Morgunblaðið - 15.05.2021, Page 15

Morgunblaðið - 15.05.2021, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021 + + + = 19.990 kr. A L LT ÓTA K M A R K A Ð Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Íbúar byggðanna úti á landi og þeirra hagsmunir þurfa sterka rödd í umræðu samfélagsins,“ segir Guð- mundur Gunnarsson. „Að búa í dreifbýlinu felur í sér marga kosti. Auðlindir náttúrunnar til lands og sjávar eru til að mynda yfirleitt mjög nálægar úti á landi, en góð nýt- ing þeirra er að minni hyggju und- irstaða þeirrar endurreisnar, sem nú er fram undan eftir kórónuveiruna. Grundvöllur þessa alls er þó að ekki sé hrópandi aðstöðumunur milli borgar og landsbyggðar. Óháð bú- setu á fólk að geta verið jafnsett um samfélagslega þjónustu og lífsins gæði; svo sem samgöngur, heilbrigð- isþjónustu, skóla og fleira slíkt.“ Þörf á greiðum leiðum milli svæða Guðmundur Gunnarsson er nýr oddviti á framboðslista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi í þingkosn- ingum í haust. Hann er Bolvíkingur að uppruna, fæddur árið 1976 og með menntun í alþjóðaviðskiptum og fjölmiðlafræði. Sinnir í dag ýms- um ráðgjafarstörfum, en var áður framkvæmdastjóri AFS á Íslandi, fréttamaður á RÚV og bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Í pólitískum efnum segist hann brenna fyrir því að byggðirnar úti á landi megi blómstra en þá sé margvíslegra aðgerða þörf. „Á Vestfjörðum sækir fjórði hver vinnandi maður vinnu sína í annað byggðarlag en viðkomandi býr í. Þetta staðfestir þörfina á greiðum leiðum milli svæða. Samgöngumál eru alltaf ofarlega á blaðinu úti á landi. Koma þarf afurðum fljótt og vel milla svæða og á markaði. Góðir vegir gagnast öllum og séu mann- auður og þekking fyrir hendi gerast hlutir í atvinnulífinu nánast af sjálfu sér. Í Norðvesturkjördæmi höfum við margar menntastofnanir, meðal annars á háskólastigi, sem þarf að efla eins og margt fleira, svo boltinn rúlli,“ segir Guðmundur og heldur áfram: Efla þarf græna ferðaþjónustu „Meira afhendingaröryggi raf- orku er líka stórmál sem bæta þarf úr, nú þegar bygging Hvalárvirkj- unar hefur verið sett á bið næstu ár- in. Orkumálin tengjast raunar mörgum fleiri viðfangsefnum, svo sem því að efla megi græna ferða- þjónustu. Skemmtiferðaskipin sem koma til Ísafjarðar með allt að 100 þúsund farþega þegar best lætur þarf að vera hægt að raftengja úr landi og draga þannig úr mengun. Slíkt telst til umhverfismála, sem eru orðin alltumlykjandi í okkar samfélagi.“ Guðmundur hefur í tímans rás jafnan verið virkur í ýmsu félagslegu starfi, þótt hann hafi ekki blandað sér í flokkspólitík fyrr en nú. Í seinni tíð hafi hugur sinn staðið til starfa fyrir samfélagið og þá hafi stjórn- málin legið beint við. „Viðreisn er flokkur fjálslyndis, jafnréttis og um- bóta og er alþjóðlega sinnaður. Slíkt fellur vel að minni lífssýn – auk þess sem ég tel að um margt sé auðveld- ara að tala fyrir breytingum innan nýrrar stjórnmálahreyfingar en í flokkum sem byggjast á langri sögu og hefðum. Núna er til dæmis nauð- synlegt að koma til móts við þá óánægju sem ríkir um fyrirkomulag á stjórn fiskveiða,“ segir Guð- mundur og bætir við: „Viðreisn talar fyrir sólarlags- ákvæðum í afnotarétti af auðlind- inni, sem ég tel að væri góð millileið. Nýliðun þarf í sjávarútvegi og einnig svigrúm fyrir fólk í sjávarbyggð- unum, sem vill geta sótt á fiskislóð- ina skammt frá landi. Allar hug- myndir til breytinga er vert að skoða, hvort sem þær lúta að fisk- veiðistjórn, Evrópumálum eða gjald- miðlinum. Einnig þurfum við að líta á fjölmenningu samfélagsins með já- kvæðum augum. Vestfirðir mættu sín lítils í dag ef þangað hefði ekki flutt fólk víða að úr veröldinni; vinnufúsar hendur sem halda grunn- atvinnuvegunum gangandi.