Morgunblaðið - 15.05.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.05.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021 Sjómannadagur er 6. júní en Hátíð hafsins í Reykjavík hefur verið af- lýst annað árið í röð. Það er gert vegna samkomutakmarkana. Allt að 40.000 manns mættu á hátíðina með- an hún var haldin. „Þótt við getum ekki boðið til fjöldasamkoma ætlar sjómanna- dagsráð samt að gefa sjómannadeg- inum sinn verðuga sess eins og okk- ur ber að gera,“ sagði Sigurður Garðarsson, framkvæmdastjóri sjó- mannadagsráðs. Það hefur staðið fyrir skipulagðri dagskrá á sjó- mannadaginn allt frá árinu 1938. „Það verður minningarathöfn við Minningaröldu sjómannadagsráðs við Fossvogskirkju klukkan tíu um morguninn,“ sagði Sigurður. „Síðan verður sjómannadagsmessa í Dóm- kirkjunni og verður henni útvarpað. Engir sjómenn voru heiðraðir á sjó- mannadaginn 2020 en nú ætlum við að reyna að heiðra þrjá til fimm sjó- menn sem búið er að tilnefna. Enn gildir 50 manna fjöldatakmörkun og því erum við að hugsa um að hafa lokaðan viðburð. Þangað verður boð- ið þeim sem á að heiðra og tilteknum fjölda þeirra nánustu. Þessu verður væntanlega streymt svo fólk geti fylgst með athöfninni. Þetta er gert með fyrirvara um breytingar á fjöldatakmörkunum. Ef til vill þurf- um við að hætta við, eða þá fækka eða fjölga fólki við athöfnina,“ sagði Sigurður. Hann sagði að reynt yrði að gera sjómannadaginn eins hátíðlegan og kostur væri. Sigurður minnti á að sjómannadagur væri lögboðinn frí- dagur sjómanna og almennur fána- dagur. Skip verða skreytt með sign- alföggum og heimili sjómannadags- ráðs, Hrafnistuheimilin, verða skreytt sérstaklega. gudni@mbl.is Sjómannadagur en engin Hátíð hafsins - Hátíð hafsins aftur slegin af vegna sam- komutakmarkana Morgunblaðið/Hari Sjómannadagur 2019 Hátíð hafs- ins var fjölsótt en fellur niður í ár. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Gerð varnargarðs til að hindra hraunrennsli niður í dalinn Nátthaga hófst í fyrrinótt og átti að ljúka í gærkvöld. Stórvirk jarðýta og skurð- grafa unnu við verkið í gær. Al- mannavarnadeild ríkislögreglu- stjóra óskaði eftir því í fyrradag að reynt yrði að verjast því að hraun flæddi úr Nafnlausa dal í Nátthaga. Ákveðið var að reisa varnargarðinn og verja með því Suðurstrandarveg og ljósleiðara sem liggur í mynni Nátthaga. „Garðurinn hafði verið hannaður fyrir nokkru og það var tilbúin áætl- un,“ segir Fannar Jónasson, bæjar- stjóri í Grindavík. Hann segir að- stæður hafa breyst hratt undanfarið. Sunnudagurinn var notaður til að koma tækjum á staðinn og ganga frá formsatriðum. „Hugmyndin er að þarna verði 4-5 metra hár varnargarður í vestara skarðinu. Samkvæmt hönn- unarforsendum á að vera hægt að hækka hann í allt að átta metra,“ segir Fannar. Austara skarðið niður í Nátthaga liggur fá- einum metrum hærra en það vest- ara. Hraunjaðarinn er ekki farinn að nálgast austara skarðið. Hugmyndin var að byrja hraun- megin og ýta upp garði í átt frá hrauninu. „Hrauntungan náði svo langt að það var ekki hægt og því þurfti að ýta garðinum á móti hraunstefnunni,“ segir Fannar. Þeg- ar byrjað var á garðinum voru aðeins fáeinir tugir metra frá hraunjaðrin- um að brúninni í Nátthaga. Þarna er mjög flatlent og lítil fyrirstaða ef hrauntungan leitaði í þessa átt. Búið er að lagfæra gönguleiðina að eldgosinu. „Hættan á að fólk slas- aði sig var mest í brekkunum en nú er búið að laga þetta og minni hætta á að fólk meiði sig.