Morgunblaðið - 20.05.2021, Síða 28
28 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021
Bolholti 4 • 105 Reykjavík • S 534 1400 • www.smartfix.is
s n j a l l t æ k j a þ j ó n u s t a
Úrval aukahluta:
Hulstur, Hleðslutæki, Snúrur,
Minniskort, USB lyklar og fleira
VIÐ GERUM VIÐ
allar tegundir síma,
spjaldtölva, tölva og dróna
Körfur
frá 25.000 kr.
Startpakkar
frá 5.500 kr.
og margt
fleira
Bolholt 4, Reykjavík | www.frisbigolfbudin.is
Allt fyrir frisbígolf
Töskur
frá 3.990 kr.
Diskar
frá 2.500 kr.
Fjarlægðarmælir
24.990 kr.
St. 28-38
8.995 kr.
HUMMEL ACTUS
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
Rebekka Líf Ingadóttir
rebekka@mbl.is
„Óvinurinn mun ekki komast fram
hjá okkur,“ hrópar foringinn Ívan
Glústjenkó, þar sem drifhvít mjöll
umlykur nútímalega rússneska her-
stöð í hjarta heimskautssvæðisins.
Sífellt auðveldara aðgengi að nátt-
úruauðlindum og greiðari siglinga-
leiðir á þessu svæði hafa dregið að
sér alþjóðlega samkeppni, þar sem
hagsmunir Rússlands rekast á við
hagsmuni annarra þjóða, þar á með-
al Bandaríkjanna.
Á meðan Rússland leitast við að
fullyrða um áhrif sín á norðurslóðum
hafa hernaðardeilur aukist til muna
á síðustu árum. Líklegt er að spenn-
an milli ríkjanna verði til staðar á
ráðherrafundi Norðurskautsráðsins
sem haldinn verður í Reykjavík í
dag. Ráðið samanstendur af Rúss-
landi, Bandaríkjunum, Kanada, Nor-
egi, Danmörku, Svíþjóð, Finnlandi
og Íslandi. Blaðamenn AFP heim-
sóttu rússneska „norðurslóðasvæð-
ið“, sem er nyrsta herstöð þeirra,
staðsett á Frans-Jósefslandi, eyja-
klasanum í Norður-Íshafi. Herstöðin
þekur meira en 14.000 fermetra og
var reist þar sem Sovétríkin sálugu
höfðu áður fært út kvíarnar.
Stöðinni er þannig háttað að hún
getur verið næg sjálfri sér í meira en
heilt ár og býr yfir nauðsynjum á
borð við eigin rafmagnsstöð og
vatnshreinsunar- og hitakerfi. Þá er
einnig þar að finna heilsugæslustöð,
líkamsræktarstöð, kvikmyndahús,
gufubað og kirkju.
„Eins og geimstöð“
Öll aðstaðan er tengd upphituðum
göngum, sem gera hermönnunum
kleift að forðast válynd veður, en
frostið getur náð meira en fjörutíu
gráðum.
„Þetta er eins og geimstöð, eini
munurinn er sá að við erum ekki á
braut um jörðu heldur á norðurslóð-
um,“ sagði Ígor Tsjúrkin, hershöfð-
ingi og einn af yfirmönnum norður-
flota Rússlands, í samtali við
blaðamenn AFP. Þrátt fyrir sterka
vinda og grimm veður hefur stöðin
einnig gríðarlega stóran flugvöll.
Notast var við hann þegar rússneski
sjóherinn flaug í mars í fyrsta skiptið
yfir norðurpólinn, en tvær MiG-31-
orrustuþotur lentu þar að fluginu
loknu.
AFP
Ís Herstöðin er á Frans Jósefslandi, eyjaklasanum í Norður-Íshafi.
Nútímaleg herstöð í norðri
- Hernaðaruppbygging í Norður-Íshafi - Spenna milli Bandaríkjanna og Rúss-
lands - Ráðherrafundur í Reykjavík í dag - Herstöð með neðanjarðargöngum
Aðildarríki Evrópusambandsins
(ESB) samþykktu í gær að opna
landamæri sambandsins að nýju
fyrir bólusettum ferðamönnum.
Sem stendur er bannað að ferðast
inn í aðildarríki ESB að undan-
skildum nokkrum löndum sem talin
eru örugg vegna fárra smita þar.
Verslanir, veitingastaðir og hótel
verða opnuð á ný nú þegar tak-
mörkunum verður aflétt en rekstr-
armenn höfðu haft töluverðar
áhyggjur af viðskiptum í sumar
enda nær ómögulegt að ferðast
þegar harðar aðgerðir eru í gangi.
Með afléttingu er því vonast til þess
að bólusettir ferðamenn fari aftur á
stjá í Evrópu með tilheyrandi við-
skiptum og verslun.
EVRÓPUSAMBANDIÐ
AFP
Farþegar á flugvelli í Suður-Portúgal.
Samþykktu að opna
landamæri sín á ný
Minnst ellefu
þorpsbúar í
Kambódíu létust
eftir að hafa
drukkið eitrað
heimabruggað
hrísgrjónavín,
samkvæmt
heilbrigðisyfir-
völdum þar í
landi. Bann var sett á áfengissölu í
Kambódíu fyrir skemmstu í tilraun
til að minnka útbreiðslu faraldurs
kórónuveiru. Það tók gildi 9. maí
sl. og mun standa yfir til 22. maí.
Hinir látnu höfðu allir drukkið
heimabruggaða vínið við jarðarför
hinn 10. maí, sagði yfirmaður
heilbrigðissviðs í Kandal-héraði við
fréttaveitu AFP. Niðurstöður rann-
sóknar á áfenginu sýndu að þar
væri að finna mikið magn af etan-
óli.
KAMBÓDÍA
Heimabrugg varð
11 manns að bana
Forsætisráðherra Ísraels, Benjam-
in Netanyahu, sagði í gær að
sprengjuárásir Ísraels á Gaza-
svæðinu miðuðu að því að hindra
Hamas og önnur samtök víga-
manna á svæðinu. Hann útilokaði
þó ekki að um tilraun til að „sigra“
ráðamenn íslamista væri að ræða.
„Það eru aðeins tvær leiðir til að
takast á við þau,“ sagði hann um
Hamas í samantekt í Tel Aviv fyrir
hóp erlendra sendiherra.
„Þú getur annaðhvort sigrað þá,
og það er alltaf opinn möguleiki,
eða þú getur fælt þá frá, og við er-
um þátttakendur núna í kröftugum
fælingum en ég verð að segja að við
útilokum ekkert.“
Útilokar
ekki sigur-
tilraun
AFP
Atvinna