Morgunblaðið - 15.05.2021, Side 35

Morgunblaðið - 15.05.2021, Side 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021 Elsku Ingi frændi, ég skil ekki af hverju lífið þarf að vera svona ósanngjarnt. En lífið tekur stundum óvæntar stefnur og leiðir okkur slíkan veg sem maður hefur ekki stjórn á. Ég hef þekkt þig frá því ég fæddist og varst þú ávallt í miklu uppáhaldi hjá mér. Þú gafst alltaf mikið af þér og vald- ir allar tækifærisgjafir af mikilli kostgæfni. Yfirleitt gafst þú vel valdar bækur, þér var nefnilega svo annt um að unga fólkið læsi sér til gagns. Oftast vöktu bæk- urnar lukku en stundum ekki, vegna þess að mig langaði meira í veraldleg stundarfyrirbæri. Þegar ég síðan hitti þig spurðir þú mig alltaf hvort ég hefði haft gaman af bókinni, og ef ég hafði ekki lesið hana varð ég hálf- vandræðaleg. Í seinni tíð hef ég áttað mig á því hversu mikilvæg- ar bækur eru börnum og ég varð spennt fyrir hönd barnanna minna hvaða bækur þær fengju að gjöf frá þér. Ég er nefnilega svo heppin að börnin mín hafa fengið að kynnast þér. Þú hvatt- ir mig til þess að stunda tónlist- arnám og mennta mig vel. Þú fylltist miklu stolti þegar ég út- skrifaðist frá hverju skólastigi, því þér fannst þau öll mikilsverð. Nú síðast þegar ég fékk leyf- isbréf sem kennari hafðir þú orð á því að ég ætti eftir að verða góður kennari. Á þeim tveimur árum sem ég hef starfað sem kennari hef ég oft hugsað: „Hvað myndi Ingi frændi gera?“ Okkur þótti ákaflega gaman að tala saman um kennsluna. Ég hafði ekki síður gaman af því að heyra sögur frá þínum kennslu- ferli og að fá að læra af þinni reynslu var mér mikill heiður. Ég hlakkaði alltaf til að mæta í veislur og í heimsóknir vegna þess að ég vissi fyrir víst að þú myndir spyrja mig út í lífið og tilveruna ásamt því að gefa mér góð og gagnleg ráð. Þú hafðir nefnilega svo mikinn áhuga á fólkinu þínu. Þú varst alltaf svo stoltur af fjölskyldunni þinni og talaðir óspart um það. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kveðja þig áður en þú fórst yfir í draumalandið á spítalanum hinn 29. apríl sl. Það er mér sér- staklega minnisstætt og í þínum anda þegar þú skammaðir hjúkrunarfræðinginn fyrir að lækka í landsleiknum á móti Litáen. Síðustu orð mín til þín voru tilfinningaþrungin þegar ég sagði við þig með tárin í aug- unum: „Ingi frændi, ég vil að þú vitir að mér þykir ofboðslega vænt um þig, við sjáumst seinna,“ og þú svaraðir: „Mér þykir líka vænt um þig Jóhanna mín.“ Jóhanna M. Þorvaldsdóttir. Við kveðjum elsku Inga frænda okkar með sorg og eft- irsjá. Fyrir ekki svo löngu að- stoðuðum við hann við flutninga á Skúlagötuna, þar sem hann ætlaði að njóta eftirlaunaáranna. Því miður varð tíminn þar allt of stuttur og hann var tekinn frá okkur allt of snemma. Í sorg og söknuði yljum við okkur við hlýj- ar minningar og er af nógu að taka. Ingi var ömmubróðir okkar. Valdimar Ingibergur Þórarinsson ✝ Valdimar Ingi- bergur Jón Oddur Þórarinsson fæddist 19. október 1950. Hann lést 2. maí 2021. Útför Valdimars fór fram 10. maí 2021. Hann var mikill fjölskyldumaður og naut þess að um- gangast sína nán- ustu. Ingi vakti at- hygli víða. Hann var hávaxinn og dimmraddaður, en hið allra mesta ljúf- menni. Hann var virkur í ýmsum fé- lags- og íþrótta- störfum, sat í stjórn Óháða safnaðarins áratugum saman, var dyggur valsari og Derbymaður og missti helst ekki úr leik. Hann var fyrirmyndar- starfsmaður og vann hjá Sam- skipum í hátt í fjóra áratugi. Hann var hláturmildur, blíður og með eindæmum talnaglöggur og klár. Af þessum eiginleikum einkenndist ræðumennska hans. Ingi hélt oft tilfinningaríkar ræður í veislum og klökknaði oftast, sem sýndi þann ljúfa og góða