Morgunblaðið - 15.05.2021, Side 26

Morgunblaðið - 15.05.2021, Side 26
26 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifreidaverkstaedi.is Höfum sérhæft okkur í Toyota viðgerðum síðan 1995 Fljót, örugg og persónuleg þjónusta Allar almennar bílaviðgerðir Fyrir okkur sem börðumst fyrir bygg- ingu tónlistarhúss, sem síðar hlaut nafnið Harpa, er 10 ára af- mæli byggingarinnar einkar ánægjulegt. Það er vel við hæfi að opinberir aðilar, ríki og borg, skuli ætla að gefa Hörpu nýjan Steinway-konsert- flygil af bestu gerð í afmælisgjöf fyrir tilstilli Víkings Heiðars píanó- leikara. Hann mun fara til Ham- borgar, þar sem bestu Steinway- flyglarnir eru framleiddir, til að velja besta flygilinn í boði. Þetta minnir mig á að árið 1988 var keyptur nýr flygill af sömu gerð fyrir Íslensku óperuna og Tónlist- arfélagið í Reykjavík til að nota í Gamla bíói (Íslensku óperunni). Ég átti sjálfur frumkvæðið að þessu, en gamli flygill Óperunnar var þá kominn að fótum fram, enda hlotið illa meðferð, geymdur frammi í köldu anddyri Gamla bíós. Ég óskaði eftir frjálsum fram- lögum almennings og fyrirtækja til kaupa flygilsins, en hann kostaði þrjár milljónir króna á þágildandi verðlagi. Fjáröflunin gekk vel og voru þeir Halldór Haraldsson og Jónas Ingimundarson píanóleikarar beðnir að fara til Hamborgar til að velja góðan flygil, sem þeir gerðu. Kom flygillinn til landsins skömmu síðar og átti eftir að koma að mjög góðum notum. Haldnir voru vígslu- tónleikar flygilsins í Gamla bíói og komu þar fram 13 helstu píanóleik- arar landsins og hafa aldrei fleiri píanóleikarar komið fram saman á tónleikum á Íslandi að ég hygg. Sérstaklega var ánægjulegt að vinur minn Rögnvaldur Sigur- jónsson, sem ekki hafði spilað opin- berlega í áratugi vegna handar- meins, samþykkti að vera með og þótti það svo gaman að hann spilaði tvö lög á sinn einstaka hátt, glaður og skælbrosandi. Halldór Haralds- son spilaði handleggsbrotinn! Þetta var stórkostleg stund og mætti endurtaka uppátækið þegar nýi flygillinn kemur í Hörpu. Sem eftirmála langar mig til að segja frá því að alls kyns vandamál þurfti að leysa fyrir flygilinn í Gamla bíói. Það var ótækt að geyma hann frammi í kuldanum í anddyrinu, hann fór alveg úr still- ingu og kostaði það mikið fé að stilla hann fyrir hverja tónleika. Að auki þurfti að ráða fjóra píanóflutn- ingamenn til að flytja flygilinn bæði fyrir og eftir tónleika og kostaði það enn meira fé. En það var þröngt í húsinu og erfitt að finna pláss. Mér datt í hug að það væri hagstæðast að geyma hann í hljóm- sveitargryfjunni undir sviðinu þótt þar væri þegar þröng á þingi. En þá fann ég út að það var falskt gólf í salnum og fékk ég smiði til að brjóta tré- vegginn á bak við hljómsveitarstjórann. Kom þá í ljós að þar var mikið holrúm og nóg pláss fyrir stóran flygil undir gólfinu. En þá var eftir að finna lausn til að koma flygl- inum upp á sviðið. Ég leitaði til fyr- irtækja, sem væru með lausnir um lyftingu þungra hluta, og svo fannst eitt, sem var með mjög einfalda lausn; setja krók í loftið, hengja á hann togtæki með vír og lyfta upp flyglinum. En þá var enn eitt vandamál eftir; flygillinn myndi hanga í lausu lofti yfir hljómsveitar- gryfjunni, sem píanóleikarar hefðu kannski ekki treyst sér til. Þá datt mér í hug að láta smíða færanlega tréfleka til að setja yfir gryfjuna þannig að flygillinn væri hífður upp, flekarnir settir á sinn stað og flyg- illinn látinn síga ofan á þá og síðan ýtt inn á sviðið. Nú þurfti ekki að stilla flygilinn mikið fyrir tónleika og enga flutn- ingamenn. Þetta borgaði sig upp á einu til tveimur árum og var flygill- inn mikið notaður á næstu árum. Hvar hann er núna veit ég ekki, en við vorum bestu vinir í „den“. Talandi um flygla þá heyrði ég sögu um músíkalska sýslumannsfrú úti á landi, sem fékk bónda sinn til að kaupa fyrir sig flygil, sem hann og gerði. En þegar þau fluttu annað þá var flygillinn skilinn eftir í húsi þeirra. Eftir nokkra hríð var hann settur út á tún þar sem hann tók mikið pláss í