Morgunblaðið - 20.05.2021, Page 36

Morgunblaðið - 20.05.2021, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is stalogstansar.is Allt til kerrusmíða 2012 2020 Elínrós Líndal elinros@mbl.is Guðrún Björg og Ingimar Örn eiga fimm börn og vita fátt skemmti- legra en að hafa nóg fyrir stafni. Þegar þau misstu vinnuna vegna kórónuveirunnar nýverið ákváðu þau að láta gamlan draum vinkonu sinnar rætast. „Við erum bæði þrautseig og já- kvæð og ákváðum að nýta okkur þetta erfiða tímabil og þann tíma sem við höfðum til að láta draum okkar bestu vinkonu rætast. Að gera lítinn bíl að fallegu smáhýsi á hjólum. Fyrir utan bílinn hef ég líka verið að vinna við ljósmyndirnar mínar og einnig myndir sem ég geri í grafík. Ég stefni að því að setja upp vefsíðu fyrir það innan skamms. Ég er áhugaljósmyndari sem elska að taka myndir af dýrum úti í nátt- úrunni.“ Vildu láta drauminn rætast Hver er sagan á bak við smá- hýsið? „Ford Transit-bíllinn var notaður sem sendibíll hjá Sóma-samlokum. Hann var keyptur strípaður að inn- ann svo við byrjuðum á algjörum grunni. Vinkona mín var búin að vera að fylgjast með „tiny homes“ víðs veg- ar um heiminn. Það var búinn að vera draumur hennar í tvö ár að gera slíkt hið sama. Þegar við hjón- in misstum vinnuna þá ákváðum við í samráði við hana að gera þetta fyrir hana og láta draum hennar rætast á meðan við biðum eftir því að fá vinnuna okkar aftur.“ Guðrún Björg og Ingimar Örn eru þekkt fyrir að vera handlagin. „Við tókum húsið okkar sem er 40 ára gamalt í gegn og breyttum því og bættum. Að mestu með því að lappa upp á það sem fyrir var og blanda aðeins nýtt með gömlu. Einnig keyptum við gamalt fellihýsi sem við tókum alveg í gegn á síð- asta ári með því að lakka, filma og fatalita gardínur og fleira. Þar fyrir utan er ég oft að fara á hina og þessa staði og hugmyndavinna með vinum og vandamönnum þeirra hús. Hvað hægt sé að gera og nýta.“ Smáhýsin þurfa ekki að kosta svo mikið Hvernig lýsirðu smáhýsinu og hvað má gera ráð fyrir að svona umbreyting kosti? „Smábíllinn hefur allt sem þú þarft á litlu heimili. Hita, tengingu fyrir landrafmagn, sólarsellu, ís- skáp, vask með rennandi vatni, kló- sett og olíukyndingu. Þú í rauninni getur verið hvar sem er í bílnum og verið eins og heima hjá þér. Verðið fer algjörlega eftir því hversu nýjan bíl þú kaupir þér og hvort þú getur unnið verkið sjálfur. Sama á við það sem keypt er inn í bílinn. En það er hægt að gera þetta á verði sem flestir ættu að geta ráðið við. Fólk fer þær kostnaðarleiðir sem henta hverjum og einum.“ Er þetta eitthvað sem við Íselnd- ingar eigum að gera í auknum mæli? „Jú, ég myndi mæla með þessu alla leið fyrir okkur Íslendinga. Þú getur farið hvert sem er með litla sæta heimilið þitt með þér.“ Allt sem þarf í smáhýsinu Hversu flóknar eru svona umbæt- ur? „Við byrjuðum á því að einangra bílinn og setja parket á gólfin. Við klæddum hann með timbri, tengd- um rafmagn, settum klósett og að endingu settum við fallega litla hluti inn í hann. Eldhúsinnrétting, vaskur og blöndunartæki voru keypt í IKEA. Timbrið í Húsasmiðjunni. Einangr- unina fengum við í Þ. Þorgríms og skrúfurnar í Bykó svo eitthvað sé nefnt. Sólarsellu, vatnsdælu og raf- magnsstýringu og lýsingu fengum við í Rótor. Aðra rafmagnshluti fengum við í Asco á Akureyri. Fyrir skreytingar, hillur og smá- hluti í svona bíla má mæla með Fakó, Söstrene Grene, Vogue fyrir heimilið og Álafoss. Síðan er gott að fá faglega aðstoð og ráðleggingar hjá Go Campers.“ Gaman að gera gamalt nútímalegt Bíllinn verður fyrst og fremst hlýlegur með fallega lýsingu að sögn Guðrúnar Bjargar. Eins er mikilvægt í hennar huga að smá- hýsið sé skreytt í anda eigandans. „Ég mæli með því við alla að láta drauma sína rætast og ef þú ert ein eða einn og sérð ekki fram á að geta þetta talaðu þá við vin eða fagaðila og fáðu þá með þér í verkið. Alveg eins og við gerðum með fellihýsið okkar þegar við tókum það í gegn. Þá bara fórum við í málið og höfum deilt okkar reynslu með þær breyt- ingar til þeirra sem eru í sömu pæl- ingum. Að taka eitthvað gamalt og setja það inn í nýja tíma er minna mál en þú heldur. Stundum er bara nóg að byrja og að vera duglegur að kalla eftir hjálp og upplýsingum þegar þess er þörf.“ Nýttu tímann til að láta draum vin- konu sinnar rætast Guðrún Björg Björnsdóttir flugfeyja og eiginmaður hennar, Ingimar Örn Karlsson flugmaður, gerðu fallegt smáhýsi fyrir vinkonu sína þegar þau misstu vinnu sína vegna kórónuveirunnar. Ljósmynd/Guðrún Björg Þrautseigja og jákvæðni Guðrún Björg og Ingimar Örn misstu starfið sitt vegna kórónuveirunnar. Þau nýttu tímann og létu draum vinkonu sinnar rætast: Að breyta litlum sendibíl í smáhýsi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.