Morgunblaðið - 15.05.2021, Qupperneq 45
MENNING 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2021
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
„Undanfarin tólf ár hef ég verið að horfa á
staði og hluti í umhverfinu sem tákna einhvers
konar breytingar í tíma. Frá árinu 2018 hef ég
verið að fylgjast með leifum af trjám sem koma
í ljós núna við rætur Breiðamerkurjökuls.
Þetta eru u.þ.b. þrjú þúsund ára gróðurleifar
sem hafa verið undir jöklinum og varðveist
mjög vel, en við bráðnun jökulsins kemur í ljós
allt þetta umhverfi sem hefur verið hulið undir
honum,“ segir Bjarki Bragason myndlistar-
maður sem opnar einkasýningu sína Samtímis
– synchronous, á vegum Listasafns ASÍ í sam-
starfi við og í Svavarssafni á Höfn í Hornafirði,
í dag, laugardag. Þar veltir hann fyrir sér tím-
anum í stóra samhenginu, tíma mannsins í
samanburði við tíma gróðurs og jarðfræði.
„Í sýningunni dreg ég línur á milli tveggja
trjáa sem ég hef verið að fylgjast með. Ég er
að bera tréð undan Breiðamerkurjökli saman
við tré sem ég var að fylgjast með í Sagehen-
skóginum í Sierra Nevada-fjöllum Kaliforníu.
Ég dvaldi þar í gestavinnustofu sem tilheyrir
Kaliforníuháskóla í Berkeley, en þetta er til-
raunaskógur þar sem vísindafólk notar skóg-
inn sem rannsóknarstofu, til að fylgjast með
hegðun hans. Þessi skógur var svo gott sem
allur höggvinn til grunna í gullæðinu í Kali-
forníu á nítjándu öld, en að gullæði loknu
spruttu ný tré og þarna eru því mjög fá forn
tré. Tré á þessum slóðum geta orðið mörg þús-
und ára gömul, dæmi eru um tré sem eru um
fimm þúsund ára gömul. Eitt fárra fornra trjáa
sem urðu eftir í þessum skógi er aðalviðfangs-
efni rannsóknar minnar, en það var ekki
höggvið af því það óx skakkt og hentaði ekki í
sögunarmyllur. Fyrir um tveimur áratugum
féll það loks undan eigin þunga. Í dvöl minni í
þessum skógi var ég að skoða þetta tré sem
ákveðinn einstakling sem opnar dyr inn í flókið
samspil menningar, hagkerfis og lífríkis, og í
sýningunni er ég að draga saman tengingar á
milli þessara tveggja trjáa á ólíkum stöðum í
heiminum, sem hvort á sinn máta opnar vídd
inn í tímann. Annars vegar vídd þrjú þúsund ár
aftur í tímann hér á Íslandi, hins vegar vídd inn
í þau fjögur hundruð ár sem hitt tréð óx í Kali-
forníu. Þessi tvö tré opna líka inn í ólíkar
ástæður þess að hlutir breytast.“
Handleika, horfa, snerta bæði trén
Bjarki segir að á þeim gatnamótum sem nú
eru í veraldarsögunni þar sem hröðun eigi sér
stað finnist sér áhugavert að pæla í hvernig
tíminn líður með mismunandi hætti, á mismun-
andi tímabilum.
„Það sem gerist í loftslagsbreytingum er að
atburðir sem eiga sér stað á stuttum tíma, til
dæmis tíminn frá iðnbyltingu, þeir hafa áhrif á
kerfi sem vanalega væru miklu hægbreyti-
legri. Birkitréð sem kom undan Breiðamerk-
urjökli var kannski hundrað ára gamalt fyrir
þrjú þúsund árum, en geymist í einhvers konar
hylki undir jöklinum og kemur í ljós á svip-
uðum tíma og hitt fjögur hundruð ára tréð er
að falla í Kaliforníu, en það byrjaði að vaxa á
sautjándu öld. Mér finnst áhugavert að skoða
þessa skrýtnu stuttu og löngu tíma. Jökullinn
er í þúsundir ára að formast en hann gjör-
breytist nú með aðeins árs millibili vegna
bráðnunar sem er afleiðing hlýnunar jarðar.
Við lifum á svo abstrakt tímum.“
Bjarki segist mikið hafa handleikið, horft á
og snert þessi tvö tré og skoðað brot úr þeim.
„Á sýningunni nálgast ég þetta út frá skúlp-
túrískum forsendum. Ég bað líffræðinga að
bora kjarna í gegnum leifarnar af stofni trésins
í Kaliforníu og ég stækkaði upp hundraðfalt
þennan 80 sentimetra kjarna sem er hálfur
þverskurður af trénu. Þetta verður til þess að
manneskjan minnkar andspænis verkinu. Ég
nota ýmsar slíkar aðferðir til að nálgast spurn-
ingarnar: Hvenær gerist eitthvað? Hvernig
upplifir maður að breyting eigi sér stað?
