Morgunblaðið - 20.05.2021, Side 31

Morgunblaðið - 20.05.2021, Side 31
31 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021 Þegar dómstólar ljúka dómi á sakarefni dómsmáls ber brýna nauðsyn samkvæmt lögum til þess að þeir beiti öguðum og lög- mætum sjónarmiðum. Í 61. gr. stjórnarskrár okkar segir þannig, að dómendur skuli í emb- ættisverkum sínum fara einungis eftir lög- unum. Í þessu felst að dómendum sé óheimilt að láta ólög- fest huglæg sjónarmið sín eða skoð- anir hafa áhrif á niðurstöðuna. Það eru lögin sem eiga að ráða. Nú er ekki unnt að finna sett lagafyrirmæli um allt það sem á kann að reyna við meðferð máls fyrir dómi. Það breytir ekki kröf- unni um öguð vinnubrögð. Í lög- fræði er kennd sú aðferðafræði sem heimilt er að viðhafa við úrlausn ágreiningsmála. Sá efniviður sem heimilt er að beita nefnist rétt- arheimildir. Þar eru stjórnarskrá og sett lög efst á blaði, en gæti ekki slíkra heimilda reynir á beitingu réttlægri heimilda sem svo eru nefndar. Meðal þeirra eru heimildir sem við köllum eðli máls, for- dæmi og meginreglur laga. Þegar reynir á beitingu slíkra heim- ilda er dómendum sem fyrr óheimilt að láta persónuleg viðhorf ráða dómum sínum. Leit að heimildum þessum og beiting þeirra verður að vera hlutlæg og laus undan persónulegum óska- lista dómara. Frá ungum aldri mínum í lög- fræðinni hef ég leitast við að beita þessum viðhorfum bæði í kenn- ingum og framkvæmd. Ég átti til dæmis fyrir mörgum áratugum í ritdeilu við einn kennara minna í lagadeildinni um þetta en hann hélt því m.a. fram að dómstólar færu með vald til að setja nýjar laga- reglur, sem fóru í bága við lög sem Alþingi hafði sett, og beita þeim síð- an til lausnar ágreiningsefnis. Frá þessari deilu segi ég í endurminn- ingabók minni „Í krafti sannfær- ingar“, sem út kom á árinu 2014. Ég hef haldið því fram að dómari, eða hver sá annar sem í hlut á, verði að ganga út frá þeirri for- sendu að einungis ein niðurstaða sé rétt í því ágreiningsefni sem hann vill leysa úr. Verkefnið sé að finna hana. Það geti oft verið flókið og erfitt en allt að einu sé þetta mark- mið þess aðila sem úr skal leysa. Ég reyndi að viðhafa þetta sjónarmið í starfi mínu sem dómari við Hæsta- rétt á árunum 2004 til 2012. Leiddi það til þess að ég skrifaði fleiri sér- atkvæði en aðrir dómarar á þessu tímabili. Flestir hinna dómaranna töldu sig hafa rýmri heimildir í dóms- starfinu. Reglulega gætti dæma um úrlausnir þeirra sem bersýnilega voru andstæðar efni þeirra réttar- heimilda sem þeim bar að mínum dómi skylda til að beita. Stundum blasti við að þeir væru að beita hug- lægum vildarsjónarmiðum, þó að samdar væru forsendur sem ætlað var að fela þetta. Merkilegt viðtal birtist í útvarps- þætti Kristjáns Kristjánssonar fréttamanns, „Sprengisandi“, sl. sunnudag. Þar var talað við einn fyrrverandi starfsbræðra minna í réttinum, Eirík Tómasson. Hann lýsti í viðtalinu vinnubrögðum sem tíðkuðust í Hæstarétti þegar tekin var afstaða til sakarefnis dómsmál- anna. Hann gerði að vísu allt of mikið úr því að dómarar kæmu vel undirbúnir til þess verks sem fyrir lá. Oft var það því miður ekki svo. Það sem hins vegar skipti mestu máli í ræðu Eiríks var lýsing hans á viðleitni hópsins til að ná samkomu- lagi um niðurstöðuna og forðast sératkvæði. Lýsti hann því