Morgunblaðið - 15.05.2021, Side 18

Morgunblaðið - 15.05.2021, Side 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021 EPLAEDIK HEFUR ALDREI SMAKKAST BETUR! Útsölustaðir: Apótek og heilsuhillur stórmarkaða. Glúten-og sykurlaust hlaup með eplabragði sem inniheldur 400mg af gæða eplaediki í hverjum skammti. 2 hlaup á dag. NÝTT LJÚFFENGT HLAUP EPLAEDIK Í TÖFLU- FORMI Apple cider frá New Nordic er nú fáanlegt í tveimur útgáfum Vestmannaeyjar eru mikil fuglaparadís. Þar verpa margar tegundir sjófugla og bjargfuglakliðurinn er sinfónía náttúrunnar sumarlangt. Algengustu sjófugl- arnir eru svartfuglarnir lundi, langvía, teista, stutt- nefja og álka en líka fýllinn og súlan. Þá verpa í Vest- mannaeyjum skrofa, stormsvala og sæsvala. Fleiri tegundir sjófugla sjást oft við Eyjar eins og kjói og skúmur sem koma aðallega til að ræna eggjum og æti annarra fugla. Einnig verpa margir mávar, t.d. rita, við sjávarsíðuna. Vaðfuglum og spörfuglum hefur verið að fjölga í Vestmannaeyjum, að því er segir á vefnum heimaslod- .is. Algengir eru tjaldur, heiðlóa, hrossagaukur og stelkur. Einnig sjást þar sandlóa, sendlingur og tildra. Nokkuð er af æðarfugli og grágæs hefur orpið á Heimaey undanfarin ár. Þykir líklegt að hún sé afkom- andi aligæsa í Brekkuhúsi suður á Heimaey. Auk hemafuglanna tylla margir farfuglarnir niður fæti í Vestmannaeyjum eftir komuna til landsins enda vorar þar snemma. Sigurgeir Jónasson, ljósmyndari í Vestmannaeyjum, er mikill fuglaáhugamaður og fylgist vel með fuglalíf- inu eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Hann hefur t.d. fylgst með því í um 70 ár hvenær svartfuglinn sest fyrst upp í björgin á hverju ári líkt og faðir hans heit- inn, Jónas Sigurðsson í Skuld, gerði áður. Skráningar þeirra feðga um komu svartfuglsins ná því yfir vel á aðra öld. Við ritun myndatexta var leitað í bók Sigurðar Ægis- sonar, Íslensku fuglarnir og þjóðtrúin. gudni@mbl.is Heiðlóa Hún var valin fugl ársins í samkeppni Fuglaverndar í vor. Lóan er uppáhaldsfugl marga og sannkallaður vorboði. Spói Hann er vitrastur allra fugla, samkvæmt þjóðtrúnni, og því gott að treysta „orðum“ hans eða því hvernig hann vellir. Maríuerla Fuglinn var líklega kenndur við gyðjuna Frigg, friggjarerla, í heiðni og síðar við Maríu guðsmóður. Lóuþræll Nafnið bendir til að hann sé í ánauð heiðlóu, sem er misskilningur, en fuglarnir fylgjast stundum að. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Steindepill Á öldum áður var óttast að steindepill gæti spillt nyt kúa og kinda. Sandlóa Einnig kölluð t.d. sandmenja. Sandlóan er lítið áberandi og mein- laus. Þjóðtrúin geymir lítið um hana en hún hefur verið yrkisefni skálda. Sólskríkja (snjótittlingur) Íslensk tunga geymir margt um snjótittlinginn, aðallega um að margt megi læra af honum um ókomin veðrabrigði. Vorkoma í Vestmannaeyjum Hrossagaukur Gaukmánuður var líklega kenndur við hrossagaukinn. Hann kemur einna fyrstur vorfuglanna. - Fjöldi fugla verpir í Vestmannaeyjum eða kemur þar við

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.