Morgunblaðið - 15.05.2021, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021
577-1515 •
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Mikil uppbygging og endurnýjun á
sér stað við hjá Heilbrigðisstofnun
Suðurlands (HSU) á Selfossi og
stendur til að auka og bæta heilbrigð-
isþjónustuna, efla
göngudeild-
arstarfsemina og
er áhugi á að fá
fleiri sér-
fræðilækna þar til
starfa.
Þetta kemur
fram í viðtali í
Læknablaðinu við
Sigurð Böðv-
arsson krabba-
meinslækni en
hann er yfirlæknir göngu- og lyf-
lækningadeildar og einnig í starfi
framkvæmdastjóra lækninga á HSU.
Fram kemur í máli í Sigurðar að
Heilbrigðisstofnunin gengur nú í end-
urnýjun lífdaga. Fé hafi verið veitt til
að stækka starfsemina og sér hann
fram á að ný hæð rísi á spítalanum á
næstu fjórum árum.
„Við viljum einnig rækta sam-
bandið við læknadeild og Landspítala
til að fá hingað kandídata, lækna-
nema og sérnámslækna í lyf-
lækningar sem og fólk í öðru heil-
brigðisnámi, því hér er hægt að læra
góða hluti á öllum sviðum,“ segir Sig-
urður í viðtalinu í Læknablaðinu.
Spurður nánar út í þetta sagði Sig-
urður í samtali við Morgunblaðið í
gær að þetta væri til umræðu. Sér-
námslæknar í heimilislækningum
hafi starfað á heilsugæslunni á Sel-
fossi og jafnframt unnið á bráða-
móttökunni þar og líkað það vel. Þeir
þurfa að taka einhverja mánuði í sínu
námi á lyflækningadeild og hafa sýnt
áhuga á hvort þeir geti verið þá mán-
uði á almennu lyflækningadeildinni á
Selfossi frekar en á Landspítalanum.
„Við höfum verið að ræða þetta við
Landspítalamenn og þá sem stjórna
heimilislæknaprógramminu og menn
virðast bara vera nokkuð jákvæðir,
þannig að við vonum að þetta gæti
farið í gang á næsta ári,“ segir Sig-
urður.
Gott samstarf við læknanema í
Slóvakíu og Ungverjalandi
Að sögn hans hefur HSU í nokkur
ár verið í mjög góðu samstarfi við ís-
lenska læknanema í Slóvakíu og Ung-
verjalandi, sem hafa komið til starfa á
Selfossi. Einnig vilji stofnunin eiga
gott samstarf við Landspítalann og
læknadeildina og bjóða upp á verk-
lega kennslu, ekki eingöngu fyrir
læknanemana heldur nema í fleiri
heilbrigðisgreinum, s.s. hjúkr-
unarfræðinema og nema í geislafræði
og lífeindafræði o.s.frv.
Sá kostur fylgir líka svona sam-
starfi að ef nemendur fáist til að
koma til starfa á Heilbrigðisstofn-
uninni og líkar þar vel þá aukist líkur
á að þeir vilji koma aftur til starfa þar
að námi loknu. „Við höfum svolítið
verið að tala um það á landsbyggðinni
að ef við náum fólkinu út á land og
kynnum því starfsemina þar, þá er
það miklu viljugra til þess að koma til
okkar seinna í vinnu og áttar sig á því
að heimurinn er ekki bara Landspít-
alinn.“
Mikil uppbygging og fólksfjölgun á
sér stað á Selfossi um þessar mundir
og margt spennandi er í deiglunni, að
sögn Sigurðar. Ungt barnafólk hefur
flutt á Árborgarsvæðið og eldri borg-
arar sem komnir eru á eftirlaun eru
stórir hópar sem þurfi á mikilli heil-
brigðisþjónustu að halda. Bregðast
verði við því og bjóða upp á aukna
þjónustu.
Spurður hvort skortur sé á lækn-
um og mönnunarvandi við að glíma
segir hann að Heilbrigðisstofnunin á
Selfossi sé tiltölulega vel sett en
starfssvæði hennar er stórt og tíu
mismunandi heilsugæslustöðvar inn-
an svæðisins á öllu Suðurlandi. Þar sé
mönnunarvandinn miklu meiri en á
Selfossi og sumar lengi átt erfitt með
að fá heilsugæslulækna til starfa.
Fram kemur í Læknablaðinu að nú
er horft til þess hvernig nýtt fjár-
hagslíkan sem er verið að innleiða á
heilsugæslunni, og svo á sjúkra-
húsum landsins á næsta ári, muni efla
starfsemina. Gengur það út á að fjár-
magnið fylgi sjúklingum og menn fái
greitt fyrir það sem þeir gera. Sig-
urður kveðst þar sjá fyrir sér spenn-
andi breytingu sem gefi m.a. tækifæri
til að byggja upp sérfræðiþjónustu á
svæðinu.
Vilja byggja upp sérfræðiþjónustu
- Uppbygging og viðræður um aukna þjónustu á Heilbrigðisstofnun Suðurlands - Sigurður
Böðvarsson yfirlæknir segir áhugavert að fá læknanema og sérnámslækna í lyflækningum til starfa
Morgunblaðið/RAX
Selfoss Yfirlæknir Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi vill efla þjónustu stofnunarinnar enn frekar.
Sigurður
Böðvarsson