hvernig dómendur gáfu eftir á sjónarmiðum sínum og sömdu við hina um niður- stöðuna. Að þessu leyti var lýsing hans rétt, enda má sjá dæmi á löngu árabili um að sumir dómar- anna skiluðu aldrei sératkvæðum. Dómarnir voru byggðir á samkomu- lagi, þar sem einhverjir í hópnum féllust á að beita ekki þeim rétt- arheimildum sem þeir töldu eiga við til að finna rétta niðurstöðu og féll- ust á að fljóta með öðrum sem töldu að standa ætti að málum á annan veg og þá hugsanlega fyrst og fremst í þágu niðurstöðu sem þeir töldu æskilega. Líkti hann þessu við samninga á vettvangi stjórnmála. Ég upplifði það svo að þessi vinnubrögð leiddu til agaleysis við dómsýsluna. Það var eins og dóm- endur færu að trúa því að þeim væri miklu meira heimilt en stjórn- arskrá og meginreglur leyfðu. Þannig urðu til dómsniðurstöður sem engan veginn stóðust. Hef ég skrifað um ýmsar þeirra og þá jafn- an rökstutt nákvæmlega hvað fór úrskeiðis. Ég hef kvartað yfir því að gagn- rýni minni hafi aldrei verið svarað af þeim sem að verki stóðu. Nú hef- ur Eiríkur Tómasson, einn úr hópn- um, rofið þögnina og staðfest rétt- mæti þess sem ég hef lýst. Hafi hann þökk fyrir. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson » Það sem hins vegar skipti mestu máli í ræðu Eiríks var lýsing hans á viðleitni hópsins til að ná samkomulagi um niðurstöðuna og forðast sératkvæði. Lýsti hann því hvernig dómendur gáfu eftir í sjónarmiðum sínum og sömdu við hina um niðurstöðuna. Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er fyrrverandi dómari við Hæstarétt. Samningar um dómsniðurstöður „Heimskautasvæðið hefur meiri áhrif á veðurfar og vistkerfi jarðarinnar en fólk al- mennt ímyndar sér. Þar mætast kaldir og heitir hafstraumar og knýja hringrás heims- hafanna, þar myndast heilu veðurkerfin og þar er að finna eina virkustu uppsprettu lífkeðjunnar,“ var skrifað í ritið Við ystu sjónarrönd í tilefni af lokum fyrsta for- mennskutímabils Íslands í norð- urskautsráðinu. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá, í bók- staflegri merkingu. Ummerki loftslagsbreytinga eru hvergi sýni- legri en á norðurslóðum, þar sem hitastigið hefur hækkað þrefalt meira en heimsmeðaltalið á síð- ustu áratugum. Nú þegar öðru for- mennskutímabili Íslands í norður- skautsráðinu er að ljúka má full- yrða að áhuginn hafi aldrei verið meiri á þessu víðfeðma svæði sem umheimurinn áleit lengi aðeins frosna auðn. Eitt skýrasta dæm- ið um þennan áhuga er aukið vægi norð- urskautsráðsins á al- þjóðasviðinu. Ráðið, sem fagnar 25 ára af- mæli í ár, er tvímæla- laust mikilvægasti samráðsvettvangurinn um málefni svæðisins. Í dag fer ráðherra- fundur þess fram, þar sem ég afhendi Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rúss- lands formennskukeflið. Á for- mennskutímabilinu hefur Ísland lagt áherslu á fjögur meginsvið: málefni hafsins, loftslagsmál og endurnýjanlega orku, fólk og sam- félög á norðurslóðum og loks sterkara norðurskautsráð. Þótt heimsfaraldur hafi vissulega sett strik í reikninginn hefur for- mennska Íslands undanfarin tvö ár gengið afar vel. Tekist hefur að laga starf ráðsins að breyttum að- stæðum og fjölmargir fundir hafa verið færðir á fjarfundaform. Þannig var alþjóðleg vísinda- ráðstefna um plastmengun í hafi, sem íslenska formennskan efndi til, haldin