Morgunblaðið - 20.05.2021, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 20.05.2021, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021 Fáðu þér margskipt gleraugu og frí sólgler í sama styrk í kaupbæti Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð Við kynnumst tveimur spennandi löndum með sína framandi menningarheima og mikla náttúrfegurð, sem lætur engann ósnort- inn. Kynnumst hinum æva gömlu höfuðborgum Yerevan og Tblisi, förum upp í Kákassufjöllin, skoðum ævagömul klaustur, virki og kirkjur. Komum við í vínhérað og smökkum á víni heimamanna. Röltum um gamlan heilsubæ, förum í bað í æva gömlu bað- húsi, göngum eftir hengibrú. Ekki má gleyma fólkinu sem tekur okkur fagnandi en íbúar beggja landa eru einstaklega gestrisnir og kynnumst við þeim. Við erum í ævintýri sem er við allra hæfi. Síðumúli 13 - 108 Reykjavík | Strandgata 29, 2 hæð, 600 Akureyri, sími 588 8900 info@transatlantic.is | www.transatlantic.is Perlur Kákasusfjalla, hlið Evrópu að Miðausturlöndum og Asíu Forn menning, heillandi mannlíf, hrífandi saga og stórkostleg náttúra Georgía og Armenía 10.-20. september 2021 Innifalið er flug, hótel, fullt fæði í Georgiu og Armeniu, allar skoðunarferðir, ísl. farastjóri ásamt heimamanni og aðgangur þar sem við á. Verð á mann í 2ja manna herbergi er 348.700 kr. Takmarkaður fjöldi. Andrés Magnússon andres@mbl.is „Bíddu, ég þarf aðeins að skjótast,“ var hið fyrsta sem Ingibjörg Íris Davíðsdóttir læknir sagði í viðtali við Morgunblaðið síðdegis í gær, en í bakgrunninum hófst gaulið í loftvarnasírenunum. Það var ekki í eina sinnið sem það gerðist meðan á viðtalinu stóð og hún þurfti að forða sér inn í sprengjubyrgið á heimilinu með fimm ára son sinn. Ingibjörg Íris býr ásamt eigin- manni sínum, sem einnig er læknir, og syni í strandbænum Ashkelon við Miðjarðarhaf, aðeins um 10 km frá Gaza-svæðinu, sem hvað mest er í fréttum þessa dagana vegna sprengjuregnsins þaðan á byggðir í Ísrael og hernaðaraðgerða Ísraela gegn Hamas, en hundruð manna liggja í valnum, langflestir á Gaza-svæðinu. Tæpur fjórð- ungur eldflaug- anna frá Gaza hefur lent í Ashkelon og vald- ið miklu tjóni, dauða og limlest- ingum, en ein lenti aðeins 200 metrum frá heimili hennar. „Maðurinn minn er ennþá á vökt- um, en ég er eins og flest fólk bara heima, nálægt sprengjuskýli, því við höfum ekki nema kannski 15 sek- úndur til þess að komast í skjól,“ segir Ingibjörg Íris. „Þetta er ekk- ert líf, miklu verra en var í kórónu- faraldrinum. Maður kemst ekki einu sinni út úr húsi með barnið, það er útgöngubann og enginn úti á götum nema sjúkrabílar og slökkviliðs- bílar.“ Hún segir að hún komist þó út í búð þegar þurfi og að þar sé enn nóg af mat og vatni. „En maður þarf að hlaupa með veggjum þangað og allt- af reyna að sjá hvert hægt er að komast í skjól ef þarf.“ Ingibjörg Íris segir að það sé stutt síðan fjölskyldan hafi flutt í blokk og því sé hún fegin núna. „Hér er al- mennilegt sprengjubyrgi útbúið í barnaherberginu og við erum mjög mikið þar. Íbúðin okkar er líka vel staðsett í byggingunni, hún snýr í norðvestur, undan sprengjuregninu frá Gaza, þannig að við erum tölu- vert öruggari fyrir vikið. Við reynum að gera eins gott úr þessu og við getum heima, en það er erfitt og þetta er ömurlegt ástand. Við erum hrædd og líður ekki vel þegar sírenurnar fara af stað eða við heyrum sprengingar nær eða fjær. Við látum samt ekki á því bera gagn- vart drengnum og reynum að stappa í hann stálinu,“ segir hún. Afstaða Ingibjargar Írisar til átakanna er blendin. „Ég er á móti stríði og þetta mannfall er hræðilegt,“ segir hún. „Staðreyndin er samt sú að við óbreyttir borgarar í Ísrael erum undir árás frá Hamas og ég er þakk- lát fyrir að Ísrael nýti rétt sinn til þess að verja okkur eftir bestu getu. Ég treysti þeim til að gera það eins mannúðlega og hægt er í stríði, en Hamas gerir þeim það vissulega mjög erfitt fyrir með því að koma bækistöðvum sínum og vopna- geymslum fyrir meðal almennra borgara í Gaza.“ AFP Árás Eldflaugar frá Gaza-svæðinu lýsa upp næturhimininn yfir Ashkelon, en um 80-90% þeirra er grandað af loftvarnakerfi Ísraela, sem kallað er Iron Dome upp á ensku eða „Járnhvelfingin“. AFP Afleiðingar Slökkviliðsmenn í strandbænum Ashkelon í Ísrael, þar sem Ingibjörg Íris á heima, slökkva eld í bíl, sem varð fyrir eldflaug frá Gazasvæðinu. „Þetta er ömurlegt ástand“ - Íslenskur læknir skammt frá Gaza lýsir umsátursástandi í barnaherberginu - Halda mest til í sprengjubyrgi í íbúðinni - Þakklát fyrir loftvarnakerfið Ingibjörg Íris Davíðsdóttir Hryðjuverkasamtökin Hamas, sem fara með völd á Gaza- svæðinu, hófu að skjóta eld- flaugum á Ísrael fyrir tíu dögum, en Ísraelsher svaraði af hörku. Ísraelsher telur að meira en 4.000 eldflaugum hafi verið skotið af Hamas-liðum frá Gaza- svæðinu undanfarna tíu daga, en áætlar að eldflaugavarnakerfi sitt, „Járnhvelfingin“, grandi um 80-90% þeirra á flugi. Þá hafi um 250 flaugar bilað og fallið til jarðar á Gaza-svæðinu sjálfu og vafalaust valdið nokkru mann- tjóni. Hamas segir að alls hafi 227 manns fallið á Gaza, allt óbreytt- ir borgarar, þar af mörg börn, en Ísraelsher segist hafa fellt um 160 hermenn Hamas. Til þessa hafa 12 manns fallið Ísraels- megin og hundruð særst. Mannskæð tíu daga átök HERNAÐUR UM GAZA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.