Morgunblaðið - 20.05.2021, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 20.05.2021, Qupperneq 26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021 vfs.is SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is EIN RAFHLAÐA + öll verkfæri fyrir garðinn, heimilið og bílskúrinn Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Afurðaverð á markaði 18. maí 2021, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 333,84 Þorskur, slægður 348,97 Ýsa, óslægð 310,31 Ýsa, slægð 303,54 Ufsi, óslægður 79,54 Ufsi, slægður 136,46 Gullkarfi 136,59 Blálanga, slægð 240,32 Langa, óslægð 215,87 Langa, slægð 114,69 Keila, óslægð 54,69 Keila, slægð 73,56 Steinbítur, óslægður 37,67 Steinbítur, slægður 98,25 Skötuselur, slægður 301,09 Grálúða, slægð 11,00 Skarkoli, slægður 261,97 Þykkvalúra, slægð 461,62 Langlúra, óslægð 193,00 Sandkoli, óslægður 163,00 Sandkoli, slægður 173,00 Bleikja, flök 1.464,79 Regnbogasilungur, flök 3.176,00 Gellur 651,00 Grásleppa, óslægð 22,19 Hlýri, óslægður 79,00 Hlýri, slægður 137,04 Hrogn/langa 21,00 Lúða, slægð 698,50 Lýsa, óslægð 37,38 Lýsa, slægð 71,60 Rauðmagi, óslægður 9,74 Skata, slægð 36,90 Stóra brosma, slægð 40,00 Undirmálsýsa, óslægð 65,61 Undirmálsýsa, slægð 147,00 Undirmálsþorskur, óslægður 159,74 Undirmálsþorskur, slægður 160,80 Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Veður hefur leikið við strandveiði- sjómenn og fara því veiðar vel af stað. Á fyrstu tveim vikum strand- veiðanna lönduðu strandveiðibátar 1.306 tonnum sem er 12,04% af þeim 11.100 tonnum sem veiðunum hefur verið ráðstafað, en alls hafa 557 bátar fengið úthlutað strandveiði- leyfi. „Það er einkennilegt að þurfa að hafa áhyggjur af því þegar vel fiskast,“ svarar Örn Pálsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands smá- bátaeigenda (LS), spurður hvort hann hafi áhyggjur af því að veið- arnar nái ráðstöfuðu magni áður en strandveiðitímabilinu lýkur. „Til að tryggja sátt um strand- veiðar verður að setja í lög að þær megi stunda í 48 daga án þess að hafa áhyggjur af því hvort veiðist 10 eða 15 þúsund tonn,“ segir hann. Á strandveiðum má hver bátur landa að hámarki 650 kíló af slægð- um afla í þorskígildum talið í hverri veiðiferð. Í annarri viku strandveiða voru 190 skip sem lönduðu 9.351 kílói umfram leyfilegt magn og var um 60% af umframaflanum landað á svæði A, en ágóði af sölu þeirra fiska rennur í ríkissjóð. Miðað við 297 króna meðalverð á fiskmörkuðum aðra viku veiðanna runnu tæpar 2,8 milljónir til ríkissjóðs. Dregst af heildarafla „Í alltof mörgum tilfellum, því miður, hefur mönnum ekki tekist að passa upp á að afli fari ekki yfir leyfilegan skammt. Þó þessi afli myndi ekki tekjur hjá sjómönnum þá telst hann inni í heildarafla strandveiða og skerðir því hlut þeirra sem eru alltaf réttum megin,“ segir Örn um umframafla strand- veiðibátanna. „Auðvitað er það ekki á færi nema snillinga að koma með að landi eftir daginn 774 kg af úr- valsþorski, þar sem tekst að veiða þá stærð sem mest eftirspurn er eftir.