með fjarfundasniði í mars síðastliðnum, svo dæmi sé nefnt. Þrátt fyrir ótvíræða kosti fjar- funda eru mörg mál þess eðlis að þau er ekki hægt að útkljá á slík- um vettvangi. Það er mér því mik- ið ánægjuefni að geta hitt utan- ríkisráðherra ríkja norðurskauts- ráðsins augliti til auglitis hér í Reykjavík. Sú staðreynd að allir utanríkisráðherrar aðildarríkjanna mæta til fundarins við þessar að- stæður sýnir glöggt að ráðið stendur styrkum fótum á 25 ára afmælisárinu. Vonir standa til þess að niðurstöður verkefna sem unn- in voru í formennskutíð Íslands verði samþykktar og starfsáætlun ráðsins undir komandi for- mennsku Rússlands. Sömuleiðis eru bundnar vonir við að sam- þykkt verði fyrsta framtíðarstefna ráðsins til næstu tíu ára og að skrifað verði undir svokallaða Reykjavíkuryfirlýsingu um að friði, stöðugleika og uppbyggilegri samvinnu verði viðhaldið á þessu viðkvæma svæði. Norðurslóðamálin hafa verið rauður þráður í íslenskri utan- ríkisstefnu síðustu misseri enda snerta þau hagsmuni Íslands með margvíslegum hætti. Þrjár nýjar skýrslur bera vitni um þá ríku áherslu sem við leggjum á málefni norðurslóða. Í síðustu viku kom út skýrslan Norðurljós sem fjallar um efnahagstækifæri á norður- slóðum. Í mars tók ég við tillögum þingmannanefndar um nýja norð- urslóðastefnu. Í byrjun árs kom einnig út viðamikil skýrsla þar sem fjallað er um aukið samstarf Íslands og Grænlands og er hún umfangsmesta úttekt sem hefur verið gerð á samskiptum land- anna. Alþingi fjallar nú um þings- ályktunartillögu sem byggist á þeirri skýrslu og samþykkti í gær þingsályktun um nýja norður- slóðastefnu. Það eru ánægjuleg tíðindi. Ekki þarf að búa yfir miklu ímyndunarafli til að sjá fyrir sér áhrif loftslagsbreytinga á norð- urslóðum. Hlýnun loftslags og bráðnun íss hefur miklar áskoranir í för með sér og felur í sér breytta heimsmynd. Nýjar samgönguleiðir milli heimsálfa munu opnast og samfélög og svæði sem áður voru fjarri færast nær. Ísland er allt innan þess svæðis sem iðulega er skilgreint sem norðurslóðir. Við erum því í lykilstöðu til þess að marka okkur sérstöðu sem norður- slóðaríki og til að nýta ýmis tæki- færi sem felast í auknum áhuga umheimsins á svæðinu. Þess vegna þarf Ísland að vera búið undir að verja hagsmuni sína, stuðla að já- kvæðum samskiptum ríkja á norð- urslóðum og grípa tækifæri þegar þau gefast. Um það er ekki deilt. Áttavitinn vísar alltaf í norður Eftir Guðlaug Þór Þórðarson Guðlaugur Þór Þórðarson » Það er fagnaðarefni að Alþingi hefur nú samþykkt þings- ályktunartillögu um nýja norðurslóðastefnu sem byggð er á tillögum þingmannanefndar. Höfundur er utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra. Síðastliðið ár hefur verið krefjandi fyrir okkur landsmenn. Við þurftum að bregðast snögglega við óvæntri ytri ógn, móta við- bragð við heimsfar- aldri. Frá upphafi hef- ur markmið stjórn- valda verið að tryggja heilsu, öryggi og af- komu fólks. Lágmarka efnahagslegan skaða með stuðningi við fyrirtæki og grunnstoðir sam- félagsins. Skapa skjól, en um leið leggja grunn að öflugri viðspyrnu fyrir efnahagslífið. Mikilvægur þáttur við ákvarðana- töku í slíkum aðstæðum felst í að hlusta á fólk og rekstraraðila svo forgangsraða megi aðgerðum með árangursríkum hætti. Þótt nú sjáist til sólar framlengdi