mann sem hann hafði að geyma. Ingi var mikill reikn- ingskúnstner, lagði alla afmæl- isdaga á minnið og á afmælis- dögum fengum við systkinin að vita hve marga daga við hefðum lifað. Systrum sínum og móður unni hann heitt og samband þeirra var náið og einstakt. Reyndar átti Ingi einstakt sam- band við alla sína fjölskyldu, en þrátt fyrir að vera barnlaus sjálfur átti hann heilan hóp af frænkum og frændum sem nutu samverustunda með honum. Hann var gríðarlega stoltur að fá nafna þegar bróðir okkar fæddist og á milli þeirra mynd- aðist einstakt samband. Það var alltaf gaman að eyða áramótunum með Inga frænda. Honum þótti svo gaman að fara út með okkur systkinunum að sprengja flugelda og keypti allt- af stærsta flugeldapakkann. Það er ógleymanlegt þegar hann kallaði alla fjölskylduna út í garð hjá ömmu og afa því hann ætlaði að sprengja stærstu tívolíbomb- una og vildi að allir sæju. Hann tróð spýtunni á bombunni í tóma vínflösku, kveikti í og bakkaði frá. Við biðum öll í kring eftir að hún tæki á loft en áttuðum okk- ur svo á því að bomban væri föst í vínflöskunni. Við reyndum að flýja inn í hús en á seinustu stundu náði bomban, með naum- indum, að fara af stað með vín- flöskuna fasta við sig, lenti uppi á þaki og sprakk þar. Sem betur fer slasaðist enginn og það var mikið hlegið að þessu. Við systk- inin minnumst einnig allra góðu stundanna í Gnoðarvoginum og margra bústaðarferða, með hlátri og hlýju. Ingi var sérlega barngóður og lét það ekki á sig fá að vera dreginn út af frænku sinni til að sippa. Það er afskaplega dýr- mætt að eiga frænda sem er alltaf til staðar, mætir stundvís- lega í öll afmæli, sendir jólakort árlega. Ingi var sérlega gjaf- mildur maður og gaf öllum jóla- gjafir, meira að segja lang- ömmubörnum systur sinnar. Það er sárt að kveðja þennan ljúfling allt of snemma og hann skilur eftir sig mikið tómarúm í hjörtum okkar. Áfram lifir minningin um yndislegan frænda. Íris, Signý, Steindór Ingi og Hólmfríður. Nú kveðjum við einn af mátt- arstólpum Óháða safnaðarins til margra ára með þökkum og hlýju í hjarta. Valdimar Ingi- bergur, sem ávallt var kallaður Ingi, var yfir 30 ár í safnaðar- stjórn Óháða safnaðarins og gegndi lengst af starfi gjaldkera. Ingi var hæglátur maður sem ávallt var hægt að stóla á. Hann mætti á alla safnaðarstjórnar- fundi nema tvo, sem kom til vegna veikinda. Ingi passaði vel upp á fjármuni safnaðarins og eru trúlega fáir söfnuðir sem geta státað af sömu ráðdeild og nákvæmni í meðförum fjármuna og Óháði söfnuðurinn á starfs- tíma Inga. Við starfslok fyrir um tveimur árum skilaði Ingi af sér góðu búi fyrir þá sem tóku við keflinu. Það var blik í augum Inga þegar hann kvaddi safnaðar- stjórnina og ætlaði að fara að njóta efri áranna eftir farsælt ævistarfi. Því miður er ekki öll- um ætlað að fá að njóta ævi- kvöldsins. Fljótlega eftir að Ingi hætti að vinna greindist hann með þann sjúkdóm sem að lokum lagði þennan stóra mann að velli. Minning um Inga og sam- starfið við hann mun lifa með okkur sem fengum að kynnast honum um ókomin ár. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið, og þín er liðin æviönn, á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. Þín vinartryggð var traust og föst og tengd því sanna og góða, og djúpa hjartahlýju og ást þú hafðir fram að bjóða. Og hjá þér oft var heillastund, við hryggð varst aldrei kenndur. Þú komst með gleðigull í mund og gafst á báðar hendur. Svo vinur kæri vertu sæll, nú vegir skilja að sinni. Þín geta máttug verndarvöld á vegferð nýrri þinni. Með heitu, bljúgu þeli þér ég þakka kynninguna, um göfugan og góðan dreng ég geymi minninguna. (Höf. ók.) Safnaðarstjórn Óháða safn- aðarins