Hvernig getur maður komist í tengsl við að
eitthvað hafi gerst fyrir þrjú þúsund árum? Ég
nálgast það út frá einni steinvölu sem var graf-
in inn í trjábol trésins sem kom undan Breiða-
merkurjökli. Tréð hefur grafist undir jarðvegi
á sínum tíma og grjótið þrýst sér inn í börkinn,
þetta gerist á ákveðnu andartaki sem varðveit-
ist í þessum eina steini. Þegar maður horfir á
þennan stein þá er hann hlaðinn orkunni af
þessu löngu horfna andartaki, þessum
árekstri. Þannig reyni ég að beita áhorfi til að
skilja. Með þessari sýningu er ég að reyna að
skilja hvernig maður getur skilið tímann.“
Rannsakar garð afa síns og ömmu
Bjarki hefur verið í góðu samstarfi við jarð-
fræðinga, fornleifafræðinga og fleira fagfólk í
sínum rannsóknum. „Ég vinn mikið á milli
greina, bæði í starfi mínu sem myndlistar-
maður og í Listaháskólanum sem fagstjóri í
myndlistardeild. Ég fæ mjög mikið út úr því
samtali, því þetta snýst um að reyna að skilja
og opna spurningar. Ég nálgast þetta bæði
út frá skynjun og þekkingarleit, upplifun í
myndlist er oft sambland fyrri þekkingar og
skynjunar og skynfæranna, líkamans.“
Bjarki segir að sýningin á Höfn sé hluti af
stærra verkefni, en undanfarin tólf ár hefur
hann verið að skoða húsagarð ömmu sinnar
og afa í Kópavogi.
„Þetta er tveggja parta einkasýningaverk-
efni með Listasafni ASÍ, annað verkefnið er
hér á Höfn, en hitt verður í Kópavogi og
verður áframhald þar sem ég hef verið að
nota húsagarðinn sem nokkurs konar
rannsóknarstofu í því hvernig tíminn breytir
stað. Þessi sýning hér á Höfn sprettur úr því
að ég hef verið að reyna að spegla nær-
umhverfið í stærra hnattrænu umhverfi.
Þetta byrjaði allt með húsagarðinum sem fór
í órækt eftir að afi og amma féllu frá, og ég
hef notað garðinn sem heildrænt umhverfi
þar sem breytingar á persónulegum skala og
hnattrænum tengjast. Garðurinn kallast á
við tilraunaskóginn í Kaliforníu og þessi per-
sónulegi vettvangur þar sem manneskjan
speglar sig í heiminum.“
Hornafjörður einn af örlagastöðunum
Bjarki segist hafa taugar til Hornafjarðar,
hann hafi nokkrum sinnum verið í sveit þar
sem krakki.
„Ég var stundum í sveit hér hjá Helgu
Erlendsdóttur frænku minni myndlist-
armanni og hér steig ég mín fyrstu skref í að
mála. Helga kenndi mér að mála og þegar ég
var tólf ára kynntist ég hér þýsk-dönskum
myndlistarmanni, Evelyn Mittman, sem var
gestur á hóteli frænku minnar. Evelyn var
allan daginn úti að mála, stúdera umhverfi
sitt á skipulagðan máta og ég heillaðist af
henni, hún sat úti tíu tíma á dag og hafði
ferðast um allan heim til þess að horfa á nátt-
úruna. Við skrifuðumst á næstu árin og urð-
um miklir og góðir vinir og upp frá því ferð-
umst við reglulega saman. Evelyn var í raun
minn lærimeistari í því að sitja lengi og horfa
á viðfangsefni til þess að skynja það. Þessar
sumardvalir mínar hér á Hornafirði voru
mjög opnandi fyrir mig, þetta er einn af mín-
um örlagastöðum og sannarlega er örlaga-
mikil fegurð hér. Landið hér er alveg ep-
ískt.“
Morgunblaðið/Einar Falur
Bjarki „Mér finnst áhugavert að skoða þessa
skrýtnu stuttu og löngu tíma,“ segir hann.
Tré sem opna vídd inn í tímann
- „Ég er að bera tré undan Breiðamerkurjökli saman við tré sem ég var að fylgjast með í Sagehen-
skóginum í Sierra Nevada-fjöllum Kaliforníu,“ segir Bjarki Bragason um sýningu sína á Höfn
Kaliforníutréð Það var skakkt og var því ekki höggvið í
gullæðinu í Sagehen-skóginum og varð 400 ára.
Birki Þrjú þúsund ára tréð sem
kom undan Breiðamerkurjökli.
Images of 2 lives er heiti sýningar
ljósmyndarans Einars Sebastians
sem verður opnuð í sýningarsalnum
Ramskram að Njálsgötu 49 í dag,
laugardag, klukkan 17.
Verkið sem Einar Sebastian sýn-
ir segir hann fjalla um hina enda-
lausu spurningu og vangaveltur
manneskjunnar um upphafið, endi
og hvert maðurinn fer eftir lífið.
Útgangspunktur verksins eru
tvær sjálfsmyndir af höfundi og lát-
ins æskuvinar höfundar, Björns
Björnssonar sem lést úr alnæmi ár-
ið 1995, 35 ára að aldri, nokkrum
vikum áður en lyf við alnæmi kom á
markaðinn. Lyf sem gerðu það að
verkum að margir úr hópi samkyn-
hneigðra vina Björns fengu óvænta
lífslínu og lifa enn.
Verkin á sýningunni segir Einar
sýna einskonar kafla í lífi sem
mynda síðan eina heild, sem tengist
hugmyndum höfundar um dauðann
sem sé einhvers konar byrjun frek-
ar en endir. Sýningin mun standa
til 6.júní og verður opið frá fimmtu-
degi til sunnudags kl. 14 til 19.
Ljósmynd/Einar Sebastian
Lífskaflar Hluti eins ljósmyndaverks Einars Sebastians á sýningunni.
Vangaveltur um
upphafið og endinn
- Einar Sebastian sýnir í Ramskram
Við framleiðum lausnir
Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is
DVERGARNIR
Þungar og öflugar undirstöður
DVERGARNIR R
HNERRIR
DURGURJÖTUNN
DRAUPNIR
ÞJARKUR
Þessir dvergar henta vel sem
undirstöður þar sem þung og
öflug festing er aðalatriði.