Morgunblaðið - 20.05.2021, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 20.05.2021, Blaðsíða 30
SVIÐSLJÓS Ómar Friðriksson omfr@mbl.is N eysla Íslendinga á áfengi er töluvert undir meðaltali áfengisneyslu á hvern mann í 52 ríkj- um sem nýr samanburður OECD nær til. Spánn og Ísland eru þó þau lönd þar sem neysla á áfengi jókst hlutfallslega mest á árunum 2010 til 2018. Mest á Spáni þar sem áfengisdrykkja karla jókst um 4,4 alkóhóllítra á mann og kvenna um 1,2 lítra, en Ísland kemur næst í röðinni en þar jókst neysla karla um 2,5 lítra og kvenna um 0,8 lítra á þessu tíma- bili. Íslendingar 15 ára og eldri drekka 9,1 lítra af áfengi á ári eða sem samsvarar tæpum tveimur flöskum af léttvíni eða 3,5 lítrum af bjór í hverri viku en áfengis- neyslan er þó minni hér á landi en í 33 löndum í samanburði OECD. Ævilíkur styttast Viðamikil skýrsla OECD um neyslu áfengis meðal þjóða og leiðir til að sporna við skaðlegri drykkju áfengis var birt í gær. Þar eru stjórnvöld hvött til frekari aðgerða til að draga úr áfengis- neyslu og birtar eru niðurstöður greiningar á kostnaði og ávinningi aðgerða sem mælt er með í áfeng- isvörnum. Ætla má skv. úttektinni að ævilíkur verði 0,9 árum styttri á næstu 30 árum ef drukkinn er meira en einn til einn og hálfur drykkur af áfengi að jafnaði á hverjum degi. Kostnaður sam- félaga vegna sjúkdóma og slysa af völdum áfengisdrykkju næmi 2,4% af heildarútgjöldum til heilbrigðis- mála á ári og eru afleiðingar áfengisneyslu umfram þessi mörk taldar draga árlega úr vergri landsframleiðslu um 1,6%. Fram kemur að áfengisneysla jókst víða um lönd eftir að kór- ónuveirufaraldurinn reið yfir, sala á áfengi jókst t.d. um 3-5% í Bandaríkjunum, Bretlandi og Þýskalandi og drykkjuvenjur breyttust, áfengis var oftar neytt og meira var innbyrt hverju sinni en áður. Minni neysla íslenskra ung- menna en í öðrum löndum Úttekt OECD staðfestir það sem áður hefur komið fram að ís- lenskir unglingar neyta minna af áfengi en jafnaldrar þeirra í öðr- um löndum. Er hlutfall 15 ára ungmenna sem segjast hafa orðið drukkin tvisvar eða oftar um æv- ina lægst á Íslandi í öllum aðild- arríkjum OECD eða 7% bæði meðal drengja og stúlkna. Til samanburðar sögðust 37% drengja í Danmörku og 47% stúlkna hafa orðið ölvuð tvisvar eða oftar. Sérkaflar eru í skýrslunni um stöðu og horfur í einstökum lönd- um og segir m.a. um Ísland að 28% fullorðinna neyti áfengis í óhófi eða stundi lotudrykkju (e. binge drinking) einu sinni eða oft- ar í hverjum mánuði. Íslenskir karlar drekka mun meira áfengi en konur eða 13,9 alkóhóllítra á ári en konur drekka að jafnaði 4,3 lítra. Samkvæmt spá OECD stytt- ast ævilíkur Íslendinga um 0,6 ár á næstu 30 árum ef áfengis- drykkja verður að jafnaði meiri en einn til einn og hálfur lítri á mann á dag. Áfengisneysla Íslendinga gæti haft í för með sér að lands- framleiðslan verði að jafnaði 0,7% minni en ella fram til ársins 2050 og hið opinbera þyrfti að afla auk- inna tekna til að mæta kostnaði vegna afleiðinga áfengisneysl- unnar um sem svarar rúmlega 13 þúsund kr. skattahækkun á hvern mann árlega skv. spálíkani OECD. Eru stjórnvöld hvött til mark- vissari aðgerða í áfengismálum, m.a. með skattlagningu á áfengi. Ef varið verði árlega 354 kr. að meðaltali á mann í áfengisvarnir og til annarra fyrirbyggjandi að- gerða muni það koma í veg fyrir 17 þúsund sjúkdóma og slys af völdum áfengisneyslu, spara megi 526 milljónir á ári í heilbrigðis- útgjöldum og fjölga vinnustundum og auka framleiðni á vinnumarkaði sem svarar til 218 fullra starfa á vinnumarkaðinum á ári. Áfengisneysla jókst mest á Spáni og Íslandi Áfengisneysla á Íslandi skv. skýrslu OECD Áhrif áfengisneyslu á lífslíkur (lækkun í árum) Áhrif áfengisneyslu á útgjöld til heilbrigðismála (hækkun í %) 1,0 0,8 0,6 0,4 0,2 0 4% 3% 2% 1% 0% Ísland Ítalía Kanada Japan Bretland Banda- ríkin OECD- meðalt. Frakkland ESB- meðalt. Þýska- land Ítalía Japan Frakkland Ísland Canada