslátt á Caeli. Kannski eru það áhrifin frá Skúla að þessi plata er þó straumlínulagaðri, höggin óvægnari og ljúflegheitin ljúfari. Þannig séð! Caeli er tveggja tíma ferðalag en augun eru á stilkum allan tímann (eða kannski frekar eyrun?). Það er ekkert annað hægt. Ég vil helst líkja þessu verki við meistaraverk Ing- mars Bergmans „Viskningar och rop“ („Cries and Whispers“). Þar er áhorfið (hér hlustunin) meira og minna líkamlegt. Manni líður hálf- óþægilega einhvern veginn en mað- ur veit samt upp á hár að maður er að fylgjast með stórkostlegu lista- verki opinberast fyrir framan sig. Bassarnir sarga, kráka og ýlfra; þeir druna og buna en undir er sveim- kennd og draumofin motta sem ber þá áfram. Þetta er líkt og að synda um í kolniðamyrkum Atlantsál. Með fiðrildi í maganum. Afdráttarleysið sem ég nefni hér í upphafi er nefnilega algert. Það eru ekki bara tónarnir og hljóðið heldur afstaðan, sýnin. „Algjör list“ sem snertir mann óhjákvæmilega og það þarf engar árans prófgráður til að fatta og njóta. Þú þarft bara eyru. Plata ársins gerið svo vel, ekki ein einasta spurning. Ég get ekki ímyndað mér að betur verði gert á næstu mánuðum. Tja, nema Bára sjálf hlaði í annað verk. » Manni líður hálf- óþægilega einhvern veginn en maður veit samt upp á hár að maður er að fylgjast með stór- kostlegu listaverki opin- berast fyrir framan sig. Caeli er nýtt verk, unn- ið af Báru Gísladóttur og Skúla Sverrissyni. Tveir tímar af yfir- gengilega áhrifaríkri tónlist, seiddri fram með kontrabössum og rafhljóðum. Útkoman er ótrúleg. Myndlistarsýn- ingin Landið mitt verður opnuð í Hallsteinssal í Safnahúsinu í Borgarnesi í dag. Er það fyrsta sýning Ingu Stef- ánsdóttur, sem sýnir olíu- málverk. Inga býr í Lundar- reykjadal, er sálfræðingur að mennt og starfi en hefur málað samhliða því um nokkurt skeið. Náttúran er viðfangsefni hennar en verkin byggir hún á ljósmyndum, að því er segir í tilkynningu. „Náttúran er síbreytileg og sami staður getur gefið innblástur þegar ljós og litir skarta sínu fegursta. Málun hefur alltaf höfðað til mín og er mín leið til að róa hugann og byggja upp innri frið,“ skrifar Inga. Inga sýnir málverk í Safnahúsinu Inga Stefánsdóttir Tetrad nefnist sýning sem nú stend- ur yfir í SÍM-salnum í Hafnarstræti. Má þar sjá verk fjögurra kvenna sem „hnýttust vináttuböndum strax í barnaskóla, vináttu sem hefur haldist lifandi í gegnum árin og hefur, aftur og aftur, gefið tilefni til að taka upp þráðinn þrátt fyrir fjarlæga búsetu í öðrum löndum ár- um saman“, eins og segir í tilkynn- ingu. Þrjár kvennanna eru mynd- listarmenn, þær Hafdís Helga- dóttir, Ragnheiður Ragnarsdóttir og Sigríður Ágústsdóttir, en Sól- veig Jónsdóttir er taugasálfræð- ingur og frístundamálari. Á sýning- unni mætast verk þeirra allra saman í fyrsta sinn. Opið er í sal SÍM virka daga kl. 10-16 og eru gestir beðnir að fylgja sóttvarna- reglum. Fjórar vinkonur sýna í SÍM-sal SÍM Hús SÍM í Hafnarstræti í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.