Morgunblaðið - 20.05.2021, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021
Fimmtudaginn 20. maí 2021 kl. 16.30
1. Fundur settur
2. Skýrsla stjórnar
3. Gerð grein fyrir ársreikningi
4. Tryggingafræðileg úttekt
5. Fjárfestingarstefna sjóðsins kynnt
6. Önnur mál
Ársfundur SL lífeyrissjóðs
2021
Allir sjóðfélagar, jafnt greiðendur sem lífeyrisþegar, eiga rétt til
fundarsetu á ársfundinum.
Hægt verður að senda spurningar á meðan á fundinum stendur
á tölvupóstfangið sl@sl.is
DAGSKRÁ
Reykjavík 20.05.2021
Stjórn SL lífeyrissjóðs
Fundurinn er rafrænn og verður streymt, sjá slóðina www.sl.is
Ef sóttvarnarreglur leyfa, eru fundargestir velkomnir á fundarstað
á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík
Það er von að Wuhan-veiran setjimenn í uppnám hvenær sem
hún er nefnd. Seinast komst í há-
mæli að Anthony Fauci, æðsti mað-
ur bandarískra sóttvarna, hefði í
mörg ár látið dæla
ógrynni fjár í
rannsóknarstofuna
frægu í Wuhan!
- - -
Það þótti mörg-um grun-
samlegt og sögðu
nú enn erfiðara en
áður að treysta áróðurstilburðum
Heilbrigðisstofnunar Sþ um að
Kína hefði hvergi komið nærri upp-
hafi faraldursins.
- - -
En stofnunin hefur í samráði viðWuhan-mannskapinn ríghald-
ið í leðurblökukenninguna! Leð-
urblökunni er kennt um að hafa
upp á eigin spýtur sett veröldina á
hliðina og borið ábyrgð á dauða
milljóna manna! Kenningin um leð-
urblökuna þykir nægjanlega biluð
til að hægt sé að fá fjöldann til að
trúa henni.
- - -
Á hverju einasta hausti er gamlagóða flensan sögð leggja upp
frá Kína án atbeina leðurblök-
unnar. Hundruð milljóna veikjast
og milljónatugir veikburða deyja.
Enginn hefur þó stöðu grunaðs eft-
ir áratuga árásir. Ekki einu sinni
leðurblaka.
- - -
Fauciar um allan heim virðastsætta sig við að stundvísasta
veira sögunnar mæti í vesturhluta
heims hvert haust með afleitum af-
leiðingum.
- - -
Kannski er kominn tími til aðþeir ræði þetta mál í bæj-
arstjórn Kópavogs. Eða er það
rangminni að Wuhanborg hafi ver-
ið vinabær Kópavogs í tæpa tvo
áratugi?
Rannsóknarstofan
í Wuhan.
Vinabæir taki
á málinu strax
STAKSTEINAR
Jónína Michaels-
dóttir, rithöfundur og
blaðamaður, lést á
Landakoti 17. maí, 78
ára gömul. Hún
fæddist í Reykjavík
14. janúar 1943 og
ólst þar upp. For-
eldrar hennar voru
Michael Sigfinnsson,
leigubílstjóri og sjó-
maður, og Valborg
Karlsdóttir hús-
freyja.
Jónína bjó á Gufu-
skálum, Snæfellsnesi
fyrstu búskaparár sín en flutti árið
1976 til Hafnarfjarðar og bjó þar til
æviloka.
Hún var blaðamaður hjá Vísi
1977-1980, framkvæmdastjóri sam-
takanna Viðskipti og verslun 1980-
1983 og vann við markaðsráðgjöf í
Iðnaðarbanka Íslands 1983-1986.
Jónína var aðstoðarmaður Þorsteins
Pálssonar forsætisráðherra 1987-
1988. Hún var formaður Bók-
menntakynningarsjóðs og kynnti ís-
lenskar bókmenntir víða erlendis.
Jónína vann lengi sjálfstætt við
markaðsmál og ritstörf.
Bækur eftir Jónínu eru Líf mitt og
gleði, æviminningar Þuríðar Páls-
dóttur óperusöngkonu, Eins manns
kona, minningar Tove
Engilberts, Mér
leggst eitthvað til,
sagan af Sesselju Sig-
mundsdóttur og Sól-
heimum, Milli sterkra
stafna: fólkið hjá Eim-
skip, Karólína, líf og
list Karólínu Lárus-
dóttur listmálara,
Áhrifamenn, Dagur
við ský, fólk í íslenskri
flugsögu, auk fjölda
bókarkafla, tímarits-
greina og pistla. Einn-
ig tók hún viðtöl við
þekkta einstaklinga í sjónvarpsþátt-
unum Maður er nefndur.
Jónína gegndi margvíslegum
trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn. Hún sat meðal annars í
skipulagsnefnd og var formaður
fræðslu- og útbreiðslunefndar um
tíma. Einnig sat hún í fram-
kvæmdastjórn, miðstjórn og flokks-
ráði Sjálfstæðisflokksins.
Eftirlifandi eiginmaður Jónínu er
Sigþór Jón Sigurðsson kerfisfræð-
ingur. Þau eignuðust þrjú börn:
Michael (f. 1962) viðskiptafræðing,
Björn (f. 1966) matreiðslumeistara
og Þórunni (f. 1969) leikstjóra og
söngkonu. Barnabörnin eru tíu og
barnabarnabörnin þrjú talsins.
Andlát
Jónína Michaelsdóttir
rithöfundur
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Hinn nýi dráttarbátur Faxaflóa-
hafna, Magni, er á heimleið og er
væntanlegur til Reykjavíkur á morg-
un, föstudag. Magni hefur verið til
viðgerða í Hollandi í tæpt ár.
Magni kom nýr til Reykjavíkur-
hafnar 27. febrúar 2020 og var þar
með öflugasti og fullkomnasti drátt-
arbátur landsins en kaupverð báts-
ins var tæplega 1.200 milljónir
króna. Fljótlega kom þó í ljós að ekki
var allt með felldu varðandi virkni
bátsins. Upp komu alvarlegir ágallar
sem reynt var að vinna bót á af
fulltrúum Damen, sem smíðaði bát-
inn, og sendir voru til Íslands.
„Sökum aðstæðna vegna heims-
faraldurs ásamt því hversu alvarleg-
ir ágallar höfðu komið fram var tekin
sú ákvörðun að sigla Magna til Hol-
lands 9. júlí 2020, þar sem aðstæður
voru taldar betri þar til þeirra við-
gerða sem þörf var á,“ segir í frétt á
heimasíðu Faxaflóahafna.
Hefur dráttarbáturinn verið þar í
viðgerð síðan en Damen lánaði í
staðinn dráttarbátinn Phoenix á
meðan viðgerð fór fram.
Magni hélt af stað laugardaginn
15. maí sl. frá Rotterdam til Reykja-
víkur. Fimm manna áhöfn á vegum
Damen siglir Magna heim en sama
áhöfn mun síðan sigla Phoenix til
Rotterdam. Við afhendingu á Magna
í Reykjavík mun byrja tveggja ára
ábyrgðartímabil Damen á bátnum,
þar sem fulltrúi fyrirtækisins mun
koma nokkrum sinnum á ábyrgðar-
tímabilinu til eftirlits auk þess sem
olíusýni verða tekin og greind með
reglubundnum hætti að forskrift
Damen. sisi@mbl.is
Magni á heimleið eftir viðgerðina
Ljósmynd/Faxaflóahafnir
Nýi Magni Loks á heimleið eftir við-
gerðina í Hollandi, sem tók tæpt ár.