OECD- meðalt. ESB- meðalt. Bretland Banda- ríkin Þýska- landHeimild: OECD 28% fullorðinna á Íslandistunda lotudrykkju einu sinni í mánuði eða oftar 9,1 lítri af hreinumvínanda er meðal- neysla á hvern íbúa á Íslandi 30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Níu þing-mennþriggja stjórnmálaflokka, Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Miðflokks, hafa lagt fram og fengið samþykkta á Alþingi beiðni um skýrslu frá ríkisend- urskoðun um starfsemi Sam- keppniseftirlitsins. Þingmenn- irnir óska meðal annars eftir því að dregið verði fram „mat á ár- angri af eftirlitshlutverki Sam- keppniseftirlitsins og kannað hvernig framkvæmd samruna- mála var“ síðastliðin þrjú ár. Í greinargerð með skýrslu- beiðninni segir að eftirlitið þurfi að vera skilvirkt og málshrað- inn viðunandi, ekki síst þegar komi að samruna fyrirtækja. „Hagsmunir bæði atvinnulífs og neytenda eru best tryggðir með því að kaup og sala fyrirtækja og rekstrareininga gangi skjótt fyrir sig, séu hafin yfir vafa og dragi ekki úr virkri samkeppni á markaði,“ segir þar, og enn- fremur að löggjöf, reglur og verklag þurfi að renna stoðum undir skilvirkari og skjótari meðferð samrunamála og því sé þörf á stjórnsýsluúttekt. Í greinargerðinni er einnig bent á að atvinnulífið hafi lengi gagnrýnt málsmeðferðartíma Samkeppniseftirlitsins í sam- runamálum og telji brýnt að hraða ferlinu og lágmarka kostnað fyrirtækja og atvinnu- lífs vegna fyrirhugaðra sam- runa. Í þessu sambandi er í greinargerðinni farið út í mjög athyglisverðan samanburð á ástandinu hér á landi og erlend- is: „Til samanburðar hefur verið greint frá því að framkvæmd samrunamála á vettvangi Evr- ópusambandsins og í Noregi sé mun skilvirkari og skjótari en hér á landi. Aðeins 2-3% til- kynntra samruna séu að jafnaði færð í fasa II í Noregi og hjá Evrópusambandinu, en fasi II kalli á 90 daga lengri máls- meðferðartíma, á meðan hlut- fallið hér á landi hafi að með- altali verið tæp 44% á tíma- bilinu 2017-2020. Skortur sé á skýrum kröfum til Samkeppn- iseftirlitsins um hvernig rann- sókn skuli fara fram í fasa I og að rökstyðja þurfi flutning yfir í fasa II, ólíkt því sem sjá má í Evrópusambandinu og í Nor- egi.“ Þessi skýrslubeiðni er þörf og verður skýrslan vonandi unnin af meiri hraða en samrunamálin hjá Samkeppniseftirlitinu því að ekkert er ofmælt um hve íþyngjandi verklag stofnunar- innar er fyrir atvinnulífið. En það er fleira sem snýr að þessari stofnun sem ástæða er til að taka til skoðunar. Í Við- skiptaMogganum var í gær birt grein eftir Björgu Ástu Þórðar- dóttur, yfirlögfræðing Samtaka iðnaðarins, sem fjallaði um sam- keppnisrekstur opinberra aðila. Björg Ásta benti á að ríki og sveitar- félög hér á landi störfuðu á sam- keppnismarkaði: „Fyrirtæki í eigu ríkis eða sveitarfélaga og opinberar stofnanir selja þjón- ustu og vörur í beinni sam- keppni við fyrirtæki. Hið opin- bera hefur lengi verið beinn þátttakandi í íslensku atvinnu- lífi og spannar samkeppnis- rekstur hins opinbera nokkuð breitt svið. Allt frá meðhöndlun úrgangs til veitingar fjármála- þjónustu. Enn fremur er form samkeppnisrekstursins ólíkt og þykir sumum óljóst hvort í reynd sé um samkeppnis- rekstur að ræða. Hér má nefna ráðgjafarþjónustu ríkis- stofnana til annarra stofnana, gegn gjaldi.“ Björg Ásta segir í grein sinni að opinberum samkeppnis- rekstri fylgi margar áskoranir og ljóst sé að með honum þurfi sérstaklega að fylgjast. Jafn- ræði sé raskað með niður- greiðslum, skattaundanþágum, beinum samningum án útboða og svo framvegis. „Hér gegnir Samkeppniseftirlitið lykilhlut- verki en eftirlitið hefur heim- ildir til að tryggja að opinber fyrirtæki niðurgreiði ekki sam- keppnisrekstur sinn af starf- semi sem nýtur einkaleyfis eða verndar,“ segir hún, og vísar í samkeppnislögin. Svo bætir hún því við að þessi heimild sé mik- ilvæg en vannýtt. Þegar horft er til aðgerða Samkeppniseftirlitsins, og ekki síður aðgerðaleysis, má ætla að