húsinu og stóð alveg ónotaður. Bændum þótti þetta vera undarlegur gripur og seint og um síðir opnuðu þeir hann og sáu að of- an í trékassanum var heljarmikið tól, sem kannski mætti nýta. Þeir slógu utan af tólinu og tóku sjálfa hörpuna upp og var hún notuð sem plógur í jarðvinnu um alla sveit ár- um saman. En mikið væri það gaman ef nýi flygillinn í Hörpu yrði vígður af mörgum íslenskum úrvalspíanistum eins og sá gamli í Gamla bíói. Eftir Árna Tómas Ragnarsson Árni Tómas Ragnarsson » Það er vel við hæfi að opinberir aðilar, ríki og borg, skuli ætla að gefa Hörpu nýjan Steinway-konsertflygil af bestu gerð í afmælisgjöf. Höfundur er læknir. Flygill fyrir Hörpu Um daginn eða 5.5. 2021 birtist grein í Morgunblaðinu þar sem ég skrifaði um áform Hitaveitu Reykja- víkur, Orku náttúrunnar og Carbfix í mengunarmálum, með fyrirhugaða förgunarstöð Coda Terminal við Straumsvík í huga. Hef ég nú í hyggju að bæta um betur. Kolefnisföngun og -förgun eða KFF, sem er þýðing á hugtakinu CCS Carbon Capture and Storage, gengur út á eftirfarandi þætti: 1. Búnað til föngunar á kolsýringi CO2 í erlendri verksmiðju eða raf- orkuveri sem notar jarðefnaelds- neyti. 2. Leiðslukerfi til flutnings á kol- sýringi frá verksmiðju að vökvagerð- arstöð á hafnarsvæði, en sjaldnar með flutn- ingabílum eða lestum, sem er áætlað tvöfalt dýrara. 3. Vökvagerðarstöð sem frystir kolsýring- inn og sendir í tanka á hafnarsvæði. 4. Flutningaskip sem tekur við kolsýringi frá tönkunum (-50 °C og 7 bar) og flytur til Ís- lands. Siglingatími hvorrar leiðar er fjórir dagar með eins sólar- hrings dvöl í höfn við löndun og los- un. Hringurinn tekur því samtals 10 daga og með þremur skipum er þá landað í Straumsvík á 3,3 daga fresti. 5. Coda Terminal-blöndunarstöð og niðurdælingu í berggrunninn við Straumsvík. Liðir 3 til 5 voru teknir fyrir í fyrr- nefndri Mbl.-grein en nú ætla ég að skoða liði 1 og 2. Til samanburðar má nefna að með því að taka aðeins tillit til atriða 3 til 5 var það hugsað eins og í safnstöð Sorpu, að þeir sem óska eftir að losna við sorp geta afhent það í greining- arstöð. Hins vegar ef menn losa sitt sorp heima við í öskutunnur þá þarf að sækja það alla leið til neytandans og aka sorpinu til förgunarstöðvar, samanber liði 1 og 2. Kostnaður við kolefnisföngun Í tiltækum gögnum var leitað eftir kostnaðarverði fyrir kolsýrings- föngun og horft sérstaklega til kola- orkuvera. Áætluð niðurstaða er 40 USD/tCO2 en hafa ber í huga að breytileiki er töluverður og áætlunin í lægra lagi miðað við uppgefið óvissubil. Sjá meðfylgjandi mynd. Þessi niðurstaða leiðir í ljós að ólíklegt er að KFF muni nokkurn tíma ná flugi á heimsmælikvarða og verði aðeins tekið upp og notað í samræmi við almenna stefnumörkun stjórnvalda í hverju landi fyrir sig, í tengslum við alþjóðlega stefnumörk- un og heimsmarkmið og ávallt með hliðsjón af hagkvæmni. Hér er hvorki tekið tillit til skatt- lagningar vegna út- eða innflutnings milli landa né sértækra ívilnana t.d. frá stjórnvöldum. Hliðstæður Í verkfræðinni í gamla daga lásum við í hljóðfræðinni, að til að losna við hávaða þyrfti eitt af þrennu: Stöðva hávaðann á uppruna- stað, einangra húsið t.d. með tvöföldu gleri eða halda fyrir eyrun. Ef vandamálið er kolsýrumengun frá kolaraforkuveri þá væri Coda Term- inal með þá lausn að urða kolsýring- inn hinum megin við hafið á sama hátt og að halda um eyrun í tilviki hljóðmengunar. En í rauninni væri eina vitið að stöðva ósómann á upp- hafsstað. Leið í þessum málum væri að iðju- verin á upphafsstað, t.d. í Hollandi, losuðu sinn útblástur út í loftið áfram eins og hingað til, en lofthreinsunar- stöð á Íslandi hreinsaði loftið á móti. Andrúmsloftið væri þannig óbeint notað sem flutningsmiðill fyrir kol- sýringinn. Þessi aðferð er nú til rannsóknar hjá svissneska fyrir- tækinu Climeworks sem er með rannsóknaraðstöðu við hliðina á til- raunaverksmiðju Carbfix á Hellis- heiði. Nokkrar staðreyndir KFF er afskaplega dýr lausn, og ekki hjálpar að hún er orkufrek. Til að farga 31 