Morgunblaðið - 20.05.2021, Page 14

Morgunblaðið - 20.05.2021, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Skipulagslýsing fyrir nýtt deili- skipulag á óbyggðu svæði á Vatns- endahæð er í kynningu á vegum Kópavogsbæjar. Gert er ráð fyrir íbúðabyggð á svæðinu, sem alls er 29 hektarar, og liggur suðaustan við fyrirhugaðan Arnarnesveg á mörk- um Reykjavíkur og Kópavogs, Kórahverfis og Hvarfa í Vatnsenda. Hluti landsins er í eigu ríkisins og samkvæmt upplýsingum frá Kópavogsbæ eru viðræður í gangi við ríkið um kaup á þeim hluta svæðisins sem er í eigu ríkisins. Engar tímasetningar liggja fyrir að svo stöddu. Vistvænar áherslur Í lýsingunni segir, að með upp- byggingu í Vatnsendahvarfi sé stutt við betri nýtingu á núverandi grunn- kerfum samgangna, veitna, sam- félagslegum innviðum og almanna- þjónustu. Tillagan gerir ráð fyrir blandaðri byggð, alls 500 íbúðum, og er markmiðið að móta hverfi með vistvænum áherslum. Þar af verði um 200 íbúðir byggðar eða bygging hafin árið 2030, að því er segir í hönnunarforsendum deiliskipulags. Enn fremur er gert ráð fyrir svæð- um fyrir samfélagsþjónustu, litlu verslunar- og þjónustuvæði og opn- um svæðum. Í aðalskipulagstillögu, sem er í vinnslu, er gert ráð fyrir leikskóla á miðju skipulagssvæðinu. Ekki er komin tímasetning á hvenær hann verður byggður. Einnig er gert ráð fyrir skóla, kirkju eða annarri starf- semi á þéttbýlisuppdrætti. Áætlað er að börn hverfisins geti sótt skóla m.a. í Vatnsendaskóla, þar til nýr skóli verður byggður í Vatnsenda- hlíð. Gera þarf ráð fyrir að stækka þurfi Vatnsendaskóla, segir í skipu- lagslýsingu. Gömul útvarpsstöð og möstur Efst í Vatnsendahvarfi er land í eigu ríkisins 7,5 hektara að flatar- máli. Unnið er að samkomulagi um kaup Kópavogs á þessu landsvæði, segir í skipulagslýsingu. Taka þarf tillit til eignarhalds við gerð deili- skipulags fyrir svæðið svo hægt sé að byggja svæðið í áföngum. Á Vatnsendahæðinni er gamla Út- varpsstöðin en Minjastofnun Íslands og húsafriðunarnefnd hafa fjallað um sögulegt gildi byggingarinnar og bent á mikilvægi þess að varðveita húsið. Húsið er eftir Guðjón Sam- úelsson húsameistara og er friðað. Fram kom í samtali við Þórhall Ólafsson, framkvæmdastjóra Neyð- arlínunnar, í Morgunblaðinu í fyrra- haust að húsið yrði rifið, enda væri það ónýtt. Þá hafði Neyðarlínan ný- verið tekið við mannvirkjum á Vatnsendahæð eftir að sendibúnað- ur RÚV þar var fluttur á Úlfarsfell, en húsið er í eigu ríkisins. Þórhallur sagði í samtalinu að GSM-sendir yrði áfram á svæðinu en stefnt væri að því að stóru fjarskiptamöstrin yrðu tekin niður á þessu ári. Íbúðabyggð skipulögð á Vatnsendahæð - Heildarsvæðið 29 hektarar - Alls um 500 íbúðir - Ríkið á 7,5 hektara - Unnið að samkomulagi Skipulagssvæði Íbúðahverfi, með bland- aðri byggð einbýlishúsa, raðhúsa og fjölbýlishúsa Fyrirhuguð byggð á Vatnsendahæð Loftmyndir ehf. Elliðavatn Vatnsenda- hæð B R E I Ð H O L T H V Ö R F K Ó R A R REYK JAV Í K KÓPAVOGUR B re i ð h o l t s b r a u t Morgunblaðið/Árni Sæberg Byggingasvæði Möstur og gamalt útvarpshús á Vatnsendahæð. Útivistarskór SMÁRALIND www.skornir.is • Leður • Vatnsheldur • Vibram sóli Verð 26.995 Netverslun wwwskornir is. . Ragno SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS ÍSLENSK HÖNNUN Útskriftar- tilboð Útskriftar- tilboð Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það eru átján íbúar eftir í húsinu