Morgunblaðið - 20.05.2021, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 20.05.2021, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021 24 Til hamingju - þú hefur fundið happatöluna! Farðu inn á mbl.is/happatölur, fylltu út upplýsingar um þig og sláðu inn Happatöluna. Vinningshafar verða dregnir út í þættinum Ísland Vaknar á K100 í fyrramálið. Að sjálfsögðu hvetjum við þig til að tala þátt á hverjum fimmtudegi, því það er til mikils að vinna. Ómar Garðarsson Vestmannaeyjum Þegar Landeyjahöfn var opnuð í lok júlí 2010 voru væntingar Vest- mannaeyinga miklar um bættar samgöngur á sjó. Sigling styttist úr þremur tímum í Þorlákshöfn í 45 mínútur og ferðum fjölgaði úr tveimur á dag í fimm. Mikil upp- bygging í ferðaþjónustu var hafin með von um fleiri ferðamenn til Eyja. Það var bjart yfir Eyjamönn- um en fljótlega dró dökk ský upp á himin. Byr ræður þótt Eyjamenn vilji sigla og í tilfelli Landeyjahafnar var það ölduhæð, meiri sandburður en gert var ráð fyrir og þáverandi Herjólfur hentaði ekki. Strax haust- ið 2010 var ljóst að Landeyjahöfn var ekki heilsárshöfn að óbreyttu og næstu haust og vetur var höfnin lokuð frá hausti fram á vor, mest fimm mánuði. Með nýju skipi 2019 fóru hjólin að snúast og í vetur hef- ur nýting verið um 90% sem er það sem nálægt því sem lagt var upp með þegar framkvæmdir hófust við Landeyjahöfn. Vegagerðin hefur tekið saman hver munurinn er á nýtingu hafn- arinnar með nýju og grunnristara skipi borið saman við gamla Herjólf. Samanburðurinn er frá 2010 fram í þennan mánuð en Herjólfur tekur við af Herjólfi þriðja í ágúst 2019. Dögum sem fært er í Landeyjahöfn fjölgar úr 51,4% af heild í 73,1%. Einnig fjölgar dögum að tiltölu þeg- ar fært var hluta úr degi í Land- eyjahöfn úr 5,3% í 10,2%. Í heild fjölgar dögum í Landeyjahöfn úr 56,7% í 83,3%. Þegar nýliðinn vetur er borinn saman við síðasta vetur eru tölur enn hagstæðari. Veturinn 2019 til 2020 var siglt 257 daga í Landeyja- höfn auk 34 daga sem siglt var hluta úr degi. Nýliðinn vetur var siglt 291 dag í Landeyjahöfn auk þess sem 33 daga var siglt hluta úr degi. Nýting Landeyjahafnar milli ára fer úr 79,7% í 89,7% er mjög svipuð nýtni og gert var ráð fyrir þegar höfnin var byggð. Sanddæling minnkar Þetta má þakka nýju skipi sem ristir minna, með meiri stjórnhæfni, aukinni þekkingu áhafnar á að- stæðum. „Veturinn í ár var í með- allagi með tilliti til ölduhæðar,“ seg- ir Fannar Gíslason, forstöðumaður hafnadeildar Vegagerðarinnar. „Dýpkun í vetur, september til maí, var 236.000 rúmmetrar en með- altalið þar á undan er um 350.000 rúmmetrar.“ Fannar segir minni djúpristu nýja Herjólfs einfalda dýpkun tölu- vert. „Áður þurfti meira dýpi fram- an við höfnina, mun meira en nátt- úrulegt umhverfisdýpi við höfnina sem skiptir máli. Það hefur líka ver- ið skautað fram hjá því að Land- eyjahöfn var opnuð sama ár og gaus í Eyjafjallajökli. Þá komu 100 millj- ónir rúmmetra niður Markarfljót sem er einn og hálfan km austan við Laneyjahöfn. Ströndin færðist utar og náttúrulegt dýpi í kringum höfn- ina varð minna. Jafnvægið raskaðist en líkur eru á að það sé að ná fyrra horfi,“ segir Fannar. Vegagerðin vinnur nú að því að taka saman gögn um Landeyjahöfn og greina þau áður en næstu skref í óháðri úttekt á Landeyjahöfn verða ákveðin. Á þeirri vinnu að ljúka vor- ið 2022 og þá bætist einn vetur í reynslubankann. „Næst er að kanna möguleika á að bæta nýtingu hafnarinnar enn frekar og meta hversu umfangs- mikil sú aðgerð er. Áður en teknar verða ákvarðanir um einhverjar breytingar í Landeyjahöfn þurfum við að skilja aðstæðurnar betur en við gerum í dag. Litlar breytingar á ytri hafnarmannvirkjum geta rask- að jafnvæginu og leitt til þess að höfnin verði verri,“ sagði Fannar Gíslason. Nýting Landeyjahafnar um 90% í vetur - Nýja ferjan ristir minna og hefur meiri stjórnhæfni - Þekking áhafnar á aðstæðum hefur batnað - Næst á dagskrá er að kanna möguleika á að bæta nýtingu hafnarinnar enn frekar Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Rafmagnsferja Herjólfur á leið út úr Vestmannaeyjahöfn. Þetta er fyrsta rafmagnsskip á Íslandi og rækilega merkt með snúru og rafmagnskló. Samanburður á siglingum Herjólfs III og IV Herjólfur III* Herjólfur