“ Fannar segir leiðina ekki jafn mik- ið á fótinn og hún var. Fólk eigi auð- veldara með að komast nú. Á almannavarnarfundi í gær- morgun kom fram að ekki væru að- stæður nú til að hleypa ökutækjum, t.d. vegna fólksflutninga, inn á svæð- ið að mati lögreglunnar. Ljósmynd/Ólafur Þórisson Varnargarður Umfang hraunflæðisins sést vel á þessari mynd, sem tekin var meðan annar garðurinn var reistur. Nátthagi varinn - Varnargarði ýtt að hraunstraumnum - 4-5 metra hár - Fáir tugir metra voru í að hraunið færi fram af brúninni Fannar Jónasson Stefán Gunnar Sveinsson Oddur Þórðarson Tveir greindust með kórónuveiruna í fyrradag og voru báðir í sóttkví við greiningu. Voru fjórir á sjúkra- húsi vegna kórónuveirunnar, og hafði einn bæst við milli daga. Tvö smit greindust á landamærunum. 63 eru í einangrun vegna smits, og fækkaði þeim um tólf manns á milli daga. Alls voru 330 manns í sóttkví í gær, miðað við 483 í fyrradag. Bólusetningar ganga vel, en stefnt er að því að ljúka bólusetn- ingu allra í forgangshópi 7 í næstu viku, en í honum eru allir þeir sem teljast vera með undirliggjandi langvinna sjúkdóma. Þar á meðal er fólk sem t.a.m. er á kvíða- og þung- lyndislyfjum. Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar Heilsugæslunnar á höfuðborg- arsvæðinu, sagði í samtali við mbl.is í gær að farið væri að síga á seinni hluta bólusetninga, en gert er ráð fyrir að rúmlega 15.000 skammtar verði gefnir í næstu viku, en þar af verða um 7.000 skammtar af Mod- erna gefnir á mánudag, annað eins af Pfizer á þriðjudag og svo um 2.000 skammtar af bóluefni Janssen á fimmtudaginn. Segir Ragnheiður að mögulega verði hafist handa við að bólusetja fólk af handahófi í þarnæstu viku, ef næst að klára síðustu forgangs- hópana sem eftir eru. Hafa nú allir aldurshópar karl- manna niður í árganginn sem fædd- ist árið 1974 og allir aldurshópar kvenna niður í árganginn 1966 fengið boðun í bólusetningu, en munurinn á milli kynjanna skýrist af mismunandi reglum sem gilda um notkun AstraZeneca-bóluefn- isins. Fundað í dag í Skagafirði Tveir greindust með kór- ónuveiruna í Skagafirði og nágrenni í skimunum gærdagsins. Voru báðir í sóttkví. Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, að þær niðurstöður hefðu verið í sam- ræmi við þær áætlanir sem gerðar hefðu verið, en 14 manns voru í ein- angrun á Norðurlandi vestra sam- kvæmt smittölum á covid.is í gær. Verður fundað um stöðuna í Skagafirði í dag og rætt hvort og þá hvaða tilslakanir á aðgerðum verði farið í eftir helgi, en þar hafa svæð- isbundnar sóttvarnaaðgerðir verið í gildi undanfarna viku. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagðist í samtali við mbl.is í gær vera bjart- sýnn á að hægt yrði að aflétta þeim aðgerðum innan skamms. Vilja klára forgangshópa í næstu viku - Bólusetningar ganga mjög vel - Ræða stöðuna í Skagafirði í dag Morgunblaðið/Eggert Faraldur Bólusetningar hafa gengið mjög vel hér á landi upp á síðkastið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.