ríkisstjórnin nýlega ýmsar stuðn- ingsaðgerðir fyrir fólk og fyrirtæki, enda hefur ástandið varað mun lengur en flestir gerðu ráð fyrir í fyrstu. Í þeirri vegferð létum við þessi sjón- armið ráða för. Að framlengja og rýmka úrræði sem við sáum og heyrðum að skiluðu árangri. Lausnir sem virka Eitt þeirra úrræða sem hafa nýst fjölda fyrirtækja undanfarna mánuði eru viðspyrnustyrkir. Í vor bárust hins vegar ábendingar um að þröskuldurinn væri of hár, þannig að einhver fyrirtæki sem sannarlega þyrftu stuðning féllu á milli. Við réð- umst því í að lækka tekjufallsmörkin og höfðum breytinguna afturvirka, til að grípa örugglega þá sem þurftu. Úttekt séreignar nýttist mörgum heimilum til að brúa bilið í fyrra, en sérstök heimild þess efnis rann út um áramótin. Bent var á að enn væri full þörf á slíku úrræði, svo við fram- lengdum gildistímann og nú verður hægt að nýta heimildina út árið 2021. Þrátt fyrir stóraukna bjartsýni í atvinnulífinu og mikinn viðnáms- þrótt fyrirtækja er enn víða þörf á auknu svigrúmi. Við tryggðum því áframhaldandi greiðsludreifingu opinberra gjalda fyrir rekstraraðila sem á þurftu að halda, í allt að 48 mánuði. Áfram mætti lengi telja, en ný, framlengd og rýmkuð úrræði eru á annan tug. Séreign nýtist áfram inn á lán Utan þess sem beinlínis snýr að heimsfaraldrinum er mikilvægt að sömu sjónarmið ráði för í öllum okk- ar störfum. Að við leggjum áherslu á lausnir og aðgerðir sem skila raun- verulegum árangri. Í þeim anda mælti ég nýlega fyrir frumvarpi um framlengda heimild til að ráðstafa séreignarsparnaði skatt- frjálst inn á húsnæðislán. Heimildin rynni ella út í sumar, en hún hefur nýst um 60 þúsund Íslendingum. Með leiðinni hefur fólki verið gef- inn kostur á að nýta aukasparnað skattfrjálst til að létta af sér skuld- um og auka fjárhagslegt svigrúm. Heimilin hafa þegar nýtt tugi millj- arða í þessu skyni og eftirspurnin eftir framlengingu verið mikil. Með breytingunni er tryggt að þetta verði hægt áfram. Bjartari tímar Þegar við stöndum á lokametrum baráttunnar við heimsfaraldur er gott að líta um öxl og spyrja sig; hvað gekk vel, hvað mátti gera betur og hvernig getum við lært af reynsl- unni? Í því samhengi er ánægjulegt að sjá að margt hefur sannarlega gefist vel. Kaupmáttur ráðstöfunar- tekna jókst í fyrra, þrátt fyrir allt, og innlend eftirspurn dróst aðeins lítillega saman. Mikillar bjartsýni gætir nú í atvinnulífinu, ánægja mælist með aðgerðir stjórnvalda og fleiri fyrirtæki sjá fram á að fjölga starfsfólki en fækka. Okkur hefur tekist að brúa bilið fyrir svo marga. Bólusetningar ganga vel og við sjáum fram á bjart- ari tíma með frekari tilslökunum á samkomutakmörkunum. Um þetta hefur okkar stefna snú- ist og um þetta mun hún áfram snú- ast. Að láta verkin tala. Að vera djörf og ákveðin, hafa trú á tækifær- um og möguleikum þjóðarinnar, sýna þrautseigju og sækja kraft í samstöðuna. Það skiptir aldrei meira máli en í sterkum mótbyr. Við erum skref fyrir skref að kom- ast út úr kófinu. Nú birtir til að nýju. Verkin tala Eftir Bjarna Benediktsson Bjarni Benediktsson »Mikillar bjartsýni gætir nú í atvinnulíf- inu, ánægja mælist með aðgerðir stjórnvalda og fleiri fyrirtæki sjá fram á að fjölga starfs- fólki en fækka. Höfundur er fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.