sendir fjölskyldu Inga hugheilar samúðarkveðjur. Björg Valsdóttir, formaður safnaðarstjórnar Í dag kveðjum við Inga, okk- ar góða vin. Fyrir nokkrum ára- tugum byrjuðum við félagarnir að spila innanhússfótbolta sam- an. Smátt og smátt vatt vin- skapurinn upp á sig og við fór- um að hittast fyrir utan fótboltavöllinn. Eins og gjarnan gerist í slíkum hópi var galsinn aldrei langt undan. Á þessum tíma hafði söngkonan Madonna gefið út sína fyrstu bók og skilj- anlega vakti hún athygli okkar félaganna. Mikið var rætt um bókina og í framhaldinu festist nafnið Madonna við hópinn. Þegar við hættum sjálfir að spila fótbolta og boltinn fikraði sig smátt og smátt frá tánum og upp á miðbik líkamans fórum við í auknum mæli að hittast yf- ir leikjum í ensku knattspyrn- unni. Oftar en ekki heima hjá Inga, enda gekk Gnoðarvogur 28 alltaf undir nafninu Félags- heimilið í okkar hópi. Þegar Ingi flutti varð Skúlagata 40b auðvitað nýja félagsheimili Madonnu, en því miður áttum við allt of fáar stundir þar sam- an. Ingi var alla tíð aðaldriffjöð- ur Madonnu og skal engan undra þar sem Ingi var mikill Valsari og ríflega helmingur fé- lagsmanna Madonnu fylgdi hon- um þar að málum eða eins og Ingi hefði orðað það: 62,5% fé- lagsmanna Madonnu eru Vals- menn. Þegar kom að enska boltan- um vorum við dreifðari. Flestir fylgdu liðum í úrvalsdeildinni, en Ingi skar sig úr. Hann var alla tíð stuðningsmaður Derby. Án efa þeirra dyggasti stuðn- ingsmaður hér á landi og þótt víðar væri leitað. Það skipti engu máli hvernig gekk hjá Derby, alltaf stóð Ingi eins og klettur við hlið þeirra og fylgdi þeim í gegnum súrt og sætt. En þannig var Ingi, hann stóð með sínu fólki og það fengum við fé- lagarnir í Madonnu að reyna á eigin skinni. Félagsskapurinn var honum ákaflega hjartfólginn og hann tók þátt í gleði okkar og sorgum í fullri einlægni. Skiljanlega spil- aði Derby aldrei stærstu leikina í enska boltanum en ef tvö lið annarra félagsmanna áttust við lét Ingi aldrei uppi með hvoru liðinu hann stóð. Okkur grunar þó að hann hafi ekki orðið fyrir vonbrigðum með úrslit ensku deildarkeppninnar árið 2020. Við félagarnir gerðum ýmis- legt saman. Fórum á veitinga- staði og jólagleði Madonnu er ómissandi árviss atburður. Farið var til London í nokkur skipti til þess að horfa á fótbolta en við lofuðum Inga að þegar Derby kæmist upp í úrvalsdeildina myndum við allir fara saman á Pride Park. Nú stendur það upp á okkur að efna loforðið ef Derby tekur á sig rögg. Það lít- ur ekki vel út í augnablikinu en þegar Ingi lá banaleguna gerði hann að gamni sínu og sagðist sjá til þess, hinum megin frá, að hagur Derby færi að vænkast. Við erum vissir um að Ingi stendur við þau orð eins og allt annað sem hann lofaði að gera. Eins og fyrr er sagt var Ingi einlægur stuðningsmaður Vals. Hann átti sitt sæti á Valsvell- inum sem enginn þorði að snerta enda hætta á að Valur tapaði ef hróflað væri við því. En Ingi var sanngjarn og sætti sig við tap, jafnvel á móti KR, ef það var verðskuldað. Við félagarnir höfum misst góðan vin og söknum hans sárt en minningu hans geymum við í hjörtum okkar. Við munum alltaf halda með Derby! Félagar í Madonnu, Áki, Grétar, Óttar, Sigurjón, Steindór, Þórarinn og Þórir. Það er ekki laust við að það fari um okkur skólasystkinin þegar við heyrum af andláti bekkjarfélaga. Við sem vorum saman í fjögur ár í Kennaraskól- anum og útskrifuðumst vorið 1972 sjáum nú á bak fjórða fé- laga okkar. Og við sem erum fyrst núna að láta af kennslu, svo næsti kafli í lífi okkar megi hefjast. Í þetta sinn er það félagi okkar, Valdimar Ingi. Sum okkar kenndu í upphafi, en færðu sig síðan í önnur störf. Það kom fljótlega í ljós að