þar á bæ sé sérstakur áhugi á ákveðnum greinum og fyrir- tækjum en minni eða enginn áhugi á öðru. Samrunar geta tekið óheyrilegan tíma og kost- að mikið fé og fyrirhöfn. Sum fyrirtæki virðast komast upp með hvað sem er en önnur hafa af einhverjum ástæðum lent undir smásjánni. Þá er augljóst að sáralítill áhugi er á eftirliti með opinberum fyrirtækjum, eins og yfirlögfræðingur Sam- taka iðnaðarins bendir á. Þó er það svo að samkeppni stafar meiri hætta af fyrirtækjum í eigu hins opinbera en fyrir- tækjum sem þurfa að standa sig á markaði og geta ekki leitað í vasa skattgreiðenda stundi þau undirverðlagningu eða misnoti aðstöðu sína með öðrum hætti. Um leið og vonast má eftir gagnlegri skýrslu um seinagang Samkeppniseftirlitsins í sam- runamálum og fleira sem því tengist er því ástæða til að benda á að ekki er síður ástæða til að skrifa um það skýrslu hvort stofnunin sinnir í raun því þýðingarmikla hlutverki sínu að tryggja að opinber fyrirtæki í samkeppni misnoti ekki aðstöðu sína á markaði. Ýmislegt þarfnast skoðunar hjá Sam- keppniseftirlitinu} Skýrsla um eftirlit H lutverk stjórnmálamanna er að bæta samfélagið. Styrkja inn- viðina og skapa grundvöll fyrir einstaklinginn að blómstra á eigin forsendum og uppfylla drauma sína í leik og starfi. Þegar stjórnarsáttmálinn var undirritaður í nóvemberlok 2017 voru markmiðin háleit og metnaðarfull. Núna, 1.267 dögum síðar, er verkefnalistinn svo til tæmdur þrátt fyrir orkuna, tímann og peningana sem hafa farið í baráttuna við Covid-19. Í mennta- og menningarmálum hafa kerf- is- og réttindabætur verið áberandi. Við höf- um aukið faglegt sjálfstæði kennara, fjölgað starfstækifærum með einföldun leyfisbréfa- kerfis, fjölgað kennaranemum og sýnt stétt- inni þá virðingu sem hún á skilið, m.a. með ómældu samráði í öllu helstu málum. Við höfum lagt aukna áherslu á læsi, gefið út ný matsviðmið í 4. og 7. bekk og lagt grunninn að nýju námsmati í stað samræmdra prófa. Við höfum sett af stað verkefni sem miða að þörfum drengja í skólakerf- inu og hafið vinnu við aðalnámskrá leikskóla. Grundvallarbreytingar hafa verið gerðar á verknáms- kerfinu. Iðnmenntaðir hafa nú sama rétt og bók- menntaðir til háskólanáms og skipulagi vinnustaðanáms hefur verið breytt. Jákvæðari viðhorf, grundvallar- kerfisbreytingar og markvisst kynningarstarf hefur aukið mjög áhuga fólks á starfsnámi af ýmsu tagi og að- sóknin er fordæmalaus! Við höfum aukið jafnrétti til náms með nýjum Menntasjóði námsmanna, hækkun á framfærslu- viðmiðum, beinum fjárstuðningi við foreldra í námi, 30% afskrift höfuðstóls námslána við námslok og afnámi ábyrgðarmannakerfisins. Breytingarnar leiða til miklu betri fjárhags- stöðu að námi loknu, sem auðveldar fólki skrefin út í hefðbundið fjölskyldulíf. Við fjölguðum starfslaunum listamanna, veittum fleiri verkefnastyrki, rekstrarstuðn- ing við sjálfstætt starfandi og menningar- tengd fyrirtæki. Fyrstu sviðslistalögin eru orðin að veruleika og Sviðslistamiðstöð er að komast á laggirnar. Við lögfestum starfsemi Íslenska dansflokksins, stofnuðum list- dansráð, breyttum skipan og hlutverki Þjóð- leikhúsráðs og erum að móta framtíðar- umgjörð um óperustarf í landinu. Við mótuðum fyrstu kvikmyndastefnuna, stækk- uðum kvikmyndasjóð og veittum fé til sjón- varpsþáttagerðar. Við settum lög um stuðning við út- gáfu bóka á íslensku, sem hefur nú aukist um tugi prósenta. Fjárveitingar til háskóla og framhaldsskóla hafa aldr- ei verið hærri, tækjakostur verkmenntaskóla hefur ver- ið endurnýjaður og stuðningur við símenntunarmið- stöðvar aukinn. Vísinda- og rannsóknasjóðir hafa stækkað um helming og vinna vegna máltækniáætlunar er á fleygiferð. Verkefnin úr stjórnarsáttmálanum eru flest afgreidd, en ný taka við innan skamms. Róttækar umbætur hafa átt sér stað og meginmarkmiðið er að bæta samfélagið okkar. Lilja Dögg Alfreðsdóttir Pistill Staðan hefur aldrei verið betri Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.