Morgunblaðið - 20.05.2021, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 20.05.2021, Blaðsíða 40
Á laugardaginn verður heldur betur heitt í kolunum í Helgarútgáfunni en þá verður sérstök þriggja stiga stórveisla hjá þeim Einari Bárðar, Önnu Möggu og Yngva Eysteins. Þríeykið ætlar að bregða undir sig betri fætinum og koma sér fyrir í húsnæði Máls og menningar á Laugavegi og gera allt vitlaust því í ár eru 20 ár frá mesta afreki Ís- lendinga á Parken, heimavelli Dana. Af því tilefni og af því að loka- keppnin fer fram í Rotterdam á laugardag verður ansi mikið Euro- stuð í Máli og menningu en meðal þeirra gesta sem kíkja í heimsókn Það verður af nægu að taka hjá þeim Einari Bárðar, Önnu Möggu og Yngva Eysteins í Helg- arútgáfunni á laugardag- inn þegar þau verða í beinni útsendingu frá húsnæði Máls og menn- ingar á Laugavegi. eru Kristján Gísla og Gunni Óla sem voru í ferðinni frægu með Ein- ari. En þá er ekki allt upp talið því nokkrar af skærustu Euro- stjörnum okkar Íslendinga koma í heimsókn, fá sér Lavazza og bresta kannski í söng. Jóhanna Guðrún, Birgitta Hauk- dal, Sigga Beinteins, Friðrik Ómar og Jogvan mæta en Karl Örvarsson verður á flyglinum og leikur nokkur vel valin lög með gestunum. Þá líta þau Einar, Anna Magga og Yngvi í kringum sig og fá til sín kaupmenn og veitingafólk í mið- borginni sem er að springa út eftir vetur og veiru og við það að komast í dúndrandi gír. Hlustaðu á Helgarútgáfuna í beinni útsendingu á K100 laug- ardaginn 22. maí á milli 9 og 13. Euro-stjörnur taka lagið í Helgarútgáfunni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sigga Beinteins Mætir í Helgarútgáf- una á laugardaginn. Ljósmynd/Aðsend Jóhanna Guðrún Sló heldur betur í gegn þegar hún tók þátt í Eurovision. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 2021 Lifandi píanótónlist öll föstudags- og laugardagskvöld Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Borðapantanir í síma 558 0000 eða á www.matarkjallarinn.is TAKE AWAY 25% afsláttur af sérstökum Take Away matseðli ef þú sækir Frí heimsending á pöntunum yfir 12.000 kr. gildir ekki með öðrum tilboðum. SÓLGLERAUGU frá Aspinal of London LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Dj Dóra Júlía dorajulia@k100.is Kramhúsið í miðbæ Reykjavíkur hef- ur löngum verið þekkt fyrir fjölbreytt og skemmtileg námskeið og dans- gleðin verið í fyrirrúmi. Nadia Semic- hat starfar sem verkefnastjóri og danskennari þar og stýrir meðal ann- ars námskeiðinu Hips Don’t Lie. Ásamt því hefur hún unnið sem uppistandari, dansari í Reykjavík Ka- barett og sjálfstætt starfandi hand- ritshöfundur. Ég spjallaði aðeins við Nadiu um það sem fram undan er en dans hefur svo sannarlega haft mót- andi áhrif á líf Nadiu og hefur hún dansað frá því hún man eftir sér. „Ég hugsa að ég hafi komið dans- andi út úr mömmu minni strax við fæðingu. Mamma mín og systir voru duglegar að kynna mér tónlist alls staðar að úr heiminum. Þær voru báðar í afró í Kramhúsinu og ég fór oft með að horfa á. Ég fór svo sjálf að æfa dans í Kramhúsinu þegar ég var unglingur og fékk að prófa alls kyns stíla úr mörgum heimshornum og hef eiginlega verið límd við Kramhúsið síðan þá,“ segir Nadia. Nadia hannaði námskeiðið sitt Hips Don’t Lie sérstaklega til að losa um stirðleika í mjöðmum. Hún segir hugmyndina hafa komið til sín þegar hún var búsett í New York í handrits- námi. Ásamt náminu var hún í dans- tímum í afrískum dansskóla og jóga. „Mig langaði til þess að hanna hresst námskeið þar sem megin- áherslan eru dansæfingar við skemmtilega tónlist til þess að losa um hömlur og stirðleika í skandinav- ískum mjöðmum. Ég blanda því sam- an ýmsum dansstílum eins og afró, afrobeat, dancehall, magadansi og salsa,“ segir Nadia og þetta hljómar eins og mikið fjör! Nú í júní verður hún með fjögurra vikna námskeið í Kramhúsinu og hægt er að skrá sig á www.kramhus- id.is. Hún segist einnig bjóða upp á „drop in“-tíma í maí á mánudögum og miðvikudögum fyrir þá sem vilja prófa. Um að gera að losa mjaðm- irnar og gera það á svona skemmti- legan hátt! „Hugsa að ég hafi komið dansandi út úr mömmu minni“ Hip’s don’t lie Nadia hefur verið umkringd dansi frá barnæsku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.