sem verða bara á götunni ef ekkert gerist,“ segir Þórdís Guðnadóttir, talsmaður íbúa við Suðurhellu 10 í Hafnarfirði. Eins og Morgunblaðið greindi frá á dögunum rennur 60 daga frestur sem eigendum húsnæðisins var gef- inn til að rýma það út um næstu mánaðamót. Í húsnæðinu eru ósam- þykktar leiguíbúðir á millilofti sem er ekki að finna á teikningum. Gerð- ar hafa verið athugasemdir við bú- setu í húsinu og atvinnustarfsemi. Þórdís segir að staðið hafi til að fá umrædda hæð samþykkta sem at- vinnuhúsnæði en ekki sé eining með- al eigenda. Átta eignarhlutar eru í húsinu og eigandi eins þeirra hefur neitað að skrifa undir deiliskipulags- breytingu sem er forsenda þess að hægt sé að skila inn teikningum af efri hæðinni til bæjaryfirvalda. „Með því að neita að skrifa undir er hann að stoppa alla framþróun á svæðinu,“ segir Þórdís. Hún segir jafnframt að umræddum eiganda hafi verið gerð tilboð um að kaupa eignarhlut hans sem hann hafi ítrek- að hafnað. Þórdís segir það mikla synd ef ekki fáist lausn á málinu því húsnæð- ið sé vel úr garði gert. „Þó þetta séu ekki íbúðir þá er húsnæðið til fyrir- myndar. Hér eru brunavarnir í góðu lagi, brunakerfi er beintengt við Ör- yggismiðstöðina og hér eru flótta- svalir. Bærinn virðist ekki setja sig upp á móti því að búið sé í vinnustof- um.“ Hún segir að 35 íbúar hafi flutt úr húsnæðinu á liðnum mánuðum en þeir sem eftir eru hafa ekki getað fundið sér annað húsnæði. „Þeir finna sér ekki húsnæði og eiga þess ekki kost að flytja inn á aðra. Ég held að margir íbúanna ætli ekkert að fara um mánaðamótin. Þeir hafa ekkert annað.“ Engin lausn fyrir íbúa á Suðurhellu - Óeining um deiliskipulagsbreytingu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Biðstaða Nú búa átján manns í ólöglegu húsnæði við Suðurhellu 10. Morgunblaðið fékk ábendingu um mann, sem fengið hafði boðun í Mod- erna-bólusetningu 21. apríl, sem hann þáði, og svo í seinni sprautu 17. maí, sem hann fór einnig í án nokk- urra vandkvæða, þótt hann yrði raun- ar var við nokkrar aukaverkanir. Á milli þessara tveggja bólusetn- inga voru hins vegar aðeins liðnir 26 dagar en ekki 28, eins og Moderna mælir fyrir um að þurfi að vera til þess að hljóta hámarksvernd gegn kórónuveirunni. Maðurinn uggði ekki að sér, enda var hann aðeins að hlíta boðun og hafði enga ástæðu til annars en að ætla að það væri allt eftir kúnstarinnar reglum og ekki í að- stöðu til þess að efast um að rétt væri að þeirri bólusetningu staðið. Þegar hann svo reyndi að sækja um bólu- setningarvottorð að tilskildum tíma liðnum var honum hins vegar neitað um það á þeim forsendum að of skammt hefði liðið á milli bólusetn- inganna, eins og sjá má á myndinni hér til hliðar. Morgunblaðið sneri sér til land- læknisembættisins, sem staðfesti að þetta hefði ekki verið eins og vera bæri og að það hefði verið leiðrétt. Ferlinu hefði verið breytt í Heilsu- veru, þannig að bilið þyrfti aðeins að vera 25 dagar en ekki 28, eins og það var áður. Maðurinn ætti því að geta sótt sitt vottorð án vandræða. Þá var fram tekið að fólk gæti fengið handgert bólusetningarvott- orð hjá sinni heilsugæslustöð ef eitt- hvað væri óvenjulegt við bólusetn- ingu þess. Of stutt milli bólusetninga - Heilsuvera gat ekki gefið út bólusetningarvottorð vegna of lítils bils milli bólusetninga - Hefur verið leiðrétt Skjáskot Skilaboðin til mannsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.