Morgunblaðið - 20.05.2021, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
.H
ei
m
sf
er
ði
rá
sk
ilj
a
sé
rr
ét
tt
il
le
ið
ré
tti
ng
a
á
sl
ík
u.
At
h.
að
ve
rð
ge
tu
rb
re
ys
tá
n
fy
rir
va
ra
.
595 1000
60+
meðGunnari Svanlaugs
13. október í 3 vikur
Tenerife
Verð frá kr.
299.900
AUKAFERÐ! Uppselt í ferðirnar 22. og 29. september
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðni Einarsson
Hólmfríður María Ragnhildardóttir
Alþýðusamband Íslands hvetur
landsmenn til að sniðganga flugfélag-
ið Play þangað til félagið hafi sýnt að
það ætli að vera hluti af íslenskum
vinnumarkaði og bjóða starfsfólki
sínu kaup og kjör sem gilda hér á
landi.
Þetta kemur fram í ályktun sem
miðstjórn ASÍ samþykkti í gær en
þar segir að flugfélagið ætli að bjóða
lægri flugfargjöld með því að greiða
starfsfólki sínu lægri laun en þekkist
á íslenskum vinnumarkaði. Hvetur
ASÍ einnig lífeyrissjóði og aðra fjár-
festa til að sniðganga félagið.
„Við stígum mjög fast til jarðar og
það er ekkert alveg sjálfsagt mál að
miðstjórn [ASÍ] hvetji fólk til að snið-
ganga fyrirtæki eða fjárfesta, sem
sýnir hvað við lítum þetta gríðarlega
alvarlegum augum. Þetta eru ein
mestu undirboð sem við höfum séð á
íslenskum vinnumarkaði í langa tíð,“
sagði Drífa Snædal, framkvæmda-
stjóri ASÍ, við mbl.is.
Vinnubrögð ASÍ með ólíkindum
„Vinnubrögð ASÍ í þessu máli eru
með ólíkindum. Forseti ASÍ hefur
hvorki leitað til okkar né þegið boð
um að koma og kynna sér málið.
Hann hefur ekki heldur leitað til
stéttarfélagsins sem um ræðir, Ís-
lenska flugstéttafélagsins (ÍFF). Við
erum algjörlega orðlaus yfir þessum
vinnubrögðum. Að sjálfsögðu munum
við leita réttar okkar í þessu máli,“
sagði Birgir Jónsson, forstjóri Play.
Birgir kveðst nýlega hafa lesið í
Viðskiptablaðinu, sem greinilega
hafði kjarasamning keppinautarins
undir höndum, að Play muni borga
hærri laun en Icelandair og umfram
það sem lífskjarasamningurinn kveð-
ur á um. Það gangi þvert gegn því
sem miðstjórn ASÍ fullyrðir.
Birgir segir margt beinlínis rangt í
yfirlýsingu miðstjórnarinnar. Þannig
sé fullyrt að Play hafi skilað óund-
irrituðum kjarasamningi til ríkis-
sáttasemjara en það sé rangt. „Ég
veit að stéttarfélagið sem um ræðir,
ÍFF, skilaði kjarasamningi til ríkis-
sáttasemjara. Sá samningur, sem er
vinnustaðasamningur í eðli sínu, hef-
ur verið undirritaður. Hins vegar
vildi stéttarfélagið leita lögfræðiálits
um hvort rétt væri, með tilliti til per-
sónuverndar, að skila undirritunar-
síðunni með nöfnum þeirra einstak-
linga sem skrifuðu undir samninginn.
Henni var því haldið eftir. Ég held að
ASÍ og forseta þess sé fullkunnugt
um það, en það er snúið út úr því og
það látið líta tortryggilega út,“ sagði
Birgir.
„Mér virðist tilgangur ASÍ mögu-
lega vera sá að gæta hagsmuna Flug-
freyjufélags Íslands (FFÍ) sem á að-
ild að ASÍ og neyða okkur til að gera
kjarasamning við FFÍ sem hefur ekki
leitað eftir samningum við okkur,“
sagði Birgir.
Ósæmandi yfirlýsing
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins, segir að ekkert hafi heyrst frá
ASÍ þegar FFÍ samdi ítrekað við
flugfélagið WOW um mun lægri laun
vegna flugfreyja en sama stéttarfélag
gerði kröfu um gagnvart Icelandair.
ASÍ hafi stutt þá samninga FFÍ.