IV** Fjöldi daga Hlutfall Fjöldi daga Hlutfall Landeyjahöfn 1.523 51,4% 469 73,1% Þorlákshöfn 1.165 39,3% 88 13,7% Landeyjahöfn og Þorlákshöfn 93 3,1% 53 8,3% Landeyjahöfn (1/2 dagur) 65 2,2% 12 1,9% Þorlákshöfn (1/2 dagur) 67 2,3% 12 1,9% Engar ferðir (veður) 38 1,3% 6 0,9% Engar ferðir (annað) 14 0,5% 2 0,3% Samtals 2.965 642 *Frá 2010 til 2019. **Frá ágúst 2019 til maí 2021 Ómar Garðarsson Vestmannaeyjum Brynjar Smári Unnarsson var skip- stjóri þegar blaðamaður brá sér í ferð með Herjólfi frá Eyjum til Land- eyjahafnar fyrir skömmu. Veður gott, lítill sjór og skilyrði til siglinga eins góð og þau geta orðið við Suðurströnd Íslands. Brynjar Smári er ánægður með nýtt skip og segir að vel hafi gengið að sigla í Landeyjahöfn í vetur og vor. Hann hefur samanburðinn því hann var um tíma skipstjóri á þeim gamla. „Munurinn er mjög mikill, stjórn- hæfnin meiri og djúpristan mun minni á þeim nýja,“ segir Brynjar sem segir margt hafa hjálpast að í vetur. „Hann var góður veðurfarslega og sand- burður minni en við höfum átt að venj- ast. Það voru smá vandræði með sandburð á tímabili í vetur, en þá sigldum við eftir flóðatöflu á meðan var verið að dýpka sem tók ekki lang- an tíma. Á þeim gamla hefði verið siglt í Þorlákshöfn við þessi skilyrði.“ Frá því Landeyjahöfn var tekin í notkun síðsumars 2010 hefur sand- burður verið helsti þröskuldurinn. „Það er miklu minni sandburður en verið hefur síðustu ár og það kom okk- ur smá á óvart þegar haftið kom í vet- ur. Þar sem sandburðurinn veturinn á undan var líka mjög lítill. Eitt er líka, við höfum lært betur á nýja skipið og þekkjum orðið betur aðstæður í og við höfnina.“ Margir höfðu efasemdir um að nýr Herjólfur stæðist kröfur um sjóhæfni en reyndin er önnur. „Mér finnst hann betra sjóskip en sá gamli og ég held að flestum finnist það þegar siglt er til Þorlákshafnar einnig. Hann er 15 mínútum lengur á leiðinni en sá gamli en ég held að það pæli fáir í því af því flestum líður vel um borð“ sagði Brynjar Smári. Stór Þjóðhátíð gangi allt eftir Árin 2017 til 2020 var farþegafjöldi með Herjólfi, svipaður en heldur upp á við. Árið 2017 eru farþegar 344 þús- und, árið 2018 eru þeir 338 þúsund og 356 þúsund árið 2019. Fjöldinn datt niður á síðasta ári í 247 þúsund far- þega. Hörður Orri Grettisson, fram- kvæmdastjóri Herjólfs ohf., segir fækkunina á síðasta ári í samræmi við það sem við mátti búast en hann er bjartsýnn á framhaldið. „Farþegar með Herjólfi fyrstu fjóra mánuði árs- ins eru um 50.000 sem er það mesta sem við höfum séð á þessum árstíma. Það má þakka fleiri siglingadögum í Landeyjahöfn og nýju skipi. Gangi væntingar um tilslakanir sóttvarna eftir sé ég ekki annað en að fram und- an sé gott sumar hjá okkur,“ segir Hörður. Nefnir hann stóra viðburði sem laða að sér margt fólk. Knatt- spyrnumót ungmenna, sjómannadag- inn, Goslokahátíð og síðast en ekki síst Þjóðhátíð. „Einhverjar takmarkanir verða fyrri part sumars en standist væntingar eigum við eftir að sjá stóra Þjóðhátíð í ágúst,“ sagði Hörður. Herjólfur hentar vel fyrir höfnina - Mun betra sjóskip en sá gamli - Hefur flutt um 50 þúsund farþega fyrstu fjóra mánuði ársins Morgunblaðið/Ómar Garðarsson Í brúnni Brynjar Smári Unnarsson skipstjóri í brúnni ásamt stýrimönnunum Valgeiri Arnórssyni og Ingibjörgu Bryngeirsdóttur. Gamla stýrið heyrir sögunni til og nú er skipinu stjórnað með stýrihnöppum og stýripinna. Það þótti djarft þegar ákveð- ið var að keyra nýjan Herjólf á rafmagni en dæmið hefur gengið upp. Það er mun ódýrara auk minni umhverf- isáhrifa, sem skiptir ekki síður máli. Hleðsluturnar eru bæði í Vestmannaeyjum og Landeyjahöfn og tekur hálf- tíma að hlaða rafhlöður skipsins sem siglir á raf- magni einu saman báðar leiðir. Nýi Herjólfur er tvíorku- skip sem gengur fyrir raf- magni og olíu þegar á þarf að halda. „Okkur reiknast til að orkukostnaður lækki um allt að 70% á siglingunni á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar,“ segir Hörð- ur Orri Grettisson fram- kvæmdastjóri og bætir við: „Ekki er hægt að nýta raf- orkuna þegar siglt er til Þor- lákshafnar, enda mun lengri sigling.“ Orkusparn- aður og já- kvæð áhrif RAFMAGN Í HERJÓLFI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.