“ Stjórnmálin snúast um samskipti við fólk Guðmundur segir að í Norðvest- urkjördæmi þekki hann eðlilega best til staðhátta á Vestfjörðum. Sem fréttamaður á RÚV í sex ár hafi hann þó líka kynnst vel staðháttum á Norðurlandi vestra og Vesturlandi; svæðum sem hann eigi eftir að ferðast um á næstunni og taka fólk tali. „Stjórnmál snúast í grunninn og fyrst og fremst um samskipti við fólk. Setja sig inn í mál og sjá stóru myndina og greina hagsmunina. Hverju þarf að breyta og hvernig er best að samfélagið þróist til fram- tíðar. Slíkt starf er áhugavert og gef- andi,“ segir Guðmundur Gunnarsson að síðustu. Góð nýting auðlinda er undirstaða endurreisnar - Guðmundur oddviti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Frambjóðandi Setja sig inn í mál og sjá stóru myndina. Hverju þarf að breyta og hvernig er best að samfélagið þróist, segir Guðmundur. Borgarnes Norðvesturkjördæmi er víðfeðmt, nær frá Hvalfjarðarbotni norður í Fljót. Svæðið er dreifbýlt og grunnatvinnuvegirnir ráðandi. Nokkur stúdentsefni úr Fjölbrauta- skólanum í Garðabæ (FG) raða sér hér í nettan þríhyrning á Austur- velli í gær. Dimmitering fór fram víða um bæinn eftir að nemendur heimsóttu skólann og skemmtu sér með skólafélögunum. Búningar stúdentsefna voru af ýmsu tagi og meðal þeirra appelsínugulir sam- festingar, eins og hér má sjá. Próf hefjast í FG eftir helgina og útskrift verður 29. maí næstkomandi. Morgunblaðið/Árni Sæberg Garðbæingar dimmi- teruðu á Austurvelli Karen Elísabet Halldórsdóttir, bæj- arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, og Vilhjálmur Bjarna- son, fv. þingmaður, hafa gefið kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins í Suðvesturkjördæmi. Karen sækist eftir þriðja sæti á lista flokksins og Vilhjálmur segist stefna „eins ofarlega og kostur er, helst ofar en þriðja sæti, eða ofar,“ segir í fréttatilkynningu hans. Auk setu í bæjarstjórn Kópavogs er Karen Elísabet skrifstofustjóri Raftækjasölunnar. „Ég legg höfuð- áherslu á að við náum að vinna á því atvinnuleysi sem Covid-19 hefur skapað. Til að það sé hægt þarf að huga að rekstrarumhverfi fyr- irtækja og sér í lagi lítilla og með- alstórra eininga,“ segir Karen m.a. í tilkynningu sinni. Vilhjálmur seg- ist leggja sín verk, skoðanir og við- horf til mannlífsins í dóm kjósenda. Hann hafi víðtæka þekkingu til að gegna starfi þingmanns. Vil- hjálmur sat á þingi fyrir Sjálfstæð- isflokkinn í Suðvesturkjördæmi kjörtímabilið 2013-2017. Karen Elísabet Halldórsdóttir Karen og Vilhjálmur í prófkjör Sjálf- stæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi Vilhjálmur Bjarnason Landsréttur staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Vesturlands um að Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Vilj- ans, skuli greiða þrotabúi Press- unnar ehf. 80 milljónir króna auk vaxta. Einnig var rift tilteknum veðsetningum á lausafé sem tengd- ust lánasamningum Pressunnar og Björns Inga. Málareksturinn tengdist gjald- þroti Pressunnar í desember 2017 en það félag rak áður dagblöð og vefmiðla á borð við pressan.is, eyjan.is og bleikt.is. Þá átti Pressan hlut í öðrum félögum sem voru í fjölmiðlarekstri, svo sem DV ehf. Björn Ingi var stjórnarformaður Pressunnar frá stofnun félagsins og þar til það varð gjaldþrota. Skömmu fyrir gjaldþrotið keypti félagið Frjáls fjölmiðlun ehf. eignir Pressunnar og með í þeim kaupum var yfirtaka á 80 milljóna króna skuld Pressunnar við Björn Inga sem Landsréttur hefur nú rift, m.a. á þeim forsendum að ekki hafi ver- ið staðfest að um raunverulega skuld hafi verið að ræða. Dæmdur til að greiða 80 milljónir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.