“ Þá segir framkvæmdastjórinn að LS hafi lagt áherslu á að strand- veiðisjómönnum verði veitt aukið svigrúm og að heimilað verði að færa hluta af afla yfir á næsta róður. „Vel hefur verið tekið í þessa til- lögu hjá Fiskistofu og er hún nú til skoðunar í sjávarútvegsráðuneytinu. Annars reynir LS eftir fremsta megni að höfða til betri vitundar manna að hlíta þeim reglum sem gilda um veiðarnar. Passa upp á að veiða ekki umfram það sem leyfilegt er. Vissulega getur það verið erfitt í einstaka tilfellum, því menn vilja jú alltaf ná skammtinum og þrír vænir fiskar sem bíta á í lok róðurs leiða oft til umframafla. Að því leyti myndi pörunin koma til móts við menn.“ 821 460 313 220 220 218 212 170 134 130 125 124 117 115 112 109 109 105 101 100 Umframafli eftir löndunardegi Umframafli eftir svæðum Bátar með yfir 100 kg í umframafla 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 0 Kaja ÞH-66 Hólmi ÞH -56 Hróð- geir hvíti NS-89 Bára NS-125 Fram GK-616 Garpur SH-601 Hanna SH-505 Muggur SH-505 Glaður SH-226 Skvetta SK-90 Már SK-90 Mjölnir BA-111 Lóa KÓ-177 Mar- grét ÍS-151 Siggi á Bakka SH-228 Ibbi SH-375 Snúlli SH-95 Stína BA-115 Hepp- inn ÍS-74 Ingi- björg SH-174 Mánud. 10.maí Þriðjud. 11.maí Miðvikud. 12.maí A B C D Strandveiði- svæðin Umframafli í annarri viku strandveiða A: 5.555 kg B: 2.272 kg C: 1.044 kg D: 480 kg 3.351 kg umfram- afli alls 190 bátar alls 2.378 kg 2.959 kg 4.014 kg Níu tonna umframafli í annarri viku strandveiða - LS leggur til að heimilt verði að færa afla milli róðra Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Um 80% af sýningarbásum á al- þjóðlegu sjávarútvegssýningunni Icelandic Fisheries Exhibition (Ice- Fish) eru bókuð, en hún mun fara fram í Fífunni í Kópavogi 15. til 17. september. Upphaflega var gert ráð fyrir að halda sýninguna, sem haldin er á þriggja ára fresti, í fyrra en vegna kórónuveiru- faraldursins var ákveðið að fresta sýningunni um eitt ár. Gestir sýningarinnnar árið 2017 voru 13.621 talsins. „Við gerum ráð fyrir að sýningin fari fram í september. Flest bendir til þess að í Evrópu verði byrjað að gefa út Covid-vegabréf í sumar og samkvæmt áætlunum Íslands verður landið opnað í lok júní. Þannig að þetta er allt að ganga samkvæmt áætlun, en við verðum að taka tillit til kórónuveirunnar eins og allir aðrir,“ segir Marianne Rasmussen Coulling, framkvæmdastjóri IceFish. Spurð hvort hægt sé að búast við sambæri- legum gestafjölda og 2017 svarar hún: „Ég væri mjög auðug ef ég vissi hvað gerist fram í tímann, en við höf- um aukið markaðssetninguna miðað við það sem við höfum áður gert. Sér- staklega á samfélagsmiðlum. Við er- um að gera okkar ýtrasta til að ná sambærilegum árangri og fyrri ár.“ Þá segir Rasmussen-Coulling tölu- verðan áhuga á sýningunni bæði hér á landi og erlendis. „Það verða marg- ir nýir sýnendur sem hafa ekki verið áður. Við erum í fyrsta sinn með spænskan skála. Það verða meðal annars nýir sýnendur frá Frakk- landi, Litháen og Tyrklandi. Eins og hefðbundið er verða skálar frá Fær- eyjum, Noregi og Danmörku,“ segir Rasmussen-Coulling. Þá bendir hún á að hliðarafurðum verður veitt sérstök athygli og verð- ur afmarkað svæði á sýningunnni sem er sérstaklega lagt undir þetta svið, auk þess verður sérstakt mál- þing haldið um hliðarafurðir. „Þar sem Ísland er frumkvöðull á þessu sviði hef ég tekið eftir sérstökum áhuga á þessum þætti sýningar- innar,“ útskýrir Rasmussen Coull- ing. Morgunblaðið/Ómar Gestagangur Margir hafa sótt sýninguna í Fífunni í gegnum tíðina. Mikill áhugi á sjáv- arútvegssýningunni - 80% sýningarbása á IceFish bókuð Marianne Ras- mussen-Coulling
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.