námið nýttist okkur vel, hvort sem við fórum áfram í framhaldsnám eða skiptum um starfsvettvang. Valdimar Ingi gerðist fljótlega gjaldkeri hjá skipafélagi og starfaði þar í áratugi, alltaf trúr og traustur. Og honum var trúað fyrir fleiru. Hann var gjaldkeri Óháða safnaðarins í þrjá áratugi og lét ekki af því starfi fyrr en veikindi sögðu til sín. Það traust sem Valdimar var sýnt kemur okkur skólasystkin- unum ekki á óvart. Það er sama hvert okkar lýsir honum, ætíð er þess minnst hversu vandaður maður hann var. Ljúfur, hóg- vær, prúður og hlýr. Hann sinnti okkur E-bekkingunum vel, mætti alltaf á fundi okkar og fagnaði – og var þar ætíð til fyr- irmyndar. Við munum eftir hon- um þar sem hann gengur til okkar, með sína góðu nærveru, spyr okkur frétta úr eigin lífi og talar fallega um skólafélagana. Við munum sakna Valdimars Inga þegar við höldum upp á hálfrar aldar afmæli útskriftar okkar næsta vor. En því meira hugsum við til hans og erum þakklát fyrir meira en hálfrar aldar vináttu. Hvíl þú í friði, ágæti félagi. F.h. E-bekkjarins 1972, Már Viðar Másson. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug, allar kveðjurnar og blómin við andlát og útför ástkærs sonar okkar, ÞJÓÐBJÖRNS JÓHANNSSONAR, Háengi 6, Selfossi. Guð blessi ykkur öll. Guðríður Hannesdóttir Jóhann Þóroddsson Valgerður Jóhannsdóttir Saikou Badjie Rannveig Jóhannsdóttir Sigurbrandur Jakobsson og fjölskylda Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, SIGRÍÐAR PÉTURSDÓTTUR, Stellu, Garðabraut 10, Akranesi. Sérstakar þakkir fær yndislegt starfsfólk Hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða Akranesi og Heilbrigðisstofnunar Vesturlands Akranesi fyrir hlýhug og góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Viktor Björnsson Díana Bergmann Valtýsdóttir Helga Björnsdóttir Baldur Bjarnason Ásdís Gunnarsdóttir Björn Vignir Björnsson Sigrún Óskarsdóttir og barnabörnin Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSTA HALLDÓRA ÁGÚSTSDÓTTIR, Birkihvammi 5, Kópavogi, lést sunnudaginn 9. maí á líknardeild Landspítalans. Útförin fer fram frá Garðakirkju fimmtudaginn 20. maí klukkan 13. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðeins fjölskylda og nánustu vinir viðstaddir en beint streymi verður frá: https://youtu.be/JjJ2K_8Hsck Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Bláan apríl, styrktarfélag barna með einhverfu. Ágúst Þór Gunnarsson Hólmfríður Sigurðardóttir Ólafur Sævar Gunnarsson Hulda Björk Gunnarsdóttir Helgi Valberg Sigurlaug Gunnarsdóttir Hafsteinn Haraldsson Gunnhildur Gunnarsdóttir Rannver Eðvarðsson Valdimar Grétar Gunnarsson Katrín Einarsdóttir Gunnar Gunnarsson Anna María Bjarnadóttir barnabörn og langömmubörn Hjartans þakkir sendum við vinum, ættingjum og öllum þeim sem sýnt hafa okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, STEINUNNAR GUÐNÝJAR PÉTURSDÓTTUR. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á Öldrunarheimilinu Hlíð fyrir hlýju og umhyggju í hennar garð. Kristinn Jóhannesson Tuula Jóhannesson Pétur Jóhannesson Berit Jóhannesson Sigurjóna Jóhannesdóttir Anna Jóhannesdóttir Ágúst Hafsteinsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir, afi, bróðir, tengdafaðir og vinur, MATTHÍAS EYDAL líffræðingur, lést miðvikudaginn 5. maí. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 19. maí klukkan 11. Streymt verður frá athöfninni. Hlekk á streymi má nálgast á mbl.is/andlat Bergþóra Vilhjálmsdóttir Rakel Salóme Eydal Einar Helgi Kjartansson Marta Eydal Guðmundur Jónsson Sara Fönn Einarsdóttir Hrafn Andri H. Eydal, Hinrik Steinn H. Eydal og Matthías Halldór G. Eydal

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.