MtCO2/ári hafa ver- ið reistar nokkrar verksmiðjur í ýms- um löndum á undanförnum árum, en hvergi heppnast sem skyldi. Margar verksmiðjur eru fyrirhugaðar. Fljótlegasta og öruggasta leiðin til að minnka kolefnismengun vegna framleiðslu í raforkuverum sem nota jarðeldsneyti er að loka þeim hið snarasta og virkja í staðinn end- urnýjanlegar orkulindir til að fram- leiða græna raforku. Sú þróun er nú í fullum gangi um allan heim, aðallega með vind- og sólarorkuverum, drifin áfram af miklu ódýrari lausnum en þeim sem nota jarðefnaeldsneyti. Kostnaður við KKF er vissulega mikill hjá áburðarverksmiðjum og jarðvarmavirkjunum en enn þá meiri eða jafnvel miklu meiri hjá sementsverksmiðjum og kolaorku- verum, svo dæmi séu tekin. Erlendar reynslutölur hafa leitt í ljós að kostnaður við KFF fyrir kol- arafstöð gæti verið allt að sex sinn- um meiri en að reisa ný jafnstór vind- og/eða sólarorkuver ásamt raf- hlöðum með varaafli til að framleiða raforku þegar skortur er á vindi eða sólskini. Staðhæft hefur verið að með KFF sé verið að leitast við að lengja að óþörfu endingartíma gamalla og úr- eltra raforkuvera sem nota jarð- efnaeldsneyti og með tilheyrandi só- un á almannafé. En hvers vegna Straumsvík? Er skortur á aðstöðu í heiminum til að urða kolsýring? Stutta svarið er nei. Það er alls staðar nóg af stöðum, þar sem hver notar sína aðferð við förg- un allt eftir staðháttum. Sá kostur að senda kolsýring til Íslands til urð- unar er kostnaðarsamari, en kannski betri í sumum tilvikum. Þó ætti helst að urða úrganginn „á staðnum“, að svo miklu leyti sem kostur er. Niðurstaða Líklega er eitthvað til í því að kol- efnisverð á mörkuðum þyrfti að fara vel yfir 100 USD/tCOv til að Coda Terminal-hugmyndin gengi upp. Kannski er verðið á leiðinni þangað! Meira um Coda Terminal Eftir Skúla Jóhannsson » Athafnir mannanna losa 43.000 MtCO2/ ári og eldfjöll 200 MtCO2/ári. Förgunar- stöðvar í heiminum binda nú 31 MtCO2/ári, en Carbfix mun binda 3 MtCO2/ári. Skúli Jóhannsson Höfundur er verkfræðingur. skuli@veldi.is Jónas forstjóri kom til Gunnars einn eft- irmiðdag á tveggja manna tal. „Þetta er athyglisvert sem þú sagðir okkur í kaffi- tímanum um sérstakt frítekjumark atvinnu- tekna. Ég hafði ekki hugmynd um hvernig þessi eldriborgaramál eru í raun. Ég vildi helst að þú starfaðir hjá okkur til áttræðs ef Guð lofar, eins og þú segir. Hitt er ann- að að ef þú af ein- hverjum ástæðum vilt eða þarft að hætta að vinna, þá verður það svo. Þú ert með lengst- an starfsaldur hjá okkur. Árin eru orðin 45. Svo lækkaðir þú starfs- hlutfallið fyrir um fimm árum, þeg- ar þú byrjaðir að taka út úr lífeyrissjóðnum þínum, en vinnur samt flesta daga fullan vinnudag. Þetta er fá- heyrt og við kunnum að meta svona starfs- kraft. Ég sló á þessar tölur sem þú minntist á og mér reiknast til að með 100 þúsund króna mánaðartekjum frá okkur í framhaldi af að þú létir af störf- um, þá lagaðist tekju- tapið og yrði 75% af núverandi launum. Við getum kallað þetta biðlaun, starfslaun, nefndarlaun eða eftirlaun, hvað sem hentar. Á með- an allt leikur í lyndi hjá okkur í rekstrinum, Gunnar minn, verður þetta í boði við starfslok. Við ætt- um kannski að kalla þetta „einka- tryggingagjald“, því ég veit ekki betur en við borgum ríkinu rúm 6% í tryggingagjald, sem á meðal ann- ars að fara í að greiða þér óskertan ellilífeyri.“ Gunnar var orðlaus við þetta tekjutilboð og leit vandræðalegur í gaupnir sér. Jónas hélt áfram: „Við skulum hafa þetta skriflegt milli okkar. Jóna mun njóta þessa áfram ef þú fellur frá. Ég held að það sé líka sanngjarnt.“ Á leiðinni heim í landkrúsernum sínum, sem var kominn á tíma, varð Gunnari hugsað til Teslu- draumsins. Ef Grái herinn vinnur málið, þá kannski. Hann var næst- um farinn yfir á rauðu ljósi vegna spenningsins að komast heim og segja Jónu frá óvænta eftirlauna- samningnum. Tómas Láruson Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Óvæntur eftirlaunasamningur Tómas Láruson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.