„Ádeila ASÍ virðist ekki beinast
bara að launakjörum heldur því
hvaða stéttarfélag semur um þau.“
Hann segir þessa atlögu að Play
þeim mun sérkennilegri í ljósi orða
forseta ASÍ um mikilvægi þess að
vinna gegn atvinnuleysi, en fyrir-
tækið bjóði störf í geira sem sé hart
leikinn eftir heimsfaraldur og virði
þær reglur sem gilda á vinnumark-
aði. „Það líður vart sú vika að verka-
lýðsforkólfar stígi ekki fram og hvetji
lífeyrissjóði og fjárfesta til að snið-
ganga fyrirtæki. Til allrar hamingju
hljóta yfirlýsingar þeirra litlar und-
irtektir. Þessi yfirlýsing er ASÍ
ósæmandi með öllu,“ segir Halldór og
bætir við að fullyrðingar Drífu um
launakjör í kjarasamningi Play
standist enga skoðun. „Annaðhvort
byggjast þær á misskilningi eða vís-
vitandi rangtúlkun. Nú þegar er búið
að hrekja dæmalausar fullyrðingar
forsetans um lægstu laun á íslenskum
vinnumarkaði og forseti ASÍ hlýtur
að draga þessi ummæli til baka og
biðjast afsökunar á þeim.“
Flugfélagið Play verði sniðgengið
- Miðstjórn ASÍ segir að Play stundi undirboð á vinnumarkaði og bjóði lægri laun en þekkist þar
- Forstjóri flugfélagsins mótmælir því og segir vinnubrögð ASÍ í þessu máli hafa verið með ólíkindum
Drífa
Snædal
Birgir
Jónsson
Íslendingar sem komnir eru á ald-
ursskeiðið 65 til 74 ára eru stórtæk-
ari notendur netsins en jafnaldrar
þeirra í öðrum löndum Evrópu. Nýr
samanburður Eurostat, hagstofu
Evrópusambandsins, á netnotkun
fólks á þessum aldri yfir þriggja
mánaða tímabil á seinasta ári leiðir
í ljós að 98% 65-74 ára Íslendinga
sögðust hafa notað netið á þeim
tíma. Danir (94%), Svíar (91%) og
Lúxemborgarar (91%) í þessum ald-
urshópi koma næstir í röðinni. Net-
notkun eldri borgara í nokkrum
öðrum Evrópulöndum er til muna
minni. Aðeins fjórðungur eldri íbúa
Búlgaríu, 28% Króata og 33%
Grikkja notuðu netið.
Netnotkun 65-74 ára á Íslandi og í Evrópu*
Hlutfall (%) þeirra semnotuðu Internetið á 3jamánaða tímabili árið 2020
Ís
la
nd
D
an
m
ör
k
Sv
íþ
jó
ð
Lú
xe
m
bo
rg
B
re
tla
nd
H
ol
la
nd
Fi
nn
la
nd
N
or
eg
ur
Ír
la
nd
Þý
sk
al
an
d
B
el
gí
a
Sp
án
n
E
S
B
-m
e
ð
a
lt
.
Au
st
ur
rík
i
Íta
lía
Pó
lla
nd
Po
rt
úg
al
G
rik
kl
an
d
Kr
óa
tía
Ty
rk
la
nd
B
úl
ga
ría
98 94 91 91 90 90 88 85
78 76 73 70
61 57
45 43 39
33
28 27 25
Heimild: Eurostat
Eiga metið í netnotkun
Unnur Freyja Víðisdóttir
unnurfreyja@mbl.is
Eigendur jarðarinnar Hrauns hófu í
gær að innheimta gjald á bílastæð-
inu við gönguleiðina að eldgosinu í
Fagradalsfjalli.
Fram kemur á skiltum, sem sett
hafa verið upp á nokkrum stöðum á
veginum sem liggur að bílastæðinu,
að það kosti 1.000 krónur að leggja
bíl á stæðinu í heilan dag. Eftirlit
með gjaldskyldunni er þó ekki hafið.
Samkvæmt upplýsingum frá Ólafi
A. Jónssyni, sviðsstjóra hjá Um-
hverfisstofnun, hefur þessi gjald-
taka á bílastæðinu ekki komið til
kasta stofnunarinnar. Kveðst hann
ekki eiga von á að stofnunin muni
skoða lögmæti hennar. Ólafur segir
að Umhverfisstofnun hafi unnið út
frá þeirri meginafstöðu að ekki eigi
að skerða almannarétt með gjald-
töku en óskað hafi verið eftir skýrari
afstöðu löggjafans varðandi heim-
ildir landeigenda til að taka gjald
fyrir valkvæða þjónustu.
Gestir á svæðinu í gær tóku gjald-
inu vel. „Mér finnst það bara sjálf-
sagt af þeim að láta okkur borga fyr-
ir að nota svæðið sitt. Ætli þetta sé
ekki bara eins og að leggja í bíla-
stæði í Reykjavík?“ sagði Grétar
Karlsson sem var að leggja af stað í
göngu að gosinu.
Gosið í tvo mánuði
Tveir mánuðir voru í gær liðnir
frá því eldgosið hófst og hefur kviku-
flæði frá því heldur farið vaxandi, er
tvöfalt meira nú en í upphafi en er
samt fremur lítið miðað við mörg
önnur gos.
Á vef Jarðvísindastofnunar Há-
skóla Íslands í gær segir að þetta
gos sé um margt frábrugðið þeim
gosum sem hafi orðið hér á landi
undanfarna áratugi. Flest gosin hafi
átt upptök í kvikuhólfum undir meg-
ineldstöðvum þar sem þrýstingur í
hólfinu og stærð þess virðist ráða
mestu um stærð og lengd goss. Í
Fagradalsfjalli virðist þessu vera
nokkuð öðruvísi farið og svo sé að
sjá að aðstreymisæðin og eiginleikar
hennar ráði miklu um kvikuflæðið.
Engin leið sé á þessari stundu að
segja til um hve lengi gosið muni
vara eða hvort hraunrennslið muni
halda áfram að aukast.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gjaldskylda Ferðamenn velta vöngum yfir því hvernig greiða eigi bílastæðagjald sem nú er farið að innheimta.
Ferðamenn taka
bílastæðagjaldi vel
- Tveir mánuðir frá því eldgosið í Fagradalsfjalli hófst